Fréttablaðið - 13.10.2014, Page 46

Fréttablaðið - 13.10.2014, Page 46
13. október 2014 MÁNUDAGUR| MENNING | 18 www.fiskikongurinn.is PÖNNUSTEIKJA HEILANN EÐA Í OFNI VELTA UPP ÚR HVEITI OG EGGI STEIKJA Á PÖNNU MEÐ HOLLANDAIS SÓSU SETJA Í OFN VIÐ 180 GRÁÐU HITA Í 20 MÍNÚTUR FISKIKÓNGURINN S0GAVEGI 3 HÖFÐABAKKA 1 Sími 587 7755 HAUSAÐUR KOLI GILDIR ALLA VIKUNA ÓDÝRT FYRIR ÞIG OG ÞÍNA RAUÐSPRETTUFLÖK RAUÐSPRETTURÉTTUR M/ SÍTRÓNUSMJÖRI ROÐLAUS OG BEINLAUS TÓNLIST ★★★★ ★ Guitar Islancio GUITAR ISLANCIO Í SALNUM Í KÓPA- VOGI FÖSTUDAGINN 10. OKTÓBER. Ég hef heyrt að eina leiðin til að fá tvo gítarleikara til að spila hreint sé að skjóta annan þeirra. En ég fann aldrei fyrir þörf fyrir að draga upp skamm- byssu á tónleikum Guitar Islan- cio á föstudagskvöldið. Hópurinn samanstendur af Birni Thoroddsen og Gunnari Þórðarsyni á gítara og Jóni Raf- nssyni á kontrabassa. Þeir hafa verið í pásu undanfarin sex ár, en komu nú fram fyrir áheyrend- ur í Salnum í Kópavogi. Reyndar voru ekki margir tónleikagestir, merkilegt nokk. Ég sat á svölun- um og var nánast einn. Það kom á óvart. Guitar Islancio var vin- sæl hljómsveit eftir því sem ég best veit. Hún hefur haldið tón- leika víða um heim. En sex ára hlé frá tónleikahaldi er kannski nóg til að gleymast. Tónlistin sem þeir kumpánar léku var þægileg áheyrnar. Yfir henni var djassyfirbragð, sem þó var mjög afslappað. Þarna voru þekkt íslensk lög eins og Ólafur Liljurós og hið færeyska jóla /vikivakalag Góða veislu gjöra skal. Svo gat að heyra tón- list eftir Stevie Wonder, Django Rheinhardt og þar fram eftir götunum. Leikurinn var ávallt til fyrir- myndar, kraftmikill og litrík- ur. Gítarspilið var glitrandi og hljómfagurt, bassinn líflegur og taktfastur. Samspilið var pott- þétt, það var greinilegt að þre- menningarnir hafa unnið lengi saman. Stemningin í salnum var góð eins og nærri má geta. Inn á milli laganna reyttu þeir Björn og Gunnar af sér brandarana. Fólk skellihló. Margt af bröndur- unum var um ýmislegt sem hefur komið fyrir hljómsveitina á tón- leikaferðum. Ein sagan var af Stevie Wonder, sem er átrúnað- argoð þeirra. Þeir voru þá á flug- velli og sáu goðið ekki langt frá, ásamt hópi lífvarða og annarra starfsmanna. Guitar Islanc io var með gítarana uppi við, svo ekkert fór á milli mála að tónlistarmenn voru á ferð. Kom Wonderinn til Íslendinganna og heilsaði upp á kollegana? Ó nei. Hann gekk bara fram hjá þeim og virti þá ekki viðlits. Auðvitað hafði hann góða afsökun, því hann er blindur. En lífverðirnir hefðu fjandakornið geta látið hann vita. Svona voru nú öll kynnin af meistaranum. Hvílík vonbrigði! Svo sem áður hefur komið fram var það ekki bara Stevie Wonder sem gaf Guitar Islancio engan gaum. Synd var hversu fáir voru á tónleikunum, því þeir voru svo fínir. Ég kom þangað örþreyttur eftir vikuna; það var ljúft að láta líða úr sér og njóta tónlistarinnar. Ég á ekki geisladiska hópsins, en ég get vel ímyndað mér að það sé huggulegt að hafa þessi skemmti- legu lög á fóninum. Svona þegar maður vill slaka á og lakka á sér táneglurnar. Annað getur bara ekki verið. Jónas Sen NIÐURSTAÐA: Flottir tónleikar með áheyrilegri og líflegri tónlist. Spila- mennskan var frábær. Óþarfi að skjóta gítarleikarann BÆKUR ★★★★ ★ Maðurinn sem hataði börn Þórarinn Leifsson MÁL OG MENNING Maðurinn sem hataði börn eftir Þórarin Leifsson fjallar um tólf ára dreng, Sylvek, sem býr ásamt ömmu sinni í vesturbæ Reykjavík- ur. Þau fluttu þangað frá Barcelona þegar þeim áskotnaðist óvænt hús þar í bæ. Hugmynd- ir þeirra og vonir um Ísland voru afar glæstar en segja má að nýju heimkynnin standi ekki alveg undir væntingum. Ekki batn- ar það svo þegar ungir drengir fara að finnast myrtir í hverfinu þeirra. Um svipað leyti flytur fámáll maður í risher- bergið heima hjá þeim, en hann segist hata börn. Bókin er sneisafull af hárbeittri ádeilu á samfé- lag okkar. Blanda af léttri háðsádeilu og harðri gagnrýni á samfélagslega rétthugsun, eða öllu heldur ríkjandi skort á henni. Höfundur velur sögumanni sínum sjónarhorn innflytjanda. Þannig fær ákveðinn minnihlutahópur sam- félagsins rödd, hópur sem gjarn- an hefur sætt fordómum. Með því að segja söguna út frá sjónarhorni Sylv eks varpar höfundur auk þess ljósi á samfélag okkar, sem er okkur svo kunnugt en sögumanni fram- andi og furðulegt. Lesandinn nær miklu frekar tengingu við aðalpers- ónuna heldur en samfélagið sem byggt er á íslenskum samtíma. Það er spillt og nokkuð ógeðslegt. Fáránleikinn er allsráðandi í sög- unni og undirrituð viðurkennir fús- lega að hún skellti upp úr nokkrum sinnum þar sem hún las í bókinni á almannafæri. Kaldhæðni einkenn- ir söguna að miklu leyti og heldur uppi annars stórfurðulegum sögu- þræði sem fléttast saman að lokum. Sögusviðið er sem fyrr segir byggt á íslenskum raunveruleika en þó sett fram sem ein- hvers konar hliðarver- öld. Gráglettnar teikning- ar Þórarins sem prýða bókina glæða persónur og umhverfi lífi. Sér- staklega er framsetn- ingin á stera tröllunum kostuleg, sem og ömm- unni Silvíu Kandellu Mariu Karmen Arias, sem reyndar hefur neyðst til að taka upp íslenska nafnið Sig- ríður Sjutt. Amman er sannarlega ein af fyndnari persónum sögunn- ar, þótt bókin sé raunar uppfull af stórskemmtilegum og frumlegum persónum. Halla Þórlaug Óskarsdóttir NIÐURSTAÐA: Hress og bráðfyndin saga, þó með drungalegu yfirbragði. Hárbeitt en samt svo lúmsk ádeila á íslenskt samfélag, sett fram í furðu- sagnastíl. Fáránleiki og hárbeitt ádeila MENNING

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.