Fréttablaðið - 13.10.2014, Blaðsíða 47

Fréttablaðið - 13.10.2014, Blaðsíða 47
MÁNUDAGUR 13. október 2014 | MENNING | 19 E N N E M M / S ÍA / N M 6 4 6 14 Skammdegið er skemmtilegt, sérstaklega þegar maður er vel búinn. Þeir sem eru með F plús fjölskyldutryggingu geta sótt sér hlýja og skínandi fallega húfu eða eyrnaband á næstu þjónustuskrifstofu VÍS. Sjáumst með F plús VÍS | ÁRMÚLA 3 | 108 REYKJAVÍK | SÍMI 560 5000 | VIS.IS Á aðventunni mun St. Petersburg Festival Ballet sýna balletinn Hnotubrjótinn við tónlist Tsjaí- kovskís sem leikin er af Sinfón- íuhljómsveit Íslands í Hörpu. Sýningar verða frá 21. til 23. nóvember í Eldborg. Stjórnandi er Sergey Fedoseev, danshöfund- ur er Marius Petipa og búningar og umgjörð eru í höndum Vyach- eslavs Okunev. Sýningin á Hnotubrjótnum mun vera sú fyrsta þar sem Sin- fóníuhljómsveit Íslands leikur með St. Petersburg Festival Ball- et sem skipaður er fremstu list- dönsurum ballettsins og dönsur- um úr úrvals dansflokkum. Hnotubrjótur- inn í Hörpu Spurningin sem varpað verður fram á heimspekikaffi í Gerðu- bergi á miðvikudagskvöldið kvöld er: Hvers vegna gera samfélög mannréttinda og mannúðar loft- árásir? Gunnar Hersveinn rit- höfundur ræðir um styrkleika mjúklyndis og veikleika harð- lyndis og Inga Dóra Pétursdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi, talar síðan um birt- ingarmyndir ófriðar fyrir konur og börn í Afganistan en hún er nýkomin heim eftir hálfs árs vinnu í Afganistan á vegum frið- argæslunnar sem kynjasérfræð- ingur hjá NATO. Dagskráin hefst klukkan 20 og eru allir velkomnir. Mjúklyndi og harðlyndi Zeynep, Caglar og Saadet bjóða í dag klukkan 17.30 gestum og gangandi að kynnast tyrk- neskri menningu og tungu í Café Lingua. Austurlensk stemming verður ríkjandi þar sem dans, ljóð, lifandi tónlist og bækur munu leiða þátttakendur inn í tyrkneskan heim. Boðið verður upp á tyrkneskt kaffi og tyrk- neska sælu. Viðburðurinn er í samvinnu við Tyrknesk-íslenska menningar- félagið og fer fram í aðalsafni Borgarbókasafnsins, Tryggva- götu 15. Allir velkomnir. Tyrknesk sæla á bókasafni Bókmenntaborgin býður upp á furðusagnasmiðjur með rithöfund- inum og bókmenntafræðingnum Emil Hjörvari Petersen á Lestr- arhátíð í Bókmenntaborg 2014, en hún er nú haldin í þriðja sinn undir heitinu Tími fyrir sögu. Emil hefur þegar haldið þrjá opna fyrirlestra um furðusögur en nú er komið að því að áhugasamir geti spreytt sig á því að skrifa sínar eigin sögur. Smiðjurnar fara fram í Borgar- bókasafni Reykjavíkur í Tryggva- götu 15. Hópurinn hittist fjórum sinnum og er fyrsti tíminn á morg- un klukkan 17. Athugið að það þarf að bóka þátttöku í ritsmiðjurnar og að sami hópurinn tekur þátt í öllum smiðjunum fjórum. Meðal þess sem unnið verður með eru frumdrög, hugmynda- og rannsóknarvinna, hvernig fléttur eru myndaðar, bygging mótuð og atburðarás þróuð. Rætt verður um notkun íslenskunnar í furðusögum og persónusköpun, bygging sam- tala, sjónarhorn og stílbrögð verða áberandi. Ritsmiðjurnar eru öllum opnar sem hafa náð átján ára aldri. Þær henta bæði þeim sem hafa reynslu af ritstörfum og þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref, því smiðjurnar byggjast á nokkru sem er nýtilkomið hér á landi; á furðusögum sem skrif- aðar eru á íslensku. Þátttaka er ókeypis. Emil Hjörvar er höfundur þrí- leiksins Saga eftirlifenda, en síð- asta sagan í seríunni er væntan- leg nú í október. Smiðjur Emils Hjörvars að hefj ast Emil Hjörvar Petersen heldur ritsmiðjur um furðusagnaskrif. FURÐUSAGNA- SPEKÚLANT Emil Hjörvar hefur vakið ath- ygli fyrir þríleik sinn, sögu eftirlifenda. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA HEIMSPEKINGUR Gunnar Hersveinn talar um styrkleika mjúklyndis og veikleika harðlyndis í Gerðubergi á miðvikudagskvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.