Fréttablaðið - 22.10.2014, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 22.10.2014, Blaðsíða 54
22. október 2014 MIÐVIKUDAGUR| LÍFIÐ | 24 BAKÞANKAR Ragnheiðar Tryggvadóttur Daniel Radcliffe segir að það verði skrítið að sýna börnunum sínum Harry Potter-myndirnar, þar sem hann lék aðalhluverkið. Spurður í spjallþættinum Lorr aine hvort myndirnar muni stand ast tímans tönn sagði hann: „Munu þeir eða munu þeir ekki endurgera þær áður en börnin mín vaxa úr grasi? Munu börnin mín segja: „Var pabbi hinn upp- haflegi Harry Potter?““ sagði hinn 25 ára Radcliffe, sem er barnlaus enn sem komið er. „Þetta gæti alveg gerst. Ég hef hugsað um það á hvaða aldri ég ætti að láta börnin mín sjá þessar myndir vegna þess að þetta er svo skrítið.“ Börnin fá að sjá Harry Potter DANIEL RADCLIFFE Leikarinn veltir fyrir sér hvort Harry Potter-myndirnar verði endurgerðar áður en börnin hans vaxa úr grasi. Leikkonan Carmen Electra segir að það hafi verið mistök að gift- ast körfuboltamanninum fyrrver- andi, Dennis Rodman. Hún hafi á þessum tíma verið haldin sjálfs- eyðingarhvöt eftir dauða móður sinnar árið 1998. „Fólk skildi ekki af hverju ég elskaði hann vegna þess að hann var þekktur fyrir að vera vondi strákurinn. Til að byrja með sá ég í honum viðkvæman risa sem var uppfullur af sársauka,“ sagði Electra í þætti Oprah Winfrey, Where Are They Now? Mistök að gift ast Rodman MEÐ RODMAN Electra var gift Rodman í aðeins fimm mánuði. Leikarinn Brad Pitt segist hafa breyst eftir að hann gekk að eiga Angelinu Jolie í ágúst. Parið gekk í hjónaband eftir níu ára samband en þau hafa staðið í ströngu undanfarin ár við að ala upp sex börn, Maddox, Pax, Zahara, Shiloh og tví- burana Knox og Vivienne. „Við eigum sex börn og þess vegna fannst okkur við ekki þurfa á hjónabandi að halda. En krakkarnir voru alltaf að spyrja okkur og okkur fannst fallegt að gera þetta, bæði fyrir þau og fyrir okkur sem fjölskyldu,“ sagði Brad, en nýjasta mynd hans nefnist Fury. „En áhrifin sem giftingin hafði á mig komu mér á óvart. Þetta var meira en bara athöfn, þetta var djúp skuldbind- ing. Mér líður virkilega eins og kvæntum manni.“ Þrátt fyrir að vera tólf árum eldri en Angelina segir Brad það ekki skipta neinu máli. „Við erum líklega á svipuðu reki hvað þroska varðar,“ segir leikarinn. Djúpstæð áhrif gift ingarinnar komu á óvart Leikarinn Brad Pitt segist hafa breyst eft ir að hann gekk að eiga Angelinu Jolie eft ir níu ára samband. ANGELINA OG BRAD Tólf ára aldursmunur skiptir engu máli, að mati Brads. NORDIC PHOTOS/GETTY En krakkarnir voru alltaf að spyrja okkur og okkur fannst fallegt að gera þetta Brad Pitt. BORGRÍKI KL. 5.45 - 8 - 10.10 GONE GIRL KL. 5.45 - 9 THE EQUALIZER KL. 10.15 PARÍS NORÐURSINS KL. 5.45 - 8 BOYHOOD KL. 9 VONARSTRÆTI KL. 6 BORGRÍKI KL.5.45 - 8 - 10.10 BORGRÍKI LÚXUS KL. 3.30 - 5.45 - 8 GONE GIRL KL. 4.45 - 8 - 10.30 GONE GIRL LÚXUS KL. 10.10 DRACULA KL. 10.45 THE EQUALIZER KL. 8 THE MAZE RUNNER KL. 5.30 - 8 KASSATRÖLLIN ÍSL TAL 2D KL.3.30 - 5.45 KASSATRÖLLIN 3D ÍSL TAL KL. 3.30 SMÁHEIMAR 2D KL. 3.30 „TÖ FF, BRENGLUÐ OG Ö GRANDI“ - EMPIRE „EIN AF ALBESTU MYNDUM ÁRSINS“ -T.V., BIOVEFURINN -V.J.V, SVARTHÖFÐI.IS -H.S.S.,MBL -H.S.S.,MBL BORGRÍKI 2 5:50, 8, 10:10 KASSATRÖLLIN 2D 5:50 GONE GIRL 10 DRACULA UNTOLD 8, 10:20 WALK AMONG TOMBSTONES 5:40, 8 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar ÍSL TAL H V ÍT A H Ú SI Ð / S ÍA ÁLFABAKKA AKUREYRI EGILSHÖLL KRINGLUNNI KEFLAVÍK ROBERT DOWNEY JR OG ROBERT DUVALL FARA Á KOSTUM Í FRÁBÆRRI MYND SEM KEMUR SKEMMTILEGA Á ÓVART NEW YORK OBSERVER TOTALFILM.COM Grjónagrautur, kjötbollur, lasanja, grjónagrautur, kjötbollur, lasanja, las- anja, kjötbollur, grjónagrautur. Örbylgju- réttir fyrir sjálfstæða Íslendinga hafa verið uppistaðan í fæði fjölskyldunnar undanfarið. Þá höfum við „kíkt við“ á kvöldmatartíma hjá tengdó nokkuð oft. Og pantað pitsur. Margar, margar pitsur. Við höfum líka náð að fullkomna tæknina við að harðsjóða egg í hraðsuðukatl- inum og ristað brauð er sannarlega tekið gilt sem „heit máltíð“. Instant- núðlur með smjöri og tómatsósu hafa þó ekki náð vinsældum sem staðgeng- ill spagettís. Veit ekki af hverju. SJÁLFSAGT erum við langt frá því að standa við 248 krónurnar á manninn en það verður bara að hafa það. ÁSTÆÐA þessa matseðils er sú að það standa yfir framkvæmd- ir í eldhúsinu heima. Þær hófust fyrir meira en mánuði og áttu að standa stutt. Í bjartsýnis- kasti aftengdum við því öll tæki til eldunar um leið og einungis fyrir tóma leti að við aftengdum ekki vatn og vask líka. Við höfum því getað þvegið upp og hellt upp á kaffi. Og soðið egg í hraðsuðukatlinum. SKYNDIÁKVARÐANIR og ófyrirséðar uppákomur hafa einkennt alla þessa fram- kvæmd. Bara rétt áðan hringdi bóndinn og spurði hvort lengdin ætti að vera 95 eða 92? Hann var staddur í plötusöguninni og ég svona hálfpartinn sló á 92. Merkilegt nokk hafði hann vit fyrir okkur báðum og ákvað að við skyldum mæla betur í kvöld og láta saga á morgun. Þrisvar höfum við sett upp sömu skápana og í hvert skipti og þeir eru komnir á sinn stað höfum við rekið augun í eitthvað sem við hefðum átt að klára, áður en við festum þá upp. Skrúfa niður og skrúfa upp, aftur og aftur. VIÐ náðum þó merkum áfanga í gærkvöldi. Bakarofninn fór á sinn stað og honum er meira að segja hægt að stinga í samband. Við rafmagn. Í kvöld stendur því mikið til, fyrsta heimaeldaða alvöru máltíð fjölskyld- unnar í langan tíma. Hvað eigum við að hafa í matinn? TJA, þú segir nokkuð. Pitsu? Lasanja? Hvað á að elda í kvöld?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.