Fréttir - Eyjafréttir - 15.11.1984, Blaðsíða 2
FRFTTIR IKRFTTIK
ITIiHiiil^B
FRFTTIR TRFTTIR
í FRÉTTIR)]
Vikublað í Vestmannaeyjum
Utgefandi: EYJAPRENT H.F.
Ritstjórn: GÍSLI VAL.TÝSSON. ÁBM.
GUNNAR KÁRI MAGNÚSSON
GRÍMUR GÍSLASON
Auglýsingar: STRANDVFGI 47 - SÍMI 1210
Setning og prentun: EYJARPRENT H.F.
Skorið á slagæð
Verði maður fyrir því óhappi að skera sig á slagæð
pumpar hjarta líkama hans smátt og smátt öllu
blóðinu úr líkamanum og aumingja maðurinn deyr.
Slíkur og þvílíkur ferill lífsog dauða kemur upp í
hugann, þegar hann er leiddur að bankavitleysunni í
landinu. Almáttugi bankinn, Seðlabankinn, gengur
þar fyrir með slæmu fordæmi og reysir sér höll. Höll
sem stendur á besta stað í höfuðborginni, úr bestu
hráefnum sem hægt er að hugsa sér og byggð af
mestu vitleysu sem hægt er að hugsa sér.
A sínum tíma gaf Seðlabankastjóri, Jóhannes
Nordal, þá skýringu á því, hvernig staðið væri að
fjármögnun byggingarinnar, að hún yrði til fyrir
peninga sem yrðu til inni í bankanum. Sú skýring
var látin nægja, en við viljum benda á að þeir
peningar „ urðu til“ á þann hátt að viðskipta-
bankarnir og þeir sem skipta við þá hafa borgað háa
refsivexti til þessa aðalbanka íslands og þeim
peningum hefur síðan verið varið til að fjármagna
nefnda Gabbró-höll sem stendur fyrir framan styttu
Ingólfs.
Hinn almenni launamaður, framleiðsluatvinnu-
vegirnir, hjarta þesarar þjóðar, hefur með blóði sínu
reyst þennan óskapnað, minnismerki um ábyrgðar-
leysi þeirra sem með fjármál landsins fara.
Blóðstreymið fer minnkandi, hjartað slær ekki
reglubundið lengur, vegna þess að hringrásin er
rofín. Værum við í þessu spjalli, að tala um mann, þá
myndum við ætla að heili hans myndi bregðast við
og leitast við að binda um slagæðina og stoppa þar
með blóðflauminn.
Svo virðist sem heili þessa þjóðfélags sé fyrir
löngu orðinn sambandslaus við þjóðarlíkaman.
Hann skráir það hjá sér hvernig lífið fjarar út,
kveinkar sér og leggur aðeins meira á hjartað til þess
að halda öndinni þöktandi í augnablik í viðbót.
Ráð til þeirra sem búa á stöðum sem eru orðnir
dofnir af blóðleysi: Keyrum yfír Gullin-
brúvu, þar hverfur mátturinn síðast.
Það verður opið
á laugardag frá
9-12
tS^OSTAKJÖR
© 2220
Gallaður sleppibúnaður
Örin vísar á bátinn, sem búnaðurinn sleppti ekki.
í vikunni fór fram könnun á
því um borð i Herjólfi hvernig
hinn sjálfvirki sleppibúnaður
Sigmunds virkaði. Þegar losa
átti búnaðinn með þar til gerðu
handfangi, kom babb í bátinn, ef
svo má að orði komast, því að
hvernig sem menn toguðu bá
gerðist ekki neitt. Fór það svo aó
lokum að vírinn slitnaði í
átökunum en báturinn, sem er
tveggja manna, staðsettur við
brúna, sat eftir sem áður á sínum
stað.
Þegar betur var að gáð kom í
ljós, að ekki hafði' verið sett
nylon slanga í rörið sem er utan
um vírinn sem liggur frá hand-
fanginu yfir í búnaðinn sjálfan,
þannig að vírinn lá jám í jám á
rörin og skapaði við það mót-
stöðu sem gerði það að verkum
að illmögulegt er að losa bún-
aðinn með því að taka í hand-
fangið.
Nú hefur þetta verið vitað
lengi, að lægi vírinn hlífðarlaus í
rörinu þá gæti þetta gerst.
Reyndar stóðu menn í þeirri trú
að búið væri að „fóðra“ allar
svona leiðslur í sambandi við
sleppibúnað þann, sem kenndur
er við Sigmund. Hvernigstóð þá
á því, að svona var málum háttað
í sambandi við búnaðinn í Herj-
ólfi, er hætta á því að það sé
svona frágangur á íleiri búnuð-
um?
Að sögn Stefáns Olafssonar
hjá vélaverkstæðinu Þór, þá er
engin hætta á því að allir búnaðir
sem eru um borð í íslenskum
fiskiskipum séu ekki með fóðruð
rör. Þeir hjá Þór væru með skrá
yfir alla sem hefðu búnaðina um
borð hjá sér, og búið væri að
yfirfara þá alla og ganga úr
skugga um að allt væri með
felldu.
Hvað Herjólf varðar, þá sagði
Stefán að þama væru líklegast á
ferðinni þessi leiðinlegu mann-
legu mistök, en málsatvik hefðu
verið þau, að bunaðurinn var
settur um borð í Herjólf stuttu
áður en farið hefði verið í það að
fóðra rörin, svo hefðu málin
farið þannig, að þeir hjá Þór
stóðu í þeirri meiningu að
búnaðurinn hefði farið með
fóðruðum rörum í Herjólf, sem
síðar hefði komið á daginn að var
ekki.
„Sem betur fer komu þessi
mistök í ljós við prófun,“ sagði
Stefán að lokum.
SOLUBOÐ
Kaupfélags
Vestmannaeyja
*
*
%
* ví. ÁÐUR NÚ
Grillaðir kjúklingar ... (kynningarverð)
Folalda - gullach 263 237
Folalda - buff 321 289
Nauta - bógsteik 186 168
Nauta - grillsteik 198 179
Nauta - hakk 288 259
■& * • * * * ÁÐUR * NÚ
C- 11 3kg . 156.00 148,00
Corn Flakes 500 gr *. . . 76.90 59.00
Leni WC 12 rúllur . 142.25 129.00
Kex Holtabúbót . 194.20 175.00
Bourbon kex . 34.35 29.90
Ardmona perur 1/1 dós .. . 77.30 69.50
Ardmona bl. ávextir 1/1 dós 85.15 77.00
Dole ananasmauk 580 gr.. . 64.95 59.50
Braga kaffí . 34.80 27.05
GRÆNMETI í MIKLU ÚRVALI!
* * *
.V. „y. ,y.
7V 7» tv
HITTUMST í KA UPFÉLAGINU!
<
\<
y kaupfelag
VESTMANNAEYJA