Fréttir - Eyjafréttir - 15.11.1984, Page 3
FkmiK II LI BMIxx
imiwaiiiini
Kjósum
Iþróttamann
Vestmannaeyja
Á ársþingi IBV fyrir tveimur árum, var samþykkt, að
hinum almenna bæjarbúa vrði gefínn kostur á að velja
Iþróttamann Vestmannaeyja, ár hvert, í atkvæða-
greiðslu, sem fram fari 10-14 dögum fyrir ársþing IBV.
Atkvæðagreiðslan fari þannig fram, að atkvæðaseðlar
verði birtir í bæjarblöðunum. Þá þurfa kjósenda að
klippa út úr blöðunum, útfylla og skila síðan í
verslanirnar Eyjakjör, Tangann, Tótaturn eða í pósthólf
188, fyrir 15. nóvember 1984.
Aðeins þeir sem ná 16 ára aldri á almanaksárinu og
eldri mega taka þátt í þessari kosningu.
Atkvæðaseðlar teljast aðeins gildir að fullt nafn,
fæðingardagur, nafnnúmer og heimilisfang sendanda
fylgi með seðlinum.
Einungis þeir sem lögheimili hafa í Vestmannaeyjum
geta tekið þátt í kjörinu.
Á ársþingi IBV, sem haldið verður 24. og 25.
nóvember n.k. verður kosin þriggja manna nefnd, sem
sjá mun um talningu atkvæða og fara yfír kjörseðla í
þessu kjöri. Urslit verða síðan kunngjörð á síðari degi
þingsins.
Athugið. Hver einstaklingur hefur aðeins eitt atkvæði.
Við viljum hvetja sem flesta bæjarbúa til að taka þátt í
þessu kjöri til að gera það marktækt og skemmtilegt.
STJÓRN IÞRÓTTABANDALAGS
VESTMANNAEYJA
Iþróttamaður
Vestmannaeyja 1983
ATKVÆÐASEÐILL
Ég kýs
Nafn þess sem kosinn er
ÍÞRÓTTAMANN VESTMANNAEYJA 1984
Nafn sendanda
Heimilisfang
Fæðingardagur og ár nafnnúmer
Skilist í pósthólf 188 eða í verslanir Tangans, Eykjörs
eða í Tótaturn fyrir 15. nóvember n.k.
Klippið seðilinn úr.
Frá foreldrafélagi
Bamaskólans:
Aðalfundur foreldrafélags Barnaskóla Vest-
mannaeyja verður haldinn í kvöld, fimmtudag 15.
nóvember kl. 20.00 í Bamaskólanum.
Stjórnin
Námskeið í
glermálningu
NOKKUÐ SEM ALLIR HAFA GAMAN AF.
Mæting eftir samkomulagi.
(Sjá sýnishom sem útstillt eru í Oddinum)
Nánari upplýsingar í síma 2269.
Innansveitar
Eins og sjá má í blaðinu í dag
auglýsir Sparisjóður Vest-
mannaeyja svokölluð Eyjatromp
en það eru innlánskjör, sem gefa
27,58% vexti strax frá því að
upphæðin er lögð inn.
Áð sögn Benedikts Ragnars-
sonar sparisjóðssjtóra er þetta
svar Sparisjóðsins við þeim
gylliboðum sem bankar víðs
vegar um land bjóða þeim sem
taka upp innlánsviðskipti við þá.
„Þetta er liður í þeirri við-
leitni okkar að halda íjármagni
því sem hér myndast, í byggðar-
laginu. Taki menn þessum gylli-
boðum sem bankar gera t.d. í
Reykjavík, þá er þar með búið að
gefa viðkomandi bankastofnun-
um ráðstöfunar-
rétt yfir fjármagninu og viðkom-
andi lánastofnun lánar það hvert
sem hún vill. Reynslan af slíkum
lánveitingum kennir okkur að
lán sem þar eru tekin fara ekki í
það að fjármagna starfsemi
atvinnuvega eða annars úti á
landsbyggöinni.“
Benedikt sagði, að innlán
hefðu töluvert aukist eftir að
Eyjatrompið var kynnt í upp-
hafi.
Sælkerakvöld
Nú fara hin vinsælu sælkera-
kvöld Skansins að hefjast á ný,
og hefur næsta gómveisla verið
ákeðin sunnudaginn 25. nóv-
ember.
Sælkeri kvöldsins hefur verið
valinn Gunnlaugur Axelsson og
mun hann án efa tína til margt
fýsilegt og gómkittlandi.
A
í tilefni af 3ja ára afmæli
leigunnar, fá allir, sem taka eina
myndj eina mynd fría með,
ílmmtudag og föstudag.
#
t
&
wL Auk þess verður sérstakt
kynningarverð á DYNASTY
JnL framhaldsmyndaflokknum
át vikuna 15. nóv. - 22. nóv.
&
i
t
&
*
±
JtA* Fáum nýjar myndir m/texta í
dag. Einnig 7. þátt DYNASTY. Vp
&
^ Videóldúbbur
ýí Vestmannaeyja ^
& Hólagötu 44 - sími 2397 &