Fréttir - Eyjafréttir - 15.11.1984, Qupperneq 4
FRFTTIR ] IhLlh II IIIIL
Myndin er af hluta þátttakenda Helgarskákmótsins. Lengst til vinstri er sjálfur Jóhann
Þórir. Og að er Sigmund Andrésson fyrrum bakarameistari sem er að tefla við okkur óþekkta
stúlku. Og áhorfandinn er elsti þátttakandi mótsins, Guðlaugur Guttormsson, fyrrum
hænsnaræktarbóndi í Lyngfelli.
Sævar Halldórsson skrifar um
Helgarskákmótið
Alltaf eitthvað gott í
JÓNSBORG
OPIÐ LAUGARDAG 9 -12
VERSLIÐ í JÓNSBORG
Guðbjartur Þorleifsson opnar
Málverkasýningu
í Akóges salnum kl. 5 í dag. Opið 2-10 föstudag og
laugardag, lýkur kl. 8 á sunnudagskvöld.
Sýnd verða um 50 málverk og vatnslitamyndir.
Verið velkomin að skoða Eyjuna með augum
aðkomumanns. ATH! Engin boðskort, allir
velkomnir.
Um síðustu helgi fór fram
Helgarskákmót hér í Eyjum eins
og flestum ætti að vera kunnugt
um. Mót þetta var tuttugusta og
sjötta sinnar tegundar og voru
þátttakendur 44 talsins, flestir af
Reykjavíkursvæðinu en Eyja-
menn voru skammarlega fá-
mennir í þessu móti sem var
hugsað sem smá upplyfting í
menningarstarfsemi bæjarins.
Margt skemmtilegt bar á
góma á fjölum safnahússins sem
myndi taka ærið pláss ef ætti að
tíunda það allt hér og nú. Sama
rullan gekk fyrir sig í þessu móti
líkt og í flestum Helgarskák-
mótum, þ.e.a.s. að þekktustu
skákmenn þjóðarinnar fjöl-
menna á staðinn, skipa sér strax í
fremstu röð og halda sig þar til
loka hvað sem tautar og raular,
enda eru þessir kallar þræl-
slípaðir á öllum sviðum skákar-
innar, búnir að renna í gegnum
súrt og sætt frá unga aldri og þar
af leiðandi öllum hnútum kunn-
ugir.
Nú, ef við víkjum aðeins af
leið og hugum að úrslitum
mótsins þá ber fyrst að nefna
efstu menn mótsins, þá Helga
Olafsson og Ásgeir Þ. Árnason
sem hlutu 6 v. og deildu þar með
efsta sætinu. Ef mig minnir rétt,
þá er Ásgeir nýliði á toppi
Helgarskákmótanna og svo virð-
ist sem hann sé aðeins að
hressast í kollinum eftir að hafa
verið í miklum öldudal undan-
farið að mér finnst. Helgi, aftur á
móti er orðinn fastagestur á
toppnum og myndi það vekja
athygli ef hann asnaðist til að
vera neðar á mótum sem eru
tileinkuð honum að nafni til, eða
þannig.
Næstir fyrir neðan þessa
höfðingja komu nokkrir gamal-
kunnir kappar sem endilega
vildu fylgjast að líkt og nöfn
þeirra gera, en þeir Jón Hálf-
dánarson og Guðmundur Hall-
dórsson komu skemmtilega á
óvart með því að blanda sér í
toppslaginn, en það getur víst
allt skeð í skákinni þegar svona
toppar taka virkilega á eins og
mér sýndist þeir gera nú.
Jón L. og Guðmundur Sig-
urjónsson eru vanir á þessum
slóðum og vantaði aðeins herslu-
muninn á efsta sætið en þeir gera
það örugglega gott betur næst.
Jæja, ég fer þá ekki nánar útí
þessa sálma að þessu sinni, en
rétt er að geta yngstu kepp-
endanna, sem allir stóðu sig með
miklum ágætum bæði heima-
strákarnir og þeir aðkomnu.
Við skulum aðeins staldra við
þegar talað er um ungu strákana,
því þeir eru framtíðin í þessu og
við gætum gert meira af því að
annast þá, í stað þess að einblían
alltaf á stóru númerin, þeir ættu,
og geta eflaust séð um sig sjálfír
og gott betur.
Elsti þátttakandinn í mótinu
var hinn síungi Guðlaugur
Guttormsson héðan út bæ og
stóð hann sig frábærlega af 76
ára manni að vara. Hann á þakkir
skyldar fyrir að vera með.
Þessir urðu efstir á mótinu:
1.-2. Ásgeir þ. Árnason.....6v.
1.-2. Helgi Ólafsson........6v.
3.-6. Jón L. Árnason .....5,5v.
3.-6. Jón Hálfdánarson....5,5v.
3.-6. Guðmundur Sigurjónss. 5,5v.
3.-6. Guðmundur Halldórss. 5,5v.
I 7,- 16. sæti með 4,5 vinninga
voru: Dan Hansen, Sævar ISjöms-
son, Sigurgeir Gíslason, Árni Á.
Árnason, Ingimar Halldórsson,
Benedikt Jónasson, Þröstur Berg-
man, Gunnar F. Rúnarsson, Georg
P. Skúlason og Bjami Einarsson
rekur hina jöfnu lest.
Jóhann Þórir Jónsson sem
stóð að þessu móti ásamt Árna
Jakopssyni eiga þakkir skyldar
fyrir framlag sitt sem er að-
dáunarvert að öllu leyti. Að
standa að svona móti er ekkert
grín og meira vesen en margir
halda. Hvað um það, þeir félagar
biðja fyrir kveðjur til allra þeirra
sem aðstoðuðu þá á ýmsan hátt
með fjárframlögum og allskonar
reddingum sem þeim fmnst
seint fullþakkað.
Næst á dagskrá
Næst á dagskrá Taflfél-
agsins er Hausthraðskák-
meistaramótið (26 stafir) er
fer fram á sunnudaginn kl.
14.00 í Alþýðuhúsinu og nú er
teflt um nýjan og meiri-
háttar bikar, gefínn af tafl-
félaginu og vinnst hann
þannig til eignar, að sá sem
vinnur hann þrisvar í röð
eða alls 5 sinnum, hlýtur
gripinn.
Mótið í ljóði
Haldið var Helgarmót
heljarinnar ragn og blót.
Fjörutíu og fjórir sátu að tafli
að finna leiki af öllu afli.
Helga O varð um og ó
í fyrsta sceti hafnaði þó.
Jón ell fékk engan skell
þegja skulum um ncetursprell.
Seevar Bjama var nú þama
tapaði tveimur atama.
Benóný var mcettur á ný
vaknaði ekki og tapaði á því.
Allir aðrir hugsuðu sttft
stundum inni varð ekki líft.
Jóhann Þórir um mótið sá
stjómaði vel, það mátti nú sjá.
Merkilegt mót loks er búið
„ heila “ liðið löngu flúið
ekki verður aftur snúið.
Heila helgi að hugsa stórt ogsmátt
ég segi það satt það ncer engri átt.
T eppahreinsun
hreingerningar
20 ára þjónwsta
við bæjarbúa
Helgi Sigurlásson
sími 1819
Námskeið
Námskeiðahald á vegum
Barnaskólans, Hamarsskólans
og Gagnfræðaskólans fer nú að
hefjast. Stefnt er að því að halda
námskeiðin í þremur önnum og
byrjar það fyrsta í lok þessa
mánaðar.
Að venju er verði mjög stillt í
hóf, aðeins 200 kr. fyrir mann-
inn. Þó er ekki komið á hreint
hvað tölvunámskeiðið mun
kosta, þar sem það verður haldið
í samvinnu við námsflokkana og
Týr-Selfoss
Á morgun, föstudag, leikur
Týr sinn annan leik í 3. deild-
inni í vetur, en þá fá þeir lið
Ungmennafélags Selfoss í heim-
sókn. Hefst leikurinn klukkan
20.00.
Fyrsti leikur Týs var við
Borgnesinga í Borgamesi og
þann leik unnu grænir með 16
mörkum gegn 14.
Á síðustu æfíngar Týs hefur
Sigurlás Þorleifsson, sem nú er í
fríi frá knattspymuiðkun í Sví-
þjóð, mætt og er því ekki ólíklegt
að hann eigi eitthvað eftir
að koma við sögu í næstu leikjum
Týs.
að hefjast
er ekki vitað hvað það kemur til
með að kosta.
Á fyrstu önn verður böm-
unum m.a. boðið upp á: Ljós-
myndun og framköllun, tafl,
leiklist, skrautskrift, módel-
smíði, video, bridge, föndur og
billjard. Er ekki að efa að aðsókn
verður góð á þessi námskeið sem
endranær.
Landakirkja
Sunnudagur 18. nóv.
Sunnudagaskóli kl. 11.00
Messa kl. 14.00 (altarisganga)
Betel
Samkomur alla flmmmdaga kl.
20.30. - Almenn samkoma á
sunnudögum kl. 16.00
^======^=^^
Kristilegar samkomur:
Munið samkomurnar í Al-
þýðuhúsinu föstudagskvöld
kl. 20.30.
Aðventkirkjan
Biblíulestur á laugardögum
kl. 10.
STRAUMUR auglýsir:
Við höfum tekið í notkun ný tceki til
blettahreinsunar. ðar.
Leggju áherslu á fljóta og góða þjónustu.
STRAUMUR...
efnalaug
Flatir 22 - sími 1119 - Vestmannaeyjum