Akureyri


Akureyri - 09.01.2014, Qupperneq 4

Akureyri - 09.01.2014, Qupperneq 4
4 9. janúar 2014 hvert er þitt hlutverk? - snjallar lausnir Wise býður ölbreyttar viðskiptalausnir fyrir fólk með mismunandi hlutverk. Gold Enterprise Resource Planning Silver Independent Software Vendor (ISV) TM Borgartún 26, Reykjavík » Hafnarstræti 102, Akureyri sími: 545 3200 » wise@wise.is » www.wise.is Þjónusta skert fyrir ofvirka einstaklinga Linda Hrönn, íbúi á Akureyri og foreldri barns sem þarf sérúrræði, segir það vonda ákvörðun hjá fjöl- skyldubænum Akureyri að hætta að bjóða upp á úrræði ì formi stuðnings- fjölskyldna fyrir börn með ADHD frá og með áramótum. Bæjarstjóri segir ekki við sveitarfélagið að sakast heldur ríkið. „Þessar fregnir um ákvörðun bæj- aryfirvalda hafa smám saman verið að berast okkur fjölskyldum þessara barna síðustu vikur og daga. Okkur hryllir við tilhugsuninni um að þetta úrræði muni ekki lengur standa til boða. Þetta er verst fyrir börnin og fyrirvarinn er nànast enginn. Í mínu tilfelli varð mitt barn fyrir mikilli höfnun, telur sig hafa misst foreldra, systkini og ömmu. Tengslin við stuðn- ingsfjölskylduna eru mikil og náin. Fjölskyldan gaf barninu mikla gleði, hlýju og ást enda er stuðningsfjöl- skyldan yndisleg,“ segir Linda Hrönn. Eiríkur Björn Björgvinsson, bæj- arstjóri á Akureyri, segir að umfang málsins sé það á Akureyri hafi verið fjórar fjölskyldur með stuðnings- fjölskyldu vegna ADHD barna. Þjónustan hafi verið veitt eina helgi í mánuði þ.e. tvo sólahringa. „Fjármagn til að styðja fjölskyldur barna með ADHD og langveikra barna kom með sérstökum samningi frá vel- ferðarráðuneyti en var tímabundið til þriggja ára og er ekki lengur til staðar. Það er ástæða þess að stuðn- ingsfjölskyldur fyrir þennan hóp eru ekki lengur í boði. Sveitafélagið býður hinsvegar upp á ýmsa aðra þjónustu s.s. fræðslu og ráðgjöf auk félagslegrar liðveislu fyrir þyngsta hópinn.“ Linda Hrönn segir það liggja fyrir að Akureyrarbær sjái sér ekki fært að halda starfinu áfram. Það telji hún „skammarlegt fyrir fjölskyldubæinn Akureyri“. „Starfsfólk Akureyrabæjar hef- ur verið í góðu samstarfi við ADHD samtökin og er að sjálfsögðu tilbúið til þess áfram,“ segir bæjarstjóri. a Minningarathöfn gegn einelti Þrjár konur, Íris Benjamínsdótt- ir, Sandra Ósk Guðlaugsdóttir Og Þótkatla Haraldsdóttir standa að minningarathöfn gegn einelti sem fram fer bæði í Reykjavík og á Ak- ureyri 18. janúar nk. Athöfnin hér fyrir norðan verður á Ráðhústorginu. „Við ætlum að stafa ‘’WE CARE’’ eða „Okkur er ekki sama” með kert- um til að sýna virðingu þeirra sem hafa framið sjálfsmorð vegna einelt- is eða eru að lenda í einelti og líður mjög illa. Við erum að gera þetta til að sýna að okkur er ekki sama,“ segja baráttukonurnar. Nokkur ungmenni munu við athöfnina segja sínar eineltissögur. Þá verður flutt tónlist. Norðurorka yfirtekur fráveitu Akureyrar Undirritaður hefur verið samn- ingur um yfirtöku Norðurorku hf. á fráveitu Akureyrarbæjar. Í frétt frá Akureyrarbæ segir að samein- ing veitna á Akureyri hafi gerst í nokkrum áföngum. „Árið 1993 voru Vatnsveita Akureyrar og Hitaveita Akureyrar sameinaðar og árið 2000 bættist Rafveita Akureyrar við og til varð sameinað veitufyrirtæki Akur- eyringa, Norðurorka. Síðan þá hafa veitur í nágrannasveitarfélögum sameinast Norðurorku hf. og mikill árangur náðst með bættri nýtingu allra forða fyrirtæksins og framlegð aukist verulega á tímabilinu. Hug- myndir um frekari sameiningu með því að fráveita Akureyrar verði hluti af rekstri Norðurorku hf. hafa reglu- lega komið fram. Samningsaðilar eru sammála um að nú sé góður tími til þess að láta þær verða að veruleika í ljósi góðrar reynslu þar að lútandi, sem hefur eflt og styrkt þjónustu- hlutverk Norðurorku hf. við íbúa og fyrirtæki á Akureyri. Í samningn- um er gert ráð fyrir að farið verði í byggingu hreinsistöðvar við Sand- gerðisbót á næstu árum.“ Yfirtökuverð fráveitunar er 2,3 milljarðar króna sem að hluta til felst í yfirtöku á lánum. Yfirtakan hefur ekki áhrif á samstæðureikning bæjarsjóðs. Samningsaðilar eru sannfærðir um að til lengri tíma litið muni þessi sameining skapa tækifæri til bættr- ar umgengni við náttúruna og enn betri þjónustu við íbúa og fyrirtæki á Akureyri. a TIL SKAMMAR FYRIR fjölskyldubæinn Akureyri, segir foreldri. Ekki við okkur að sakast, svarar bæjarstjóri. MYNDIN TENGIST EFNI fréttarinnar ekki með beinum hætti. Völundur Fræðslustjórinn farinn í framboð Framboðsfrestur í prófkjör Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, fyrir sveitar- stjórnarkosningar í vor er runninn út. Alls bárust 11 tilkynningar um framboð. FRAMBJÓÐENDUR ERU EFT- IRTALDIR Í STAFRÓFSRÖÐ: » Ármann Sigurðsson, sjómaður » Baldvin Valdemarsson, verkefnastjóri » Bergþóra Þórhallsdóttir, aðstoðarskólastjóri » Elías Gunnar Þorbjörnsson, skólastjóri » Eva Hrund Einarsdóttir, starfsmannastjóri » Gunnar Gíslason, fræðslustjóri » Hjörtur Narfason, framkvæmdastjóri » Kristinn F. Árnason, sjálfstæður atvinnurekandi » Njáll Trausti Friðbertsson, flugumferðarstjóri » Sigurjón Jóhannesson, verkfræðingur » Svanhildur Dóra Björgvinsdóttir, laganemi Ólafur Jónsson dýralæknir er eini bæjarfulltrúi sjálfstæðismanna í bæjarstjórn Akureyrar. Hann hafði áður lýst yfir að hann myndi ekki gefa kost á sér áfram. Prófkjörið fer fram laugardaginn 8. febrúar nk. Þátttaka er heimil öllum flokksbundnum sjálfstæðis- mönnum í sveitarfélaginu og þeim sem ganga í Sjálfstæðisflokkinn fyrir lok kjörfundar. Utankjörfundarkosning í próf- kjörinu fer fram 27. janúar til 7. febr- úar. Kosið verður í Kaupangi á Ak- ureyri virka daga kl. 15:00 til 18:00 og laugardaginn 1. febrúar kl. 10:00 til 13:00; í Valhöll í Reykjavík virka daga kl. 9:00 til 17:00; og í Grímsey 5. febrúar kl. 14:00 til 18:00. a

x

Akureyri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.