Akureyri - 09.01.2014, Blaðsíða 18
18 9. janúar 2014
Vatnsveita - Rafveita - Hitaveita - Fráveita
....sjálfsagt mál !
Í ljósi hugmynda um nýja þjóðarsátt um að stemma stigu við víxlverkunum verðhækkana og þar með aukinni
verðbólgu ákvað stjórn Norðurorku að fyrirtækið legði sitt af mörkum til að auka stöðugleika í samfélaginu.
Hitaveita: Engin verðskrárbreyting um áramót – fastagjald og rúmmetragjald óbreytt.
Rafveita: Engin verðskrárbreyting um áramót – fastagjald og kílóvattastundagjald óbreytt.
Vatnsveita: Vatnsgjald hækkar um 4% sem er nauðsynlegt til að mæta miklum fjárfestingum á árinu 2014 en
fyrirhugað er að byggja nýjan vatnsgeymi ofan við bæinn auk endurnýjunar lagna ofan úr Hesjuvallalindum í
Hlíðarfjalli.
Verðskrá Norðurorku, einkum rafveitu og hitaveitu, hefur lækkað mikið að raungildi og hitaveitunnar reyndar
einnig að krónutölu.
Orkukostnaður á Akureyri er með því lægsta sem gerist á landinu samkvæmt könnun Byggðastofnunar.
Verðskrá hitaveitu og
rafveitu óbreytt milli ára
Englar alheimsins í Hofi
Þjóðleikhúsið sýnir Engla alheims-
ins í Hofi helgina 10.-11. janúar.
Uppsetning Þjóðleikhússins
á Englum alheimsins á liðnu vori
hlaut mikið lof áhorfenda og gagn-
rýnenda. Sýningin var tilnefnd til níu
Grímuverðlauna og hlaut Grímuna
fyrir leikmynd, búninga og leikverk
ársins. Sýningar á Englum alheims-
ins hafa haldið áfram fyrir fullu
húsi í Þjóðleikhúsinu í haust og nú
leggur leikhópurinn land undir fót
og setur Engla Alheimsins á svið í
Menningarhúsinu Hofi á Akureyri.
Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir
framkvæmdarstjóri Hofs segir það
mikið tilhlökkunarefni að taka á
móti leikurum og starfsfólki Þjóð-
leikhússins. Þetta er í annað sinn
sem að Þjóðleikhúsið heimsækir
Hof en á fyrsta starfsári hússins
var Íslandsklukkan sýnd þar fyrir
fullu húsi. „Nú fáum við að taka á
móti þessari frábæru sýningu sem
Englar alheimsins er og það er alltaf
gaman að fá að taka þátt í því að
Akureyringar og Norðlendingar geti
sótt vinsælar sýningar sem þessa í
heimabyggð.“ Segir Ingibjörg.
Það verða aðeins tvær sýningar á
Englum alheimsins í Hofi, föstudags-
kvöldið 10.janúar og laugardaginn
11.janúar. Það eru margir hlutir sem
þurfa að ganga upp þegar að svona
fjölmennur leikhópur leggur land
undir fót en það eru tólf leikarar sem
taka þátt í sýningunni auk tækni-
fólks. „Það er alltaf svolítið púsluspil
að finna tímasetningu sem hentar
öllum í svona hóp þar sem að leik-
ararnir eru margir hverjir að vinna
í öðrum verkefnum samhliða sýn-
ingum á Englunum.” Segir Ingibjörg.
Englar alheimsins er á meðal
kunnustu skáldsagna síðari ára á
Íslandi og fáar sögur hafa hitt þjóð-
ina jafn rækilega í hjartastað. Bókin
Englar alheimsins eftir Einar Má
Guðmundsson hlaut Bókmennta-
verðlaun Norðurlandaráðs og hef-
ur verið þýdd á fjölmörg tungumál.
Margir muna einnig eftir vinsælli
kvikmynd sem var gerð eftir efni
bókarinnar með Ingvari E. Sigurðs-
syni í aðalhlutverki.
Í leiksýningunni er það Atli Rafn
Sigurðarson sem leikur aðalhlut-
verkið en hann hefur hlotið mikið
lof fyrir frammistöðu sína sem lista-
maðurinn Páll sem ungur að árum
er illa haldin af geiðveiki og missir
tökin á lífinu. Í öðrum hlutverkum
eru Sólveig Arnardóttir, Ólafur Eg-
ilsson, Jóhannes Haukur Jóhann-
esson og Ágústa Eva Erlendsdóttir,
svo einhverjir séu nefndir. Tónlistin
í sýningunni er eftir hljómsveitina
Hjaltalín, en Högni Egilsson söngv-
ari hljómsveitarinnar fer einnig með
hlutverk í sýningunni.
Ingibjörg segir að það sé í mörg
horn að líta þegar að leiksýning sem
þessi er flutt landshluta á milli. „Það
er auðvitað heilmargt sem huga þarf
að þegar að flytja þarf leikmynd, leik-
muni og búninga á milli landshluta
en það er fagfólk á öllum vígstöðvum
sem hefur unnið að undirbúningi
vegna þessa frá því í haust. Ég hvet
allt leikhúsáhugafólk og aðra til að
koma og sjá magnaða uppsetningu
Þjóðleikhússins á þessari sögu sem
svo margir þekkja.“ a
Sunna og Saga leika lesbíur
Á næstu fjórum vikum verða frum-
sýndar tvær nýjar uppfærslur hjá
Leikfélagi Akureyrar. Í næstu viku
fer Gullna hliðið eftir Davíð Stefáns-
son á fjalirnar og verður öllu tjaldað
til eins og Akureyri vikublað hefur
fjallað um. 14. febrúar næstkomandi
munu svo tvær ástsælar leikkonur á
Akureyri, þær Sunna Borg og Saga
Jónsdóttir, bregða sér í hlutverk Lísu
og Lísu og varpa ljósi á líf miðaldra
lesbía sem hafa búið saman í felum.
Lísa og Lísa er sagt einlægt og
meinfyndið leikrit en verkið er nýtt
írskt verðlaunaverk. Amy Conroy
leikkona, leikstjóri og skáld er höf-
undur, búsett í Dyflinni. Hún hlaut
verðlaun Dublin Fringe-hátíðarinn-
ar 2010 fyrir leikritið um Lísurnar
tvær og var tilnefnd til írsku leik-
listarverðlaunanna 2012, bæði sem
höfundur og leikkona.
Jón Gunnar leikstýrir en hann
útskrifaðist með BA í leikstjórn frá
Drama Centre London árið 2006.
Hann hefur leikstýrt í atvinnuleik-
húsum á Íslandi, Englandi og í
Finnlandi. Hann hefur einnig unnið
sem aðstoðarleikstjóri í The Royal
Shakespeare Company og hjá Vestur-
porti. Jón Gunnar hefur haldið fjölda
námskeiða, leikstýrt í menntaskól-
um og stjórnað Götuleikhúsinu í
Reykjavík.
Um leikmynd og búninga sér Mó-
eiður Helgadóttir en lýsingu annast
Þóroddur Ingvarsson. a
MIKLAR ANNIR ERU framundan í húsakynnum Leikfélags Akureyrar. Völundur