Akureyri - 20.02.2014, Blaðsíða 1
7. tölublað 4. árgangur 20. febrúar 2014
VI
KU
BL
AÐ
BÍ L DS HÖF ÐA 1 2 - 110 R E YK JAVÍK - SÍMI: 577 1515 - WWW.SKORRI.IS
Íslendingar bak við kaupin
KHG European Hospitality Partners,
félag sem bauð hæst eða 384 milljónir
króna í eignina Skútustaðaskóla í Mý-
vatnssveit á uppboði í síðustu viku, er
með lögheimili í Lúxemborg. Þetta sýnir
rannsókn Akureyrar vikublaðs. Skútu-
staðaskóli hefur gegnt hlutverki hótels
síðari ár undir nafninu Hótel Gígur. Sá
sem er skráður fyrir öllum hlutum félags-
ins í Lúxemborg er Íslendingur og sonur
fyrrum eiganda.
Gerðarbeiðendur á uppboðinu voru
Byggðastofnun og Stafir Lífeyrissjóður.
Hótel Mývatn ehf. var þinglýstur eigandi
fasteignarinnar sem fjárfestingarfélag-
ið KHG European Hospitality Partners
keypti. KHG European Hospitality
Partners var stofnað seint á síðasta
ári. Í stjórninni, sem samanstendur af
fimm einstaklingum, er einn Íslendingur,
Sveinn Jónatansson lögmaður í Reykja-
vík. Hlutir félagsins eru hundrað. Þeir eru
allir í eigu annars Íslendings, Valdimars
Jónssonar, sem búsettur er í Prag. Valdi-
mar Jónsson er sonur fyrrum eiganda
húsnæðisins, Jóns Ragnarssonar. Jón
Ragnarsson keypti eignina á sínum tíma
á tuttugu milljónir króna af Skútustaða-
hreppi og breytti í hótel. Jón reisti m.a.
Hótel Örk og rak Hótel Valhöll um tíma.
Fjórir buðu í hótelið á uppboðinu sem
fram fór í Skútustaðaskóla í síðustu viku.
Innlendu bjóðendurnir töldu fyrirfram
að kaupverðið færi ekki svo hátt. Svavar
Pálsson, sýslumaður á Húsavík, sem stýrði
uppboðinu segir að frestur til að standa
við boðið renni út 6. mars næstkomandi.
Til að kaupin gangi í gegn þarf KHG
að uppylla ýmsar lagalegar skyldur s. s.
hafa rétt á að eignast fasteign á Íslandi.
Ef félagið fer þá leið að borga með evrum
gæti heildarkostnaður við kaupin orðið
tugmilljónum lægri en ef Íslendingar inn-
anlands ættu í hlut. Sjá nánar bls. 6
-BÞ / SA
TIL ER FÓLK sem hleypur upp og niður Gilið ótilneytt. Húrra fyrir þeim! Völundur
Evonia er hlaðin bæti-
efnum sem næra hárið
og gera það gróskumeira.
Myndirnar hér til hliðar
sýna hversu góðum árangri
er hægt að ná með Evonia.
Evonia
www.birkiaska.isFyrir Eftir
Evonia eykur
hárvöxt með því
að veita hárrótinni
næringu og styrk.
Hitaveitu &
gasskápar
Blikksmiðjan Vík ehf / Skemmuvegur 42, 200 Kópavogi / kt. 4309850279 / Sími: 557-1555 / blikkvik@blikkvik.is
fyrir sumarbústaði og heimili
Gæði • Þjónusta • Öryggi
Hitaveituskápar
Við sérsmíðum og eigum líka hitaveitukassa á lager.
Einnig smíðum við mikið af kössum á kerrur, bíla ofl.
Fáanlegir í mörgum litum.
Gasskápar
Eigum gasskápa á lager. Læsanlegir
og smíðaðir úr áli.
Láttu ekki stela af þér kútunum!