Akureyri - 20.02.2014, Qupperneq 8
8 7. tölublað 4. árgangur 20. febrúar 2014
VILTU SEGJA SKOÐUN ÞÍNA?
Akureyri vikublað óskar eftir að komast í samband við bæjabúa sem
sjaldan eða aldrei hafa veitt viðtöl en væru til í að segja skoðun sína í
blaðinu eða veita stutt viðtöl. Vinsamlegast sendið okkur tölvu-
póst á bjorn@akureyrivikublad.is eða hringið í síma 862 0856.
LOF OG LAST VIKUNNAR
„LAST vikunnar að mínu mati fær
Íslandsbanki á Akureyri fyrir að hafa sagt
upp tryggum og jafnframt einum besta
þjónustufulltrúa sem bankinn hefur haft
síðustu 30 ár tæplega!“ Svo skrifar kona í
bréfi til blaðsins. Það eru mér margir sammála
um að Íslandsbanki ætti að skammast sín
fyrir þessa ákvörðun.“
LAST fá þeir sem dilla konum og
kvennabaráttu í tíma og ótíma en líta framhjá
því að karlar verða ekki síður fyrir órétti en
konur. Svo mælir kona úr sveit sem hringdi
í blaðið. Kveikjan að skrifum konunnar var
að hún las í Akureyri vikublaði að „það ætti
að dansa út um allt“ eins og hún orðaði
það „vegna ofbeldis gegn konum“. Konan
segist oft verða vitni að því „...að konur séu
sniðugar að beita andlegu ofbeldi. Það er
samt eins og að konur eigi bara alla samúð
en mér finnst að karlmenn eigi líka að fá
samúð,“ segir konan.
LOF fá allar þær konur og karlar sem
mættu í Hof í hádeginu síðastliðinn föstudag
og dönsuðu af hjartans list fyrir gott og
þarft málefni. Svo skrifar kona í brýningu til
blaðsins „Frábær stund,“ bætir konan við...
LAST fá hundaeigendur sem ekki láta
hreinsa upp skítinn eftir þá, segir enn einn
bæjarbúinn á Akureyri sem kveður sér hljóðs
í þessum dálki vegna hundaskíts. „Skíturinn
dreifist nú orðið um allar stéttir niðri í bæ,
fólk er afskaplega ósvífið og ekkert gert.
Ef hundaeftirlitsmaðurinn er kallaður til þá
bara segir hann eitthvað en beitir engum
viðurlögum og það er látið duga. Ég samdi
vísu um þetta um daginn þegar ég var á
göngu í miðbænum og sá manneskju með
stóran hund – eða öllu heldur var þetta
hundur með manneskju. Hér er vísan eftir
mig:
Skyldi það vera skítahundur
er skondrar þarna á undan mér?
Afurðin er illur fundur
en eigandinn – hann flýtir sér.
AKUREYRI VIKUBLAÐ 7. TÖLUBLAÐ, 4. ÁRGANGUR 2013
ÚTGEFANDI Fótspor ehf. ÁBYRGÐARMAÐUR Ámundi Ámundason 824 2466, amundi @ fotspor.is.
FRAMKVÆMDASTJÓRI Ámundi Steinar Ámundason, as @ fotspor.is.
AUGLÝSINGASTJÓRI Ámundi Steinar Ámundason, as @ fotspor.is. 578-1193.
RITSTJÓRI Björn Þorláksson, bjorn @ akureyrivikublad.is, 862 0856 MYNDIR Björn Þorláksson, Völundur Jónsson og fleiri.
UMBROT Völundur Jónsson PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja - Svansmerkt prentun. DREIFING
14.500 EINTÖK ÓKEYPIS – UM ALLT NORÐURLAND
NORÐLENDINGAR HAFA UPPLIFAÐ dýrðardaga við leik og störf undanfarið. Völundur
AÐSEND GREIN BJARKEY SIGURÐARDÓTTIR
Takk fyrir mig
Það eru sönn forréttindi að geta horft
og hlustað á sinn uppáhalds tónlistar-
mann á tónleikum hér á Íslandi, hvað
þá norður í landi. Á laugardagskvöldið
fór ég á eina bestu tónleika ævi minnar
er ég hlýddi á Eivøru Pálsdóttur syngja
og spila með Sinfóníuhljóm-
sveit Norðurlands. Ég þreyt-
ist seint á því að tala um það
hvað Eivør er stórkostleg
listakona og tónlistargyðja.
Síðast liðið laugardagskvöld
stóð hún á sviðinu í Hofi og
að sínum alkunna sið greip
áhorfandann með sér inn í
sinn heim sem er dulúðugur,
fagur, norrænn og seiðandi.
Tónsmíðar hennar hreyfa
við mér, snerta í mér alla þá
strengi sem finna má innra með mér og
prógramið þetta kvöld þannig uppsett
að undirrituð felldi tár strax í fyrsta
lagi, og í stað þess að reyna eitthvað að
berjast við þau flæddu þau af og til alla
tónleikana. Slík og þvílík áhrif sem vel
samin og fallega flutt tónlist getur haft.
Tónleikarnir voru í senn töfrandi og
magnþrungnir. Það skiptir samt sem
áður engu máli hvort hún er ein með
gítarinn sinn á Græna hattinum eða með
stórhljómsveit á bak við sig, lagasmíðar
hennar valda þessu öllu og flutningur
hennar ávallt jafn innilegur og einlægur.
Ljúfir tónar Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar liðu um salinn
eins og dalalæða þegar við
átti, yfir í hávaða rok þegar
mest gekk á. Eivør sýndi hvers
megnuð röddin hennar er með
fjölbreyttu lagavali og hvað
hún hefur gríðarlegt vald á
röddinni. Hún getur verið svo
mjúk og þýð, seiðandi sírena
sem fer leikandi með háa tóna
og svo allt í einu búið til hin
skrítnustu og myrku hljóð í
lögum eins og Trøllabundin.
Mig langar að þakka Sinfóníu-
hljómsveit Norðurlands, undir stjórn
Guðmundar Óla, fyrir þetta frábæra
verkefnaval og hve ánægjulegt var að
horfa á tónlistarfólkið njóta vinnunnar
sinnar. Ég vil einnig þakka S.N. fyrir að
gefa svo mörgum nemendum Tónlistar-
skólans á Akureyri tækifæri til að taka
þátt í verkefnum sem þessum því það
má með sanni segja að slík verkefni séu
einstakur og spennandi skóli.
Í lokin langar mig að þakka Eivøru
fyrir þá tryggð sem hún sýnir aðdáend-
um sínum hér á Íslandi. Það er algjörlega
ómetanlegt. Hjartans þakkir.
Höfundur er söngkona.
Unga og
frábæra
fólkið okkar
Það hafa verið sönn forréttindi að fylgjast með skrif-um ungs fólks síðustu vikur, bæði hér í þessu blaði,
á vefnum akureyrivikublad.is sem og í fleiri fjölmiðl-
um. Hafi einhver haldið að unga fólkið okkar sé ófært
um að fjalla í riti og ræðu um ýmis samtímamálefni
– „þetta er allt að fara til helvítis mantran“ – birtist
manni síðustu daga vel hve vandræðalegur fordómur
birtist í slíkri sýn.
Með milligöngu og aðstoð Brynjars Karls Óttars-
sonar, kennara við Síðuskóla, hefur þetta blað birt um
nokkurt skeið greinar frá nemendum á grunnskólastigi
sem hafa vakið athygli. Þar má síðast nefna grein um
áhrif Vaðlaheiðarganga og grein um framkomu fólks
við starfsfólk í stórmörkuðum. Ekkert útilokar að nem-
endur fleiri grunnskóla og eða framhaldsskóla fái inni
með skoðanir sínar og samfélagsmeiningar á síðum
blaðsins. Fyrir hefur komið að ungmenni hafa samband
við ritstjóra og vilja segja eitthvað en skortir kjark þar
sem textameðferð eða strúktúr greina sé ábótavant. Í
slíkum tilvikum hjálpar blaðið fólki, ungu sem öldnu,
að forma textann uns niðurstaðan verður til sóma.
Að því gefnu að umræðuefnið fylli ákveðnar kröfur.
Það er með öðrum orðum ósk blaðsins að lýðræðisleg
skoðanaskipti kvikni sem víðast og fari sem víðast.
Nú síðast steig nemi í Menntaskólanum á Akur-
eyri fram og reis upp gegn meiðandi ummælum og
framkomu MORFÍS-hóps. Ekki þurfti sá nemandi
neina aðstoð. Nemandinn ákvað að skrifa grein og
birta á akureyrivikublad.is, grein í kjölfar þess að BB
hafi birt frétt um niðrandi framkomu annars skóla í
MORFÍS ræðukeppninni í garð nemandans.
„Þetta veldur því að ég vill biðja allar stelpur og
konur að hugsa hvað þær leyfa öðrum að segja um sig
og við sig ... Stelpur, nú er ekki seinna vænna en að
við látum til okkar taka. Stöndum upp fyrir sjálfum
okkur, því ef við gerum það ekki hver gerir það þá?“
Svo skrifaði Eyrún Björg Guðmundsdóttir nemi við
MA á vefnum akureyrivkublad.is.
Liðsstjóri ræðuliðs MÍ, sem lét ósæmileg orð falla
um mótherja í MORFÍs ræðukeppni, hefur nú sagt
af sér sem trúnaðarmaður nemenda í skólaráði og
skólanefnd menntaskólans. Hann fær tækifæri til að
læra af reynslunni. Orð skipta máli. Að svara orðum
með orðum skiptir máli.
Ungmenna Íslands er framtíðin. Það er löngu tíma-
bært að hvetja þau til að hafa áhrif í samfélaginu. Það
er ekkert að óttast þótt menning taki breytingum m.a.
vegna rafrænu byltingarinnar. Börn verða að jafnaði
betri og hæfari en foreldrar þeirra. Út á það gengur
þróunarkenningin.
Björn Þorláksson
BJARKEY
SIGURÐARDÓTTIR
Tónsmíðar
hennar hreyfa
við mér,
snerta í mér
alla þá strengi
sem finna má
innra með
mér