Akureyri


Akureyri - 20.02.2014, Síða 16

Akureyri - 20.02.2014, Síða 16
16 7. tölublað 4. árgangur 20. febrúar 2014 Einsöngvarar með kórnum eru Garðar Thor Cortes og Ari Jóhann Sigurðsson Stjórnandi Stefán R. Gíslason :: Undirleikari Thomas Higgerson Fjölbreytt og skemmtileg efnisskrá, óperuaríur og sígild kórverk, íslensk og erlend. Miðasala hjá www.menningarhus.isNÝ PR EN T eh f. Garðar Thor Cor tes Ari Jóhann Sigurð sson www.heimir.is Karlakórinn Heimir & garðar thor cortes í Menningarhúsinu HOFI sunnudaginn 2. mars 2014, kl. 16 AÐSEND GREIN SÓLEY BJÖRK STEFÁNSDÓTTIR Lýðræði og lýðræði Í aðdraganda sveitarstjórnarkosn- inga 2010 á Akureyri voru nokkur umræðuefni meira áberandi en önn- ur. Það var miðbæjarskipulagið og þá sérstaklega síkið, það voru at- vinnumálin og það var gagnsæi og opin stjórnsýsla. Síkinu var sópað af borðinu að kröfu margra bæjarbúa og miðbæj- arskipulag endurunnið, stofnaður var atvinnu- málahópur sem hefur not- að sl. fjögur ár í að ráða tvo atvinnumálafulltrúa og skilar hugsanlega af sér atvinnumálastefnu í vor. Umræða um gagnsæi og opna stjórnsýslu reyndist vera orðin tóm. Nú líður aftur að kosn- ingum og aftur má sjá umræðuefnin mótast og nú virðist beint lýðræði eiga að vera ofarlega á blaði. En hvað eigum við að gera með beint lýð- ræði? Eigum við að kjósa um næsta síki? Næstu Dalsbraut? Á einfaldur meirihluti bæjarbúa að ákveða sam- göngumál eins hverfis? Munurinn á beinu lýðræði og fulltrúalýðræði er í sjálfu sér ekki svo mikill. Með því að setja einstaka mál í íbúakosningu þar sem einfald- ur meirihluti ræður eru kjörnir full- trúar í raun og veru aðeins að varpa ábyrgðinni yfir á íbúa. Í raunveru- legu lýðræði finna hagsmunaaðilar bestu lausnirnar í sameiningu. Þá leggja stjórnvöld sig fram um að draga fram vilja þeirra sem ekki eru vanir að hafa sig frammi í um- ræðunni en hafa mikla raunverulega hagsmuni í því máli sem um er rætt. Betra lýðræði er ekki val- möguleiki sem hægt er að skella á borðið í kosningabaráttunni og framkvæma svo með nokkrum íbúa- kosningum. Betra lýðræði er vegferð sem við verðum að fara að leggja af stað í. Því fyrr sem við tökum fyrstu skrefin, því fyrr komumst við á áfangastað. Fyrsta skrefið er gagnsæið. Hvers vegna ættum við ekki að hafa að- gang að þeim gögnum sem nauðsyn- leg eru til að ræða saman af skilningi og þekkingu? Hvers vegna ættum við ekki að geta fylgst með umræðu kjörinna fulltrúa um málefni okkar? Hvers vegna ættum við ekki að geta rætt málin á sömu forsendum og þau sem í dag taka ákvarðanirnar? Ég hef sjálf nokk- uð haldgóða reynslu af stjórnun. Ég hef í störf- um mínum gert ýmsar tilraunir með gagnsæi. Í einu félagi lagði ég til lagabreytingar sem gefa öllum sem áhuga hafa tækifæri til að sitja í stjórn. Þar felldum við niður ákvæði um afmarkaðan fjölda stjórnar- manna og settum í staðinn ákvæði um að allir sem samþykktir séu á aðalfundi skipi stjórn viðkomandi félags. Í öðru félagi eru allar ákvarð- anir teknar á opnum stjórnarfundum. Báðar þessar breytingar hafa fallið vel kramið og þær síðarnefndu orðið til þess að stjórnarfundir félagsins eru þétt setnir almennum félögum sem taka virkan þátt í þeim umræð- um sem eru undanfari ákvarðana. Betra lýðræði kemur ekki af sjálfu sér heldur þegar kjörnir full- trúar hafa kjark til að losa gripið á stjórnartaumunum, veita almenningi aðgang að gögnum og umræðu og hvetja til raunverulegrar þátttöku. Sóley Björk Stefánsdóttir Höfundur býður sig fram í fyrsta sæti á lista VG til sveitastjórnarkosninga. AÐSEND GREIN SIGRÚN SIGURÐARDÓTTIR „ZONTA segir NEI“ Líkamlegar og andlegar afleiðingar ofbeldis á konur Ofbeldi gegn konum er alvar- legt heilbrigðisvandamál sem hef- ur einnig veruleg áhrif á félagslega stöðu kvenna. Því er mjög mikilvægt að hefja forvarnir snemma til að reyna að koma í veg fyrir ofbeldi og vekja fólk til umhugsunar um skað- semi þess fyrir líkama og sál. Kona sem beitt er ofbeldi getur orðið fyr- ir sálrænu áfalli og upplifað langvarandi streitu. Afleiðingar þess geta verið mjög alvarlegar eins og áfallastreituröskun og ýmis geð- ræn vandamál s.s. þunglyndi, kvíði, persónuleikaröskun o.fl. Að verða fyrir ofbeldi getur einnig leitt til fé- lagslegra vandamála s.s. lágs sjálfs- mats, erfiðleika með tengslamyndun, náin sambönd og kynlíf. Konan get- ur verið með sjálfsvígshugsanir og þróað með sér áfengis- og vímuefna- vandamál þar sem hún getur farið að nota slík efni til að deyfa þann tilvistarlega sársauka sem ofbeldið veldur. Einnig geta komið fram flók- in sálvefræn einkenni eins og verkir, vefjagigt, svefnvandamál, síþreyta og fleira. Langvarandi streita sem er afleiðing ofbeldis, getur haft bælandi áhrif á ónæmiskerfið og þar af leiðandi haft áhrif á þróun ýmissa sjúkdóma og heilsufarsvandamála. Ofbeldi hefur því ekki aðeins áhrif á einstak- linginn sem fyrir því verður, heldur getur það einnig haft áhrif á fjölskyldu og vini og litað allt samfélagið. Afleiðingarnar geta einnig verið gífurlega kostnaðar- samar fyrir þjóðfélagið vegna ör- orku, lyfja, rannsókna, aðgerða, og ýmissa meðferða. Þá má ekki gleyma því að ofbeldi getur leitt til dauða. Af ofansögðu er ljóst að mikilvægt er að reyna að koma í veg fyrir of- beldi og byrja við upphaf hvers lífs, í móðurkviði. Vissir þú að: Yfir 600 milljónir kvenna búa í löndum þar sem heimilisofbeldi er ekki refsivert. Helsta dánarorsök evrópskra kvenna á aldrinum 16-44 ára er heimilisofbeldi. Konum er nauðgað á 26 sekúndna fresti í Suður Afríku. Í Brasilíu deyja 10 konur daglega, eingöngu vegna heimilisofbeldis. Ein af hverjum þremur konum verður fyrir ofbeldi á lífsleiðinni. Á föstudaginn var tók ég þátt í “femínískri flóðbylgju” í Hofi ásamt fleirum, mest megnis þó konum, þar sem var dansað gegn ofbeldi. Í flest þau skipti sem ofbeldi er til umræðu eru konur í meirihluta og velti ég því fyrir mér hvernig hægt er að fá karlmenn til að taka þátt og hafa áhrif á umræðuna. Þann 8. mars næstkomandi, á alþjóðlegum baráttudegi kvenna, munu Zontaklúbbarnir á Akureyri og Jafnréttisstofa standa fyrir fundi á Hótel KEA sem ber yfirskriftina: Takið þátt í baráttu gegn ofbeldi á konum. Markmið fundarins er m.a. að reyna að ná til karlmanna sér- staklega og eins og yfirskrift fundar- ins gefur til kynna er viðfangsefnið í ár baráttan gegn ofbeldi á konum. Í þeirri baráttu þarf stuðning karla og kvenna og er það sannfæring mín að sameiginleg barátta kynjanna skili bestum árangri. Öll berum við samfélagslega og siðferðilega ábyrgð á að bregðast við þegar ofbeldi er til staðar og mikil- vægt er að þekkja einkenni, áhættu og afleiðingar alls kyns ofbeldis, vita hvernig skal bregðast við og hvert skal leita. Látum okkur ofbeldi varða, okk- ur kemur það við. Sigrún Sigurðardóttir Zontaklúbburinn Þórunn Hyrna. ÞANN 8. MARS næstkomandi, á alþjóðlegum baráttudegi kvenna, munu Zontaklúbb- arnir á Akureyri og Jafnréttisstofa standa fyrir fundi á Hótel KEA sem ber yfirskriftina: Takið þátt í baráttu gegn ofbeldi á konum. Myndin er tekin á fundi í fyrra. SIGRÚN SIGURÐARDÓTTIR SÓLEY BJÖRK STEFÁNSDÓTTIR

x

Akureyri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.