Akureyri


Akureyri - 26.06.2014, Blaðsíða 2

Akureyri - 26.06.2014, Blaðsíða 2
2 24. tölublað 4. árgangur 26. júní 2014 Sumarbústaðurinn (ca 50 fm2) er í landi Núpa í Aðaldal. Upplýsingar gefur Gísli í síma 462-1154 / 862-1154 Sumarbústaður til sölu Slökkviliðsstjóri kallaður kvalari Eins og fram kemur í forsíðufrétt þessa blaðs hefur Akureyrarbær verið dæmdur til að greiða tveim- ur slökkviliðsmönnum bætur eft- ir ólöglegar uppsagnir. Kostnaður skattgreiðenda nemur sjö milljón- um króna vegna annars vegar bóta sem bærinn þarf að greiða þeim og hins vegar málskostnaðar. Mennirn- ir, Ingimar Eydal varaslökkviliðs- stjóri og Sveinbjörn Dúason varð- stjóri, stefndu bænum eftir starfslok beggja sem bar að með svipuðum hætti árið 2012. Brotinn var á þeim andmælaréttur þegar þeir hættu störfum og meðalhófsregla ekki virt. Í dómskjölum eru raktar alvar- legar ásakanir á hendur Þorbirni Guðrúnarsyni, sem hætti sem slökkviliðsstjóri í fyrra eftir margra ára úlfúð innan liðsins og ásakana í allar áttir um ein- elti. Ingimar Eydal rekur í málinu að eftir að Þorbjörn var ráðinn slökkviliðsstjóri árið 2006 hafi hann eftir því sem leið á haldið frá sér upplýsingum. Í stefnu er staðhæft að framkoma Þorbjörns Guðrúnarsonar slökkviliðsstjóra gagnvart Ingimari hafi sífellt farið versnandi en þeir tveir sóttu báð- ir um starf slökkviliðsstjóra þegar Þorbjörn var ráðinn 2006. Segir í stefnu að Þorbjörn hafi takmarkað upplýsingaflæði þannig að Ingimar hafi oft orðið afskiptur þegar mik- ilvægar ákvarðanir voru teknar um málefni slökkvistöðvarinnar. Er staðhæft að vakin hafi verið athygli annarra yfirmanna hjá bænum á þessu ástandi, fyrst munnlega í trúnaðarsamtölum, en síðan skrif- lega, símleiðis og með tölvupósti. Í stefnu er staðhæft að viðbrögð yf- irmannanna hafi í raun engin verið vegna þessa og hafi Þorbjörn því komist upp með einelti gagnvart Ingimari og fleiri starfsmönnum slökkviliðsins, a.m.k. frá árinu 2008. Hámarki náði dramatíkin þegar bærinn taldi hvorki Ingimari né Sveinbirni heimilt að snúa aftur til starfa hjá slökkviliðinu eftir árs launalaust leyfi þar sem þeir höfðu starfað hjá Isavia en þá höfðu orðið skipulagsbreytingar í millitíðinni. „ANDLEGT OFBELDI“ Í stefnu segir að birtingarmynd- ir eineltisins af hálfu Þorbjörns slökkviliðsstjóra hafi verið marg- víslegar. Hafi það m.a. komið fram í neikvæðum athugasemdum, lítil- lækkandi framkomu, lélegu upp- lýsingaflæði og virðingarskorti og „annars konar andlegu ofbeldi“ eins og það er orðað. Að auki hafi Þor- björn reynt með ýmsum ráðum að losna við varaslökkviliðsstjórann. Segir í dóminum að árið 2011 hafi verið gripið til aðgerða vegna þess ófremdarástands sem þá var búið að grassera. Samkvæmt gögnum tilkynnti Þorbjörn Guðrúnarson slökkviliðsstjóri í lok janúar 2012 starfsmannastjóra stefnda, Höllu Margréti Tryggvadóttur, um að hann hefði sætt einelti af hálfu undirmanna sinna á Slökkvistöð- inni á Akureyri. Akureyrarbær brást strax við og leitaði til Lífs og sálar sálfræðistofu ehf. Í verk- beiðni stefnda var þess farið á leit að lagt yrði mat á samskipti starfs- manna á slökkvistöðinni. GAGNRÝNISVERT EINKALÍF Heimaríki slökkviliðsmanna, eldri rígur og einkalíf Þorbjarnar Guð- rúnarsonar er nefnt í dóminum sem ástæður illinda og þess að undirmenn hans báru ekki traust til hans. Í niðurstöðukafla í ský rslu Lífs og sálar sálfræðistofu segir að Þorbjörn hafi upplifað baktal og róg um hann og hans einkalíf. „Um þessi kvörtunaratriði segir í skýrslunni að allir viðmælendur hafi verið sammála um að slíkt hafi átt sér stað en að þar hafi komið til framkoma Þorbjörns í einkalífi, sem hafi verið mjög gagnrýnisverð.“ Í annarri skýrslu sem greint er frá í dóminum kemur fram annað sjónarhorn en þar segir í lokaorð- um: „Þorbjörn greinir frá þreytu og kvíða vegna ástandsins í vinnunni þó svo að hann telji að ástandið hafi lagast eitthvað við það að tveir varðstjórar fóru í leyfi.“ GÁTU EKKI UNNIÐ SAMAN Margoft kemur fram að Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri hafi varið drjúgum tíma í að leysa mál- ið. Tvær viðamiklar og kostnaðar- samar sálfræðiskýrslur voru einnig unnar. Undirmenn Þorbjarnar töldu mikinn mun á því hvernig bærinn brást við kvörtunum starfsmanna um einelti af hálfu Þorbjarnar en þegar Þorbjörn taldi undirmenn beita sig einelti. Einnig segir: „Í sálfræðiskýrslu Sveinu Berglindar Jónsdóttur er síðastgreindum at- burðum lýst þannig: „Akureyrar- bær ákvað að reyna sættir í málinu og byrjað var að ræða við Þorbjörn Guðrúnarson. Þorbjörn treysti sér ekki til að vinna aftur með þessum aðilum.“ MEIÐYRÐI, VALD- NÍÐSLA, RÓGBURÐUR Ingimar reisti sinn málatilbúnað m.a. á því að Akureyrarbær hafi ekki farið að lögum í ítrekuðum tilraunum við að koma honum frá störfum og að stefndi bæri hús- bóndaábyrgð á ólögmætum mein- gerðum starfsmanna sinna, sem frá árinu 2008 hefðu valdið hon- um fjártjóni og miska. Segir svo: „Stefnandi byggir á því að „með einelti á vinnustað, valdníðslu yf- irmanna stefnanda, ólögmætri notkun á stjórnunarheimildum fyr- irsvarsmanna stefnda, misvísandi upplýsingaveitu starfsmanna stefnda, meiðyrðum, rógburði og ólögmætum stjórnvaldsákvörðun- um stefnda hafi honum í raun verið bolað frá störfum án þess að hann nyti réttar síns samkvæmt ráðn- ingar- og kjarasamningum“. Þessi ummæli ásamt fleirum sem vikið verður að hér að neðan í stefnunni kölluðu á hörð viðbrögð Akureyrarbæjar sem taldi að refsa ætti sérstaklega fyrir svo ósæmileg skrif. Héraðsdómur taldi sum orðin í stefnunni ámælisverð, en ekki þóttu efni til þess að beita nefnda aðila réttarfarssektum. KALLAÐUR KVALARI Ekki er síður gengið langt í orða- notkun í stefnumáli Sveinbjörns og sætir tíðindum að sjá slík orð í opinberum dómskjölum. Um Sveinbjörn segir að breytt starfs- lýsing hans haustið 2009 hafi valdið honum fjárhagslegu tjóni og álitshnekki. Að auki hafi Þorbjörn slökkviliðsstjóri haldið eineltinu áfram eftir það og hafi hann verið í sífellt veikari stöðu til að verja sig gegn óvild yfirmannsins. „Þannig hafi kerfisbundið verið færð frá honum verkefni, ábyrgð og aðgang- ur að upplýsingum á vinnustaðnum. Hafi þessi framkoma Þorbjörns að lokum leitt til þess að hann hafi ekki talið sig eiga annarra kosta völ en að fara í launalaust leyfi 1. des- ember 2011, þegar til stóð að segja upp tíu starfsmönnum slökkvi- liðsins ef ekki fengjust nægilega margir til þess að fara í slíkt leyfi. Hafi stefnandi verið orðinn lang- þreyttur á stanslausu áreiti og óvild á vinnustað, þar sem kvalari hans hafi farið með völdin og enginn yf- irmaður hjá stefnda verið tilbúinn að grípa inn í...“ BÆRINN SINNTI EKKI SKYLDU Í dómunum segir að ekki hafi ver- ið gætt að réttindum Sveinbjörns og Ingimars og andmælaréttur ekki virtur áður en Þorbjörn með fulltingi yfirmanna tók ákvörðun um að hafna vinnuframlagi þeirra tveggja að loknu launalausu leyfi. „Að auki þykir stefndi [Akureyrar- bær] í ljósi þess sem hér að framan var rakið heldur ekki hafa kannað málsatvik nægjanlega líkt og hon- um var skylt,“ segir einnig. Bærinn skapaði sér því skaða- bótaábyrgð gagnvart mönnunum tveimur. -BÞ Úr þingmennsku í blaðamennsku Kristinn H. Gunnarsson, fyrrum þingmaður, tekur við ritstjórn blaðsins Vestfirðir frá og með byrj- un september. Blaðið mun koma út á tveggja vikna fresti undir stjórn Kristins en hann hefur gegnt þing- mennsku bæði fyrir Al- þýðubandalagið og Fram- sóknarflokkinn. „Já, ég mun gera út frá Bolungarvík, ég hef áhuga á blaðamennsku og var að svipast um eftir atvinnu sem ég gæti stundað fyrir vestan. Ég hitti Ámunda Ámundason og þetta barst í tal. Niðurstaðan er að ég tek þetta að mér.“ Fótspor gefur út Vest- firði, systurblað Akureyr- ar vikublaðs með meiru. Kristinn segist áður hafa ritstýrt blöðum en þó aðeins pólitískum. Hann segist ekki í neinum stjórn- málaflokki lengur. Blað undir hans stjórn verði ekki flokkspólitískt en það verði „vestfjarðapólitískt“. „Í grófum dráttum mun blaðið bjóða upp á fréttaflutning af svæðinu og viðburði. Svo verður töluvert mikil umfjöllun um hagsmunamál, mál- efni sem brenna á íbúum hér og varða framtíð svæðisins og afkomu íbúanna,“ segir Kristinn spurður um ritstjórnarstefnu. Hann neit- ar því ekki aðspurður að þekking hans á stjórnkerfum, valdi og ref- ilstigum íslensks samfé- lags kunni að nýtast í nýja starfinu. Blaðið muni gera kröfur um úrbætur ekki bara á þá sem starfi utan Vestfjarða heldur einnig þá sem starfi innan svæð- is. Hann líti á það sem kost að hafa útgefandann búsettan í Reykjavík og þurfa ekki að hafa áhyggj- ur af hvernig útgefandi bregðist við mismunandi viðbrögðum íbúa í hér- aði þegar blaðið stingi á kýlum. „Ef kýli munu sjást verður stungið á þeim,“ segir Kristinn og hlær. MOSKUMÁLIÐ KEIM- LÍKT SNORRAMÁLINU En hvað segir ritstjórinn verðandi um moskumálið og Framsóknar- flokkinn sem hann sat síðast sjálfur á þingi fyrir? „Fráleit framganga oddvita Fram- sóknarflokksins í Reykjavík, satt að segja. Það var gert út á óttann og mesta áhyggjuefnið í þessu máli er að það tókst. Að sumu leyti er moskumálið þó angi af sama máli frá Akureyri, máli Snorra í Betel sem var rekinn úr vinnunni sinni fyrir skoðanir um samkynhneigð. Það er sama hvort þú horfir á Snorra-málið eða mosku-málið, bæði mál snúast um skoðanir á trúfrelsi. Snorri lýsti ekki skoðunum sínum í kennslunni sjálfri en bæjarstjórn Akureyrar tók af honum skoðanafrelsið. Þótt ég sé ósammála Snorra þá á hann varinn rétt í stjórnarskrá til að hafa skoð- anir sínar.“ Um blaðamennsku samtímans segir Kristinn að sumpart standi blaðamenn sig vel í fréttaflutningi og því að gera mismunandi sjón- arhonum skil. Blaðamannastéttin standi sig síður í því að setja sig inn í umfangsmikil mál, umfjöllun sé oft yfirborðskennd. „Ég boða gagnrýnið blað sem mun ekki bara skamma þá sem búa utan Vestfjarða heldur munu ráðamenn í héraði engan frið fá heldur ef ástæða er til.“ -BÞ KRISTINN H. GUNNARSON, nýr ritstjóri hjá Fótspori. Boðar gagnrýnið blað. ÞAÐ VAR KYRRT yfir Slökkvistöðinni á Akureyri þegar ljósmyndari leit við í gær. Þar hafa áður blossað ítrekað upp eldar í samskiptum slökkviliðsmanna. Völundur

x

Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.