Akureyri


Akureyri - 26.06.2014, Page 6

Akureyri - 26.06.2014, Page 6
6 24. tölublað 4. árgangur 26. júní 2014 Nefndin er ekkert alltaf sammála tillögum starfs- manna sem þýðir þó ekki að starfsfólkið hafi endilega rangt fyrir sér. Baldur Dýrfjörð Formaður barnaverndar í Eyjafirði. Barnaverndarnefndarmenn oft andvaka vegna erfiðra ákvarðana Áskell Örn Kárason forstöðumaður barnaverndar í Eyjafirði nýtur trausts formanns og bæjarfulltrúa. Oddvitar stjórnmálaaflanna sem sitja í bæjarstjórn á Akureyrar telja rétt að bíða úrskurðar Hæsta- réttar og vilja lítið tjá sig um um- talað barnaverndarmál sem Akur- eyri Vikublað og fleiri fjölmiðlar hafa fjallað um síðustu vikur. Bald- ur Dýrfjörð hefur verið formað- ur barnaverndar í Eyjafirði í 14 ár. Hann segir Áskel Örn Kárason forstöðumann barnaverndar í Eyja- firði njóta trausts. Bæjarfulltrúar taka undir það. Rætt hefur verið hvort bærinn geti látið skipa sérstakan starfshóp til að fara í saumana á málinu þar sem tvö börn voru send í fóstur um árs skeið, gegn vilja hluta fagfólks í félags- og heilsugeiranum. Þetta telja bæjarfulltrúar ekki koma til greina. Aðstandendur barnanna berj- ast fyrir því að bæði börnin verði vistuð hjá ættingjum. Staðan er sú að níu ára gömul stúlka er fóstruð í norðlensku sveitarfélagi en bróðir hennar, 14 ára drengur, er á heim- ili hjá ættingja í Reykjavík. Er nú verið að meta hæfi ættingjans til fósturs. HÖRÐ GAGNRÝNI ÚR ÝMSUM ÁTTUM Í síðasta tölublaði Akureyrar Viku- blaðs steig Sigrún Sigurðardóttir lektor við Háskólann á Akureyri fram í aðsendri grein og lýsti furðu og sorg vegna málsins. Sigrún er sér- fræðingur í þolendum ofbeldis og tel- ur að kerfið hafi í málinu ekki virkað sem skyldi. Sigrún er sjálf nýskipað- ur maður í barnavernd á Akureyri. Í málinu hefur verið staðhæft að fordómar og skilningsskortur á geðsjúkdómum kunni að skýra framvindu málsins að nokkru. Einnig er nefnt að barnaverndar- yfirvöld virðist á flótta undan eigin ákvörðunum með því að fallið hef- ur verið frá þeirri kröfu að börnin séu fóstruð saman á þeim stað sem fyrst átti að vera. Logi Már Einars- son, oddviti Samfylkingarinnar, segist ekki hafa sett sig inn í mál- ið enda ekki mögulegt fyrir utana komandi aðila að setja sig inn í svo flókið mál, þar sem allar hliðar séu ekki opinberar. „Ég geri ráð fyrir því að til þess bærir aðilar fjalli um það,“ segir Logi. EKKI VIÐEIGANDI Úrskurður Héraðsdóms Norður- lands eystra sem staðfesti vilja barnaverndarnefndar 9. maí sl. hefur verið kærður til Hæstarétt- ar. Logi segir það skilning sinn að Hæstiréttur skoði svona mál bæði formlega og efnislega. „Það er ekki viðeigandi að bæjarfulltrúi hafi afskipti af máli sem er í þeim far- vegi.“ Sömu skoðunar virðast aðrir oddvitar framboða í bæjarstjórn á Akureyri. Hvorki Guðmundur Baldvin Guðmundsson hjá Fram- sókn, Matthías Rögnvaldsson hjá L-listanum né Margrét Kristín Helgadóttir hjá Bjartri framtíð svöruðu spurningum baðsins um málið. Gunnar Gíslason hjá Sjálf- stæðisflokknum segir: „Það er ekki hægt að taka afstöðu til þess hvort skipa eigi nefnd til að fara ofan í einstakt barnaverndarmál nema hafa allar hliðar málsins uppi á borðinu. Svo er aldrei utan barna- verndarnefndar, þar sem um þessi mál ríkir sérstakur trúnaður. Eins og kerfið er uppbyggt nú verð- ur ekki annað séð en tryggt sé að tekið sé tillit til allra þátta við af- greiðslu mála þar sem mál þurfa fyrir héraðsdóm áður niðurstaða fæst.“ Gunnar segir enga ástæðu til að efast um að Áskell Örn Kára- son njóti trausts í starfi. Við skip- an í barnaverndarnefnd hafi verið, eftir því sem hann viti best, verið horft til þess að þar komi inn fólk með þekkingu og reynslu, óháð flokkslínum. Sóley Björk Stefánsdóttir, odd- viti VG segir: „Málið sem fjall- að hefur verið um er í vinnslu í dómskerfinu og bíður umfjöllunar í hæstarétti. Það er að mínu mati rétta leiðin fyrir mál af þessu tagi.“ Spurð hvort Sóley beri traust til forstöðumanns barnaverndar segir Sóley: „Ég hef engar forsendur til að meta traust Áskels í starfi. Öll gerum við einhverntíma mistök og enginn er hafinn yfir gagnrýni, það er alltaf mikilvægt að hafa í huga“. ÞAULSÆTIN FORYSTA Baldur Dýrfjörð hefur verið for- maður barnaverndarnefndar Eyja- fjarðar í 14 ár. Nýr meirihluti fól honum að starfa áfram í sama hlut- verki næstu fjögur árin og horfir því í að Baldur sitji 18 ár í sama embættinu. Áskell Örn, sá sem fjöl- skyldumeðmimir í barnaverndar- málinu sem Akureyri Vikublað hef- ur fjallað um gagnrýna harðlega, hefur gegnt sínu trúnaðarstarfi í átta ár en hann er sálfræðingur að mennt. Baldur Dýrfjörð segir umdeilanlegt að sami maður sitji í sömu trúnaðarstöðunni svo lengi en vilji hafi staðið til þess hjá nýj- um meirihluta að hann haldi starfi sínu áfram og því stefni í átján ára formennsku. Baldur segist bund- inn lagalegri þagnarskyldu og geti því ekki rætt einstök mál. Spurð- ur hvort Áskell Örn Kárason njóti trausts hans, segir Baldur: „Já, hann gerir það.“ Baldur segir að mörg málanna sem komi inn á borð nefndarinn- ar séu þung og stór. Eðlilega sýn- ist sitt hverjum um niðurstöður og ákvarðanir. Barnavendarnefnd verði að fjalla hlutlaust um mál, tryggja að öll sjónarmið komi fram, að andmælaréttur sé virtur og fleira þegar taka þarf erfiðar ákvarðanir. „Oftar en ekki segjum við að það sé ekki komið nóg af gögnum og upp- lýsingum, að við villjum láta skoða mál betur áður en tillaga er sam- þykkt.” FÓLK ANDVAKA VEGNA ÁKVARÐANA Spurður hvort fordómar geti haft áhrif á málsmeðferð og niðurstöð- ur segir Baldur að þegar mál hafi verið mjög lengi í meðferð hjá starfsmönnum barnaverndar og fyrir nefndinni geti komið að því að spyrja verði hvort nefndin sé í hlut- verki barnaverndar eða foreldra- verndar. “Auðvitað eiga foreldrar í málum oft mjög bágt og það er sem dæmi gífurlega stórt skref að setja börn í fóstur, en ég get alveg sagt þér að við tökum marga og ít- rekaða hringi áður en ákvörðun er tekin. Fólk í nefndinni hefur lýst því hvernig það liggur stundum andvaka yfir ákvörðunum. Þetta er aldrei létt verk en alltaf verðum við að huga að því að vernda rétt barna og beita jafnvel neyðarúrræðum ef allt annað hefur verið reynt. Áður en að slíkir ákvörðun kemur hef- ur farið fram mikil rökræða milli starfsmanna barnaverndar og nefndarinnar sjálfrar.“ Nánar um hættu á fordómum og hættu á að persónuleg kergja starfsmanna geti haft neikvæð áhrif á niðurstöður segir Baldur að barnaverndarstarfsmenn eins og margir aðrir í félagmála- og heil- brigðisgeiranum þurfi iðulega að takast á við eigin fordóma og með- virkni en ýmis úrræði séu í boði að fást við þá hættu. „Það er mjög mikilvægt að menn séu meðvitaðir um þessa hættu en þú getur aldrei útilokað hana. Vonandi koma þá nógu margir að hverju máli til að tryggja að öll sjónarmið komist að. Barnaverndarnefnd getur þurft að spyrna við fótum ef svo ber undir og það hefur hún auðvitað gert. Þá er mikilvægt að skipa barni tals- mannn sem er hlutlaus og kemur sjónarmiðum barnsins í orð en tek- ur ekki afstöðu í málinu.“ Nefndin er ekkert alltaf sammála tillögum starfsmanna sem þýðir þó ekki að starfsfólkið hafi endilega rangt fyrir sér. „Ég vil leggja áherslu á að starfsmenn barnaverndar eru að vinna erfitt og óeigingjarnt starf þar sem unnið er með þá sem minnst mega sína. Það er ekki alltaf auðvelt að skapa börnum þann aðbúnað og þau tækifæri sem við erum öll sammála um að þau eigi rétt á.“ Þá segir Baldur ágætt að hafa í huga hlutverk Barnavernarstofu í eftirliti með störfum barnavernd- ar, kæruleiðir þegar svo ber undir til Kærunefndar barnaverndar- mála o.s.frv. Það séu mikilvægir þættir í meðferð þessara við- kvæmu mála. „Barnaverndin og störf barna- verndarnefnda og starfsfólks barnaverndar eru ekki og mega ekki vera hafin yfir gagnrýni. Það er hins vegar mjög mikilvægt að samhliða slíkri umfjöllun sé í það minnsta gerð tilraun til þess að varpa ljósi á þau ítarlegu lagaá- kvæði sem málsmeðferðin fer eftir og þau ítarlegu úrræði sem aðil- um máls eru tryggð við málsmeð- ferðina. Að mál sé komið á einhvern ákveðinn stað er því ekki háð til- viljun eða geðþótta eða duttlungum þeirra sem um málið fjalla. Öllum ætti að vera það ljóst sem kynna sér málsmeðferðina og málsmeðarregl- ur,“ segir Baldur Dýrfjörð. a FRÉTTASKÝRING Björn Þorláksson

x

Akureyri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.