Akureyri - 26.06.2014, Síða 6
6 24. tölublað 4. árgangur 26. júní 2014
Nefndin er ekkert alltaf
sammála tillögum starfs-
manna sem þýðir þó
ekki að starfsfólkið hafi
endilega rangt fyrir sér.
Baldur Dýrfjörð Formaður barnaverndar í Eyjafirði.
Barnaverndarnefndarmenn oft
andvaka vegna erfiðra ákvarðana
Áskell Örn Kárason forstöðumaður barnaverndar í Eyjafirði nýtur trausts formanns og bæjarfulltrúa.
Oddvitar stjórnmálaaflanna sem
sitja í bæjarstjórn á Akureyrar
telja rétt að bíða úrskurðar Hæsta-
réttar og vilja lítið tjá sig um um-
talað barnaverndarmál sem Akur-
eyri Vikublað og fleiri fjölmiðlar
hafa fjallað um síðustu vikur. Bald-
ur Dýrfjörð hefur verið formað-
ur barnaverndar í Eyjafirði í 14
ár. Hann segir Áskel Örn Kárason
forstöðumann barnaverndar í Eyja-
firði njóta trausts. Bæjarfulltrúar
taka undir það.
Rætt hefur verið hvort bærinn
geti látið skipa sérstakan starfshóp
til að fara í saumana á málinu þar
sem tvö börn voru send í fóstur um
árs skeið, gegn vilja hluta fagfólks
í félags- og heilsugeiranum. Þetta
telja bæjarfulltrúar ekki koma til
greina.
Aðstandendur barnanna berj-
ast fyrir því að bæði börnin verði
vistuð hjá ættingjum. Staðan er sú
að níu ára gömul stúlka er fóstruð
í norðlensku sveitarfélagi en bróðir
hennar, 14 ára drengur, er á heim-
ili hjá ættingja í Reykjavík. Er nú
verið að meta hæfi ættingjans til
fósturs.
HÖRÐ GAGNRÝNI ÚR
ÝMSUM ÁTTUM
Í síðasta tölublaði Akureyrar Viku-
blaðs steig Sigrún Sigurðardóttir
lektor við Háskólann á Akureyri
fram í aðsendri grein og lýsti furðu
og sorg vegna málsins. Sigrún er sér-
fræðingur í þolendum ofbeldis og tel-
ur að kerfið hafi í málinu ekki virkað
sem skyldi. Sigrún er sjálf nýskipað-
ur maður í barnavernd á Akureyri.
Í málinu hefur verið staðhæft
að fordómar og skilningsskortur
á geðsjúkdómum kunni að skýra
framvindu málsins að nokkru.
Einnig er nefnt að barnaverndar-
yfirvöld virðist á flótta undan eigin
ákvörðunum með því að fallið hef-
ur verið frá þeirri kröfu að börnin
séu fóstruð saman á þeim stað sem
fyrst átti að vera. Logi Már Einars-
son, oddviti Samfylkingarinnar,
segist ekki hafa sett sig inn í mál-
ið enda ekki mögulegt fyrir utana
komandi aðila að setja sig inn í svo
flókið mál, þar sem allar hliðar séu
ekki opinberar. „Ég geri ráð fyrir
því að til þess bærir aðilar fjalli um
það,“ segir Logi.
EKKI VIÐEIGANDI
Úrskurður Héraðsdóms Norður-
lands eystra sem staðfesti vilja
barnaverndarnefndar 9. maí sl.
hefur verið kærður til Hæstarétt-
ar. Logi segir það skilning sinn að
Hæstiréttur skoði svona mál bæði
formlega og efnislega. „Það er ekki
viðeigandi að bæjarfulltrúi hafi
afskipti af máli sem er í þeim far-
vegi.“
Sömu skoðunar virðast aðrir
oddvitar framboða í bæjarstjórn
á Akureyri. Hvorki Guðmundur
Baldvin Guðmundsson hjá Fram-
sókn, Matthías Rögnvaldsson hjá
L-listanum né Margrét Kristín
Helgadóttir hjá Bjartri framtíð
svöruðu spurningum baðsins um
málið. Gunnar Gíslason hjá Sjálf-
stæðisflokknum segir: „Það er ekki
hægt að taka afstöðu til þess hvort
skipa eigi nefnd til að fara ofan í
einstakt barnaverndarmál nema
hafa allar hliðar málsins uppi á
borðinu. Svo er aldrei utan barna-
verndarnefndar, þar sem um þessi
mál ríkir sérstakur trúnaður. Eins
og kerfið er uppbyggt nú verð-
ur ekki annað séð en tryggt sé að
tekið sé tillit til allra þátta við af-
greiðslu mála þar sem mál þurfa
fyrir héraðsdóm áður niðurstaða
fæst.“ Gunnar segir enga ástæðu
til að efast um að Áskell Örn Kára-
son njóti trausts í starfi. Við skip-
an í barnaverndarnefnd hafi verið,
eftir því sem hann viti best, verið
horft til þess að þar komi inn fólk
með þekkingu og reynslu, óháð
flokkslínum.
Sóley Björk Stefánsdóttir, odd-
viti VG segir: „Málið sem fjall-
að hefur verið um er í vinnslu í
dómskerfinu og bíður umfjöllunar
í hæstarétti. Það er að mínu mati
rétta leiðin fyrir mál af þessu tagi.“
Spurð hvort Sóley beri traust til
forstöðumanns barnaverndar segir
Sóley: „Ég hef engar forsendur til
að meta traust Áskels í starfi. Öll
gerum við einhverntíma mistök og
enginn er hafinn yfir gagnrýni, það
er alltaf mikilvægt að hafa í huga“.
ÞAULSÆTIN FORYSTA
Baldur Dýrfjörð hefur verið for-
maður barnaverndarnefndar Eyja-
fjarðar í 14 ár. Nýr meirihluti fól
honum að starfa áfram í sama hlut-
verki næstu fjögur árin og horfir
því í að Baldur sitji 18 ár í sama
embættinu. Áskell Örn, sá sem fjöl-
skyldumeðmimir í barnaverndar-
málinu sem Akureyri Vikublað hef-
ur fjallað um gagnrýna harðlega,
hefur gegnt sínu trúnaðarstarfi í
átta ár en hann er sálfræðingur
að mennt. Baldur Dýrfjörð segir
umdeilanlegt að sami maður sitji
í sömu trúnaðarstöðunni svo lengi
en vilji hafi staðið til þess hjá nýj-
um meirihluta að hann haldi starfi
sínu áfram og því stefni í átján ára
formennsku. Baldur segist bund-
inn lagalegri þagnarskyldu og geti
því ekki rætt einstök mál. Spurð-
ur hvort Áskell Örn Kárason njóti
trausts hans, segir Baldur: „Já,
hann gerir það.“
Baldur segir að mörg málanna
sem komi inn á borð nefndarinn-
ar séu þung og stór. Eðlilega sýn-
ist sitt hverjum um niðurstöður
og ákvarðanir. Barnavendarnefnd
verði að fjalla hlutlaust um mál,
tryggja að öll sjónarmið komi fram,
að andmælaréttur sé virtur og fleira
þegar taka þarf erfiðar ákvarðanir.
„Oftar en ekki segjum við að það sé
ekki komið nóg af gögnum og upp-
lýsingum, að við villjum láta skoða
mál betur áður en tillaga er sam-
þykkt.”
FÓLK ANDVAKA VEGNA
ÁKVARÐANA
Spurður hvort fordómar geti haft
áhrif á málsmeðferð og niðurstöð-
ur segir Baldur að þegar mál hafi
verið mjög lengi í meðferð hjá
starfsmönnum barnaverndar og
fyrir nefndinni geti komið að því að
spyrja verði hvort nefndin sé í hlut-
verki barnaverndar eða foreldra-
verndar. “Auðvitað eiga foreldrar
í málum oft mjög bágt og það er
sem dæmi gífurlega stórt skref að
setja börn í fóstur, en ég get alveg
sagt þér að við tökum marga og ít-
rekaða hringi áður en ákvörðun er
tekin. Fólk í nefndinni hefur lýst
því hvernig það liggur stundum
andvaka yfir ákvörðunum. Þetta er
aldrei létt verk en alltaf verðum við
að huga að því að vernda rétt barna
og beita jafnvel neyðarúrræðum ef
allt annað hefur verið reynt. Áður
en að slíkir ákvörðun kemur hef-
ur farið fram mikil rökræða milli
starfsmanna barnaverndar og
nefndarinnar sjálfrar.“
Nánar um hættu á fordómum
og hættu á að persónuleg kergja
starfsmanna geti haft neikvæð
áhrif á niðurstöður segir Baldur að
barnaverndarstarfsmenn eins og
margir aðrir í félagmála- og heil-
brigðisgeiranum þurfi iðulega að
takast á við eigin fordóma og með-
virkni en ýmis úrræði séu í boði
að fást við þá hættu. „Það er mjög
mikilvægt að menn séu meðvitaðir
um þessa hættu en þú getur aldrei
útilokað hana. Vonandi koma þá
nógu margir að hverju máli til að
tryggja að öll sjónarmið komist að.
Barnaverndarnefnd getur þurft að
spyrna við fótum ef svo ber undir
og það hefur hún auðvitað gert. Þá
er mikilvægt að skipa barni tals-
mannn sem er hlutlaus og kemur
sjónarmiðum barnsins í orð en tek-
ur ekki afstöðu í málinu.“ Nefndin
er ekkert alltaf sammála tillögum
starfsmanna sem þýðir þó ekki að
starfsfólkið hafi endilega rangt
fyrir sér. „Ég vil leggja áherslu á
að starfsmenn barnaverndar eru
að vinna erfitt og óeigingjarnt
starf þar sem unnið er með þá sem
minnst mega sína. Það er ekki
alltaf auðvelt að skapa börnum
þann aðbúnað og þau tækifæri
sem við erum öll sammála um að
þau eigi rétt á.“
Þá segir Baldur ágætt að hafa í
huga hlutverk Barnavernarstofu í
eftirliti með störfum barnavernd-
ar, kæruleiðir þegar svo ber undir
til Kærunefndar barnaverndar-
mála o.s.frv. Það séu mikilvægir
þættir í meðferð þessara við-
kvæmu mála.
„Barnaverndin og störf barna-
verndarnefnda og starfsfólks
barnaverndar eru ekki og mega
ekki vera hafin yfir gagnrýni. Það
er hins vegar mjög mikilvægt að
samhliða slíkri umfjöllun sé í það
minnsta gerð tilraun til þess að
varpa ljósi á þau ítarlegu lagaá-
kvæði sem málsmeðferðin fer eftir
og þau ítarlegu úrræði sem aðil-
um máls eru tryggð við málsmeð-
ferðina. Að mál sé komið á einhvern
ákveðinn stað er því ekki háð til-
viljun eða geðþótta eða duttlungum
þeirra sem um málið fjalla. Öllum
ætti að vera það ljóst sem kynna sér
málsmeðferðina og málsmeðarregl-
ur,“ segir Baldur Dýrfjörð. a
FRÉTTASKÝRING
Björn Þorláksson