Akureyri


Akureyri - 26.06.2014, Page 18

Akureyri - 26.06.2014, Page 18
18 24. tölublað 4. árgangur 26. júní 2014 LJÓSABÚÐIN Tryggvabraut 24 (Þar sem Vörubær var, austurendi) Gengið inn frá Furuvöllum og Tryggvabraut. Inniljós - Útiljós - Flúorljós - Skrautljós Ledperur - Halogenperur - Sparperur og fl... ECO LJÓS Tryggvabraut 24 - Sími: 464-4444 Email: ecoljos@simnet.is Opnunartími í Verslun: Mánud- föstud frá kl. 12-18 og laugard 13-16 Níræður á laugardag Sverrir Pálsson, fyrrverandi skólastjóri Laugardaginn 28. júlí verður Sverr- ir Pálsson, níræður. Sverrir fæddist á Akureyri 28. júlí 1924, sonur hjónanna Sigríðar Oddsdóttur, húsmóður, og Páls Sigurgeirssonar, kaupmanns. Sverrir varð stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri vorið 1942 og vantaði þá rúma viku upp 18 ára aldurinn. Hann lauk cand mag. prófi í íslenskum fræðum frá Háskóla Íslands árið haustið 1947, réttra 23 ára gam- all og mun enginn hafa lokið því prófi svo ungur. Þá um haustið hóf hann kennslu við Gagnfræðaskóla Akureyrar og varð skólinn starfs- vettvangur hans alla tíð. Sverrir Pálsson fékkst við fleira. Hann var fréttaritari Morgunblaðsins í rétta tvo áratugi. Hann stóð að veglegri sögusýningu Akureyrar á aldaraf- mæli kaupstaðarins árið 1962 og var í stjórn Minjasafnsins á Akur- eyri í tvo áratugi. Þá eru ótalin þau störf, er hann vann í þágu tónlistar. Sverrir hefur óspart átt vingott við listagyðjuna. Hann er söngvinn í besta lagi, söng í kórum norðan og sunnan heiða, oftlega einsöng, og ekki síst tvísöng með aldavini sínum, Jóhanni Konráðssyni og oft- ast var frændi hans, Áskell Jónsson, tónskáld, undirleikari þeirra. Það er ekki aðeins að Sverrir hafi íslenska tungu á valdi sínu, heldur er hann einnig hagorður og hefur gefið út ljóðabækur. Þegar hann var kominn á þann aldur er flest- ir íhuga setu í hinum helga steini, var ekki aðeins að hann reisti þeim hjónum nýtt hús, heldur sleppti hann beislinu fram af fyrrnefndri gyðju og hóf nám í listmálun og átt- ræður hélt hann stóra sýningu. Enn málar Sverrir úti í bílskúr Næst því að eiga góða fjölskyldu og vini, er ungmennum akkur í því að hafa góða kennara á mótunar- skeiði ævi sinnar. Að því búa þeir alla ævi. Þannig er það um okkur þrjá, sem kynntust Sverri, þá ófermdir pjakkar, árla á sjötta áratug síð- ustu aldar, svo og fjöldann allan af nemendum Sverris um áratugi, sem nutu leiðsagnar hans um lengri eða skemmri tíma. Það kann að vera, að margir þeirra hafi ekki áttað sig á því til fulls, fyrr en löngu seinna, hve gott veganesti í íslenskri tungu og menningu það var, sem Sverrir bar á borð. Sverrir var strangur kennari, sumum fannst hann strangur um of, en hann var í senn réttsýnn, rökfastur og sanngjarn. Málfræðin, stafsetningin, þ.m.t. gamla, góða zetan og setningafræðin, allt þetta lék honum á tungu, bókmenntirn- ar engu síður. Sverrir krafðist aga, jafnt af sjálfum sér sem öðrum, öllu meira en síðar þótti sjálfsagt. Skop- skynið var þó aldrei langt undan. Eftir farsæla kennslu í hálfan annan áratug, tók hann við stjórn skólans af Jóhanni Frímann árið 1963 og stýrði honum allt til starfs- loka sinna, sumarið 1989. Snemma á skólastjóraferli hans fóru þeir tímar í hönd, að skólakerfið breytt- ist og batnaði, nýjar námsleiðir litu dagsins ljós. Gagnfræðaskóli Akur- eyrar varð í hópi þeirra skóla sem fyrstir efndu til framhaldsdeilda, er gáfu ungu fólki ný og áður óþekkt tækifæri til náms. Þessar deildir voru Sverri hugleiknar og mikið hjartans mál, enda efldust þær jafnt og þétt. Þó auðnaðist honum ekki, þrátt fyrir drengilega baráttu að fleyta þeim svo fram, að Gagnfræðaskóli Akureyrar fengi að brautskrá stúdenta. Enginn er eyland. Sverrir og Ellen Pálsson gengu ung til hjú- skapar sem varað hefur í hartnær 7 áratugi. Lengst af bjuggu þau í Möðruvallastræti 10 þar sem þau ólu upp börnin sín fjögur. Þangað var ætíð gott að koma og ekki síð- ur í Mosateiginn þar sem útsýnið er ægifagurt. Við, sem þessa grein ritum, eig- um Sverri mikið að þakka. Það var ekki einungis að hann kenndi okkur öllum í þrjá vetur, heldur var hann samstarfsmaður okkar og skólastjóri um áratuga skeið og vinur okkar alla tíð; fyrirmynd á margan hátt. Hann var okkur ráð- hollur og þegar fyrir kom að ljósið varð að týru, blés hann í glæðurnar, loginn varð í senn heitur og sýni- legur. Hann lægði líka öldur þegar þess varð þörf. Þess vegna sendum við þeim hjónum, Sverri og Ellen, okkar innilegastu þakkir og hamingju- óskir. Bernharð Haraldsson Baldvin Jóh. Bjarnason Magnús Aðalbjörnsson „Það kann að vera, að margir þeirra hafi ekki áttað sig á því til fulls, fyrr en löngu seinna, hve gott veganesti í íslenskri tungu og menningu það var, sem Sverrir bar á borð. EINAR HELGASON TEIKNAÐI myndina SÖGURITARAR SVERRIR PÁLSSON

x

Akureyri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.