Akureyri - 26.06.2014, Page 20
20 24. tölublað 4. árgangur 26. júní 2014
Bylting á Akureyri
Árið 1809 átti Napóleon Frakk-
landskeisari í hatrömmum bar-
dögum við breska heimsveldið. Í
viðleitni sinni til að knésetja óvin-
inn lýsti Napóleon yfir viðskipta-
banni við Breta um alla Evrópu.
Vegna samvinnu Dana og Frakka
náði það bann einnig til Íslands.
Í júní 1809 gerði áhöfn á bresku
skipi byltingu í Reykjavík og felldi
úr gildi viðskiptabannið. Í fram-
haldinu fór ástandið úr böndun-
um og áður en langt um leið hafði
einn foringi byltingarsinna, Jörgen
Jörgensen, lýst yfir að stjórn Dana
á Íslandi væri að fullu lokið og
að nú væri Ísland lýðveldi, sjálf-
stætt og frjálst undir vernd breska
heimsveldisins. Norðlendingar
urðu annars lítið varir við þessi
læti fyrir sunnan nema í formi
krassandi frásagna sem bárust frá
höfuðstaðnum. Til tíðinda dró þó
í júlí þegar fréttist af vopnuðum
herflokki á leið norður til Akureyr-
ar í þeim erindagjörðum að fylgja
eftir nýjum landslögum.
Rétt er að geta þess að samtíma-
heimildir um þessa norðurferð
Jörgensens eru nokkuð brota-
kenndar og hlutdrægar enda sumar
teknar saman af aðilum hliðhollum
dönsku krúnunni sem vildu gera
lítið úr byltingunni. Staðreyndin
er engu að síður sú að fjölmargir
embættismenn á Íslandi gengu til
liðs við hinn 29 ára Jörgensen sem
kynnti sig sem verndara eyjunn-
ar og hæstráðanda um lög og láð
þar til hið forna Alþingi landsins
yrði endurreist. Byltingaleiðtoginn
bar með sér stórar hugsjónir sem
margar hverjar höfðu nú tekið gildi
sem lög í landinu. Þar má nefna
kosningafrelsi allra manna, ríkra
sem fátækra, og algjört ferðafrelsi
allra Íslendinga um land sitt.
KOMIÐ TIL AKUREYRAR
Um miðjan júlí reið Jörgensen inn til
Akureyrar klæddur einkennisbún-
ingi breskra skipherra í fylgd tveggja
einkennisklæddra og vel vopnaðra
lífvarða. Við upphaf ferðarinnar frá
Reykjavík höfðu þeir reyndar verið
fleiri í flokknum en sökum þess hve
Norðlendingar reyndust gestrisn-
ir og viðmótsþýðir fengu nokkrir
lífvarðanna að yfirgefa lestina. Í
Eyjafirði fann Jörgensen hins vegar
fyrst fyrir almennri andstöðu við
fyrirætlanir sínar. Vissulega hafði
komið til átaka á leiðinni norður en
á Möðruvöllum hafði hann neyðst til
að leysa amtmanninn frá embættum
sínum þar sem hann vildi ekki hlýða
hinu nýja yfirvaldi.
Þjóðvegurinn til Akureyrar lá
framhjá hlaði Eyrarlandsbæjar-
ins og þaðan niður brekkurnar.
Líklegt er að herflokkurinn hafi
riðið þessa leið. Þaðan mátti sjá
ágætlega yfir timbur- og torfhús
verslunarstaðarins. Syðst á eyr-
inni stóð eina starfandi verslunin
á Akureyri þar sem Johan Peter
Hemmert hélt um stjórnartaumana.
Áfram lá þjóðvegurinn niður með
Eyrarlandsbrekkunni í beygjum og
sveigjum ofan í Búðargil með stóra
kartöflugarða Levers á hægri hönd.
Næst varð að ríða yfir lækinn og
síðan niður með vegslóða niður að
ströndinni. Sá vegslóði fékk seinna
nafnið Breiðigangur.
MARGT UM MANNINN
Höfuðstaður Norðurlands lét vissu-
lega ekki mikið yfir sér en það hefur
vafalaust komið Jörgensen á óvart
hversu margt var þar um manninn.
Á Akureyri bjuggu að staðaldri um
40 sálir en þennan dag voru auk íbú-
anna um 60 síldveiðimenn að störf-
um við Pollinn. Jörgensen gæti hafað
grunað Hemmert kaupmann um að
hafa smalað mönnunum saman enda
kaupmenn oft í forsvari síldveið-
anna. þá er freistandi að ímynda
sér hvernig stemningin hefur verið
þegar þeir félagar riðu á hestum sín-
um eftir ströndinni í átt að verslun
Hemmerts og hvort dönsku fánar
verslunarhúsanna hafi þá blaktað
yfir fulltrúum lýðveldisins.
NIÐURFELLING SKULDA
Jörgensen mun væntanlega hafa
gefið sig á tal við fólkið sem þarna
var samankomið og sagt þeim frá
nýju landslögunum en það gerði
hann gjarnan hvert sem hann fór.
Við slík tækifæri tilkynnti hann
jafnframt að menn mættu vita
að allar skuldir Íslendinga við
danska kaupmenn og dönsku rík-
isstjórnina væru felldar niður. Ef
Danir á Íslandi ættu erfitt með að
kyngja þessum nýju stjórnarháttum
yrðu þeir sendir aðra leið til Dan-
merkur, þeim að kostnaðarlausu. Í
æviminningum sínum segir Jörgen-
sen að honum hafi verið tekið vel af
bæjarbúum og þeir hafi sagt honum
ýmis kærumál í garð dönsku kaup-
mannanna. Gunnlaugur Briem
sýslumaður Eyjafjarðarsýslu kom
þennan dag til Akureyrar og var
ekki eins glaður með þróun mála.
Hann sagði þegar af sér embætti en
fékk þess í stað boð frá Jörgensen
um að halda á brott til Danmerkur.
LEITAÐ AF LANDMÆL-
INGAKORTUM
Það olli Jörgensen gremju að land-
mælingamennirnir Frisak og Scheel
voru hvergi sjáanlegir í bænum né
kort þeirra enda þeir félagar löngu
farnir út á land til frekari mælinga.
Hann hefði gjarnan viljað koma
höndum sínum yfir gögn þeirra því
þau geymdu mikilvægar
upplýsingar um öruggar sigl-
ingarleiðir við landið. Ein-
hverjir hvísluðu sín á milli
að Jörgensen mætti teljast
heppinn að lautenantarnir
væru ekki í bænum því þeir
myndu örugglega ekki sitja
þegjandi undir þessu valdar-
áni.
HEMMERT VERSLUNAR-
STJÓRI HEIMSÓTTUR
Eitt af markmiðum norð-
urferðarinnar var að kanna
hversu miklar byrgðir væru í vöru-
skemmum kaupmanna og hvort
starfshættir þeirra væru sann-
gjarnir gagnvart alþýðunni. Þrem-
enningarnir stöðvuðu því hesta sína
við verslun Hemmerts og kröfðust
þess að fá að litast um húsakynnin.
Hemmert sem var annars nokkuð
dagfarsprúður náungi þverneitaði
að hleypa aðkomumönnunum inn
því hann óttaðist líklega að versl-
unin yrði gerð upp. Hemmert mun
hafa reynt að hrekja Jörgensen burt
með valdi. Það gagnaði lítt og hann
fékk heldur engan stuðning frá
alþýðunni. Jörgensen bað lífverði
sína að sitja sem fastast en steig
sjálfur af baki og gekk með brugðu
höggsverðinu inn til kaupmannsins.
Hinn stórmerkilegi en nokkuð hlut-
drægi sagnaritari Espólín segir að
á meðan Jörgensen hafi athafnað
sig inni hjá kaupmanni hafi líf-
verðir hans setið í mannþrönginni
með hlaðnar pístólur og skolfið af
hræðslu. Hvað sem því líður þá hef-
ur ýmsum vafalaust þótt eitthvað
hárugt við þessa einkennisklæddu
tvímenninga. Gott ef annar þeirra
var ekki Eyfirðingurinn Jón
Bjarnason áður búsettur í
hegningarhúsinu í Reykja-
vík vegna þjófnaðar. Téðum
Jóni hefur eflaust þótt þetta
með afbrigðum vandræða-
legar aðstæður enda orti
skáldið Ámi Jónsson seinna
um þessa frægðarferð:
Úr tukthúsi útskroppinn
Eyfirðinga ganti
Kom hér fús með korðann
sinn
Kámugur lúsasoldatinn
HALDIÐ TIL BAKA
Enginn veit nákvæmlega hvað átti
sér stað inni hjá Hemmert nema
það að Jörgensen mun hafa lagt
frá sér sverðið þegar inn kom er
hann taldi sig ekkert hafa að ótt-
ast. Þegar Jörgensen snéri til baka
frá Hemmert virtust þeir hafa náð
góðu samkomulagi sín á milli. Síð-
asta verk lífvarðanna á Akureyri
var að miða pístólum sínum út
á fjörðinn og skjóta eftir skipun
foringja síns. Það gekk víst held-
ur illa segir Espólín þar sem þeir
hafi verið orðnir svo stirðhentir af
hræðslu. Því næst kvaddi verndari
Íslands og lífverðir hans bæjarbúa,
riðu á brott og hurfu út í fagra sum-
arnóttina. a
GRENNDARGRALIÐ
JÖRGEN JÖRGENSEN
KOM til Akureyrar
sumarið 1809.
ARNAR BIRGIR
ÓLAFSSON,
liðsmaður
Grenndargrals-
ins, skrifar.