Austurland - 18.04.2013, Blaðsíða 2

Austurland - 18.04.2013, Blaðsíða 2
2 18. APRÍL 2013 Blaðið að þessu sinni er að stórum hluta helgað komandi kosningum. Í síðasta blaði var tekin saman stefna fimm stærstu flokkanna sem samkvæmt könnunum voru með fulltrúa á þingi. Í þessu blaði verða tekin fyrir ný framboð sem eru að sækja í sig veðrið og birta stefnur sínar en eingöngu er fjallað um þau framboð sem bjóða fram í þeim tveimur kjördæmum er blaðið nær til þ.e. Norðaustur- og Suðurkjördæmi. Þá ákvað ég að setja upp kynjagleraugun og skoða framboðin með þeim auk þess að reyna að setja fjölbreytta flóru framboða niður á einhverskonar litróf stjórnmála. Þá er farið yfir mögulegar breytingar á fulltrúum kjördæmanna á þingi en 11 af 20 þingmönnum í báðum kjördæmunum koma nýir inn. Kallað var eftir aðsendum greinum frá öllum framboðum og margir hafa nýtt sér það tækifæri sem sjá má af aðsendum greinum. Auk þess að fjalla um stjórnmál þá eru í blaðinu viðtöl við Magneu, framkvæmdastjóra Icelandair hótelanna, og Inga Þór, markaðsstjóra Flugfélagsins, þar sem rædd er staða ferðaþjónustunnar á Austurlandi og tækifæri framtíðarinnar. Um leið og ég lofa að umfang stjórnmálaumræðu verði mun minna í næsta blaði þá langar mig að hvetja ykkur lesendur að senda inn greinar og hugmyndir að umfjöllunarefni í blaðinu. Það hefur verið gaman að fara í gegnum stefnuskrár flokkana og bera þær saman. Það sem einna helst vakti athygli mína var hversu keimlíkar áherslurnar voru. Allir vildu nýta mögulegan hagnað af vogunarsjóðum í þágu heimila og/eða til að lækka skuldir ríkisins og aukið íbúalýðræði og umbætur í velferðarkerfinu voru á stefnuskrá allra flokka. Þessi vinna hefur skilað því að sjálf hef ég ekki hugmynd um fyrir framan hvaða bókstaf X-ið mitt fer í komandi kosningum en ég tel að mér beri að mæta og nýta lýðræðislegan rétt minn hvort sem ég skila auðu eða vel skásta kostinn/flokkinn. Stefanía G. Kristinsdóttir, ritstjóri Kosningablaðið Leiðari AUSTURlAnd 5. TBl. 2. ÁRGAnGUR 2013 Útgefandi: Fótspor ehf. Ábyrgðarmaður: Ámundi Ámundason, sími: 824 2466, netfang: amundi@fotspor.is. auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason, Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík. auglýsingasími: 578 1190, netfang: auglysingar@fotspor.is. Ritstjóri: Stefanía G. Kristinsdóttir, sími 891 6677, netfang: stefania@einurd.is Blaðamenn: Bryndís Skúladóttir Prentun: Ísafoldarprentsmiðja, 4.400 eintök. dreifing: Íslandspóstur. - Blaðið er aðgengilegt á PDF sniði á vefnum www.fotspor.is. Fríblaðinu er dreiFt í 4.400 eintökum Á öll Heimili Á auSturlandi OG HOrnaFirði auk dreiFbÝliS. blaðið liGGur einniG Frammi Á HelStu þéttbÝliSStöðum Á auSturlandi. Gistihúsið Egilsstöðum bær aprílmánaðar Í byrjun hvers mánaðar er valinn einn ferðaþjónustubær innan vébanda Ferðaþjónustu bænda, nánari upplýsingar á www.sveit.is. Gistihúsið Egilsstöðum er hlýlegt sveitahótel staðsett á bökkum Lagarfljóts. Gisting er í 18 björtum og vel búnum herbergjum með baði. Samkvæmt viðskiptavinum og starfsfólki Ferðaþjónustu bænda hafa gestgjafarnir lagt sig fram við að varðveita sögu hússins og endurskapa andrúmsloft fyrri tíma auk þess að bjóða gestum fyrsta flokks matarupplifun. Gistihúsið Egilsstöðum er í eigu og rekstri hjónanna Huldu Elisabeth Daníelsdóttur og Gunnlaugs Jónassonar. Gunnlaugur er af Egilsstaðaættinni sem búið hefur Egilsstaði frá árinu 1889 og Hulda á rætur að rekja til Færeyja og Vestfjarða. Gunnlaugur og Hulda hafa lagt mikla alúð í uppbyggingu þessa gamla húss. Þau hafa reynt að vera trú anda þess og einsett sér að hótelið verði ætíð með persónulegu sniði, hvort sem um er að ræða herbergi, þjónustu eða veitingar. Fjölskyldan er afar samhent og má segja að hver fjölskyldumeðlimur hafi sitt hlutverk innan veggja Gistihússins. Líkt og í Gistihúsinu sjálfu er matargerðin sprottin úr traustum hefðum en hráefni gjarnan sett í nýtt og frumlegt samhengi svo útkoman verður gestum eftirminnileg. Ný verslun í hjarta Egilsstaða Kristín Rut Eyjólfsdóttir opnaði fyrir skemmstu nýja verslun á Egilsstöðum og lét þar með gamlan draum rætast. Kristín segist lengi hafa gengið með þann draum að eiga eigin verslun eða gallerí og upp á síðkastið hafi henni fundist vanta verslun hér í fjórðungnum sem hafi á boðstólnum skemmtilega og öðruvísi lífsstílsvöru. Hún hafi því ákveðið að slá til og „Heimili og prýði“ sé nú orðið að veruleika. Um er að ræða verslun með gjafavöru og sælkeravöru í bland við list en á sérhverjum tíma er valinn listamaður sem fær að sýna og kynna sína listsköpun. Þar fyrir utan má einnig nálgast verk Kristínar í versluninni en Kristín hefur lengi lagt stund á myndlist. Verslunin var opnuð á síðasta ári og var hún þá staðsett við Kaffi Egilsstaði en þar sem það húsnæði var aðeins tímabundið var nauðsynlegt að finna versluninni nýtt húsnæði. Í mars var verlsunin svo flutt í nýtt húsnæði að Miðvangi 2-4, á Egilsstöðum (við hliðina á Café Valný). Innréttingar verslunarinnar hafa vakið nokkra athygli en verslunin er innréttuð með vörubrettum sem óneitanlega setur annan svip á rýmið heldur en ef um hefðbundnar innréttingar væri að ræða. Kristín segir að hún ásamt eiginmanni sínum hafi hannað og smíðað innréttingarnar og útkoman sé í raun betri en hún hafði þorað að vona. Kristín er mjög ánægð með viðtökurnar og segir að fólk tali um það hversu skemmtileg viðbót þetta sé við verslunargeirann hér í fjórðungnum. Klæðskerinn í Húsi handanna Hús handanna kynnir í apríl vörur frá Jónu Björt Friðriksdóttur, klæðskera og kjólameistara. Um er að ræða peysur úr ull og hreindýraskinni, sjöl úr hreindýraskinni og töskur. Jóna Björt er menntaður klæðskeri frá Iðnskólanum í Reykjavík en tók starfsnámið á Ítalíu. Hún fæst aðallega við að sérsauma flíkur á viðskiptavini sína en framleiðir einnig fatnað undir vörumerkinu Klæðskerinn. Jóna Björt vinnur flestar vörur sínar úr íslensku hráefni. Hún fær hreindýraleðrið hjá veiðimönnum og lætur súta það á Sauðárkróki en ullin er sérpöntuð frá prjónaverksmiðju á Hvolsvelli. Nánari upplýsingar um Hús handanna má finna á www.hushandanna.is. Opnun kosningaskrifstofu Sjálfstæðisflokksins Fjölmenni var við opnun kosningaskrifstofu Sjálfstæðis- flokksins á Egilsstöðum sl. laugardag. Frambjóðendur flokksins mættu við opnunina, ræddu við gesti og gangandi og Ásta Kristín Sigurjónsdóttir hélt ræðu fyrir hönd frambjóðenda. Sönghópurinn Fjarðadætur tók svo nokkur lög við góðar undirtektir viðstaddra. KÞ opið mán-fös: kl.8-18 lau: kl.11-15 Hjónin Hulda Elisabeth Daníelsdóttir og Gunnlaugur Jónasson

x

Austurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurland
https://timarit.is/publication/1094

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.