Austurland - 18.04.2013, Blaðsíða 6

Austurland - 18.04.2013, Blaðsíða 6
Kjöt- og fiskbúð opnar á Egilsstöðum Tekið var hús á kjötvinnslunni Snæfelli á Egilsstöðum og rætt við framkvæmdastjóra fyrirtækisins kjötiðnaðarmeistarann Ólaf Kristinn Kristínarson. Ólafur er frá Eskifirði og hóf störf hjá Snæfelli í september 2012. Vorið 2012 útskrifaðist hann sem kjötiðnaðarmeistari og var að leita sér að vinnu við sitt hæfi á Austurlandi þegar starfið var auglýst. Snæfell er í eigu Sláturfélags Austurlands en þar starfa nú tveir í vinnslunni en þremur verður bætt við í sumar auk tveggja starfsmanna í verslun en í byrjun maí ætlar Snæfell að opna kjöt- og fiskbúð í Kaupvangi beint á móti NETTÓ í sama húsnæði og VR er með skrifstofur sínar. Þar er hugmyndin að bjóða upp að ferska vöru auk þess að taka við pöntunum til Snæfells en hingað til hafa viðskiptavinir getað verslað beint við fyrirtækið í gegnum sölulúgu í vinnslunni. Samið verður við minni útgerðarmenn á fjörðunum um flakaðan fisk í búðina auk þess sem stefnt er að því að bjóða aðrar Austfirskar krásir til sölu. Aðspurður um hvort markaðurinn væri nægilega stór þá vísaði Ólafur í að á Ísafirði væri bæði kjöt- og fiskborð og fiskbúð sem hvort tveggja bæri sig. Þeir væru bjartsýnir á framtíðina, búðin væri í nálægð við bæði tjaldstæðið og Nettó og hugmyndin væri að það myndi vinna saman þ.e. ferðamenn kæmu til Snæfells eftir ferskvörunni og leiðin lægi síðan í NETTÓ til að kaupa aðra dagvöru. Miðað er við að verslunin verði opnuð í tengslum við Austfirska matvæladaga sem verða haldnir 2. - 5. maí nk. Þegar mig bar að garði var verið að vinna rib eye úr framparti en Ólafur lét okkur einmitt fá uppskriftina sem fylgir hér með. Meginframleiðsla Snæfells er nauta- og lambakjöt á Austurlandi. Nautakjötið er allt upprunatengt þ.e. beint frá býli en allt lambakjötið kemur af Austurlandi (frá Djúpivogi- Vopnafjarðar) auk þess sem Snæfell hefur einnig séð um vinnslu fyrir Austurlamb á beint af býli lambakjöti sem er upprunatengd vara. Helsti kaupandi og dreifingaraðili Snæfells er NETTÓ en verslunarkeðjan hefur verið mjög hliðholl fyrirtækinu. Auk þess hefur Snæfell séð um vinnslu á stimpluðu hreindýrakjöti á veiðitíma frá miðjum júlí fram í september. Það er takmarkað magn enda dýrt að kalla út dýralækni til að stimpla einn og einn skrokk. Ólafur taldi mikilvægt ef tryggja ætti lágmarksframboð á hreindýrakjöti að hluti kvótans yrði skilgreindur í vinnslu til að lækka kostnað við stimplun hans og framleiðslu. Í dag er verðið á hreindýravöðva úr vinnslu um 15.000 krónur sem stenst ekki samanburð við innflutt kjöt frá Grænlandi og Finnlandi. SGK Grillað lamba-ribeye hvítlauks og rósmarín marinerað. (Snæfells). Með brie kartöflugratíni og sveppasósu. Kjötið: Hita skal grillið vel upp og setja Snæfells lamba-ribeye á vel heitt grillið. Lækka hitann niður í meðal hita um leið og kjötið fer á grillið. Grilla skal kjötið þar til kjarninn er um 60-62°C, taka það af grillinu og láta það jafna sig á diski í um það bil 5 mínútur áður en það er borið fram. Kartöflugratín: Kartöflugratínið er útbúið þannig að 700 gr af nýjum gullauga kartöflum eru flysjuð og skorin óreglulega niður. Eldfast mót er penslað með olíu og kartöfluunm dreift í mótið ásamt einum niðurskornum rauðlauk, noble hvítlauk og hálfum niðursneiddum brie osti. Svo er nokkrum smjörklípum dreift yfir (í heild um 30 gr). Í lokin er svo smávegis af rifnum osti sáldrað yfir. Bakað í klukkutíma og korter. Sósa: Tvær sellerístangir, 1 hvítur laukur, 1 gulrót og 1 noble hvítlaukur er saxaður niður mjög smátt. Steikt í potti með 2 msk af jómfrúarolíu. Þegar grænmetið er búið að svitna um stund er 1 l af vatni hellt út í sem og tveimur lambateningum. Soðið svo soðið upp í um 40 mínútur með lokið á. Þegar þetta er soðið er grænmetið í soðinu maukað með töfrasprota. Í öðrum potti er 1 msk af olíu hituð og 140 gr af niðurskornum sveppum steikt þar til sveppirnir fara aðeins að brúnast. Svo er 2 tsk af creme de funghi porcini e noci bætt saman við og steikt áfram. Svo er um helmingnum af grænmetissoðinu bætt saman við og soðið um stund. 100 ml af matreiðslurjóma er svo bætt saman við og saltað og piprað eftir smekk. Soðið niður í um 20 mínútur til að þykkja sósuna aðeins. Salat: Klettasalat, tómatar, smátt skorinn rauðlaukur, rauð vínber og fersk mynta. Smávegis af olíu og ferskum sítrónusafa dreift yfir. 6 18. APRÍL 2013 Auglýst er eftir umsóknum í Vaxtarsamning Austurlands Umsóknarfrestur er til og með 5. maí 2013 og umsóknir skilist rafrænt til Vaxtarsamnings Austurlands, vaxa@austurbru.is Umsóknareyðublað er hægt að nálgast á heimasíðu Vaxtarsamningsins www.austur.is og eru umsækjendur einnig hvattir til að kynna sér samninginn og viðauka hans á sömu heimasíðu, www.austur.is en úthlutun fer fram skv. ákvæðum samningsins og viðaukum. Verkefnastjóri Vaxtarsamnings verður með viðveru á Breiðdalsvík og Reyðarfirði 26. apríl og á Seyðisfirði og Egilsstöðum 30. apríl. Tímapantanir í síma 470-3851 fyrir 24. apríl (Breiðdalsvík og Reyðarfjörður) og 29. apríl (Seyðisfjörður og Egilsstaðir). Nánari upplýsingar og ráðgjöf veitir Hrund Snorradóttir hjá Austurbrú, netfang: vaxa@austurbru.is eða í síma 470-3851 AustfirskAr krásir Vinnsla á Rib Eye ólafur kristinn framkvæmdastjóri Snæfells

x

Austurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurland
https://timarit.is/publication/1094

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.