Austurland - 18.04.2013, Síða 8
8 4. októbER 2012
Í anda lýðræðis og í framhaldi af umfjöllun um stefnu 5 stærstu framboðanna
í síðasta blaði ákvað ritstjóri að einbeita sér að nýju framboðunum að þessu
sinni. Eingöngu eru tekin fyrir þau framboð sem bjóða sig fram í Norðaustur- og
Suðurkjördæmi og eru sannarlega komnir með listabókstaf.Þessi framboð eru:
Lýðræðisvaktin, Hægri grænir, Flokkur heimilanna, Dögun, Regnboginn og Píratar.
Umfjöllunin byggir á upplýsingum af heimasíðum/fréttatilkynningum og er með
svipuðu sniði og síðast.
Dögun (www.xdogun.is)
Málefni heimilanna og velferðarmál
- Jöfn staða almennings gagnvart
fjármálavaldinu og lánveitendum,
afnám verðtryggingar og almenn
leiðrétting húsnæðislána, lágmarks
framfærsluviðmið lögfest og að vextir
í landinu séu hóflegir.
Efnahags- og atvinnumál -
Orkufyrirtæki í eigu hins opinbera,
auðlindir þjóðareign, aðskilnaður
veiða og fiskvinnslu, hámarks arð
af auðlindum, allur fiskur seldur
á fiskmörkuðum, auka gegnsæi í
fjármálakerfinu, bankaleynd afnumin,
eftirlitsstofnanir efldar, illa fengið fé
endurheimt, uppgjör við hrunið,
Innan- og utanríkismál - Ný
stjórnarskrá, persónukjör óháð
framboðum, þjóðaratkvæði ef
10% þjóðarinnar óskar þess, íbúar
kjördæma/sveitarfélaga geti kallað
eftir atkvæðagreiðslu, sjálfræði
sveitarfélaga verði aukið. Styðja
niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslu
um Evrópusambandið.
Flokkur heimilanna
(www.flokkurheimilanna.is)
Málefni heimilanna og velferðarmál
- Flýtimeðferð ágreiningsmála
um lán og vexti fjármálastofnana,
lækkun höfuðstóls lána, stöðva
uppboð og greiða bætur til þeirra
sem misst hafa eignir. Afnema
stimpilgjöld, verðtryggingu og breyta
íbúðalánakerfinu. Frysta verðtryggingu
og bjóða upp á óverðtryggð íbúðalán.
Bæta stöðu aldraðra og öryrkja, tryggja
fólki óskertan lífeyri auk eftirlauna.
Efnahags- og atvinnumál - Lækka
og einfalda skatta, útgönguskattur
gag nvar t vogunars j ó ðum,
gjaldeyrishöft afnumin, starfsemi
fjármálastofnana endurskoðuð,
fjárfestingabankar aðgreindir frá
annarri bankastarfsemi og lög um
Seðlabankann endurskoðuð. Nýta
auðlindir af varfærni, ávöxtunarkrafa
orkusölu til stóriðju gegnsæ, orka á
stóriðjukjörum til ylræktarklasa. Skipta
fyrirtækjum á neytendamarkaði upp í
smærri einingar til að efla samkeppni.
Innan- og utanríkismál - Riftun
gjaldeyrishafta, festa gengi krónu
við alþjóðlega mynt, lækka tolla
með fríverslunarsamningum.
Endurskoða lífeyrissjóðskerfið,
lækka arðsemiskröfu sjóðanna og
takmarka fjárfestingar þeirra við kaup
á ríkisskuldabréfum.
Hægri grænir (www.xg.is)
Málefni heimilanna og velferðarmál
- Verðtrygging afnumin. Neyðarlög
sem innibera skuldbreytingu
(allt að 45%) verðtryggðra lána,
frestun nauðungaruppboða,
uppgreiðslu og stimpilgjöld lögð
niður. Nýtt húsnæðislánakerfi 3,75-
4% óverðtryggðir vextir. Lögfesta
lámarkslaun 240.000 kr. á mánuði,
hækka skattleysismörk í 200.000
kr. á mánuði. Eyða kynbundnum
launamun hjá hinu opinbera. Lífeyrir
hækkaður um 20%, tekjuskerðingar
afnumdar, lífeyrisréttindi erfist,
lífeyrisþegar kjósi fulltrúa í stjórnir
sjóðanna. Lífeyrissjóðir fjárfesti í
búsetuúrræðum. Stöðva byggingu
Landspítala-Háskólasjúkrahúss og
efla heilbrigðisþjónustu um allt land.
Efnahags- og atvinnumál - Flatir
skattar þ.e. 20% virðisaukaskattur,
20% tekjuskatt, afnema auðlegðarskatt,
lækka tryggingargjald í 3% og
tryggingargjald fyrirtækja með
færri en 10 starfsmenn verður
0%. Styttri vinnuvika, fjarvinna
og sveigjanlegur vinnutími. Lækka
eldsneytisskatt um 30% og afnema
tolla og vörugjöld á fatnaði. Frysta
allar gjaldskrárhækkanir og ráðningar
hins opinbera í 4 ár. Landsvirkjun í
ríkiseigu og Reykjavíkurflugvöllur í
Vatnsmýrinni. Lækka matvælaverð
um 20% með fríverslunarsamningum.
Auka aflaheimildir, virkja lítil fyrirtæki
og fólk í atvinnuleit. Afnám styrkja
til stjórnmálaflokka. Allir kennarar
og nemendur frá spjaldtölvu, lækka
verðtryggð námslán um 45%, aðskilja
viðskipta- og fjárfestingabanka,
þak á markaðshlutdeild á
smásölumarkaði. Gjaldeyrishöft
losuð og Bandaríkjadalur tekinn
upp. Neita hrægammasjóðunum um
nauðarsamninga og greiða allar kröfur
út í krónum.
Innan- og utanríkismál - Tvær
þjóðaratkvæðagreiðslur á ári um ýmis
mál sem grunnur að lagasetningu,
lækka kosningaaldur í 17 ár. Breyta
samningum við ESB en ganga ekki inn
í sambandið. Nýta tækifæri í samstarfi
ríkja á norðurslóðum
Landsbyggðarflokkurinn
(landsbyggdarflokkurinn.is)
Málefni heimilanna og velferðarmál
- 100% jöfnun flutnings- og
húshitunarkostnaðar. Hætta
byggingu hátæknisjúkrahúss og efla
heilbrigðisþjónustu um allt land.
Aldraðir geti dvalið og ungt fólk
geti stundað nám í heimabyggð.
Lágmarksframfærsla tryggð í lögum.
Efnahags- og atvinnumál - Auka
frelsi í landbúnaði, auka sauðfjárrækt,
endurvekja sláturhús, auka ylrækt
og styðja við heimaframleiðslu.
Samgöngur efldar, lækka skattar á
innanlandsflug og niðurgreiða það á
jaðarsvæðum. Sjálfstæði sveitarfélaga
aukið og verkefni ríkisins flutt út á land.
Strandsiglingar efldar, handfæraveiðar
frjálsar og aflaheimildir færðar heim í
hérað. Starfsemi Byggðastofnunar og
atvinnuþróunarfélag endurskoðuð.
Fyrirtæki í almannaþjónustu verði
í ríkiseigu. Skilja á milli viðskipta-
og fjárfestingabanka, herða lög
um fjármálastofnanir og afnema
verðtryggingu.
Innan- og utanríkismál -
Þjóðaratkvæðagreiðslur í stórum
málum. Afnám eftirlaunaforréttinda
ráðherra og alþingismanna, fækka
sendiráðum, alþingismenn megi
klæðast lopapeysum, takmarkaður
verði ráðningartími í opinberum
embættum.
Lýðræðisvaktin (www.
xlvaktin.is)
Málefni heimilanna og velferðarmál
- Færa niður höfuðstól verðtryggðra
húsnæðislána, jafnræði milli
lántakenda og lánveitenda, m.a. með
endurmati eða afnámi verðtryggingar
húsnæðislána. Fjölbreyttari kostir í
húsnæðismálum. 35 stunda vinnuvika,
standa vörð um almannatryggingar,
heimahjúkrun og þjónusta við aldraða
í forgang, breyta stöðlum örorkumats,
efla forvarnir og lýðheilsu. Fresta
byggingu hátæknisjúkrahúss.
Efnahags- og atvinnumál - Ábyrg
peningastjórn, halda útgjöldum og
almennum sköttum í skefjum. Lögfesta
skýrar kröfur um öryggi og eignarhald
banka, losa um „snjóhengjuna“ og
afnema gjaldeyrishöft. Sjálfbært
atvinnulíf og frelsi í viðskiptum. Efla
strandsiglingar og selja fisk rafrænt
á fiskmarkaði eða á markaðsverði í
beinum viðskiptum. Skattaafsláttur
til fyrirtækja á landsbyggðinni,
Ísland ferðamannaland með hreina
og óspillta náttúru. Sjálfbæran
og samkeppnishæfan landbúnað.
Orkufyrirtæki í almannaeigu.
Innan- og utanríkismál - Samþykkja
nýja stjórnarskrá, auðlindir í þjóðareigu
og jafnt vægi atkvæða. Aukið sjálfstæði
sveitastjórna, sjálfsforræði og arður af
auðlindum. Efla vísindi, listir, menntun
og menningu. Einstaklingsmiðað nám
á öllum skólastigum, aukið sjálfstæði
skóla, jafnrétti til náms, efling
fullorðinsfræðslu og starfsþjálfunar.
Útrýma kynbundnum launamun,
vinna gegn kynbundnu ofbeldi
og ástunda kynjaða hagstjórn.
Ljúka ESB viðræðum - bindandi
þjóðaratkvæðagreiðsla. Aðild að stríði
háð samþykki þings og þjóðar.
Píratar (www.piratar.is)
Píratar setja fram grunnstefnu sína
á heimasíðu sinni en hún snýr fyrst
og fremst að rétti einstaklingsins til
að taka þátt í lýðræðislegu samfélagi
og frelsi á internetinu. Flokkurinn
setur ekki fram stefnu varðandi hin
hefðbundnu kosningamál og því er
stefna þeirra ekki sett inn í töfluna sem
hér birtist. Framboðið leggur áherslu
á íbúalýðræði, vill auka gegnsæi og
ábyrgð í stjórnmálum og stjórnsýslu
m.a. til að auðvelda almenningi að
taka þátt í ákvarðanatöku stjórnvalda
með upplýsingum og kosningum á
netinu. Píratar vilja t.d. afglæpavæða
fíkniefnin þannig að þau verði
ekki ólögleg heldur skilgreind sem
heilbrigðisvandamál. Þeir telja að
endurskoða þurfi höfundarrétt og telja
alla takmörkun á rétti fólks til að safna
upplýsingum óásættanlega og vísa þar
t.d. í tilraunir stjórnvalda til að hefta
klám á internetinu.
Regnboginn (www.
regnboginn.is)
Málefni heimilanna og velferðarmál -
Endurskoða og afnema verðtryggingu,
lækka verðbólgu og vaxtakostnað,
leiðrétta húsnæðislána. Fjölga
búsetuformum, leiga og kaup.
Styrkja heilbrigðisþjónustu í landinu,
sálfræðiþjónusta verði hluti af
heilbrigðiskerfinu, öruggt aðgengi að
fæðingarþjónustu, hækkun barnabóta,
styðja börn og fullorðna til að komast
úr erfiðum lífsaðstæðum. Tryggja
öldruðum, öryrkjum og sjúkum
félagslegan stuðning og sálgæslu.
Bæta öryrkjum og eldri borgurum
kjaraskerðingu frá 2009. Fjölbreytt
menntun, koma í veg fyrir brottfall og
auka fjarnám. Bæta þarf búsetuúrræði
og þjónustu við fatlaða, öryrkja og
aldraða. Standa vörð um mannréttindi
samkynhneigðra og transfólks.
Styrkja innflytjendur til náms og
samfélagsþátttöku. Lágmarkslaun
lögbundin og framfærsluviðmið
raunhæf.
Efnahags- og atvinnumál - Blandað
hagkerfi opinbers rekstrar og
einkarekstrar smárra rekstrareininga.
Frelsi til atvinnusköpunar og fjölga
atvinnutækifærum ungs fólks .
Tryggja rétt sjávarbyggða til að nýta
sjávarauðlindir. Opinber störf dreifð
um landið.
Innan- og utanríkismál - Virða
þarf rétt byggðanna við stjórnun í
sjávarútvegi, útdeilingu vegafjár eða
uppbyggingu hins opinbera. Fullveldi
Íslands verði tryggt og aðlögunarferli
við ESB stöðvað, endurskoðun á EES
samningnum. Aukin viðskipti við aðrar
þjóðir óháð viðskiptablokkum
SGK
HVErN skAL
kJÓsA?
Samanburður á stefnu sex nýju flokkana
Stefnumál: Dögun Flokkur
heimil-
anna
Hægri
grænir
Lands-
byggðar-
flokkurinn
Lýðræðis-
vaktin
Regn-
boginn
Málefni heimilanna
Afnám verðtryggingar Nei Já Já Já Já Já
Lyklalög Já Já Já Já Já Já
Jöfnun aðstöðu á milli lánveitenda og takenda t.d
lækkun/afnám lántökugjalda
Já Já Já Já Já Já
Kaupleiga/breytingar Íbúðalánasj., leigufélag Já Já Já Já Já Já
Skattaafslættir/mótframlag til lækkunar húsnæðislána Já Nei Já Já Já Já
Hækkun bóta til stuðnings heimilum Já Já Nei Já ? Já
Auknar ráðstöfunartekjur með lækkun skatta Já Já Já ? ? ?
Efnahags og atvinnumál
Afnám gjaldeyrishafta Já Já Já ? Já ?
Upptaka nýs gjaldmiðils Nei Kannski Já - $ ? Kannski Nei
Auðlindagjald / Auðlindaákvæði Já Já Já Já Já Já
Ríkisrekstur almannaþjónustu Já Já Já Já Já Já
Áhesla á grænar atvinnugreinar/sjálfbærni Já Já Já Já Já Já
Aukið framlag til rannsókna/nýsköpunar ? ? Já Já já Já
Skattalækkanir Já Já Já ? Já Nei
Velferðarmál
Tannlækningar hluti af heilbrigðisk. Já Já Já Já Já Já
Endurskoðun á almannakerfinu Já Já Já Já Já Já
Efling heilsugæslu ? ? Já ? Já Já
Framhaldsskólar til sveitarfélaga Já Já Já Já Já Já
Nám fyrir alla - samþætt menntakerfi Já Já Já Já Já
Einfaldara lífeyrissjóðskerfi ? Já Já Já Já
Innan- og utanríkismál
Innganga í ESB Þjóðaratkv. ? Nei ? Þjóðaratkv. Nei
Efling sveitarstjórnarstigsins Já ? ? Já Já Já
Beint lýðræði Já ? Já Já Já ?