Austurland - 18.04.2013, Page 9

Austurland - 18.04.2013, Page 9
94. októbER 2012 Hverjir fara á þing? Miklar breytingar verða á mannavali í Suður- og Norðausturkjördæmunum samkvæmt könnunum. Sex nýir þingmenn koma inn í NA kjördæmi og 5 í Suðurkjördæmi. Þær breytingar sem nú eru að verða í íslenskum stjórnmálum hafa ekki farið framhjá neinum þær. Allt bendir til stórsigurs Framsóknarflokksins í næstu kosningum auk þess sem ný framboð, flest á vinstrivæng stjórnmálanna eru að sækja í sig veðrið. Í umfjöllun 365 um könnun mmr (www.mmr.is - market and media research) frá 11. apríl er farið yfir nýja þingmenn í kjördæmunum. Sjá niðurstöður mmr varðandi dreifingu þingmanna í kjördæmunum tveimur og fyrir landið allt í töflu. Núverandi þingmenn í Norðausturkjördæmi eftir röð: Steingrímur J. Sigfússon (V), Birkir Jón Jónsson (B), Kristján L. Möller (S), Kristján Þór Júlíusson (D), Þuríður Backman (V), Höskuldur Þórhallsson (B), Sigmundur Ernir Rúnarsson (S), Björn Valur Gíslason (V), Tryggvi Þór Herbertsson (D) og Jónína Rós Guðmundsdóttir (S). Af þeim hafa þau Birkir Jón og Þuríður sagt skilið við stjórnmálin og Björn Valur boðið sig fram í öðru kjördæmi. Jónína Rós og Sigmundur Ernir munu detta út af þingi og nýr kandídat í 2. sæti Erna Indriðadóttir kemst líklega ekki að. Steingrímur J. verður líklega eini þingmaður VG. Nýir þingmenn í NA kjördæmi - 6 af 10 þingmönnum í NA kjördæmi eru nýir. Valgerður Gunnarsdóttir kemur í stað Tryggva hjá Sjálfstæðismönnum og Aðalheiður Ámundadóttir kemur ný inn fyrir Pírata. Framsóknarmennirnir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Líneik Sævarsdóttir, Þórunn Eymundardóttir og Hjálmar Bogi Hafliðason koma öll ný inn fyrir Framsókn. Núverandi þingmenn í Suðurkjördæmi eru eftir röð: Björgvin G. Sigurðsson (S), Ragnheiður E. Árnadóttir (D), Sigurður Ingi Jóhannsson (B), Alti Gíslason (V), Oddný G. Harðardóttir (S), Unnur Brá Konráðsdóttir (D), Eygló Harðardóttir (B), Róbert Marshall (S) og Árni Johnsen (D). Róbert Marshall hefur fært sig yfir til Bjartrar framtíðar og býður sig nú fram í Reykjavík - suður, Árni Johnsen er hættur og Atli Gíslason sömuleiðis og býður sig nú fram í 2. sæti fyrir Regnbogann í Reykjavík- suður. Björgvin G. Sigurðsson er nú í 2. sæti hjá Samfylkingu og dettur líklega út. Oddný Harðardóttir í Framsókn hefur tekið oddvitasætið í Suðvesturkjördæmi Nýir þingmenn í Suðurkjördæmi - 5 af 10 þingmönnum í Suðurkjördæmi eru nýir. Ámundi Friðriksson kemur nýr inn hjá Sjálfstæðismönnum auk þess sem fimm nýir Framsóknarmenn koma inn á þing en það eru Silja Dögg Gunnarsdóttir, Páll Jóhann Pálsson, Haraldur Einarsson og Fjóla Hrund Björnsdóttir. SGK Kosningar með kynjagleraugum Á dögum mikillar jafnréttisumræðu þá er ekki úr vegi að skoða framboð til næstu kosninga með kynjagleraugunum. Í eftirfarandi samantekt er byggt á jákvæðri mismunun þar sem gefin eru stig (-2 til 10 stig) miðað við eftirfarandi forsendur: • Kona í fyrsta sæti - 3 stig • Bæði kynin í fyrstu 2 sætum - 5 stig • Bæði kynin í fyrstu 3 sætunum - 2 stig • Eingöngu karlar eða konur í fyrstu þremur - 2 stig í mínus Sjá má stigagjöf flokkanna í töflum hér til hægri en stigagjöfin er byggð á fyrrgreindum forsendum. Ástæða þess að jákvæðri mismunun er beitt varðandi oddvita framboða er sú að oddvitar framboða í gegnum tíðina hafa verið karlar. Í Norðausturkjördæmi fá Píratar, Lýðræðisvaktin og Björt framtíð fullt hús stiga þar sem þessir flokkar eru með konu í oddvitasæti en Sjálfstæðisflokkur, Samfylkingin og Vinstri grænir eru allir með konu og karl í fyrstu tveimur sætunum. Einungis 4 framboð eru með karla í fyrstu tveimur sætunum og tvö af þeim eru með karla í öllum þremur sætunum. Í Suðurkjördæmi fær Samfylkingin ein fullt hús stiga þrátt fyrir að konur séu í þremur oddvitasætum en það er sökum þess að hjá Vinstri grænum og Sjálfstæðisflokki þá eru konur í fyrstu tveimur sætunum. Einungis fjögur framboð eru með karla í fyrstu tveimur sætunum og eitt í öllum sætunum. Oddvitar framboða 2009 og 2013 Í síðustu kosningum voru allir oddvitarnir karlar í Norðausturkjördæmi og 3 af 5 oddvitum í Suðurkjördæmi. Í Suðurkjördæmi voru það oddvitar flokkanna þær Ragnheiður E. Árnadóttir Sjálfstæðisflokki og Margrét Tryggvadóttir Borgarahreyfingunni sem leiddu sína lista, aðrir oddvitar voru Björgvin G. Sigurðsson Samfylkingunni, Sigurður Ingi Jóhannsson Framsóknarflokki og Atli Gíslason Vinstrihreyfingin Grænt framboð. Í Norðausturkjördæmi voru oddvitar flokkanna þeir Steingrímur J. Sigfússon fyrir Vinstri græna, Kristján Möller fyrir Samfylkinguna, Kristján Þór Júlíusson fyrir Sjálfstæðisflokkinn og Birkir Jón Jónsson fyrir Framsóknarflokkinn. Átta karlar og þrjár konur leiða nú framboðslista í Norðaustur kjördæmi. Allar eru konurnar frá nýju framboðunum þ.e. Bjartri framtíð, Lýðræðisvaktinni og Pírötum. Átta karlar og þrjár konur leiða lista í Suðurkjördæmi en þar fara þær aftur á móti allar fyrir gömlu flokkunum en Arndís kemur í stað Atla hjá Vinstri grænum og Oddný fyrir Björgvin hjá Samfylkingu. Þegar horft er til oddvita/formanna/ talsmanna á landsvísu þá leiða átta karlar framboðin á móti þremur konum. Margrét Tryggvadóttir hefur fært sig úr Borgarahreyfingunni yfir í Dögun og virðist vera talsmaður flokksins, Birgitta, fyrrum flokkssystir Margrétar, býður sig nú fram fyrir Pírata og virðist leiða þá en Katrín Jakobsdóttir hefur án vafa tekið við formennsku af Steingrími J. Sigfússyni hjá Vinstri grænum. Á móti hefur Jóhann vikið fyrir Árna Páli hjá Samfylkingunni. Að vísu mætti skilgreina Heiðu Kristínu Helgadóttur sem formann með Guðmundi hjá Bjartri framtíð en þar sem hún skipar ekki oddvitasæti í neinu kjördæmi hjá BF þá var Guðmundur tilgreindur hér. SGK brynhildur Pétursdóttir frá bjartri framtíð er ein tveggja kvenna sem leiða lista í NA kjördæmi hin er Aðalheiðar Ámundadóttir Pírati. Aðalheiður Ámundadóttir pírati er ein af 6 nýjum þingmönnum skv. síðustu skoðanakönnum Framboð Landið allt NA kjörd S kjördæmi 2009 2013 2009 2013 2009 2013 A 7 Hreyf 4 0 0 1 0 B 9 23 2 5 2 6 D 16 16 2 2 3 3 S 20 8 3 1 3 1 V 14 5 3 1 1 0 Þ 4 1 0 Norðausturkjördæmi Framboð Lista- bók- stafur Kona í fyrsta sæti Bæði kyn í fyrstu 2/3 sætum Sama kyn í fyrstu 3 sætum Samtals stig Píratar Þ 3 7 0 10 Lýðræðisvaktin L 3 7 0 10 Björt framtíð A 3 7 0 10 Dögun T 0 7 0 7 Vinstri grænir V 0 7 0 7 Sjálfstæðiflokkurinn D 0 7 0 7 Samfylkingin S 0 7 0 7 Regnboginn J 0 3 0 3 Framsóknaflokkurinn B 0 3 0 3 Flokkur heimilanna I 0 0 -2 -2 Hægri grænir G 0 0 -2 -2 Suðurkjördæmi Framboð Lista- bók- stafur Kona í fyrsta sæti Bæði kyn í fyrstu 2/3 sætum Sama kyn í fyrstu 3 sætum Samtals stig Samfylkingin S 3 7 0 10 Hægri grænir G 0 7 0 7 Lýðræðisvaktin L 0 7 0 7 Björt framtíð A 0 7 0 7 Framsóknarflokkurinn B 0 7 0 7 Vinstri grænir V 3 3 0 6 Sjálfstæðisflokkurinn D 3 3 0 6 Flokkur heimilanna I 0 3 0 3 Dögun T 0 3 0 3 Regnboginn J 0 3 0 3 Píratar Þ 0 0 -2 -2 Landið allt Framboð Lista- bók- stafur Kona í fyrsta sæti Bæði kyn í fyrstu 2/3 sætum Sama kyn í fyrstu 3 sætum Samtals stig Samfylkingin S 2,0 7,0 0,0 9,0 Píratar Þ 3,0 6,3 -0,3 9,0 Dögun T 3,0 5,7 0,0 8,7 Vinstri grænir V 3,0 5,7 0,0 8,7 Lýðræðisvaktin L 2,0 5,7 0,0 7,7 Framsóknarflokkurinn B 2,0 5,7 0,0 7,7 Björt framtíð A 2,0 5,0 0,0 7,0 Sjálfstæðisflokkurinn D 2,0 4,5 -0,3 6,2 Flokkur heimilanna I 2,0 3,3 -0,7 4,7 Regnboginn J 0,0 4,3 0,0 4,3 Hægri grænir G 1,0 2,3 -1,3 2,0

x

Austurland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurland
https://timarit.is/publication/1094

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.