Austurland - 18.04.2013, Qupperneq 10
10 18. APRÍL 2013
Framboðsfundur í
Menntaskólanum á
Egilsstöðum (ME)
Nemendur í stjórnmálafræði í ME stóðu fyrir
framboðsfundi þann 9. apríl í Snæfelli hátíðarsal
skólans en Helgi Seljan fréttamaður stýrði
umræðunum
Á fundinn mættu eftirfarandi ful ltrúar framboða í
Norðausturkjördæmi: Aðalheiður
Ámundadóttir fyrir Pírata, Jónína Rós
Guðmundsdóttir fyrir Samfylkinguna,
Brynhildur Pétursdóttir fyrir Bjarta
framtíð, Kolbeinn Aðalsteinsson
fyrir Hægri Græna, Sigríður Lára
Sigurjónsdóttir fyrir Lýðræðisvaktina,
Þorsteinn Bergsson fyrir Regnbogann,
Ásta Kristín Sigurjónsdóttir fyrir
Sjálfstæðisflokkinn, Steingrímur
J. Sigfússon fyrir Vinstri Græna
og Höskuldur Þórhallsson fyrir
Framsóknarflokkinn.
Í upphafi fundar fluttu
frambjóðendur stutta framsögu um
stefnu flokkana.
Stjórnarflokkarnir lögðu áherslu
á góðan árangur ríkisstjórnarinnar
í erfiðum aðstæðum í byrjun
kjörtímabilsins sem fólust í aðgerðum
á borð við þrepaskipting skattkerfisins,
úrræði fyrir hina verst stöddu auk þess
sem tekist hefði að standa vörð um
velferðarkerfið. Þau töldu að í ljósi
bættra aðstæðna þá mætti á næsta
kjörtímabili auka framlögum til
heilbrigðisþjónustu, lækka námslán og
niðurgreiða tannlæknakostnað barna
(sbr. þingsályktunartillögur) auk þess
sem tækifæri væru til skattalækkana á
fyrirtæki sbr. lækkun tryggingagjalds
með hliðsjón af minnkandi
atvinnuleysi. Lögð var áhersla á
mikilvægi þess að koma á sanngjörnu
auðlindagjaldi og að stjórnarskrármálið
yrði til lykta leitt og að samningur
við Evrópusambandið yrði lagður
undir þjóðaratkvæðagreiðslu. Báðir
frambjóðendur voru tilbúnir að skoða
niðurfellingu lána ef svigrúm myndi
skapast í tengslum við Vogunarsjóða
en vildu ekki lofa neinu enda óvíst
hver málalok yrðu auk þess sem rétt
væri að horfa til skulda ríkissjóðs og
hárra vaxtagreiðslna sem tilkomnar
eru af stórum hluta vegna hrunsins.
Bent var á að staða heimilanna hefði
batnað til muna á kjörtímabilinu og
að mikilvægt væri að beina kröftunum
að þeim heimilum sem verst eru sett
fremur en að fara í flatan niðurskurð.
Málefni heimilanna voru
ofarlega á blaði sérstaklega hjá
Framsóknarmönnum sem lagt
hafa ofuráherslu á mikilvægi
þess að niðurfærsla á kröfum
vogunarsjóðanna verði nýtt til að
greiða niður skuldir heimilanna enda
eðlilegt að sá kostnaður sé greiddur
af þeim sem hvað mest hafa hagnast
á bankahruninu. Önnur framboð
voru að mestu sammála um að óljóst
væri hvað kæmi útúr samningum við
sjóðina og fulltrúi Sjálfstæðismanna
tók undir með stjórnarflokkunum
að mikilvægt væri að horfa einnig til
skuldastöðu ríkissjóðs. Þá benti fulltrúi
Bjartrar framtíðar fundarmönnum á að
almenningur í NA kjördæmi væri að
óverulegum hluta í greiðsluvandræðum
og að niðurfærslur lána myndu að
stórum hluta renna til heimila á
Suðvestur horni landsins sérstaklega
á Suðurnesjum.
Lækkun skatta - Sjálfstæðisflokkur,
Hægri Grænir og Framsókn lögðu
áherslu á að mikilvægt væri að lækka
skatta bæði á einstaklinga og fyrirtæki,
aðrir flokkar vildu einfalda skattkerfið
og lækka skatta með áherslu á þá
sem væru lægst launaðir samanber
þrepaskipt skattkerfi.
Frambjóðendur almennt sammála
- Eftir framsögur frambjóðenda
lagði Helgi Seljan fundarstjóri
fram spurningar frá nemendum í
stjórnmálafræði við ME um afstöðu
þeirra til þess að hluta námslána
yrði breytt í styrk, brýnustu
samgöngubætur á Austurlandi, aðild
að Evrópusambandinu og Flugvöll í
Vatnsmýrinni. Allir frambjóðendur
voru sammála um niðurfellingu
á hluta námslána, flestir nefndu
viðhald vega, Fjarðarheiði og Öxi sem
brýnustu samgöngumálin, allir vildu
þjóðaratkvæði um Evrópusambandið
annaðhvort strax eða þegar
samningsdrög væru tilbúin og allir
vildu flugvöllinn áfram í Vatnsmýri
sérstaklega vegna staðsetningar
sjúkrahússins.
Eftir að frambjóðendur höfðu svarað
spurningum stjórnmálafræðinema þá
var fundarmönnum gefinn kostur á
að koma með spurningar en þar var
m.a. spurt um hver væri afstaða þeirra:
til þess hvernig ætti að nýta svigrúm
sem skapast með Vogunarsjóðunum,
til byggingar hátæknisjúkrahúss, til
jöfnunar á flutnings- (sbr. ný lög)
og húshitunarkostnaði, til banns við
vændiskaupum (sbr. ný lög), til nýs
kvótakerfi og til þess hvort banna ætti að
sitja hjá á Alþingi. Allir vildu nýta þau
tækifæri ef einhver yrðu sem myndu
skapast með afskriftum á eignum
Vogunarsjóðanna, flestir vildu jafna
húshitunarkostnað, stjórnarflokkarnir
og Björt Framtíð vildu ljúka byggingu
hátæknisjúkrahúss en aðrir vildu
fresta því og efla heilsuvernd sem allir
voru sammála um að þyrfti að gera,
flestir voru sammála um að banna ætti
vændiskaup nema píratinn Aðalheiður
sem benti á betra væri að hafa
starfsemina löglega en eftirlitsskylda
til að auðvelda ríkisvaldinu að
vinna gegn mannsali og misnotkun,
frambjóðendur vildu annaðhvort
betrumbæta núverandi kvótakerfi
eða taka upp nýtt kerfi á grunni
þjóðareignar á sjávarauðlindum, allir
voru sammála um að stefna að jöfnun á
húshitunarkostnaði en allir vildu leyfa
þingmönnum að sitja hjá á alþingi en
vel mætti hugsa sér að bannað væri að
taka ekki þátt í atkvæðagreiðslu t.d.
með því að hægt væri að greiða atkvæði
rafrænt SGK
Steinsmiðja Akureyrar • Glerárgötu 36 • S: 466 2800 • sala@minnismerki.is • www.minnismerki.is
Opnunartímar: Mán. - fim. kl. 13:00-18:00, föst. kl. 13:00-17:00
ÓKEYPIS FLUTNINGUR!
Fráb
ært úrv
al Gott verð Gæði 25 ára reynsla
Skoðið úrvalið á
www.minnismerki.is
Ríkisstjórnarflokkarnir lögðu áherslu á góðan árangur á síðasta kjörtímabili á framboðsfundi í ME.
Ásta kristín
Sigurjónsdóttir -
Sjálfstæðisflokki
Jónína Rós
Guðmundsdóttir -
Samfylking
Gísli tryggvason -
Dögun
kolbeinn
Aðalsteinsson - HG
Þorsteinn bergsson -
Regnboginn
Höskuldur Þórhallsson
- Framsókn
Sigga Lára
Sigurjónsdóttir -
Lýðræðisvaktin
Helgi Seljan stjórnaði
umræðum.