Austurland - 06.09.2012, Page 6
6 6. SEPTEMBER 2012
Það var mér mikið ánægjuefni að setja ríkisstjórnarfund 8. maí síðastliðinn í virðulega
gamla gistihúsinu á Egilsstaðabýlinu
sem svo vel hefur verið við haldið og
endurnýjað. Við áttum góða fundi með
sveitarstjórnarmönnum á Austurlandi
og forystufólki þeirra stofnana sem
styðja atvinnulífið í fjórðungnum.
Austfirðingar riðu á vaðið þennan dag
og stofnuðu með stuðningi ríkisvaldsins
Austurbrú, samstarfsvettvang sem
vinnur að nýsköpun, þróun og eflingu
atvinnulífs í fjórðungnum. Það er
einlæg von mín að starfið gangi að
óskum og sá grunnur sem lagður var
verði fjórðungnum til heilla. Samtímis
þessu er ætlunin að framfylgja
sóknaráætlunum landshlutanna sem
hafa verið í mótun undanfarin misseri.
Þær byggjast meðal annars á einföldun
á samstarfi landshlutanna annars vegar
og stjórnvalda og stjórnarráðsins hins
vegar. Þetta samstarf og samtal þarf að
vera skilvirkt og markvisst og krefst
þess að menn heima í héraði skipuleggi,
forgangsraði og mæli fyrir hagsmunum
sínum á nýjan og skýrari hátt en áður.
Sama á við í stjórnarráðinu þar sem
hópur fólks úr mörgum ráðuneytum
kemur að úrvinnslu mála, t.d. innan
sóknaraáætlananna.
Í gegn um fjöllin
Austurland og Vestfirðir eiga það
sameiginlegt að búa við sérstaka
samgönguerfiðleika. Fjallvegir eru
margir og sumir þeirra eru þungfærir
eða ófærir mánuðum saman á
veturna. Gerð jarðganga og fjölgun
þeirra breytir því mannlífinu og
búsetuskilyrðum verulega til batnaðar
í þessum landshlutum rétt eins og um
miðbik Norðurlands. Það var okkur því
kappsmál að geta treyst fjármögnun
slíkra mannvirkja og flýtt þeim, m.a.
með því að leggja sérstakt veiðigjald
á útgerðina, eins og samþykkt
var á Alþingi snemma sumars. Á
grundvelli fjárfestingaráætlunar
ríkisstjórnarinnar 2013 - 2015 og
samgönguáætlunar er undirbúningur
jarðganga milli Norðfjarðar og
Eskifjarðar hafinn. Áætlað er að verkið
verði boðið út öðru hvoru megin
við áramótin og að framkvæmdir
hefjist á miðju næsta ári. Það verður
sannarlega áhrifarík aðgerð til þess að
gera Fjarðabyggð og Fljótsdalshérað í
raun að einu samfelldu atvinnusvæði.
Stóriðjan í Reyðarfirði hefur leitt til
um 40% fjölgunar íbúa á síðustu
árum og með bættum samgöngum við
Neskaupstað má ætla að búsetuskilyrði
og öryggi íbúa verði jafnara innan
Fjarðabyggðar allrar. Enginn
velkist í vafa um hve þýðingarmikil
jarðgöngin milli Reyðarfjarðar og
Fáskrúðsfjarðar hafa verið fyrir íbúana
og atvinnusvæðið allt um miðbik
Austurlands.
Innviðirnir og
atvinnan
Fjárfestingaráætlunin, sem áður var
nefnd, gerir einnig ráð fyrir fjármögnun
rannsókna- og tækniþróunarsjóða og
markaðsáætlana. Loks er gert ráð
fyrir að verja af þessum tekjustofni
umtalsverðum fjármunum næstu þrjú
árin til sóknaráætlana landshlutanna.
Eignasala á hlutum ríkisins í
fjármálafyrirtækjum og arðtaka af
þeim skilar einnig fé til uppbyggingar
ferðamannastaða, verkefnasjóða
skapandi greina og grænna og
orkusparandi verkefna.
Það er ánægjulegt að sjá
að atvinnulausu fólki fækkar
á Austurlandi. Nýleg gögn
Vinnumálastofnunar sýna að
atvinnuleysi í júlí sl. hafi aðeins verið
1,9% í fjórðungnum. Í júlí í fyrra var
það 2,9%. Reyndar er atvinnuleysi
hvergi minna en á Austurlandi ef frá
er talið Norðurland vestra. Þetta helst í
hendur við jafnan 2,5 til 3 % hagvöxt í
landinu. Þau ánægjulegu tíðindi berast
einnig að verðbólga minnki enn; hún
nam liðlega 4 prósentum síðustu
tólf mánuði samkvæmt mælingum
Hagstofunnar.
Ástæða er til bjartsýni á Austurlandi
með traustari innviðum og vænlegri
búsetu- og atvinnuskilyrðum en áður.
Jóhanna Sigurðardóttir
forsætisráðherra
Norðfjarðargöng
og sóknarfæri
Austurlands
Myndin er tekin í kjölfar ríkisstjórnarfundar á Egilsstöðum 8. maí í tengslum við stofnfund Austurbrúar.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Valdimar O. Hermannsson formaður stjórnar Austurbrúar undirritar
samning um fullvinnslu á Austfirsku hráefni við Austurbrú.
Pétur og úlfurinn í Selskógi
Leikfélag Fljótsdalshéraðs setti í sumar upp leikritið Pétur og úlfurinn á útisviðinu í Selskógi.
Pétur Ármannsson vann leikgerð
um Pétur og úlfinn og samið var
við vinnuskóla Fljótsdalshéraðs um
að leggja til leikara. Alls voru það 9
unglingar sem sóttu um að taka þátt
í verkefninu en ekkert af þeim hafði
tekið þátt í sambærilegu verkefni áður.
6 vikur fóru í undirbúning en
æfingar byrjuðu upp úr miðjum júní.
Fyrsta vikan fór í leiktækninámskeið en
eftir það var byrjað að búa til persónur
og leikgerð. Unnið var alla virka daga
og frí um helgar og var frábært að
fylgjast með þeim og þá helst hvernig
persónurnar sem þau voru að búa til
þroskuðust. Það er gríðarleg vinna
að setja upp svona leikrit og margt
sem þarf að huga að. Þátttakendur
lærðu nánast allt sem við kemur því
að setja upp sýningu s.s. að vinna
með leikmynd, gera búninga, finna
leikmuni o.fl.
Frumsýnt var síðan 20. júlí og
var “skógfylli” á sýningunni en alls
voru um 130 manns sem mættu á
frumsýninguna en það kallast hjá
okkur þokkalega uppselt. Sýndar voru
9 sýningar á rétt tæpum mánuði og
fengum við 660 áhorfendur.
Það er óhætt að segja að allt hafi
gengið upp hjá okkur í sumar. Við
fengum bæði gott veður og góða
styrktaraðila en svona uppsetning
er langt frá því að vera ódýr.
Helstu styrktaraðilar okkar voru
Samfélagssjóður Alcoa og vinnuskóli
Fljótsdalshéraðs.
Allir græða á svona verkefni græði
allir og ekki síst samfélagið sjálft. Við
fengum líf í skóginn okkar en þeir
sem mest græddu að mínu mati voru
unglingarnir sjálfir sem tóku þátt,
ótrúlegt að sjá hversu mikið þau uxu
og þroskuðust í þessu ferli.
Þráinn Sigvaldason
Formaður Leikfélags Fljótsdalshéraðs
Framtíðin er björt á Austurlandi
Örugg atvinna er undirstaða farsældar, samfélaga, fjölskyldna og einstaklinga.
Fjölbreytt atvinnulífssýning á
Fljótsdalshéraði og fimm ára afmæli
álvers Alcoa á Reyðarfirði á síðustu
vikum sýnir að miklir möguleikar
eru á öruggri og fjölbreyttri atvinnu
á Austurlandi. Það er tilefni bjartsýni
og lífsgleði.
Sjávarútvegur, Vatnajökulsþjóð-
garður, ferðaþjónusta og skapandi
greinar eru fleiri öflugir angar öflugs
atvinnulífs á Austurlandi. Ekki má
gleyma opinberri þjónustu, sem margir
starfa við, en hún byggir á hinu öfluga
atvinnulífi fjórðungsins.
Nýlegar rannsóknir sýna að ungar
konur eiga erfiðara með að finna sér
atvinnu og lífsstíl við hæfi úti á landi en
aðrir þjóðfélagshópar. Það er verðugt
verkefni að vinna að lausn á þeim
vanda með öflugum sóknaráætlunum
landshluta þar sem innviðir samfélaga
eru treystir, samgöngur bættar, velferðar
– og menntakerfi eflt og umgjörð utan
um fjölbreytta atvinnuhætti stórefld.
Það er sérstakt ánægjuefni að um allt
land hefur jöfnuður aukist með þeim
lífsgæðum sem allar rannsóknir sýna að
jöfnuði fylgi. Vonandi tekst okkur að
viðhalda þessum jöfnuði um leið og við
höldum áfram að vinna að því að allir
hafi þá framfærslu sem nauðsynleg er
til eðlilegrar afkomu fjölskyldna.
Það er skylda stjórnvalda á öllum
stigum að vinna fyrst og fremst að
almannahag. Til þess þarf að tryggja
að allir fái að njóta arðsins af auðlindum
þjóðarinnar og þeir sem þær nýti greiði
fyrir afnotin eðlilegt gjald en tryggi sér
jafnframt góða afkomu.
Austurland tækifæranna er veruleiki
dagsins í dag. Skapandi hugsun, farsæl
nýting auðlinda, samfélagsleg ábyrgð
og markviss uppbygging innviða gerir
landshlutann að eftirsóknarverðum
stað til búsetu.
Jónína Rós Guðmundsdóttir,
Egilsstöðum, þingkona
Samfylkingarinnar í NA - kjördæmi
Hafist handa við Norðfjarðargöng
Ákvörðun hefur verið tekin. Undirbúningur Vegagerðar að hönnun, útboðsgögnum,
skipulagsmálum og samningum
við landeigendur hófst að nýju og af
fullum krafti fyrir nokkrum vikum.
Vinna gengur samkvæmt áætlun og
útboð verður á verkinu í janúar á næsta
ári. Þetta þýðir að framkvæmdir við
Norðfjarðargöng hefjast næsta sumar.
Allt er komið á fulla ferð og nú verður
ekki aftur snúið í ferlinu. Ný göng
verða framfarastökk fyrir samgöngur,
atvinnulíf og samskipti innan
sveitarfélagsins Fjarðabyggðar. Þau
munu tryggja öryggi allra vegfarenda
og fullnægja kröfum nútímans til
samgöngumannvirkja.
Jarðgöngin í Oddsskarði, sem nýju
göngin munu leysa af hólmi, eru í um
600 m hæð yfir sjávarmáli og að þeim
liggja erfiðir fjallvegir, mjög brattar
brekkur og vinkilbeygjur á leiðinni
eins og Austfirðingar þekkja alltof vel.
Auk þess eru göngin einbreið, dimm
og með blindhæð! Eftir ca þrjú og
hálft ár verður hægt að bruna inn í 8
km löng tvíbreið og vel upplýst göng
milli Fannardals og Eskifjarðar. Þvílíkur
munur sem það verður!
Í þeirri samgönguáætlun sem ég
lagði fram sem samgönguráðherra, og
samþykkt var á Alþingi, var gert ráð fyrir
fjárveitingum vegna Norðfjarðarganga
á yfirstandandi ári. Vegna bágrar stöðu
ríkissjóðs hefur upphaf verksins frestast
um eitt ár en það eru mikil gleðitíðindi
að nú er lokahnykkur undirbúnings
hafinn eins og Hreinn Haraldsson
vegamálastjóri hefur staðfest.
Síðustu kostnaðaráætlanir gera ráð
fyrir að kostnaður við Norðfjarðargöng
verði 10,5 milljarðar króna. Það er mikið
fé, en verulegum fjármunum má kosta
til þess að tryggja öryggi, framfarir og
greiðar samgöngur á svæðinu. Þeir
fjármunir munu skila sér í hagvexti og
sterkara samfélagi í Fjarðabyggð.
Það eru vissulega gleðitíðindi að þetta
baráttumál okkar skuli nú vera komið
í höfn
Kristján L Möller
Fyrrverandi samgönguráðherra og
alþingismaður Norð- Austurkjördæmis