Fréttablaðið - 23.02.2015, Síða 10
23. febrúar 2015 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 10
Veit á vandaða lausn
Verið velkomin í verslun okkar að Síðumúla 16. Opið mán - fös 8.30 - 17.00
GERÐU GÓÐAN BAR BETRI
SÝRLAND, REUTERS Fjöldi tyrk-
neskra hermanna fór í björg-
unarleiðangur yfir landamær-
in til Sýrlands í fyrrinótt og
bjargaði þaðan um fjörutíu koll-
egum sínum. Þeir höfðu verið
umkringdir í marga mánuði af
hermönnum Íslamska ríkisins við
það að verja menningarminjar.
Sýrlenska ríkisstjórnin sagði
aðgerðina alvarlega og að stjórn-
völd í Ankara myndu þurfa að
svara fyrir hana.
Drónar, skriðdrekar og flug-
vélar voru meðal þeirra tækja
sem notuð voru í aðgerðinni auk
hundraða almennra hermanna.
Þetta er í fyrsta skipti sem tyrk-
neskir hermenn fara yfir landa-
mærin síðan borgarastyrjöld-
in í Sýrlandi hófst. Ekki kom til
átaka en einn lést í leiðangrinum
af slysförum.
„Allt gekk að óskum. Þetta var
aðgerð sem stenst allar kröfur
þjóðarréttarins og ekki er hægt
að setja út á okkar framgöngu
á nokkurn hátt,“ segir Ahmet
Davutoglu, forsætisráðherra
Tyrklands. Hann sagði að Tyrk-
ir hefðu ekki beðið um leyfi fyrir
förinni en látið Sýrlendinga vita
um leið og hún hófst.
„Ríki sem passa ekki upp á
menningararfleið sína eiga enga
framtíð,“ var haft eftir Davu-
toglu við sama tilefni.
Tyrkir létu sér ekki nægja að
fjarlægja hermennina heldur
fluttu gröfina til. Í yfirlýsingu
frá tyrkneska utanríkisráðuneyt-
inu segir að gröfin sé enn í Sýr-
landi, skammt frá þorpinu Emesi
við landamærin.
Hermennirnir höfðu staðið
vörð um gröf Suleymans Shah,
en hann var uppi um aldamótin
1200. Barnabarn Shah var Osman
I. en hann kom Ottóman-veldinu
á fót árið 1299. Sagan segir að
Shah hafi drukknað í ánni Eupra-
tes á för sinni um svæðið.
Gröfin var 37 kílómetrum
sunnan við landamæri Tyrklands
og Sýrlands, ekki langt frá kúr-
dísku borginni Kobane þar sem
lengi hefur verið barist.
Í lok stríðs Frakka og Tyrkja
árið 1921 var undirritaður sátt-
máli um landamæri Tyrklands
og Sýrlands. Þar var tekið fram
að gröf Shah skyldi teljast tyrk-
neskt yfirráðasvæði og að Tyrkir
fengju heimild til að verja hana
og draga fána sinn þar að húni.
Hún stóð nú að vísu tæpum
hundrað kílómetrum norðar en
hún gerði upphaflega. Árið 1973
var gröfin færð nær Tyrklandi til
að koma í veg fyrir að hún eyði-
legðist í miklum flóðum.
johannoli@frettabladid.is
Sóttu hermenn sína
og menningarmuni
Tyrkneskir hermenn fóru suður yfir landamærin til Sýrlands í óþökk stjórnvalda.
Í leiðangrinum fjarlægðu þeir hermenn og forna gröf sem hermennirnir voru að
verja. Sýrlendingar segja atvikið ótvírætt brot á sáttmála ríkjanna frá árinu 1921.
VÍGREIFIR Hermennirnir koma inn í bæinn Kobane eftir förina. Um 600 hermenn
og 100 skriðdrekar tóku þátt í aðgerðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
TÆKNI Skipasmíðafyrirtækið Havyard
Group og Fáfnir Offshore hlutu á mið-
vikudaginn umhverfisverðlaun á Off-
shore Support Journal-ráðstefnunni í
Lundúnum.
Fáfnir Offshore hlaut verðlaunin
fyrir hönnun á nýju skipi, Havyard
833 WE ICE, sem er orkusparandi
olíuþjónustuskip. Skipið er annað í
röðinni sem er smíðað fyrir Fáfni
Offshore. Svona orkusparandi tækni
er ekki ný af nálinni en það sem gerir
Havyard 833 WE ICE svona sérstakt
er að stöðugleikabúnaður (e. dyn-
amic positioning) þess nýtir rafmagn
í meiri mæli og krefst því ekki jafn
mikillar olíunotkunar og hefðbundin
olíuþjónustuskip.
„Þetta er heilmikill áfangi,“ segir
Steingrímur Erlingsson, stofnandi
Fáfnis Offshore. „Nú er mikið um
verðlaunaafhendingar um þessar
mundir, Eddan, Óskarinn og fleira
þannig að það mætti segja að þessi
verðlaun séu eins konar BAFTA-verð-
laun í okkar starfsgrein. Þetta er mik-
ill heiður fyrir félagið, en líka fyrir
land og þjóð,“ segir Steingrímur. - srs
Olíuþjónustuskip sem er hannað af íslensku fyrirtæki hlaut alþjóðleg umhverfisverðlaun:
Fékk verðlaun fyrir hönnun á nýju skipi
VERÐLAUN
Steingrímur
Erlingsson
tekur við
verðlaunum
í Lundúnum
LÖGREGLUMÁL Karlmaður og kona
höfðu ökumannsskipti á ferð
þegar lögreglan á höfuðborgar-
svæðinu ætlaði að stöðva þau á
laugardag. Maðurinn var sá sem
ók þegar lögreglumenn veittu
bifreiðinni athygli en konan
var undir stýri þegar þau voru
stöðvuð. Bæði voru þau í annar-
legu ástandi með útrunnin öku-
réttindi. Þá fannst töluvert magn
af fíkniefnum í bílnum. Konan
er rúmlega tvítug og maðurinn
þrítugur. Þau voru bæði vistuð
fangageymslu. - vh
Keyrðu í annarlegu ástandi:
Skiptu um
sæti á ferð
HEILBRIGÐISMÁL Forsvarsfólk GoRed-átaksins stóð fyrir opnu húsi í
húsakynnum Hjartaheilla í gær. Þar gafst konum kostur á að gangast
undir ýmsar heilsufarsmælingar á borð við blóðþrýstingsmælingu,
kólesterólmælingu, blóðsykursmælingu og fleira.
GoRed er alheimsátak á vegum World Heart Federation. Átakinu
er ætlað að vekja konur til umhugsunar um hjarta- og æðasjúkdóma.
Jafn margar konur og karlar látast árlega af völdum slíkra sjúkdóma
en einkenni sjúkdómsins eru óljósari hjá konum. GoRed á Íslandi er
samstarfsverkefni Hjartaverndar, Heilaheilla, Hjartaheilla auk fag-
deildar hjúkrunarfræðinga og fleiri fagaðila. - srs
Jafn margar konur og karlar látast vegna hjartasjúkdóma:
Konur geri sér grein fyrir áhættu
OPIÐ HÚS Guðríður Þórðardóttir hjúkrunarfræðingur mælir blóðþrýsting Elsu
Yeoman borgarfulltrúa.
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Suður-
nesjum hafði afskipti af karl-
manni sem kom til Íslands frá
Amsterdam um síðustu mánaða-
mót. Maðurinn, sem ferðaðist með
falsað vegabréf, var handtekinn
eftir að upp komst að hann væri
að nota greiðslukort sem tilheyrði
honum ekki.
Við leit í tölvu og símum manns-
ins kom í ljós mikið magn gagna
varðandi umfangsmikil greiðslu-
kortasvik og skilríkjafölsun. Mað-
urinn afplánar nú 60 daga fangels-
isvist hér á landi. - srs
Upp komst um kortasvik:
Kortasvikari
handtekinn
BANGLADESH, BBC Talið er að tæp-
lega fimmtíu hafi farist þegar
ferja og fiskibátur skullu saman
á ánni Padma skammt frá Dakka,
höfuðborg Bangladess.
Ríflega hundrað manns voru
um borð í ferjunni og náðu
minnst fimmtíu að synda í land.
Kafarar leita nú að líkum á botni
árinnar.
Skipstjóri bátsins og áhöfn hafa
verið handtekin og er verið að
rannsaka hvort ákæra verði gefin
út á hendur þeim. - jóe
Ferja og bátur skullu saman:
Mannskaði í
Bangladess
Save the Children á Íslandi
Þetta var aðgerð sem
stenst allar kröfur þjóðar-
réttarins og ekki er hægt
að setja út á okkar fram-
göngu á nokkurn hátt
Ahmet Davutoglu,
forsætisráðherra Tyrklands
2
2
-0
2
-2
0
1
5
2
2
:3
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
3
E
2
-5
1
0
C
1
3
E
2
-4
F
D
0
1
3
E
2
-4
E
9
4
1
3
E
2
-4
D
5
8
2
8
0
X
4
0
0
3
A
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K