Fréttablaðið - 23.02.2015, Síða 12
23. febrúar 2015 MÁNUDAGURSKOÐUN
HALLDÓR
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI: Sævar Freyr
Þráinsson ÚTGEFANDI OG AÐALRITSTJÓRI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI:
Sigurjón M. Egilsson sme@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á
höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið
áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871
FRÁ DEGI
TIL DAGS
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is AÐSTOÐARFRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Erla Björg Gunnarsdóttir erla@frettabladid.is MENNING: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is
VÍSIR: Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
Fanney Birna
Jónsdóttir
fanney@frettabladid.is
BSRB hefur lengi bent á mikilvægi þess
að brugðist verði sem fyrst við vanda og
breyttum þörfum á húsnæðismarkaði til
að tryggja öllum viðunandi húsnæði á
viðunandi kjörum. Í nýútkominni skýrslu
Velferðarvaktarinnar er sérstaklega bent
á mikilvægi þess að huga að öryggi í hús-
næðismálum. Brýnt er því að mati BSRB
að setja í forgang uppbyggingu almenns
leigumarkaðar og samræmt húsnæðis-
bótakerfi.
Nauðsynlegt er að gera leiguform-
ið að raunverulegum valkosti í búsetu-
málum á Íslandi. BSRB telur að með
almennu leigukerfi að norrænni fyrir-
mynd verði hægt að bjóða upp á lang-
tímaleigu húsnæðis á viðunandi kjörum.
Þörf á auknu framboði leiguhúsnæðis
er mikil en um 20% félagsmanna BSRB
hafa lýst því í kjarakönnunum bandalags-
ins að þeir vilji færa sig úr eigin húsnæði
yfir á leigumarkað ef búsetuöryggi væri
tryggt.
Það er jafnframt grundvallaratriði í
stefnu BSRB að stuðningur hins opin-
bera við ólík búsetuform verði jafnaður.
Taka verður strax upp samræmdar hús-
næðisbætur í stað vaxta- og leigubóta til
að stuðla að frekari jöfnuði fólks. Með
hærri fjárstuðningi til leigjenda í formi
samræmdra húsnæðisbóta verður fjöl-
skyldum því gefið raunverulegt val um
búsetuform.
Nú er bráðum ár liðið frá því að tillög-
ur verkefnisstjórnar um framtíðarskip-
an húsnæðismála voru kynntar en engin
frumvörp hafa enn verið lögð fram af
hálfu félags- og húsnæðismálaráðherra.
Ljóst er að mikillar óþreyju er farið að
gæta eftir því að aðgerðir ríkisstjórnar-
innar í húsnæðismálum líti dagsins ljós.
Ríkið verður að koma með öflugum
hætti að uppbyggingu leigufélaga og
gera nauðsynlegar breytingar á laga- og
reglugerðarumhverfi þannig að leigu-
félög geti sinnt sínu mikilvæga hlutverki.
BSRB bendir á að þeim bráðavanda sem
nú blasir við á húsnæðismarkaði verður
ekki brugðist við nema stjórnvöld leggi nú
fram nauðsynlega fjármuni bæði í upp-
byggingu leigufélaga og í nýtt og sam-
ræmt húsnæðisbótakerfi þar sem stuðn-
ingur við leigjendur verði aukinn. BSRB
kallar því eftir að félags- og húsnæðis-
málaráðherra komi án tafar fram með
raunhæfar tillögur til að tryggja húsnæð-
isöryggi og jafnræði á húsnæðismarkaði.
Hvað tefur í húsnæðismálum?
Innskot í Fréttablaðið skilar árangri!
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
Fréttablaðið er mest lesna dagblaðið landsins
með glæsilegt forskot á keppinautana.
Meðallestur Fréttablaðsins í
aldurshópnum 25-54 ára er 73%
á höfuðborgarsvæðinu.*
Við bendum auglýsendum á að notfæra
sér forskotið þegar þeir velja dreifingarleið
fyrir fjölpóst sinn. Við dreifum sex daga
vikunnar til heimila á stærsta markaðssvæði landsins.
Kannaðu dreifileiðir og verð í síma 512 5448
eða í tölvupóstfangi fjolpostur@frettabladid.is
*P
re
nt
m
ið
la
kö
nn
un
C
ap
ac
en
t o
kt
ób
er
–d
es
em
be
r 2
01
2
–
hö
fu
ðb
or
ga
rs
væ
ði
2
5-
54
á
ra
HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN
Í FRÉTTABLAÐINU
HÚSNÆÐISMÁL
Elín Björg
Jónsdóttir
formaður BSRB
E
ddan, uppskeruhátíð íslenska sjónvarps- og kvikmynda-
geirans, var haldin hátíðleg um helgina. Þar var kvik-
myndaárinu sem nú er nýliðið fagnað og verðlaun veitt
fyrir góða frammistöðu á ýmsum sviðum. Eins og svo
oft áður kom bágborin staða kvenna fyrir í umfjöllun
skemmtikrafta og verðlaunahafa.
Fréttablaðið greindi frá því á föstudag að engin kona var leik-
stjóri, handritshöfundur, kvikmyndatökumaður eða höfundur
tónlistar í kvikmynd í fullri lengd árið 2014. Sjö myndir voru
framleiddar á árinu og viðfangs-
efni flestra þeirra það sem kalla
má karllæg og aðalsöguhetjan
í flestum tilvikum karlmaður.
Kristín Atladóttir hagfræðingur
tók af tilefni uppskeruhátíðar-
innar saman gögn um hlutföll
kvenna í íslenskum kvikmyndum
á síðasta ári. Þar kom fram að
þegar litið er til allra verka við kvikmyndagerð á síðasta ári voru
karlar 73 prósent þeirra sem störfuðu í kvikmyndum og aðeins
27 prósent kvenna. Konur veljast fremur í aukahlutverk og starfa
frekar við búninga og smink en karlar við framleiðslu, leikstjórn
og kvikmyndatöku.
Formaður Samtaka kvenna í sjónvarpi og kvikmyndum, Dögg
Mósesdóttir, segir þörf á róttækum breytingum til að jafna
hlutföll kynja í kvikmyndagerð – staðan sé mjög vandræðaleg.
Hún bendir á ákveðinn valdastrúktúr í greininni sem flestir séu
blindir á og viðhaldi ástandinu. Þannig er það skilyrði að styrk-
þegar frá Kvikmyndamiðstöð starfi í greininni. Meirihluti þeirra
sem þar starfa eru karlar. Þannig eru líkur á því að konur hljóti
styrki augljóslega litlar. Dögg segir pressu „að ofan“ nauðsynlega
og telur lausnina mögulega felast í því að setja kynjakvóta. Þrýsta
þurfi á breytingar.
Þessi ræða er kunnugleg. Nokkurn veginn nákvæmlega sama
umræða og umkvartanir áttu sér stað í aðdraganda þess að
lög um kynjakvóta í stjórnum fyrirtækja voru sett. Þrátt fyrir
áratugalanga baráttu kvenréttindasinna, aukna menntun kvenna
og umsnúning kynjahlutfalla á ýmsum sviðum þjóðfélagsins voru
efri stig viðskiptalífsins einsetin af körlum. Sýnt þótti að tíminn
myndi ekki sjá um að leiðrétta þennan halla og því væri lagasetn-
ing nauðsynleg. Nú stendur kvikmynda- og sjónvarpsiðnaðurinn
í sömu stöðu og viðskiptalífið gerði fyrir lagasetninguna. Líkt og
Dögg bendir á sækir mest öll framleiðsla í þeim geira rekstrarfé
sitt í ríkisstyrki. Um þá gilda lög. Jafnréttislög. „Það er full-
komlega réttlætanlegt að krefjast þess að ójöfn staða kynjanna sé
leiðrétt,“ sagði Dögg í viðtali við helgarblað Fréttablaðsins.
Meira að segja þeir sem tala hæst fyrir kynjakvótum vilja
líklegast ekki að þeirra sé þörf. En það er erfitt að breyta ára-,
ef ekki áratugalöngum venjum yfir nótt. Ef sjónvarps- og
kvikmyndaiðnaðurinn ætlar ekki að eiga á hættu að fá yfir sig
íþyngjandi lagasetningu líkt og viðskiptalífið ríður á að bretta
upp ermar og hleypa hinu kyninu að. Taka konurnar með og gefa
þeim tækifæri. Það vill nefnilega svo skemmtilega til að helm-
ingur áhorfenda er konur. Þeim finnst líka gaman að upplifa sinn
reynsluheim í sjónvarpi og kvikmyndum.
Er þörf á kynjakvótum í kvikmyndagerð?
Konur að
kjötkötlunum
➜ Ríkið verður að koma með öfl -
ugum hætti að uppbyggingu leigu-
félaga og gera nauðsynlegar...
Gefið í skyn, en ekkert sagt
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðis-
ráðherra var í viðtali við Fréttablaðið á
föstudag. Þar sagði hann frá því að hann
vilji skoða möguleikann á því að hluti
af framkvæmdum við nýjan Landspítala
verði fjármagnaður með sölu á eignum
ríkisins. Ekki tiltók hann sérstaklega
hvaða eignir hann hefði í huga, en
nefndi að ríkið ætti fullt af
eignum hér og þar bankar væru
„drjúgir og orkufyrirtæki eru
drjúg,“ eins og ráðherra orðaði
það. Kristján Þór hefur orðað
svipaðar hugmyndir, en aldrei
hvaða eignir á að selja, en
skiptar skoðanir munu
verða um sölu á bönkum
og Landsvirkjun. Er
ekki ráð að ráðherra
nefni þær eignir sem
hann vill selja svo hægt sé að mynda sér
afstöðu til slíkra hugmynda? Hætta að
gefa í skyn og tala hreint út?
Hvar voru pr-mennirnir?
Umrætt útboð vekur hins vegar spurn-
ingar um hvar pr-menn ríkisstjórnarinn-
ar voru í læknaverkfallinu. Ríkisstjórnin
er að setja fjármuni í framkvæmdir við
Landspítala, en læknar hafa harðlega
gagnrýnt aðbúnaðinn þar og ræddu
oft og tíðum um hann í verk-
fallinu. Af hverju ekki að stíga
fram í miðju verkfalli og slá sig til
riddara með umræddum
framkvæmdum, frekar
en að bíða þar
til nokkrum
vikum eftir
að verkfalli
lýkur?
Nýtt ráðuneyti – já takk
Bandalag íslenskra listamanna (BÍL)
hélt málþing í upphafi mánaðar þar
sem hugmyndin um sérstakt ráðuneyti
menningarmála var rædd. Sjálfstæðis-
barátta 21. aldarinnar, var yfirskrift
þingsins, þannig að líklega hefur eitt-
hvað annað en skipulag ráðuneytismála
borið þar á góma. Illugi Gunnarsson,
mennta- og menningarmálaráðherra,
tók vel í hugmyndina. Mögulega
vegna þess að hann er að kafna
í verkefnum í ráðuneytinu, en
kannski er hann bara að hugsa
um blaðamenn sem myndu
fagna því að þurfa ekki að skrifa
mennta- og menningar-
málaráðherra í hvert
sinn sem Illugi tjáir
sig.
kolbeinn@frettabladid.is
2
2
-0
2
-2
0
1
5
2
2
:3
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
3
E
2
-3
D
4
C
1
3
E
2
-3
C
1
0
1
3
E
2
-3
A
D
4
1
3
E
2
-3
9
9
8
2
8
0
X
4
0
0
1
A
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K