Fréttablaðið - 14.02.2015, Síða 26
14. febrúar 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN | 26
BOSTON flug f rá
Tímabi l : mars - maí 2015
18.999 kr.
WASHINGTON flug f rá
Tímabi l : ma í 2015
19.999 kr.
PARÍS flug f rá
Tímabi l : apr í l - maí 2015
12.999 kr.
LONDON flug f rá
Tímabi l : apr í l - jún í 2015
9.999 kr.
LYON flug f rá
Tímabi l : jún í - ágúst 2015
24.999 kr.
ÞÚ
GETUR
FLOGIÐ!
KATRÍNARTÚNI 12 WOWAIR.IS WOWAIR@WOWAIR.IS
Gerðu verðsamanburð,
það borgar s ig!
fræðslu og upplýsingar. Kynna
betur störfin og hvaða verkefni fel-
ast í þeim. Þetta eru bara venju-
leg störf.
Esther: Þegar nám er kynnt í
grunnskólum þá er alltaf bara
talað um bóknámsbrautir. Það er
aldrei sagt: „Hei, stelpur. Komið
og kíkið á vélvirkjabrautina.“
Aldrei.
Sunna: Það er náttúrulega mikið
menntasnobb á íslandi á þann hátt
að iðnnám nýtur ekki sannmælis.
Forstjórinn tekur
ákvörðun um jafnrétti
Og er þetta ykkar framtíðarstarf?
Gengur vel að samþætta starf og
fjölskyldu?
Eyrún: Það skiptir engu hvort
þú ert karl eða kona hérna, hér er
fjölskylduvæn starfsmannastefna.
Það fara rútur klukkan átta og
fjögur hingað. Þess vegna verð-
ur ramminn svo skýr. Hér er dag-
vinnan unnin frá átta til fjögur.
Sunna: Mörg fyrirtæki gefa sig
út fyrir að vera fjölskylduvæn
fyrirtæki. ÍSAL er virkilega fjöl-
skylduvænt fyrirtæki. Það er lögð
áhersla á að vinna átta tíma á dag
og forstjórinn okkar er góð fyrir-
mynd þar. Það er frábært og rútu-
ferðirnar hjálpa okkur að halda
okkur við þennan tíma. Ég sat
einu sinni til hálffimm og ég var
þá strax spurð hvort ég ætlaði að
vinna yfirvinnu.
Eyrún: Rannveig sagði einu
sinni á starfsmannafundi að við
ættum ekki að vinna meira en átta
tíma því við verðum að rækta fjöl-
skyldu okkar. Af því að þegar við
förum á elliheimili, þá heimsækir
fjölskyldan okkur en ekki vinnan.
Þetta fannst mér frábær punktur
hjá henni.
Haldið þið að það skipti máli að
það er kona sem leiði fyrirtækið?
Eyrún: Ég held að það skipti
ekki máli að hún er kona, held-
ur að hún sé manneskja sem er
mjög meðvituð um að það þurfi að
taka ákvörðun um að ná jafnrétti.
Það að hún er kona hjálpar henni
kannski að sjá mikilvægið en það
er ekki grundvallaratriði.
Esther Gunnarsdóttir 26 ára
Menntun
Rafvirki
Starf
Rafveituvirki
Hvað þýðir það? Alls kyns verk-
efni víðs vegar á svæðinu tengd
rafmagni og rafveitu. Vinnur þó
helst verkefni tengd háspennu í
aðveitustöð.
Esther ætlaði alltaf að verða
iðnaðarmaður. Hún vann við
byggingarvinnu frá 16 ára aldri
og prófaði að fara í bóknám en
fann strax að það var ekki fyrir
hana. Esther fór í rafvirkjanám
í FB, á námssamning hjá ÍSAL
í kjölfarið og hóf störf að námi
og fæðingarorlofi loknu. Sextán
rafvirkjar starfa hjá fyrirtækinu
og þar af tvær konur.
➜ Er að vinna í
háspennunni
Eyrún Linnet 35 ára
Menntun
Rafmagnsverkfræðingur
Starf
Rafveitustjóri
Hvað þýðir það? Ber ábyrgð á
rafveitunni og hefur umsjón með
öllum búnaði.
Eyrún sótti um starfið þegar
það var auglýst árið 2011. Hún
er fædd og uppalin í Hafnarfirði
og hafði alltaf litið hýru auga til
álversins. Þegar laust starf var
auglýst 2011 sló hún til og hætti
á verkfræðistofunni sem hún
vann á. Eyrún byrjaði í sérverk-
efni, fór svo að sinna rafmagns-
málum í kerskála en byrjaði um
áramót sem rafveitustjóri. Eyrún
er fyrsta konan til að sinna því
starfi á Íslandi.
➜ Fyrsti kvenkyns
rafveitustjórinn
Sunna B. Helgadóttir 31 árs
Menntun
Véla- og efnaverkfræði
Starf
Framkvæmdastjóri rafgreiningar
Hvað þýðir það? Stýrir allri
álframleiðslunni.
Sunna hefur unnið hjá ÍSAL
í fjórtán ár en hún byrjaði hjá
fyrirtækinu 18 ára sem sumar-
starfsmaður í mötuneytinu. Hún
fór yfir á vaktir í álframleiðslunni
sem vakti áhuga hennar á starf-
inu og stýrði að einhverju leyti
námsvali hennar. Eftir masters-
próf í verkfræði tók hún við
framkvæmdastjórastarfinu og
fetaði þar með í fótspor Rann-
veigar Rist sem sinnti starfinu í
nokkra mánuði áður en hún varð
forstjóri.
➜ Úr mötuneytinu
í stjórnina
Í STEYPUSTÖÐINNI Eyrún, Esther og Sunna vinna á ólíkum stöðum í álverinu.
Sunna og Eyrún deila tíma sínum á milli skrifborðsins og eftirlitsferða. Esther er
aftur á móti á flakki um allt svæðið allan daginn. Í steypustöðinni er álið mótað í
álstangir. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
400 MANNS
starfa hjá Rio Tinto
Alcan.
19%
þeirra eru konur
eða um 80.
ÞRIÐJA HVER
kona gegnir stöðu
stjórnanda eða sér-
fræðings.
3 KONUR
eru iðnaðarmenn
af 80 manna hópi.
8 SITJA
í framkvæmda-
stjórn fyrirtækisins.
4 konur og 4 karlar.
➜ Markmið um kynjahlutfall
nýrra ráðninga var fyrst sett
árið 2013 (iðnaðarmenn undan-
skildir vegna lítils framboðs).
➜ Markmið 2013 var að
hlutfall kvenna af nýráðn-
ingum yrði 60%. Niðurstaða
ársins var 70%.
➜ Markmiðið 2014 var
hækkað í 70% en
niðurstaða ársins var um
50%.
1
3
-0
2
-2
0
1
5
2
1
:1
2
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
3
C
F
-F
2
1
4
1
3
C
F
-F
0
D
8
1
3
C
F
-E
F
9
C
1
3
C
F
-E
E
6
0
2
8
0
X
4
0
0
8
A
F
B
1
1
2
s
C
M
Y
K