Fréttablaðið - 14.02.2015, Side 30
14. febrúar 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN | 30
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
Á RÖKSTÓLUM
Þegar rökstólaparið Hilm-ar Örn Hilmarsson alls-herjargoði og Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir dagskrárgerðarkona hittast heilsast þau með
virktum. „Hvað, þekkist þið?“ spyr
blaðamaður undrandi.
Hilmar Örn: Ekki nóg en við
getum sagt að leiðir okkar hafi
skarast.
Sigga Elva: Hann gaf dóttur
minni, Andrá, nafn við formlega
athöfn. Held ég hafi hringt í hann
með viku fyrirvara. Mér finnst
kristilegar skírnir yfirleitt svo
átakanlega langdregnar og mikið
gert úr því að allir viðstaddir eigi
að passa upp á trúarlegt uppeldi
barnsins. Yfirleitt er ég við það að
látast úr leiðindum og samvisku-
biti yfir því að ætla náttúrlega ekk-
ert að fara eftir þessum ráðlegg-
ingum. En nafngjöfin tók bara
fjórar mínútur. Það var frábært.
Hilmar Örn: Þetta hlýtur að
hafa verið skemmri skírn svo ég
noti vitlaust hugtak og óviðeig-
andi. Þið hafið fengið hraðspólun.
Yfirleitt held ég athöfnin taki tíu
mínútur, kortér. En það er ekkert
verið að lesa mikið yfir barninu
ómálga og segja því hvað það eigi
að varast og því síður að fá full-
orðna til að fá samviskubit.
Sigga Elva: Fengum við ADHD-
útgáfu? Það var fínt því þetta var
áður en ég fór að taka ofvirknitöfl-
urnar! Við foreldrarnir tókum þá
ákvörðun eftir þessa athöfn að ef
við hættum einhvern tíma að lifa í
synd þá yrðir þú sjálfkjörinn í að
gefa okkur saman. Það verður trú-
lega bókað einhvern tíma með viku
fyrirvara.
Hilmar Örn: Ég er nú samt
einn mest hataði maður í heiðnum
kreðsum í Ameríku þessa dagana,
þar var vitnað í að ég tryði ekki
bókstaflega á eineygðan mann á
áttfættum hesti og kommentin frá
Bandaríkjamönnum eru svaka-
leg, þar kemur fram að þúsundir
Bandaríkjamanna eiga daglegt
samtal við Óðin og fóðra Sleipni á
meðan. Þetta er allt í raunheimi.
Sigga Eva: Þeir eru nú dálít-
ið fyrir bókstafinn þarna vestra,
blessaðir. En ef maður hittir yfir-
náttúrulega veru þá finnst mér það
eitthvað til að ræða við fagmenn í
heilbrigðisstéttum frekar en tala
um það á torgum. Það eru til lyf
við þessu.
Hilmar: Já, ég held að fólkið í
hvítu sloppunum sé betra í að fást
við svona en fólkið í kuflunum. En
ég hef alveg þurft að kyngja því að
sumir hafi þær skoðanir að ég sé
að afvegaleiða fólk.
Sigga Elva: „Já, hefurðu verið
mikið í því að draga fólk út í synd
og lesti?
Hilmar Örn: Ekki eins og ég hef
viljað. Það liggur við að það hafi
farið meiri tími í kökubakstur hjá
mér.
Ekki enn komin með flatskjá
Hafið þið eitthvað fylgst með ver-
aldlegum atburðum á litla Íslandi
undanfarið?
Hilmar: Nei, ég er þessi andlegi
maður sem varla stíg fæti til jarð-
ar! Reyni bara að taka sem minnst-
an þátt í umræðunni á Íslandi eftir
hið svokallaða hrun. Ég verð svo
þunglyndur.
Sigga Elva: Ég var að vinna í
fréttum þegar runið varð og tók
viðtöl við fimm hagfræðinga og tíu
pólitíkusa á hverjum einasta degi,
að því er mér fannst, kom heim á
hverju kvöldi með tilfinninguna:
Það bjargast ekkert – það ferst,
það ferst. Svo varð mér til happs
að ég slapp úr því starfi og fór í
meira léttmeti nokkrum mánuðum
seinna. Geðheilsan snarbatnaði og
ég komst að því að þjóðfélagið fer
ekkert á hliðina þótt maður fylgist
ekki með.
Hilmar Örn: Ég er svo hjátrúar-
fullur að ég held að allt hafi skán-
að við það að ég hætti að fylgjast
með.
Sigga Elva: Sagan segir líka að
ef maður bíði nógu lengi þá verði
komið góðæri næst þegar maður
opnar Fréttablaðið. Fer ekki að
bresta á með því?
Hilmar Örn: Ég vona það, en
veit ekki alveg hver hringrásin er
í árum talið.
Sigga Elva: Er ekki talað um sjö
ár? Það er heilög tala í kristninni
en ég veit ekki hvernig það er í
heiðni.
Hilmar Örn: Það er níu hjá
okkur en ég skal alveg nota kristna
tímatalið ef það hentar.
Sigga Elva: Mér sýnist þið ætla
að hafa vinninginn í þessu. Ég er
að minnsta kosti ekki búin að fá
mér flatskjá enn þá og er enn í
Excel-skjalinu að reyna að finna út
hvernig ég get losnað úr ofbeldis-
sambandinu við bankann.
En þegar ég var í fréttaumhverf-
inu var ég með blogggáttina opna
og fylgdist með öllum miðlum.
Hilmar: Ég tek mest eftir frétt-
um um týnda púðluhunda og svo-
leiðis. Þegar ég var að keppa í
Útsvari varð ég mér til skamm-
ar því ég vissi ekkert fréttatengt.
Maður átti að botna nýlega fyrir-
sögn og ég seig bara niður, hefði
kannski getað það ef fyrirsögnin
hefði verið úr Öldinni okkar frá
1930. Þá hefði verið komin mátuleg
fjarlægð. En ég veit þó að nýlega
var full rúta af ungmennum föst
í hálfan sólarhring af því vegur-
inn fór í sundur og mér finnst svo
falleg fréttin af bóndanum sem
keyrði um nóttina með mat til
þeirra. Svoleiðis fólk gefur manni
trú á lífið.
Hafið þið lent í lífsháska eða
verið strandaglópar?
Sigga Elva: Ég hef verið sótt af
björgunarsveit. Ég álpaðist upp í
gúmmíbát á Hornströndum með
manni sem ætti, strangt til tekið,
ekki að vera með próf á þríhjól. Sú
ferð endaði með því að allir féllu
útbyrðis rétt við ströndina og ég
fékk skrúfuna á fullu blússi í öxl-
ina á mér. Það var siglt í næsta
farsímasamband og eftir tvo, þrjá
tíma birtist risabátur með her
af fólki sem hafði staðið upp frá
vinnunni til að sækja einhvern
bjána sem hafði verið að sulla í
vitleysu á gúmmíbát. Ég ber enda-
lausa virðingu fyrir svona fólki.
Áhyggjur af þungarokkurum
Munið þið eftir f leiru sem hefur
verið í umræðunni nýlega?
Sigga Elva: Nei, ég er búin að
sitja með heyrnartól og viðtals-
klippa síðustu þrjár vikur. Eigin-
lega hef ég bara verið í vinnunni
síðan í september og er sorglega
illa að mér. En síðast þegar ég
vissi var eldgos í gangi.“
Hvað segja heiðnir menn um
það?
Hilmar Örn: „Hverju reiddust
goðin,“ var flottur frasi hjá Snorra
goða á sínum tíma og sumir halda
því fram að „sól tér sortna“ í Völu-
spá sýni að heiðnir hafi upplifað
eldgos þaðan sem þeir komu en það
hefur aldrei gosið í Noregi og Dan-
mörku svo það er ekkert innbyggt
í heiðni. Í grísku og rómversku
goðafræðinni eru hins vegar eld-
fjallaguðir og í Suður-Ameríku
er eldfjallagyðja svo þetta fylgir
staðháttum. En í heiðninni erum
við með Loka sem veldur jarð-
skjálfta samkvæmt Snorra-Eddu.
Þegar konan hans, Sigyn, tekur
kerið í burtu frá honum spriklar
hann og þá verða skjálftar. Það er
falleg skýring sem ég skil miklu
betur en jarðfræðina.
Sigga Elva: Hvenær hætta trúar-
brögð að taka breytingum? Er búið
að loka fyrir umsóknir eða mætti
koma með nýjan guð í ljósi ein-
hverra aðstæðna? Ég var reyndar
lengi að hugsa um að stofna söfnuð
til heiðurs Bakkusi og minnir að til
að fá trúfélagsskrá þurfi að byggja
á einhverjum sögulegum átrúnaði.
Hilmar Örn: Ég held að það
sé eðli góðra trúarbragða að
þau breytist með tímanum. Þess
vegna sér maður gamlar goð-
fræðilegar sögur í bíómyndum
og bókmenntum. Það eru sögur
sem verða að segjast og finna sér
alltaf leið. Þær eru hluti af okkar
sálræna uppeldi og hvernig við
speglum okkur á hverjum tíma.
Ég hef engar áhyggjur af því.
Ég hef meiri áhyggjur af sumum
þungarokkurum.
Sigga Elva: Er það af því að
tónlistin er vond eða ertu að tala
um boðskapinn?
Hilmar Örn: Ég tek það skýrt
fram að ég er ekki að tala um
Skálmöld sem ég dýrka og dái og
finnst stórkostlegt hvernig hún
miðlar arfinum áfram. En það
er komið sérstakt sánd, viking-
metal, og það eru mikil læti. Ég
er svo mikil pempía.
Sigga Elva: Þú vilt bara ljúfa
tóna eins og hjá Skálmöld.
Hilmar Örn: Já, eitthvað sætt,
lítið tíst.
Heilagar tölur og trúarbrögð
Hilmar Örn Hilmarsson allsherjargoði og Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir dagskrárgerðarkona eiga sameiginlegt að fylgjast
lítið með fréttum þessar vikurnar og hafa áhuga á ásatrú. Sigga Elva hefur verið sótt af björgunarsveit en Hilmar Örn ekki.
Á RÖKSTÓLUM Sigríður Elva og Hilmar Örn eru á því að allt hafi skánað eftir að þau hættu að fylgjast með fréttum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARINÓ
Ég álpaðist upp í
gúmmíbát á Hornströndum
með manni sem ætti,
strangt til tekið, ekki að vera
með próf á þríhjól. Sú ferð
endaði með því að allir féllu
útbyrðis rétt við ströndina
og ég fékk skrúfuna á fullu
blússi í öxlina á mér.
Sigríður Elva
Þegar ég var að keppa í
Útsvari varð ég mér til
skammar því ég vissi ekkert
fréttatengt. Maður átti að
botna nýlega fyrirsögn og ég
seig bara niður.
Hilmar Örn
1
3
-0
2
-2
0
1
5
2
1
:1
2
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
3
C
F
-C
A
9
4
1
3
C
F
-C
9
5
8
1
3
C
F
-C
8
1
C
1
3
C
F
-C
6
E
0
2
8
0
X
4
0
0
4
A
F
B
1
1
2
s
C
M
Y
K