Fréttablaðið - 14.02.2015, Síða 42
FÓLK|
HÆFILEIKAFÓLK Helga
segir að margt ungt fólk sé
afar hæfileikaríkt og gaman
sé að fylgjast með því koma
fram á sjónarsviðið.
MYND/ERNIR
Helga starfar sem flugfreyja
hjá Icelandair og segist aldrei
finna fyrir skjálfta í háloftunum.
„Ekki nema þessum venjulega
þegar vélin lendir í ókyrrð,“ segir
hún og hlær. Vegna þess hversu
lítið þetta háir henni hefur hún
ekki leitað til læknis. „Eflaust er
hægt að gefa einhver lyf til að
halda þessu í skefjun en ég þarf
ekkert á þeim að halda. Í minni
fjölskyldu hlæjum við bara að
þessu og köllum okkur skjálfta-
vaktina.“
LÖG EFTIR FORMÚLU
Helga flaug til Evrópu í morgun
en hún verður komin heim
síðdegis og ætlar að horfa á úr-
slitakeppnina í kvöld. „Ég horfi
alltaf á undankeppnina. Þetta er
frábært skemmtiefni og gaman
að fylgjast með nýjum andlitum
koma fram á sjónarsviðið. Það
eru tvö lög sem ég tel að komist
áfram en hef þó ekki myndað
mér skoðun á því hvort þeirra
vinnur. Vil heldur ekki gefa upp
hvaða lög það eru sem standa
upp úr. Ég hafði þó rétt fyrir
mér varðandi þau lög sem héldu
áfram í keppninni bæði kvöldin.
Mér finnst allir þátttakendur
koma sínu vel til skila en lögin
misjafnlega grípandi. Ungt fólk í
dag er ófeimið og opið. Það hefur
líka gott tækifæri til að koma sér
á framfæri, til dæmis á YouTube.
En það er mikil samkeppni meðal
tónlistarfólks og fáir útvaldir.“
GRÍPANDI MELÓDÍA
Þegar Helga er spurð hvort
keppnin hafi breyst í áranna
rás, játar hún því. „Mér finnst
lagahöfundar reyna of mikið
að semja lög eftir ákveðinni
formúlu. Íslendingar vilja hlusta
á íslenska tónlist en þeir vilja
líka vinna Eurovision. Íslensk
tónlistarhefð er einstök en því
miður taka okkar bestu lagahöf-
undar ekki þátt í þessari keppni.
Þótt Heyr mína bæn sé ítalskt
Eurovision-lag er það um leið
mjög íslensk melódía. Þess vegna
hafa margir haldið að þetta sé
íslenskt lag. Það er einfalt, fallegt
og grípandi.“
Eurovision-dívurnar fimm sem
fluttu Heyr mína bæn voru fyrir
utan Helgu, Ingibjörg Stefáns-
dóttir, Birgitta Haukdal, Sigrún
Eva Ármannsdóttir og Sigríður
Beinteinsdóttir. Lagið heitir á
frummálinu Non ho l’età, flutt
af Gigliola Cinquetti en það var
sigurlag í Eurovision 1964. Ólafur
Gaukur gerði íslenskan texta við
lagið sem Ellý Vilhjálms flutti ári
síðar.
AFTUR Í EUROVISION?
Dívurnar fengu mjög góð við-
brögð við flutningnum og þegar
Helga er spurð hvort þær skelli
sér ekki bara næst í Eurovison,
getur hún ekki varist hlátri. „Jú,
hvernig væri það? Finnum gott
lag og skellum okkur í keppnina.
Það myndi nú vekja athygli ef
fimm „stútungskerlingar“ birtust
á sviðinu þótt ég vilji nú ekki
kalla Birgittu og Ingibjörgu því
nafni. En þær eru vissulega hokn-
ar af reynslu. Það hefur reyndar
ekki hvarflað að mér að taka þátt
í þessari keppni aftur en maður
skyldi aldrei segja aldrei.“
Þegar blaðamaður hermir það
upp á Helgu að nú sé hún búin
að viðurkenna að hún myndi ekki
skorast undan þátttöku, skellir
hún upp úr. „Ja, ég myndi aldrei
taka þátt ein en ef upp kæmi eitt-
hvað svona skemmtilegt, þá er
aldrei að vita.“
ÓGLEYMANLEGT ICY
Helga hefur nokkrum sinnum
tekið þátt í undankeppninni en
aðeins einu sinni farið alla leið.
Það var í fyrsta skipti sem Ís-
lendingar voru með í Eurovision
og sendu Icy-flokkinn til Noregs
með Gleðibankann. „Það var
ógleymanlegt ævintýri sem mun
aldrei gleymast,“ segir hún.
„Maður fékk að upplifa heims-
frægð í heila viku. Það var mikið
keppnisskap í Íslendingum og
við ætluðum að vinna. Það kom
því þjóðinni í opna skjöldu þegar
við höfnuðum í sextánda sæti.
Enn í dag sættist þjóðin á úrslit
ef við lendum ofar en í sextánda
sætinu. Samt eru 29 ár frá því
að Gleðibankinn var fluttur. Það
var mikið lagt í undirbúning,
meðal annars útbúið myndband
samkvæmt nýjustu tækni þess
tíma sem hefur elst ágætlega.
Búningarnir eru í eigu RÚV og
að mínu áliti ættu þeir að fara á
Poppminjasafnið í Reykjanesbæ.
Ég sendi útvarpsstjóra hér með
áskorun um það,“ segir Helga.
ÉG OG ÞÚ
Það er alltaf nóg að gera hjá
Helgu. Fyrir jólin söng hún á sjö
jólatónleikum. Í næsta mánuði
kemur hún fram á afmælistón-
leikum Gunnars Þórðarsonar
ásamt Jóhanni Helgasyni. Þau
mynda dúettinn Þú og ég sem
hefur haft nóg að gera við alls
kyns tækifæri, árshátíðir, þorra-
blót, stórafmæli, brúðkaup og
fleira. „Það var Gunnar sem bjó
til þennan dúett á sínum tíma.
Það var líka hann sem kom mér á
kortið, ef svo má segja, hann tók
mig í prufu þegar hann var að
leita að söngkonu fyrir Þú og ég.
Þá var ég að syngja með hljóm-
sveitinni Celsíus,“ rifjar Helga
upp. „Það kemur okkur alltaf jafn
mikið á óvart hvað yngra fólk
þekkir lögin okkar,“ bætir hún
við.
Helga hefur verið í tónlistar-
bransanum í 43 ár þótt hún sé
ekki nema 57 ára. Hún viðurkenn-
ir að það sé mikil vinna fyrir eldri
poppara að halda sér á mark-
aðnum svona lengi. „Fólk vill
sem betur fer enn hlusta á mig,“
segir hún. „Söngurinn er hluti af
mér og mér finnst alltaf gaman
að syngja. Ég hef ekki mikið velt
fyrir mér kynslóðabili eða æsku-
dýrkun. Það fyrir utan eigum við
mikið af hæfileikaríku ungu tón-
listarfólki og ég fagna því.“
KÆRASTI Í FJARBÚÐ
Helga á eitt barnabarn sem er 9
ára og það fær oft að fara með
ömmu sinni í golf en það er
hennar helsta áhugamál. Kærasti
hennar til fjórtán ára, Sigurður
Hafsteinsson, er golfkennari og
fararstjóri í golfferðum og þau
spila oft á Spáni. „Við erum ekki
gift, né í sambúð, svo ég kalla
hann bara kærastann minn,“ seg-
ir Helga. „Stundum er þetta þægi-
legt fyrirkomulag en á öðrum
tímum sakna ég hans ógurlega.“
En kvíðir þú því að eldast?
„Nei, mér hefur alltaf þótt allur
aldur hafa sinn sjarma. Það er
mikilvægt að sættast við aldur
sinn og lifa lífinu lifandi. Ég hef
hins vegar miklar áhyggjur af
þjónustu við aldraða. Umræðan
undanfarið um að aldraðir séu
settir á lyf vegna manneklu þekki
ég vel frá því faðir minn var á
hjúkrunarheimili. Sú reynsla er
ömurleg og efni í annað viðtal.
Mín upplifun var að hann væri í
geymslu til að deyja. Þess vegna
tókum við hann heim þar sem
hann lést. Ég vona að fólk berji í
borðið til að koma í veg fyrir að
svona sé komið fram við foreldra
okkar,“ segir Helga sem verður
heitt í hamsi þegar þessi mál ber
á góma. En hún hlakkar til helg-
arinnar, enda margt skemmti-
legt að gerast í lífi hennar þessa
dagana.
■ elin@365.is
SÖNGURINN
„Söngurinn er hluti
af mér og mér finnst
alltaf gaman að
syngja. Ég hef ekki
mikið velt fyrir mér
kynslóðabili eða
æskudýrkun. Þar fyrir
utan eigum við mikið
af hæfileikaríku ungu
tónlistarfólki og ég
fagna því.“
HELGIN
Ný sending
Ótrúlegt úrval
Kjólar verð frá kr 9.900
FERMING
2015
1
3
-0
2
-2
0
1
5
2
1
:1
2
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
3
D
0
-0
F
B
4
1
3
D
0
-0
E
7
8
1
3
D
0
-0
D
3
C
1
3
D
0
-0
C
0
0
2
8
0
X
4
0
0
3
A
F
B
1
1
2
s
C
M
Y
K