Fréttablaðið - 14.02.2015, Qupperneq 54
Ábyrgð – Fagmennska – Traust – Þjónusta - Framþróun
Barnalæknir á Þroska- og
hegðunarstöð Heilsugæslunnar
Laust er til umsóknar starf sérfræðings í barnalækningum
eða barna- og unglingageðlæknis við Þroska- og hegð-
unarstöð. Um er að ræða allt að 100% starfshlutfall eftir
nánara samkomulagi. Æskilegt er að viðkomandi getið
hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
Þroska- og hegðunarstöð er miðlæg, sérhæfð starfseining
innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Stöðin er
mönnuð þverfaglegum starfshópi sem sinnir m.a. grein-
ingu, ráðgjöf, meðferð, fræðslu, rannsóknum, framþróun
og starfsþjálfun í tengslum við börn sem hafa frávik í
þroska, hegðun og/eða líðan. Markhópur starfseminnar
eru börn að 18 ára aldri og foreldar þeirra.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starf barnalæknis/barna- og unglingageðlæknis felst
einkum í greiningu, ráðgjöf og meðferð barna með þroska-
og hegðunarvanda í þverfaglegu samstarfi við aðra
sérfræðinga stöðvarinnar. Boðið er upp á fjölbreytt starf í
örvandi starfsumhverfi og góðum starfsanda.
Hæfnikröfur
Leitað er að umsækjanda sem er sérfræðingur í barna-
lækningum eða barna- og unglingageðlækningum.
Til greina kemur að ráða sérfræðing í heimilislækningum
með áhuga á greiningu og meðferð vegna þroska- og
hegðunarfrávika barna eða lækni í sérfræðinámi í
áðurnefndum sérgreinum. Mikilvægur eiginleiki er færni
í mannlegum samskiptum og áhugi og vilji til að starfa í
þverfaglegu teymi.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Læknafélags Íslands
og fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá.
Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um
læknismenntun og fyrri störf, ásamt staðfestu afriti af
opinberu starfsleyfi. Umsækjendum sem uppfylla
hæfnikröfur verður boðið í viðtal og byggir ráðning á
frammistöðu í viðtali, umsögnum og innsendum gögnum.
Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast
Svövu Þorkelsdóttur, mannauðsstjóra Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu hefur verið tekin. Tekið er mið af jafnréttisstefnu
Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í störfin.
Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Sækja skal um störfin á starfatorg.is eða á vef Heilsu-
gæslu höfuðborgarsvæðisins undir „laus störf.“
Umsóknarfrestur er til og með 09.03.2015
Nánari upplýsingar veitir
Nánari upplýsingar um starfið veitir Gyða Haraldsdóttir
forstöðumaður Þroska- og hegðunarstöðvar í síma
585-1350 eða gyda.haraldsdottir@heilsugaeslan.is
HH Þroska- og hegðunarstöð Heilsugæslunnar
Þönglabakki 1
109 Reykjavík
Staða skólastjóra við Austurbæjarskóla
Skóla- og frístundasvið
Laus er til umsóknar staða skólastjóra við Austurbæjarskóla.
Austurbæjarskóli er rótgróinn skóli í miðbæ Reykjavíkur. Skólinn hefur starfað síðan 1930 og byggir starfið á sterkum hefðum.
Í skólanum eru 450 nemendur í 1.-10. bekk og um 70 starfsmenn. Fjölbreyttir kennsluhættir, samvinna og list- og verkgreinar skipa
stóran sess í skólastarfinu. Skólinn hefur á að skipa vel menntuðu starfsfólki og stöðugleiki er í starfsmannahaldi. Austurbæjar-
skóli er fjölmenningarlegur skóli þar sem virðing er borin fyrir ólíkum hæfileikum og komið til móts við þarfir nemenda. Starfað er
eftir Olweusaráætluninni gegn einelti og unnið er að markmiðum Grænna skrefa Reykjavíkurborgar. Lögð er áhersla á vinsamleg
samskipti og vellíðan nemenda og starfsmanna. Við skólann starfar öflugt foreldrafélag og samvinna við foreldra og nærsamfélag
er gott.
Leitað er eftir einstaklingi sem getur veitt skólasamfélaginu faglega forustu á lýðræðislegan hátt og leitt skólann inn í
framtíðina með virðingu fyrir ríkri menningarlegri arfleifð.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreyti-
lega samfélag sem við búum í. Reykjavíkurborg vinnur gegn mismunun á vinnumarkaði og hvetur innflytjendur, fatlað fólk, hinsegin
fólk og fólk á öllum aldri til að sækja um störf hjá borginni.
Meginhlutverk skólastjóra er að:
• Veita skólanum faglega forystu og móta framtíðarstefnu
hans innan ramma laga og reglugerða og í samræmi við
aðalnámskrá grunnskóla og stefnu Reykjavíkurborgar.
• Stýra og bera ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi skólans.
• Bera ábyrgð á starfsmannamálum, s.s.ráðningum,
vinnutilhögun og starfsþróun.
• Bera ábyrgð á samstarfi aðila skólasamfélagsins.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari.
• Viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynsla á
grunnskólastigi.
• Reynsla af faglegri forystu á sviði kennslu og þróunar í
skólastarfi.
• Stjórnunarhæfileikar.
• Færni í áætlanagerð og fjármálastjórnun.
• Færni til að leita nýrra leiða í skólastarfi og leiða framsækna
skólaþróun.
• Lipurð og hæfni í samskiptum.
Umsókn fylgi greinargerð í stuttu máli um framtíðarsýn umsækjanda á skólastarfið, yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf til að
nota starfsheitið grunnskólakennari, upplýsingar um framsækin verkefni sem umsækjandi hefur leitt og annað er málið varðar.
Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. ágúst 2015. Umsóknarfrestur er til og með 9. mars 2015.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ. Umsækjendur eru beðnir að sækja um starfið á
heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf.
Nánari upplýsingar veita Auður Árný Stefánsdóttir, skrifstofustjóri grunnskólahluta fagskrifstofu, og Valgerður Janusdóttir,
mannauðsstjóri, sími 411 1111. Netföng: audur.arny.stefansdottir@reykjavik.is / valgerdur.janusdottir@reykjavik.is
AÞ-Þrif leitar að einstaklingum í vinnu.
Einungis íslensku- eða enskumælandi
einstaklingar koma til greina.
Ákjósanlegur aldur er 20–40 ára.
Gerðar eru kröfur um bílpróf
og hreint sakavottorð.
Umsóknir sendist á
bjarki@ath-thrif.is merkt „Atvinna“
ATVINNA
Skeiðarási 12
210 Garðabæ
Við leitum starfa fyrir fólk á atvinnuleysiskrá hjá
nokkrum stéttarfélögum – hæft fólk sem er tilbúið
til að takast á við margvísleg verkefni. Ef þú ert með
starf á lausu gætum við haft rétta starfsmanninn.
Kynntu þér málið á vefsíðu okkar: www.starfid.is
– eða sendu okkur fyrirspurn: vinna@starfid.is
STARF – vinnumiðlun og ráðgjöf ehf. er fyrirtæki í eigu Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins og var stofnað vorið 2012 til að halda utan um tilraunaverkefni um þjónustu
við fólk án atvinnu, atvinnuleitendur, sem eru félagar í tilteknum stéttarfélögum. Þjónustan fer fram í fjórum þjónustumiðstöðvum og þar starfa m.a. 10 atvinnuráðgjafar STARFs.
Þungamiðja þjónustunnar er vinnumiðlun og jafnframt er atvinnuleitendum liðsinnt við margvísleg vinnumarkaðsúrræði – markmiðið er að koma fleiri atvinnuleitendum aftur til starfa.
www.starfid.is
Vinnu vantar
HB Grandi óskar eftir að ráða skipaeftirlitsmann til starfa á botnfisksvið félagsins.
Sviðið ber ábyrgð á útgerð þriggja frystitogara og fjögurra ísfisktogara.
SKIPAEFTIRLITSMAÐUR
• Í starfi skipaeftirlitsmanns felst
m.a. ábyrgð á viðhaldi togara fyrir-
tækisins og umsjón með innkaupum
á vörum og þjónustu. Starfsstöð er
á aðalskrifstofum fyrirtækisins við
Norðurgarð í Reykjavík.
• Gerð er krafa um menntun sem
vélfræðingur eða sambærilega
menntun sem nýtist í starfi. Kostur er
að hafa starfsreynslu sem vélstjóri.
• Starfsmaðurinn sem við leitum að býr
yfir góðum skipulags- og samskipta-
hæfileikum. Viðkomandi þarf að geta
unnið undir álagi, vera árangursdrifinn í
starfi og fær í helstu tölvuforritum.
• Nánari upplýsingar veitir Elva Jóna
Gylfadóttir starfsþróunarstjóri í
síma 550 1024 eða með tölvupósti
elva@hbgrandi.is.
HB Grandi hf. veiðir, vinnur
og markaðssetur botnfisk
og uppsjávarfisk. Félagið
gerir út tíu fiskiskip og
vinnur fiskafurðir á sjó, í
Reykjavík, á Akranesi og
á Vopnafirði. Hjá félaginu
starfa um 950 manns til
sjós og lands.
Umsóknir skal senda á póstfangið starf@hbgrandi.is og er umsóknarfrestur til 2. mars 2015
1
3
-0
2
-2
0
1
5
2
1
:1
2
F
B
1
1
2
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
3
D
0
-1
9
9
4
1
3
D
0
-1
8
5
8
1
3
D
0
-1
7
1
C
1
3
D
0
-1
5
E
0
2
8
0
X
4
0
0
4
A
F
B
1
1
2
s
C
M
Y
K