Fréttablaðið - 14.02.2015, Page 97
LAUGARDAGUR 14. febrúar 2015 | LÍFIÐ | 61
Ástralska rokkhljómsveitin AC/
DC hefur staðfest að trommuleik-
arinn Chris Slade muni leysa Phil
Rudd af á næsta tónleikaferða-
lagi sveitarinnar. Hún er á leið í
tónleikaferðalag um heiminn.
Slade var áður meðlimur í AC/
DC, á árunum 1989 og 1994 og lék
inn á plötuna The Razor’s Edge.
Þá kom hann fram með sveitinni
á Grammy-verðlaunahátíðinni
um síðustu helgi.
Phil Rudd er nú staddur á Nýja-
Sjálandi og bíður þar réttarhalda
yfir sér. Hann er ákærður fyr-
ir að hafa reynt að ráða leigu-
morðingja til starfa til þess
að taka tvo menn af lífi. Jafn-
framt er honum gefið að sök að
hafa haft í fórum sínum eiturlyf;
metamfetamín og kannabis. - glp
Sest á bak við
settið í AC/DC
FLOTT AC/DC kom fram á Grammy-
verðlaunahátíðinni um síðustu helgi og
hefur engu gleymt. NORDICPHOTOS/GETTY
Rapparinn Drake hermdi eftir
söngkonunni Beyoncé og gaf
óvænt úr plötu á fimmtudag. Plat-
an, sem heitir „If You’re Read-
ing This It’s Too Late“ og inni-
heldur sautján lög, kom óvænt
út á iTunes en aðdáendur hans
áttu ekki von á plötunni fyrr en í
lok þessa árs. Síðasta plata hans
„Nothing Was the Same“ kom út
árið 2013 og seldist í 650.000 ein-
tökum strax í fyrstu vikunni.
Drake hermir
eft ir Beyoncé
LAUMA Rapparinn kom aðdáendum
sínum á óvart.
w
w
w
.v
e
rs
d
a
g
s
in
s
.is
„Við erum hoppandi skoppandi
ánægðir með útkomuna,“ segir
Haukur Heiðar Hauksson, söngvari,
píanó- og gítarleikari hljómsveitar-
innar Diktu. Sveitin er nú að ljúka
við sína fimmtu breiðskífu sem enn
hefur ekki fengið endanlegt nafn.
Stefnt er á útgáfu plötunnar með
vorinu og mun hún koma út í Þýska-
landi og víðar um heim á sama tíma.
„Ég held að þessi plata sé hress-
ari en hinar. Hún er meira svona
„upbeat“ og það má greina smá
sumarblæ yfir henni,“ segir Haukur
Heiðar spurður út í stíl plötunnar.
Hún var tekin upp í þremur
lotum og er að stórum hluta hljóð-
rituð í Þýskalandi, hjá upptöku-
stjóranum Sky van Hoff. „Við
tókum upp tvö lög árið 2013 hjá
honum og fórum svo aftur út til
hans síðasta sumar og vorum þar
í hálfan mánuð. Hann kom svo til
Íslands í nóvember og var hérna í
mánuð og við kláruðum plötuna,“
útskýrir Haukur Heiðar.
Hann segir sveitina hafa upp-
götvað hversu mikilvægt það sé að
vinna með upptökustjóra á nýjan
leik, því hún hefur ekki unnið með
slíkum á síðustu tveimur plötum.
„Það var mjög gott að vinna aftur
með upptökustjóra. Við unnum
með Ace úr Skunk Anansie þegar
við tókum upp plötuna Hunting for
Happiness og lærðum mjög mikið
af honum. Á síðustu tveimur plöt-
um höfum við gert þetta alveg
sjálfir og vorum komnir í ákveð-
inn þægindaramma.“ Fyrsti alvöru
singullinn kemur út núna á næstu
dögum,“ bætir Haukur Heiðar við,
sem var að búa sig undir að syngja
í Euro vision þegar blaðamaður náði
tali af honum. - glp
Fimmta breiðskífa Diktu tilbúin til útgáfu
Hljómsveitin vinnur í fyrsta sinn í tíu ár með upptökustjóra. Dikta hefur ekki gefi ð út plötu síðan árið 2011.
NÝ PLATA Hljómsveitin Dikta segir nýju
plötuna vera þá hressustu sem sveitin
hefur sent frá sér. MYND/FLORIAN TRYKOWSKI.
rjómabolludagurinn
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
1
5
-0
3
5
6
Allir hafa skoðun á hvernig fylling á að vera í bollum en
öll erum við þó sammála um að rjóminn er ómissandi.
Þú færð góða bolluuppskrift á gottimatinn.is
1
3
-0
2
-2
0
1
5
2
1
:1
2
F
B
1
1
2
s
_
P
1
1
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
3
C
F
-A
C
F
4
1
3
C
F
-A
B
B
8
1
3
C
F
-A
A
7
C
1
3
C
F
-A
9
4
0
2
8
0
X
4
0
0
1
A
F
B
1
1
2
s
C
M
Y
K