Fréttablaðið - 12.03.2015, Síða 6

Fréttablaðið - 12.03.2015, Síða 6
12. mars 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 6 LÖGREGLUMÁL Tollurinn stöðvaði á dögunum tvö kíló af sterum sem reynt var að koma til landsins. Tollverðir stöðvuðu póstsendingu frá Hong Kong sem innihélt stera í duftformi. Sendingin var stíluð á einstakling innanlands. Tollstjóri hefur kært innflutninginn til lög- reglu. Sterunum var pakkað inn í matvælaumbúðir og áttu það sam- eiginlegt með öðrum álíka sending- um að koma frá Hong Kong. Árið 2014 var stærsta einstaka sterasendingin stöðvuð en um var að ræða þrjú kíló af lyfjum í duft- formi sem reyndust við nánari athugun vera tvær tegundir stað- deyfilyfja. Sú sending kom einnig frá Hong Kong á sínum tíma. „Það virðist vera nokkuð um það að þessar sendingar séu að koma frá Hong Kong,“ segir Kári Gunnlaugs- son yfirtollvörður. „Magnið sem er flutt inn hefur verið breytilegt á milli ára en það sem hefur verið flutt inn það sem af er þessu ári er um tveir þriðju af magninu sem var flutt inn í fyrra. Þetta er sjötta send- ingin sem við stöðvum á þessu ári,“ segir Kári. - srs Það virðist vera nokkuð um það að þessar sendingar séu að koma frá Hong Kong. Kári Gunnlaugsson yfirtollvörður. 1. Hvað heitir nýr ráðuneytisstjóri í um- hverfi s- og auðlindaráðuneytinu? 2. Í hvaða landi er fótboltamaðurinn Sölvi Geir Ottesen með samning? 3. Hvað hefur hluthöfum í félögum skráð- um í Kauphöllinni fækkað mikið frá 2007? SVÖR: 1. Sigríður Auður Arnardóttir. 2. Kína. 3. Úr 7.000 í 1 .400. Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is vi lb or ga @ ce nt ru m .is Þvottavél: verð frá kr. 139.900 Þurrkari: verð frá kr. 114.900 Íslenskt stjórnborð Íslenskar leiðbeiningar Besta vörumerkið í Þýskalandi 2015 Við bjóðum takmarkað magn af Miele þvottavélum og þurrkurum á sérstöku tilboðsverði. Gildir á meðan byrgðir endast. TILBOÐ Tollstjóri hefur kært sterasendingu til lögreglu. Flestar stera- og lyfjasendingar koma frá Hong Kong: Meira magn stera í tolli en allt síðasta ár STERAR Tollverðir lögðu hald á tvö kílógrömm af sterum. MYND/TOLLSTJÓRI Skrifstofustjóri skrifstofu skatta- mála í fjármála- og efnahagsráðu- neytinu, Maríanna Jónasdóttir, er í framboði til stjórnar Vátrygginga- félags Íslands. Aðalfundur er hald- inn í dag. Maríanna er fyrrverandi stjórnarformaður Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins og hefur jafnframt gegnt öðrum trúnaðar- störfum fyrir sjóðinn. Maríanna nýtur stuðnings líf- eyrissjóðsins í framboði sínu, en A-deild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins á 6,42 prósent í fyrirtæk- inu. Líkt og önnur tryggingafyrir- tæki lýtur VÍS eftirliti Fjármála- eftirlitsins og því hafa vaknað upp spurningar um hvort til hagsmuna- árekstra kæmi ef Maríanna hlyti kjör til stjórnar. „Við þekkjum Maríönnu afskap- lega vel. Hún starfaði lengi í stjórn lífeyrissjóðsins og oftar en ekki sem formaður eða varaformað- ur. Þegar sú hugmynd kom upp, þá var svona gengið úr skugga um það hvort þetta samrýmdist hennar stöðu innan fjármálaráðu- neytisins. Það kom svar að þeir sæju enga meinbugi á því. Og þá stöndum við á bak við framboð hennar,“ segir Árni Stefán Jóns- son, for maður stjórnar Lífeyris- sjóðs starfsmanna ríkisins. Í svari fjármálaráðuneytis- ins við fyrirspurn Fréttablaðsins kemur fram að sú óskráða regla gildi í ráðuneytinu að starfsfólki tveggja skrifstofa er ekki heimilt að taka sæti í stjórnum eftirlits- skyldra aðila. Það eru skrifstofur efnahagsmála og fjármálamarkað- ar og lögfræðisvið. Að öðru leyti gildi ekki takmarkanir umfram það sem kveðið er á um í starfs- mannalögum um trúnaðarskyldur og aukastörf. Þá segir að gegni starfsfólk störf- um í stjórnum eða á öðrum vett- vangi utan ráðuneytisins og þar er fjallað um mál sem einnig eru á starfssviði viðkomandi í ráðuneyt- inu skal það samkvæmt tilmælum ráðuneytisins víkja þar sæti. Sex eru í framboði til stjórnar en einungis fimm stjórnarsæti eru í boði. Af þessum sex frambjóðend- um eru fjórar konur en tveir karl- ar. Vegna laga um kynjakvóta eru karlarnir öruggir inn í stjórnina en ekki konurnar. Eins og fréttavefurinn Vísir greindi frá fyrr í vikunni gefur núverandi stjórnarformaður, Hall- björn Karlsson, ekki kost á sér til setu í stjórn næsta árið. jonhakon@frettabladidid.is Skrifstofustjóri í stjórnarframboði Skrifstofustjóri í fjármálaráðuneytinu býður sig fram til stjórnar Vátryggingafélags Íslands. Nýtur stuðnings Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins. Stjórnarformaður líf- eyrissjóðsins segir fjármálaráðuneytið ekki hafa gert athugasemdir við framboðið. Í FRAMBOÐI Maríanna Jónasdóttir, skrifstofustjóri í fjármálaráðuneytinu, hefur unnið lengi fyrir Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM LANDBÚNAÐUR Matvælastofnun hefur gert samkomulag við tvo dýralækna um að sinna tímabund- ið almennri dýralæknaþjónustu á Austurlandi og Norðausturlandi. Fréttablaðið hefur greint frá mikilli óánægju bænda á Norð- austurlandi með dýralæknaþjón- ustu Matvælastofnunar eftir að ekki hafði tekist að fullmanna þjónustusamninga á tveimur svæðum landsins. „Við bændur fögnum þessu,“ segir Hermann Aðalsteinsson, bóndi á Lyngbrekku í Reykjadal. - sa Dýralæknaþjónusta tryggð: Bændur fagna samningum VEISTU SVARIÐ? Við þekkjum Maríönnu afskaplega vel. Hún starfaði lengi í stjórn lífeyrissjóðsins og oftar en ekki sem formaður eða varaformaður. Árni Stefán Jónsson, formaður stjórnar Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins. BELGÍA Leiðtogar Evrópusambandsins búa sig nú undir áróðursstríð gegn „blekkingarherferð“ Vladimírs Pútín Rússlandsforseta varðandi Úkraínu. Á leiðtogafundi ESB í næstu viku stendur til að fela Federicu Mog- herini, utanríkismálafulltrúa sambandsins, að undirbúa gagnaðgerðir gegn því sem í drögum að ályktun er kallað „viðvarandi blekkingar- herferðir Rússa“. Það er Reuters-fréttastofan sem skýrir frá þessu. Mogherini á að fá þrjá mánuði til að undirbúa aðgerðir sem eiga að styðja við fjölmiðla- frelsi í Rússlandi og efla þar „evrópsk gildi“. - gb Leiðtogar Evrópusambandsins undirbúa áróðursstríð: Ráðast gegn blekkingum Pútíns ÓNÝTT HEIMILI Tárvot eldri kona stendur fyrir utan húsið sitt, sem farið hefur illa út úr átökunum í Úkraínu. NORDICPHOTOS/AFP DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja- víkur sýknaði ríkið af skaða- bótakröfu konu sem vistuð var í Byrginu þegar hún var ólög- ráða. Hún segist hafa orðið fyrir varanlegu tjóni af vistun og meðferð þeirri sem forstöðu- maður Byrgisins, Guðmundur Jónsson, viðhafði þar. Kröfuna byggði konan á því að Byrgið hefði verið sjúkrastofn- un og því fallið undir eftirlit landlæknisembættisins. Héraðs- dómur Reykjavíkur hafnaði því að ríkið bæri ábyrgð og hafnaði því skaðabótakröfunni. - vh Ber ekki ábyrgð á Byrginu: Ríkið sýknað af skaðabótakröfu 1 1 -0 3 -2 0 1 5 2 2 :0 5 F B 0 6 4 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 4 1 C -4 5 0 0 1 4 1 C -4 3 C 4 1 4 1 C -4 2 8 8 1 4 1 C -4 1 4 C 2 8 0 X 4 0 0 5 B F B 0 6 4 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.