Fréttir - Eyjafréttir - 16.12.1993, Page 2
i Finnntudagurinn 16. desember 1993
ííí&SxSiíííííÖ&iSÍiSiíííí:!:!:!:;^^
Sigurgeir Scheving leíkstjóri:
Fær lofsamlega dóma
fyrir Þórshafnarrevíu
-sem hann leikstýrði og samdi.
29 húsaleigustyrkir
Fyrir bæjarráói á. mánudagínn
lágu 29 gildar umsóknir um
náms- og húsaleigustyrk. Sam-
þykkt var að veita hverjum náms-
manni kr. 13.500 í samræmi við
fjárhagsáætlun 1993.
Boðað til sameiginlcgs
fundar
Bæjarráð tók fyrir bréf frá Sjúkra-
húsi og heílsugæslustiW Vest-
mannaeyja þar sem óskað er eftir
fundi með bæjarráði.
Lagt var til að allir bæjar-
fulltrúar mæti á fundinn og v.ar
bæjarstjóra falið aó ræða við
framkvæmdastjóra Sjúkrahúss og
heilsugæslustöövar og finna
heppilegan fundartíma.
Sorpa undir
Bœjarveitur
Bæjarráð samþykkti á fundi
sínum á mánudaginn að rekstur
Sorpeyðingarstöðvarinnar veröi
felldur undir rekstur Bæjarveitna
og að stjóm þeirra fari með yfír-
stjóm Sorpeyðingarstöðvarinnar.
Breytingin tekur gildi frá I.
janúar n.k. og þá verður stjóm
Sorpcyðingarstöðva jafnframt
lögð niöur.
Prestastefna í Eyjum
Ákveóið er að næsta prestastefna
verði í Vestmannaeyjum dagana
6. til 9. júní á næsta ári. Er von á
prestum alls staðar af á landinu
því þeim er skylt að mæta á
prestastefnu að sögn Hreiöars
Stefánssonar, æskulýðsfuiltrúa
Landakirkju. Gcrir hann ráö fyrir
að allt að 120 prestar komi á
prestastefnuna. Þaö hefur veriö ó-
frávíkjanleg regla aö halda
prestastefnur 3. þriðjudag 1 júní ár
hvert en því var hnikað til að
þessu sinni og er ástæðan Shell-
mót Týs og Pæjumöt Þórs.
Athugasemd
í formála vió Vilhjálm Bjamason
útibússtjóra í síðasta blaði er^sagt
að hann hafi tekið viö af Olafi
Helgasyni. Það er ekki rótt. Hann
tók við af Halldóri Guðbjama-
syni.
Föstudaginn 3. desember sl. frum-
sýndi Leikfélag iHjrshafnar revíu
sem bcr nafnið, Já, það rcddast.
Leikstjóri og höfundur er Eyja-
maðurinn Sigurgcir Scheving. -1
Degi á Akureyri er farið mjög lof-
samlegum orðum um revíuna og
ckki annað að sjá en að Sigurgcir
hafi slegið eftirminnilega í gcgn.
Bæjarráð samþykkti á fundi
sinum á mánudaginn að álagning
útsvars og annarra gjalda, scm
bærinn innheimtir, verði óbrcytt á
árinu 1994. Um er að ræða fast-
cignagjöld, aðstöðugjöld og
sorphirðu- og sorpeyðingargjöld.
Útsvarsprósentan verður áfram
6,7%, sem er sú sama og undan-
farin ár og sagði Sigurður
Einarsson, formaður bæjarráðs, að
útsvar í Vestmannaeyjum sé mcð
því lægsta í kaupstöðum landsins.
Aðstöðugjald verður lagt á og er
álagningarprósentan óbreytt. Að-
stöðugjaldið er þó í nokkurri biðstöðu
því á þessu árí var það fellt niður og
em allar líkur á að svo verði einnig á
næsta ári. Fyrir Alþingi liggur tillaga
þar að lútandi. „Við leggjum að-
stöðugjaldið á en cf tillagan verður
samþykkt þá verður það ákveöið með
lögum að útsvar skuli hækka upp í
allt aó 9,2%. Samkvæmt frcttum
verður lágmarksútsvar 8,4% og
verður áfram stefnt að því hér að
halda útsvari í lágmarki. Bæjarbúar
Haukur Ágústsson, sem skemmti
Eyjamönnum með blússöng á hvíta-
sunnunni í ár og í fyrra, skrifar
leikdóminn og hrósar Haukur bæði
revíunni og frammistöðu leikaranna.
Sögusviðið er Þórshöfn en einnig fá
landsfeðumir sinn skammt af gríninu.
„Revían er lipurlcga samansett.
Textinn er vcl hnyttinn og hittir iðu-
þurfa ekki að borga meira því við
fáum við 80% til baka í gegnum staö-
greiðsluna. Er mismunurinn tekinn
af hlut ríkisins í staðgreióslunni,"
sagði Sigurður.
Fasteignaskattur hækkar sem
ncmur hækkun fasteignamats þann 1.
desember s.l. en álagningarprósentan
verður sú sama. Sorpeyöingargjald
veröur krónur 5 þúsund á hverja íbúð
og er það óbreytt og sorphirðu- og
sorppokagjald verður 2 þúsund
krónur á hverja íbúð. Gjalddagar eru
tíu á fasteignagjöldunum og veittur
verður 10% staðgreiðsluafsláttur ef
greitt er fyrir 4. febrúar.
Sorpbrennslu- og sorpeyðingar-
gjaldi á fyrirtæki er skipt í sex flokka
og borga þau frá 7 þúsund krónum
upp í 112 þúsund.
Bæjarráð samþykkti að fella niður
fasteignagjöld ellilífeyrisþega, sem
njóta tekjutryggingar, af eigin íbúð,
sem þeir búa í. Ennfremur var
samþykkt að fella niður fasteigna-
skatt ellilífeyrisþega af eigin íbúð,
sem þeir búa í, í hlutfalli við tekjur.
Bæjarráð:
Obreytt gjöld
á næsta ári
-Utsvarsprósentan verður áfram 6,7%, sem er sú lægsta á Iandinu.
Sigurgeir Scheving.
lega í mark allt til enda. Mikið er um
gys bundið byggðarlaginu, en það fer
þó ekki fyrir ofan garð og neðan hjá
aðkomumanninum, nema í fáum til-
fellum, svo fáum, að ekki skaðar eða
skyggir á þá góðu skemmtan, sem
revían er,“ segir Haukur m.a. um
þetta verk Sigurgeirs.
Eldspýtur
KVENNADEILDAR
Kvennadeild ÍBV í handbolta mun
næstu daga ganga í hús og selja sína
landsfrægu eldspýtustokka sem hafa
þjónað mikilvægu hlutverki í jóla-
undirbúningi heimilanna í Eyjum.
Það er ósk stelpnanna aö bæjarbúar
taki vel á móti þeim og verði sér
þannig úti um eldfæri á einfaldan og
ódýran máta.
Ekki sent á faxi
Hörður Jónsson, skipstjóri, einn
þeirra sem létu í ljós skoðun sína
á fundi sjómannasamtakanpa og
vitnað var í í síðasta blaði vilt að
eftirfarandi komi fram: Höröur
segir að vel megi vera að rétt sé
eftirhonum haft og hann hafi sagt
að áhafnir á skipum isfélagsins
fengju upplýsingar um fiskveró
sendar á faxi. Þetta scgir hann
ekki rétt því þcir fái fiskverðið á
blaði sem sem þeim er afhent í
landi. Það gerir Sigurður Einars-
son, forstjóri, sjáifur og stundum
heldur hann fundi með mann-
skapnum þar sem hann útskýrir
ástæöur verðbreytinga ef ein-
hverjareru.
Kvenfélagið Heimaey
styrkir Gauju
Á fundi í Kvenfélaginu Heimaey
sem haldinn var 5. október sl. var
ákveóiö að veita Guðfinnu Ólafs-
dóttur, Gauju, og Erlendi Stef-
ánssyni viöurkenningu fyrir gerö
skrúógarðs á Eldfellshrauni.
Viöurkenningin var í forrni
peningjgjafar, að upphæð kr.
25.000 og sagói Gauja í samtali
við FRÉTTIR að hún hefði oft
orðið hissa um dagana en aldrei
eins og þegar hún fékk fékk tíl-
kynningu um gjöfina. „Pening-
amir koma örugglega í góðar
þarfir og eitthvað verður keypt
sem prý'tt getur reítínn okkar á
hrauninu. Svo vil ég koma á
framfæri þakklæti til allra sem
hafa stutt okkur á cinhvcm hátt.
Kvenfélagið Heimaey stendur að
ýmsum góðum málum, m.a. hafa
konumar stutt Hraunbúóir og eins
brottflutta Eyjanienn sem af ein-
hverjum ástæðum hafa þurft á
hjálp að halda," sagði Gauja.
Afgreiðslutími
Jólin
verslana
því
nálgast óðfluga ög
rýmka kaupntenn opnunartíma í
verslunum. í kvöld, ftmmtudag,
verður opið til kl. 20:00.
Á laugardaginn verður síðan
opiðtilkl. 18:00.
A FIMMTUDEGI
✓
A aðventu
Aðve'nta er sá tími sem ætlaður er
til að bíða komu jóla og undirbúa
hugarfarið fyrir þessa stórhátíð
kristinna manna. Þó er sú líklega
raunin á í flestum tilvikum að þessi
tími ársins er sá sem veldur fólki
hvað mestri streitu. Vinnuálag eykst
um allan helming á ákveðnum
starfsstéttum. Verslunarfólk vinnur
mun meira 1 þessum mánuði en
öðrum, handverksmenn sömuleiðis,
öllum liggur einhver reiðinnar ósköp
á að fá nýja eldhúsinnréttingu eða
flísar á bað og allt þarf þetta að vera
klárt fyrir 24. desember. Og sjálf
heimilin fara ekki varhluta af hama-
ganginum. Fyrir utan öll þau
kynstur sem þarf að baka fyrir hver
jól, er þaö innprentað í suma að stór-
hreingemingar þurfi aó eiga sér stað
í þessum mánuði og málningarvinna
innanhúss á sömuleiðis að fara fram
í desember. Skrifari hcfur aldrei
almennilega skilið af hverju allar
þessar stórframkvæmdir þurfa að
eiga sér stað einmitt á þessum tíma.
Honum finnst t.d. janúar eða febrúar
miklu bctri til slíkra hluta, þá er t.d.
miklu auðveldara að fá handverks-
menn til starfa og þar að auki er ekki
allt í fári þótt framkvæmdir dragist
eitthvað á langinn. Þessi hama-
gangur og læti í desember hafa ekki
einungis áhrif á fullorðna, skrifari
hefur tekið eftir því að nemendur
hans eru talsvert órólegri cn venju-
lega þessa síðustu daga, streitan
virðist hrjá þá líka.
Nýstárlegt
jólaguðspjall
Og fyrst talið barst að nemendum,
þá tók skrifari þátt í bráðskemmti-
legri uppákomu á dögunum. Séra
Bjami hefur þann sið á aðventu að
bjóða nemendum úr grunnskólunum
í kirkju þar sem hann og Hreiðar
æskulýðsfulltrúi eru með prógramm
sem tengist aðventu og jólum í tali,
tónum og myndum. Nú taldi skrifari
að erfitt gæti verið að halda athygli
ungra nemenda í nærfellt klukku-
tíma um þetta efni en svo reyndist
alls ekki vera. Presturinn okkar
hefur einstakan frásagnarmáta og
orðavalið er nútímalegt og auðskilið;
sem sagt tungumál sem allir skilja.
Enda hélt hann áheyrendahópnum
hugfönghum allan tímann, þar á
meðal þcini scm þetta ritar. Nú
hefur skrifari margoft hlustað á jóla-
guðspjallið og útleggingu af því en
þama var farið inn á nýjar og
forvitnilegar brautir sem sýnilega
skiluðu árangri. Skrifari er líka á því
að einhverjar frómar sálir myndu
hneykslast yfir orðavali, svo sem því
að hirðamir á Betlehemsvöllum
hefðu haft skítalaun fyrir vinnu sína
og eins hefur skrifari ekki fyrr heyrt
talað um frelsarann í æsku sem
“peyjann frá Nazaret.” En þama í
kirkjunni var enginn sem hneyksl-
aðist, þetta virtist öllum þykja hinn
eðlilegasti hlutur sem það reyndar
er. Ef til vill mætti gera meira að því
að tala tæpitungulaust um hlutina
eins og þama var. Séra Bjami og
Hreiðar, hafió ágæta þökk fyrir
skemmtilega samvemstund.
í tilefni jóla
Þetta er síðasti pistillinn sem skrif-
ari sér um á þessu ári, hann hefur
afráðið að hvíla lesendur á skrifum
sínum í jólablaðinu. En hann vill
nota tækifærið og óska lesendum
FRETTA um land allt gleðilegra jóla
og góðs komandi árs. I guðs friði.
Sigurg. Jónsson
SlAútfMÖA&lLL
Harðar Ingvarssonar
s: 11136 &bs: 985-22135
Ökukennsla
Arnfinnur
Friðriksson
Strembugötu 29
Sími 12055 og
985-39067
Sími 11826.