Skessuhorn - 19.12.2008, Blaðsíða 41
41 MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER
Karl V. MatthíassonGuðbjartur Hannesson
Við sendum Vestlendingum
og landsmönnum öllum
innilegar óskir um um
gleðileg jól
og farsæld á nýju ári.
Borgarbyggð keppir í Útsvari á föstudag
Lið Borgarbyggðar, skipað þeim
Hjördísi Hjartardóttur, Einari
Valdemarssyni og Heiðari Lind
Hanssyni, var eina lið Vesturlands
sem komst áfram úr fyrstu
umferð keppninnar með sigri á
Dalvíkurbyggð. Næstkomandi
föstudag er komið að næstu
viðureign liðsins þegar það mætir
Ólafi Helga sýslumanni og hans
fólki úr Árborg.
Skessuhorn tók forskot á
sæluna og hringdi í keppendur
Borgarbyggðar og lagði fyrir þá
tíu laufléttar spurninga í óvæntu
skyndiprófi. Niðurstaðan var sú að
samanlagt stóðu keppendur sig vel
og svöruðu níu af tíu spurningum
rétt. Af einstökum keppendum
stóð Hjördís sig best. Í ljós kom
að Einar Vald þarf að fylgjast betur
með á heimavelli t.d. með því að
lesa Skessuhorn og að Heiðar hefur
íþróttirnar á hreinu, en Hjördís ekki.
Þau kváðust öll vera í góðu stuði og
hlakka til föstudagsins. Einar var að
baka þriðju smákökutegundina af
þeim fimm sem hann bakar, þegar
hringt var í hann, Heiðar var að
lesa fyrir síðasta prófið í skólanum,
en Hjördís var heima að elda
kvöldmatinn. Saman munu þau æfa
sig í kvöld fyrir keppnina.
mm
Rétt svör:
1. Ketkrókur, 2. Ungmennafélag Reykdæla, 3. Ágústus, 4. Þorláki helga Þórhallssyni biskupi í Skálholti, 5. Bjarna Þór Bjarnason, 6. Igor Beljanski, 7. Skagafjörður vann (74:63), 8. Gull,
reykelsi og myrru, 9. Fjórar (Norðurá, Langá, Þverá og Grímsá), 10. Átta draga sleðann, Rúdolf með rauða nefið er sá níundi
Einar 4 stig
1. Hvaða jólasveinn er næstsíðastur í röðinni?
Gáttaþefur.
2. Hvaða ungmennafélag í Borgarfirði varð 100 ára í
apríl?
Skallagrímur.
3. Hvaða keisari lét þau boð út ganga að skrásetja skyldi alla
heimsbyggðina?
Ágústus.
4. Af hvaða biskupi dregur Þorláksmessa nafn sitt?
Þorláki biskupi helga.
5. Eftir hvern er listaverkið sem stendur ofan við
Landnámssetrið og heitir Brák?
Pass.
6. Hvað heitir spilandi þjálfari úrvalsdeildar Skallagríms?
Einar Ingimundarson.
7. Hvernig fór viðureign Skagafjarðar og Snæfellsbæjar í
Útsvari?
Man ekki stigin, en ætli Snæfellsbær hafi ekki unnið.
8. Hvað færðu vitringarnir þrír Jesúbarninu?
Gull, reykelsi og myrru.
9. Hversu margar laxveiðiár á Vesturlandi gáfu fleiri en
2000 laxa sl. sumar?
Fjórar.
10. Hversu mörg hreindýr draga sleða ameríska
jólasveinsins?
Ég myndi halda sjö.
Hjördís 7 stig
1. Hvaða jólasveinn er næstsíðastur í röðinni?
Ketkrókur.
2. Hvaða ungmennafélag í Borgarfirði varð 100 ára í
apríl?
Ungmennafélag Reykdæla. Afi minn ritaði meira að segja
fundargerð á stofnfundinum.
3. Hvaða keisari lét þau boð út ganga að skrásetja skyldi alla
heimsbyggðina?
Ágústus keisari.
4. Af hvaða biskupi dregur Þorláksmessa nafn sitt?
Þorláki biskup helga.
5. Eftir hvern er listaverkið sem stendur ofan við
Landnámssetrið og heitir Brák?
Bjarna Þór Bjarnason.
6. Hvað heitir spilandi þjálfari úrvalsdeildar Skallagríms?
Pass.
7. Hvernig fór viðureign Skagafjarðar og Snæfellsbæjar í
Útsvari?
Snæfellsbær tapaði.
8. Hvað færðu vitringarnir þrír Jesúbarninu?
Gull, reykelsi og myrru.
9. Hversu margar laxveiðiár á Vesturlandi gáfu fleiri en
2000 laxa sl. sumar?
Þrjár.
10. Hversu mörg hreindýr draga sleða ameríska
jólasveinsins?
Fjögur.
Heiðar 5 stig
1. Hvaða jólasveinn er næstsíðastur í röðinni?
Ketkrókur.
2. Hvaða ungmennafélag í Borgarfirði varð 100 ára í
apríl?
Skallagrímur.
3. Hvaða keisari lét þau boð út ganga að skrásetja skyldi alla
heimsbyggðina?
Ágústus keisari.
4. Af hvaða biskupi dregur Þorláksmessa nafn sitt?
Þorláki biskup helga í Skálholti.
5. Eftir hvern er listaverkið sem stendur ofan við
Landnámssetrið og heitir Brák?
Pass.
6. Hvað heitir spilandi þjálfari úrvalsdeildar Skallagríms?
Igor Beljanski.
7. Hvernig fór viðureign Skagafjarðar og Snæfellsbæjar í
Útsvari?
Pass.
8. Hvað færðu vitringarnir þrír Jesúbarninu?
Gull, reykelsi og myrru.
9. Hversu margar laxveiðiár á Vesturlandi gáfu fleiri en
2000 laxa sl. sumar?
Tvær.
10. Hversu mörg hreindýr draga sleða ameríska
jólasveinsins?
Sex.
Einar Hjördís Heiðar