Skessuhorn - 19.12.2008, Page 62
62 MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER
Það hefur vonandi ekki farið fram
hjá neinum að jólin eru á næsta leiti.
Jólin, sem oft eru kölluð hátíð ljóss
og friðar er kærkomin hvíld frá
hversdagsleikanum. Við sendum
kveðjur til ástvina víðsvegar um
heim og fáum aðrar á móti.
Jólin eru dýrmætur tími þar sem
samvera með fjölskyldu og vinum
er í fyrirrúmi. Rannsóknir hafa
sýnt að því meiri tíma sem börn,
ungmenni og foreldrar verja saman
þeim mun minni hætta er á að unga
fólkið leiðist af braut. Margoft hefur
komið fram að börn og unglingar
vilja gjarnan eyða meiri tíma með
fjölskyldunni. Þó að hvaða barn
sem er geti lent í vanda vegna t.d.
áfengis- eða vímuefnaneyslu sýna
rannsóknir að aðstæður og atlæti
sem börn búa við skiptir miklu máli
um hvernig þeim reiðir af í lífinu.
Í því er ábyrgð foreldra fólgin.
Foreldrar eru bestir í forvörnum og
geta haft afgerandi áhrif á hegðun
og lífstíl barna sinna. Þeir eru
mikilvægar fyrirmyndir og virðast
gerðir þeirra og hegðun vega
þyngra en orð.
Eitt af því sem gert er til að vernda
börnin okkar eru útivistarreglur.
Það er margsannað að eftirlitslaus
börn eru líklegri en önnur börn til
að sýna áhættuhegðun. Jafnframt
er þeim hættara en öðrum til að
verða fórnarlömb eða gerendur
ofbeldisverka eða afbrota. Nú á
umbrotatímum í þjóðfélaginu
er mikilvægt að vera enn meira
vakandi fyrir líðan barnanna okkar,
hvar börnin okkar eru og með
hverjum. Við viljum hvetja foreldra
til að sýna ábyrgð og við minnum
á að reglur um útivistartíma barna
og ungmenna eru í fullu gildi - líka
um jól og áramót. Elskum börnin
okkar óhikað og sköpum góðar
minningar saman.
Hanna Sigríður Kjartansdóttir
forvarnarfulltrúi Borgarbyggð og
Heiðrún Janusardóttir
verkefnisstjóri æskulýðs- og
forvarnarmála Akranesi
(Höfundar eru fulltrúar í Saman-
hópnum)
Síðastliðinn laugardag komu
góðir gestir færandi hendi
til Dvalarheimilis aldraðra í
Borgarnesi. Ættingjar Fríðu
heitinnar Guðbjartsdóttur,
fyrrverandi heimilismanns á
DAB, komu í heimsókn með
eftirlifandi eiginmann Fríðu, Val
S. Thoroddsen, í broddi fylkingar.
Færðu þau heimilinu að gjöf, til
minningar um Fríðu og Eyrúnu
Jónu dóttur hennar, eina milljón
króna. „Dvalarheimili aldraðra í
Borgarnesi þakkar Val og fjölskyldu
þann mikla hlýhug sem þau sýna
heimilinu með þessari höfðinglegu
gjöf,“ sagði Björn Bjarki
Þorsteinsson framkvæmdastjóri í
samtali við Skessuhorn.
mm
Magadanssýning Mango studio
á Akranesi var í Tónbergi fyrir
skömmu. Þótti sýningin einkar
glæsileg í alla staði. Marie Ann
Butler, sem á og rekur Mango
studio, átti veg og vanda að
sýningunni, þar sem hún samdi
nær alla dansana, hannaði búninga
og dansaði sjálf í mörgum af
atriðunum. Sýndir voru fjölbreyttir
dansar, allt frá svokölluðum „tribal“
dönsum til samkvæmisdansa og
voru dansararnir á öllum aldri eða
frá 6 ára til sextugs. Jólasveinninn
kom og reyndi fyrir sér, en var
helst til stirður og utangátta
blessaður. Kannski hann panti sér
námskeið hjá Mango studio þegar
jólavertíðinni lýkur, hver veit,
áhuginn var allavega mikill.
mm
Í s l e n s k t
samfélag stendur
á tímamótum eftir
efnahagshrun og skipbrot þeirrar
frjálshyggjustefnu sem hér hefur
verið rekin undanfarin sautján ár.
Nú tekur við nýtt tímabil í sögu
lýðveldisins og þjóðin á mikilvægar
ákvarðanir fyrir höndum.
Hvarvetna er kallað eftir nýjum og
breyttum vinnubrögðum: Opnum
og lýðræðislegum vinnubrögðum,
heiðarleika, réttlæti og gagnsærri
stjórnsýslu og ákvarðanatöku. Með
slík vinnubrögð að leiðarljósi eigum
við að vinna saman að endurreisn
íslensks samfélags. Slíkt samfélag
hlýtur að byggjast á jöfnuði,
jafnrétti, lýðræði, sjálfbærni og
sjálfstæði, þar sem fjölbreytt og
kraftmikið atvinnulíf er hlekkur
í keðju samfélagsins alls en ekki
spilavíti gróðahyggju og sjálftöku.
Endurreisn kallar okkur öll til
starfa. Fyrsta verk okkar ætti að
vera að styrkja sérstaklega stöðu
ungmenna og ungs fjölskyldufólks.
Við verðum að leggja allt í sölurnar
til að unga fólkið okkar sjái framtíð
sína best geymda hér heima og
byggi hér það samfélag sem þau
vilja helst sjá. Forgangsverkefnið
er jafnframt að halda uppi
atvinnustiginu því engin meinsemd
er jafn alvarleg nokkru samfélagi
og böl atvinnuleysis. Í þeim efnum
verðum við að fara skapandi,
nýjar leiðir og læra af reynslu
annarra landa. Auk margvíslegra
atvinnusköpunarverkefna, sem
við getum tekið upp að erlendri
fyrirmynd, er nauðsynlegt
að hækka atvinnuleysisbætur,
húsaleigubætur og vaxtabætur. Við
þurfum að dreifa skattbyrðinni á
miklu réttlátari hátt en við höfum
gert hingað til, og skera niður öll
tilgagnslaus hernaðarútgjöld og
bruðl. Fjármagni þarf að beina
þangað sem þess er þörf, inn í
velferðarsamfélagið og burt frá
spillingunni.
Á tímum heimskreppu þar
sem matvælaskortur herjar og
viðskiptaleiðir rofna sjáum við enn
betur en áður hversu gríðarlegt
hagsmunamál það er okkur öllum
að hér sé öflugur landbúnaður og
innlend framleiðsla á heilsusamlegri
og fjölbreyttri fæðu. Auk
landbúnaðarins og matvælaiðnaðar
í heild sinni þurfum við nú að
treysta og efla sjávarútveginn
og útflutning honum tengdum,
ásamt ferðaþjónustu og öðrum
gjaldeyrisskapandi útflutningi.
Nú er einnig tíminn til að huga
sérstaklega að smáfyrirtækjum, ekki
síst fyrirtækjum í umhverfisvænum
rekstri, sprotum og nýsköpun. Við
Íslendingar búum að gríðarlegum
auði allt í kring, og ef við ekki
kaffærum okkur og komandi
kynslóðum í óyfirstíganlegu
skuldafeni, þá eru okkur allir vegir
færir til betri framtíðar.
Umfram allt á tímum sem þessum
ríður á að efla lýðræði, styrkja
og treysta aðkomu, áhrif og völd
almennings. Við verðum að hafa
hugrekki til að stokka upp á nýtt,
hreinsa út græðgisvæðinu, spillingu
og valdapólitík, og leggja af stað til
framtíðarinnar með heilbrigðara
gildismat í farteskinu. Þar sem er
vilji þar er vegur, og viljinn til betra
samfélags er skýr.
Ég óska lesendum Skessuhorns
og íbúum Vesturlands sem og
landsmönnum öllum gleðilegra jóla
og farsæls komandi árs. Megi Guð
blessa landið okkar og megi okkur
bera gæfa til að vinna því gagn á
komandi misserum.
Jón Bjarnason
Gaman-Saman um
jól og áramót
Pennagrein
Pennagrein
Jólakveðja
Höfðingleg gjöf til DAB
Valur ásamt nokkrum börnum hans og afkomendum og Birni Bjarka
Þorsteinssyni.
Jólasveinninn
þótti frekar stirður
og var bókaður í
kennslu eftir að
jólavertíðinni lýkur.
Héldu magadanssýningu
Hluti hópsins stillti sér upp til
myndatöku að lokinni sýningu.
Nem end ur Grunn skóla Borg ar-
fjarð ar á Hvann eyri fóru í sína ár-
legu jóla trés ferð í Skorra dal inn
þriðju dag inn 9. des em ber í ynd is-
legu vetr ar veðri. Snjór var yfir öllu
og stillt veð ur. Gísli Bald ur starfs-
mað ur Skóg rækt ar ríks ins tók á
móti hópn um í Sels skógi og leið-
beindi um hvar best væri að fara
til finna furu tré. Nem end ur hjálp-
uð ust síð an við að velja fal legt tré
fyr ir skól ann til að hafa á litlu jól-
un um. Þeg ar búið var að saga nið-
ur tréð fengu all ir sér heitt kakó og
sam lok ur. Á heim leið inni var kom-
ið við í fjár hús un um í Mó fells staða-
koti þar sem nem end ur fengu að sjá
hvern ig kind ur voru rún ar í gamla
daga með sauða klipp um og hvern ig
rúið er í dag með vél klipp um.
mm
Nem end ur GBF á
Hvann eyri í jóla ferð