Skessuhorn


Skessuhorn - 30.10.2013, Blaðsíða 14

Skessuhorn - 30.10.2013, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2013 Fimmtudaginn 7. nóvember ætl- ar ferðaþjónustan á Vesturlandi að halda sína þriðju uppskeruhátíð. Hún verður í húsakynnum Foss- hótela í Reykholti í Borgarfirði. Dagskráin hefst um morguninn þar sem helsta viðfangsefnið verð- ur að ræða framtíð Markaðsstofu Vesturlands. Undanfarin ár hefur henni verið ætlað að sjá um mark- aðskynningu og upplýsingagjöf tengda ferðamálum í landshlutan- um. Nú bendir margt til að kom- ið sé að vatnaskilum í rekstrinum þar sem taka þarf ákvarðanir um rekstrarform Markaðsstofunnar til framtíðar. „Ég vona að sem flestir úr ferða- þjónustunni á Vesturlandi sjái sér fært að mæta auk sveitarstjórnar- fólks. Þarna má fræðast um það sem Markaðsstofa Vesturlands er að gera og síðan taka þátt í um- ræðum um hvernig ferðaþjónu- greinin vill sjá stoðþjónustu við þá sem starfa í greininni og hvern- ig markaðsmálum verði háttað í framtíðinni. Uppskeruhátíð ferða- þjónustunnar er samstarfsverkefni Ferðamálasamtaka Vesturlands og Markaðsstofu Vesturlands. Við ætlum að vera með vinnufundi og starfshópa um morguninn þar sem farið verður yfir hugsanlegar breytingar á starfsemi og rekstrar- fyrirkomulagi Markaðsstofunnar. Greinin þarf líka að gera það upp við sig hvort og þá hvernig Mark- aðsstofu hún vilji hafa í framtíð- inni,“ segir Rósa Björk Halldórs- dóttir framkvæmdastjóri Mark- aðsstofu Vesturlands. Rósa Björk segir að eignarhaldi á Markaðsstofunni sé þannig hátt- að í dag að Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi eiga meirihlutann. “Síðan eru það Ferðamálasam- tök Vesturlands sem ráða ekki yfir miklum fjármunum. Þriðji hlut- hafinn er All senses ferðaþjón- ustuklasinn hér á Vesturlandi sem heldur á enga fjármuni til skipt- anna. Hlutafé SSV var aukið síð- astliðið vor. Árið 2012 unnum við mjög góða stefnumótun fyrir ferðaþjónustuna á Vesturlandi en spurningin er hvort greinin þurfi að leggja meira til en hún hefur gert.“ Dagskrá uppskeruhátíðar ferða- þjónustunnar verður í stórum dráttum þannig að fyrir hádegi verður vinnufundur þar sem fram- tíð Markaðsstofu Vesturlands er aðalviðfangsefnið. „Þessi fund- ur verður mjög mikilvægur fyr- ir framtíð Markaðsstofunnar og hvernig við viljum sinna markaðs- málum ferðaþjónustunnar á Vest- urlandi. Við munum fara nán- ar yfir fjármál og stöðu markaðs- stofunnar til þessa og kynna ítar- lega á þessum vinnufundi í Reyk- holti. Að honum loknum munu svo áhugaverðir gestafyrirlesar- ar halda erindi eftir hádegi. Síðan verður farið í óvissuferð og endað með kvöldverði á Fosshótel Reyk- holti,“ segir Rósa Björk. mþh Uppskeruhátíð ferða- þjónustunnar verður í Reykholti 7. nóvember Frá Reykolti í Borgarfirði þar sem ferðaþjónustan ætlar að halda uppskeru- hátíð sína 7. nóvember. Ljósm. Friðþjófur Helgason. Stjórn Markaðsstofu Vesturlands hefur ákveðið að leggja niður stöðu framkvæmdastjóra. Framtíð stof- unnar og markaðsmála í landshlut- anum er í nokkurri óvissu. Rétt áður en stjórnin tók þessa ákvörð- un hafði Rósa Björk Halldórsdótt- ir, sem hefur gegnt starfi fram- kvæmdastjóra frá 2011, tilkynnt að hún hygðist segja stöðu sinni lausri. Þessar hræringar tengjast breyting- um sem fyrirsjáanlegar eru á rekstr- arfyrirkomulagi Markaðsstofunnar, Menningarráðsins, Vaxtarsamnings og fleiri stoðverkefna á Vesturlandi sem aðalfundur Samtaka sveitar- félaga á Vesturlandi lagði drög að á síðasta aðalfundi. „Þegar ég til- kynnti stjórn Markaðsstofu Vestur- lands að ég hygðist segja upp stöðu minni bað stjórnarformaður MV mig um að bíða með uppsögnina. Í framhaldinu og á síðasta stjórn- arfundi ákvað stjórnin svo að leggja niður stöðu framkvæmdastjóra. Það er í sjálfu sér rökrétt. Ef það á að breyta stöðu Markaðsstofunnar um áramótin og stokka upp öll fjármál hennar er eðlilegt að menn reyni að forðast launaskuldbindingar eftir þann tíma,“ segir Rósa Björk Hall- dórsdóttir í samtali við Skessuhorn. Blómstrandi atvinnugrein Rósa segist hafa ákveðna framtíðar- sýn fyrir ferðaþjónustuna á Vestur- landi. „Hún byggir á því að við horf- um nú á ferðaþjónustuna sem þá at- vinnugrein sem skilar einna mest- um gjaldeyristekjum fyrir ríkissjóð. Þetta er orðin stærsta atvinnugrein landsins. En á sama tíma erum við mjög fjársvelt en eigum að starfa að því að búa í haginn fyrir atvinnu- greinina. Það er vissulega verið að setja mikla fjármuni í Íslandsstofu. Hún er að vinna virkilega gott starf. Landshlutarnir eru hins vegar svelt- ir og framlög til þeirra sæta skerð- ingum. Þó höfum við náð miklum Breytingar í burðarliðnum hjá Markaðsstofu Vesturlands árangri hér á Vesturlandi þrátt fyr- ir erfiðar aðstæður. Atvinnugrein- in hefur vaxið mikið, ferðamanna- tíminn lengst og töluverð fjölgun ferðamanna og gistinátta milli ára hefur skilað sér í okkar landshluta.“ Rósa Björk segir þó skjóta skökku við að nú sé til dæmis litið á fjölda gistinátta í ljósi áherslna á að byggja upp ferðaþjónustu allan ársins hring með áherslu á vetrartímann, þá hafi aukningin verið langmest á höfuð- borgarsvæðinu. „Ég vil berjast fyr- ir því að það komi meiri fjármunir til landshlutanna en atvinnugrein- in sjálf þarf líka að leggja meira af mörkum. Ekki bara í markaðsmál- in heldur líka í atvinnuráðgjöf og styrkingu innviða á ferðamanna- stöðum á landsbyggðinni. Við verð- um að efla þetta, en ekki draga sam- an. Málið snýst um atvinnusköp- un og byggðamál. Ferðaþjónust- an skiptir gríðarlega miklu máli fyrir landsbyggðina. Við verðum að skapa störfin og fá þau hing- að. Tengslanetið sem við höfum myndað hér á Markaðsstofunni er afar mikilvægt og verður ekki til af sjálfu sér. Við starfsmenn MV horf- um stundum til Bændasamtakanna sem eru mjög vel skipulögð og veita bændum ýmsa þjónustu. Við þurf- um svona bakland fyrir ferðaþjón- ustuna. Hingað kemur fólk nánast í hverri viku með ótal spurningar því það er að stofna ný fyrirtæki eða fólk sem hefur verið í rekstri í nokkurn tíma og leitar ráðgjafar. Við veitum að sjálfsögðu ráðgjöf og höfum gert það ókeypis. Hér hjá Markaðsstof- unni er fyrir hendi mikil þekking og við getum auðveldað fólki mjög alla vinnu við að koma hugmynd- um í framkvæmd. En það getur ver- ið tímafrekt og það er eitt af því sem verður að skoða í framtíðinni; á að rukka fyrir þessa þjónustu eða á hún að vera frí? Viss vonbrigði Rósa Björk hefur nú starfað í rúm- lega tvö ár við Markaðsstofu Vest- urlands. Hún dregur ekki dul á að þessi tími hafi að mörgu leyti ver- ið erfiður og starfið valdið henni vonbrigðum. Samt vilji hún gjarnan bjóða fram krafta sína til að vinna að ferðmálum í landshlutanum. „Ég vann áður hjá ferðaþjónustu,- mat- væla- og menningarklasanum Ríki Vatnajökuls með starfsaðstöðu á Hornafirði. Ég réði mig hingað upp á það að geta nýtt mína hæfileika, styrkleika og tengslanet til að starfa fyrir ferðaþjónustuna á Vesturlandi. Mér finnst ég nánast ekki hafa feng- ið vinnufrið til þess vegna þess að það hefur farið svo mikil orka í rekstur Markaðsstofunnar. Þegar ég hóf störf lá fyrir eldri taprekstur upp á níu milljónir króna. Við höf- um verið að leita leiða til að greiða niður þetta gamla tap og háa yfir- dráttarheimild við viðskiptabank- ann. Það hefur verið erfitt og fjöt- ur um fót því við höfum líka þurft að berjast fyrir því að eiga einhverja fjármuni í markaðsmálin. Þrátt fyr- ir þessa erfiðleika er ég hins veg- ar reiðubúin að halda áfram ef for- sendur breytast þannig að ég fái frið til að einbeita mér að því að ná ár- angri fyrir landshlutann.“ Vill nánari tengsl við SSV Hún segir að ýmsar hugmynd- ir séu nú á borðinu. „Það er ver- ið að hugsa þetta þannig að rekst- ur Markaðsstofunnar fari yfir til Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV). Þar eru rekstrarfræðingar sem eru miklu betur í stakk búnir að sjá um rekstrarhlutann á Mark- aðsstofunni. Við sem störfum hér gætum og eigum að sinna mark- aðsmálunum, vöruþróun og ráðgjöf til greinarinnar,“ segir Rósa. Hún bendir á að Vestfirðingar hafi val- ið þessa leið og ekki sé annað að sjá en það hafi gefið góða raun. „Mark- aðsstofa Vestfjarða var sett undir hatt Fjórðungssambands Vestfirð- inga. Það hefur gengið ágætlega. Sú óskastaða sem ég sé fyrir mér væri að það væri hægt að byrja aftur á núlli þannig að starfsmaður Mark- aðsstofu Vesturlands þyrfti ekki að hafa áhyggjur af daglegum rekstri. Það yrði skýr rammi að starfa eftir og þetta yrði sú Markaðsstofa sem hún á að vera. Við yrðum áfram í sama húsnæði hér í Borgarnesi en í nánari tengslum við SSV. Þegar ég starfaði hjá Ríki Vatnajökuls hafði ég skrifstofu í Nýheimum á Horna- firði. Þar er þekkingarsetur með fólki úr ólíkum áttum. Við kom- um saman á stuttum klasafundum á hverjum degi og fengum þannig stuðning hvert af öðru,“ segir Rósa. Hún telur að hæglega megi koma á svipuðu fyrirkomulagi með sam- vinnu starfsfólks Markaðsstofunn- ar við þann mannauð sem skrifstofa SSV býr að í dag. Rekstur upplýsingamið- stöðva á Vesturlandi Rósa Björk segir að það sé mikilvægt að halda áfram rekstri upplýsinga- miðstöðvar landshlutans í Borgar- nesi. Þrátt fyrir að þetta sé ekki arð- bær rekstur þá sé starfsemin mikil- væg gagnvart ferðamönnum. „Þar af leiðandi skiptir þetta miklu fyrir ferðaþjónustugreinina í landshlut- anum. Það eru klárlega samlegðar- áhrif með upplýsingagjöf og mark- aðssetningu. Við höfum puttann á púlsinum á ferðamönnunum hverju sinni og fáum upplýsingar sem nýt- ast í markaðstarfi. Það vantar bara tíma til þess að vinna úr upplýsing- unum. Það þarf að efla samstarf- ið milli upplýsingamiðstöðva á öll- um svæðum landshlutans og þær þurfa að tengjast betur landshluta- miðstöðinni í Borgarnesi. Mikil- vægt að samþætta upplýsingagjöf á svæðunum við rekstur safna og sýn- inga sem eru á framfæri sveitafélaga í hagræðingarskyni en einnig til þess að ná fram lengri opnunartíma. Það er synd að mikill hluti þeirra góðu safna og sýninga sem starfrækt eru í landshlutanum séu lokuð á jaðar- og vetrartíma þegar ferðamenn sækjast eftir afþreyingu innanhúss.“ mþh Ferðaþjónustan blómstrar á Vesturlandi. Hér eru ferðalangar við Deildartungu- hver. Rósa Björk Halldórsdóttir framkvæmdastjóri Markaðsstofu Vesturlands.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.