Skessuhorn


Skessuhorn - 30.10.2013, Blaðsíða 22

Skessuhorn - 30.10.2013, Blaðsíða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2013 Mesti vöxtur í iðngreinum á Ís- landi um nokkurt skeið hefur verið í málmiðnaði. Í Fjölbrautaskóla Vest- urlands á Akranesi er starfrækt öfl- ug málmiðnadeild. Þar stunda nám á þessu skólaári á áttunda tug nem- enda, þar af 25 í kvöld- og helgar- námi. Hörður Baldvinsson deildar- stjóri málmiðnadeildar FVA segir að gríðarmikil spurn sé eftir málmiðn- aðarmönnum á Íslandi þessa dag- anna. „Málmiðnaðardeild skólans nýtist afar vel fyrir fyrirtæki á þessu sviði hér á svæðinu. Sérstaklega er eftirspurnin mikil eftir málmiðn- aðarmönnum með margþætta sér- þekkingu. Við reynum að bregðast við þörfum fyrirtækja á svæðinu og eru til að mynda eini skólinn í land- inu sem getur útskrifað nemend- ur með „cetop“ réttindi, sem veitir nemendum alþjóðleg réttindi til að sinna viðhaldi og rekstri sérhæfðs vökvabúnaðar. Atvinnulífið hef- ur verið að kalla eftir námi á þessu sviði,“ segir Hörður. Hann segir að kvöld- og helgarnámið nýtist mjög vel þeim sem erfiðar eiga með að komast í dagskólann, svo sem þeim sem komnir eru með fjölskyldur og unnið hafa í greininni lengi. Skólinn þjónar vel svæðinu Hörður hefur kennt við Fjölbrauta- skóla Vesturlands síðustu þrjá vet- ur og tvö ár eru síðan hann tók við stjórn deildarinnar. Fjórir kenn- arar starfa í verknámshluta málm- iðnadeildarinnar. „Ég held ég geti sagt að við erum með mjög öflug- an framhaldsskóla hérna á Akranesi sem þjónar vel þessu svæði. Hér eru góðir kennarar og gott starfslið. Nemendurnir eru flestir af svæð- inu; Akranesi, Borgarnesi, úr sveit- unum og vestur um á Snæfellsnes. Við höfum séð það á seinni árum að nám í verklegum greinum kallar sí- fellt meira á sérhæfingu. Við erum að bregðast við þeirri kröfu með því að bjóða upp á nám í vökva- tækninni. Við höfðum þrír kenn- arar sótt okkur kennsluréttindi til Bretlands til að geta menntað fólk til að sinna atvinnulífinu á svæðinu, í landbúnaðinum, sjávarútveginum og stóriðjunni. Svo er skemmtilegt að segja frá því að í fyrra tókum við að okkur að kenna kælitækni fyrir Framhaldsskóla Austur-Skaftafells- sýslu á Höfn í Hornafirði. Hingað komu 12 nemendur til að læra kæli- tæknina. Við stöndum náttúrulega svo vel hérna að hafa vist fyrir þá nemendur sem á þurfa að halda.“ Samvinnan ber ávöxt Hörður segir að skólinn njóti mikils samfélagslegs velvilja og sé í góðri samvinnu við fyrirtæki og aðila á svæðinu. „Ég myndi segja að sam- vinnan sem við eigum við Símennt- unarmiðstöð Vesturlands og Norð- urál í sambandi við Stóriðjuskólann sé að bera bullandi ávöxt. Við sjáum það til dæmis á því að til okkar eru að koma í kvöld- og helgarnámið nokkrir starfsmenn Norðuráls. Þeir hafa komist að því í gegnum Stór- iðjuskólann að það er ekki komið á leiðarenda í náminu. Norðurál hef- ur verið að hjálpa okkur með því að láta okkur í té búnað og ekki má gleyma Össuri og HB Granda sem hafa líka verið okkur mjög velvilj- uð ásamt fleirum fyrirtækjum. Okk- ar akkilesarhæll er hins vegar sá að kennslubúnaður er orðinn of gamall og skólinn hefur ekki fengið fjárveit- ingar til að endurnýja hann nægj- anlega. Við viljum undirbúa okkar nemendur sem best fyrir atvinnulíf- ið og áframhaldandi skólagöngu sé sá áhugi fyrir hendi. Okkur skortir búnað til að koma til móts við marga þá nemendur sem við sjáum að eiga greiða leið í áframhaldandi hönnun og tækninám. Margt af okkar unga fólki í dag býr yfir brábærri kunn- áttu í tölvum og hugbúnaði að við þyrftum að geta mætt þeim þannig að þau komist enn lengra á hönnun- ar- og tæknisviðinu.“ Rökréttur undirbúning- ur fyrir háskólanám Allstór hópur í kvöld- og helgar- náminu var síðan mættur á laug- ardagsmorgni í kennslustund í afl- vélavirkjun 202 hjá Þresti Þór Ólafssyni. Þar var mikið fjallað um ventla, ventlarými og hvernig leita á bilana. Þröstur Þór segir að mikið sé sótt í námið og skólinn sé fram- arlega í raunfærnimati, það er að meta stöðu nemenda áður en þeir koma til náms. „Þar njótum við góðs af því að þekkja til fyrirtækj- anna í nágrenninu þar sem nemarn- ir hafa starfað, þannig að óþarfi er að kenna fólki það sem það kann. Sem dæmi vitum við t.d. að þeir sem koma frá Skaganum eru vel að sér í suðu á ryðfríu stáli,“ segir Þröstur Þór. Hann segir að þeir sem fara í gegnum námið á iðnbrautun- um standi mjög vel að vígi gagnvart því að bæta við sig og fara í háskóla- nám. „Það er mjög rökrétt og eðli- legt framhald að bæta við sig stú- dentsprófinu og viðkomandi nem- andi kemur þá mjög vel undirbúinn í verkfræðinám í háskólanum. Þar er iðn- og verkmenntunin mjög vel metin,“ segir Þröstur Þór. Starfsréttinda krafist Gylfi Sigurðsson er einn þeirra sem dreif sig í vélvirkjanám og ætlar að ná sér í réttindin. Gylfi segist hafa tekið nokkra áfanga í Iðnskólan- um á sínum tíma og unnið í nokk- ur ár á verkstæði Skipasmíðastöðvar Marzelíusar þegar hann bjó vestur á Ísafirði. „Það væri synd og skömm að nýta sér ekki þessa möguleika að ná sér í réttindin,“ segir Gylfi sem byrjaði í náminu vélvirkjun sam- hliða vinnu haustið 2011. Hann er reyndar að hluta lík a í dagsskólan- um og helgar sig að mestu náminu þessi misserin. „Svo er það til skoð- unar hvað ég geri þegar ég er komin með réttindin, jafnvel hvort ég haldi áfram í námi,“ segir Gylfi. Guðmundur Geir Valgeirs- son hefur starfað á verkstæðinu hjá GTT á Grundartanga í nokk- ur ár og hefur unnið að iðninni á fleiri stöðum, svo sem hjá Þorgeiri & Ellert á Akranesi og Marel í 12 ár. Hann kann því ýmislegt fyrir sér en réttindin vantar. Guðmund- ur Geir segir að hann hafi ungur orðið fjölskyldumaður og talið sér trú um að hvorki tími né efni væri að fara í iðnnám á þeim tíma. „En svo er komin pressa hjá vinnuveit- andanum og þeim sem hann þjón- ar að fagmenntun og starfsréttindi séu til staðar. Þetta var því kjörið tækifæri fyrir mig að það skyldi vera boðið upp á þetta nám. Þetta geng- ur ágætlega og ég vona að fögin sem ég á eftir komi inn í þeirri röð að ég klári jafnvel fyrr en ég reiknaði með í upphafi,“ segir Guðmundur Geir. Góður andi í hópnum „Ég hef mikinn áhuga á öllu sem tengist vélum. En það að ég skyldi fara í vélvirkjunina tengist líklega fjölskyldunni. Frændi minn var hérna í skólanum og lét vel af því. Ég stefni á að læra bílasprautun og kannski að fara út í bílasmíði. Ég lít á þetta sem fína grunnmenntun fyrir það,“ segir Snorri Freyr Þórarinsson frá Borgarnesi sem er á fimmtu önn í dagsskólanum. Aðspurður segir Snorri að sér líki rosalega vel í Fjöl- brautaskóla Vesturlands. „Hérna er ágætis aðstaða, fín verkfæri og góð- ur andi í hópnum. Allir tilbúnir að hjálpa hver öðrum og þess háttar. Síðasta sumar vann ég á verkstæð- inu hjá Límtré Vírneti í Borgarnesi og stefni á að vinna líka á verkstæði næsta sumar,“ segir Snorri. Vinna þarf í 15 mánuði á verkstæði eða við smíðar á viðurkenndum vinnustað svo nemendur fái að gangast undir sveinspróf í iðninni. Námið á eftir að nýtast vel Bergþór Jóhannesson frá Staf- holtsveggjum í Borgarfirði er líka á fimmtu önn í málmiðnadeild dags- skóla FVA. „Mér finnst þetta nám henta mér vel og klárlega á það eft- ir að nýtast mér. Ég ætla að fara að koma mér á verkstæði til að ljúka sveinsprófinu, en hef ekki ákveðið á hvaða verkstæði ég fer. Býst svo við að fara í stúdentsnám í framhald- inu,“ segir Bergþór. Líkt og Snorri Freyr kann Bergþór rosalega vel við sig í skólanum, en hann keyrir á milli kvölds og morgna, Stafholts- veggja og Akraness. þá Mikil ásókn í málmiðnanám í Fjölbrautaskóla Vesturlands Hörður Baldvinsson deildarstjóri málmiðnaðardeildar. Þröstur Þór Ólafsson leiðbeinir í kennslustund í vélaflfræði. Í kennslustundinni var m.a. fjallað um hvernig leita á bilana í vél. Gylfi Sigurðsson. Guðmundur Geir Valgeirsson. Snorri Freyr Þórarinsson. Bergþór Jóhannesson.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.