Skessuhorn - 08.01.2014, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 2014
Fresti nauð-
ungarsölum
LANDIÐ: Í ljósi nýrra laga
sem samþykkt voru á Alþingi
skömmu fyrir jól um frest
un á nauðungarsölum, skor
ar stjórn Hagsmunasamtaka
heimilanna á fjármálastofn
anir að samþykkja umsókn
ir gerðarþola, sem nýlega hafa
misst heimili sín, um að upp
boð gangi ekki endanlega í
gegn fyrr en eftir 1. septem
ber 2014. „Frestun fram yfir
1. september í þeim tilfellum
þar sem nauðungarsala hefur
þegar farið fram (en samþykk
isfrestur er ekki útrunninn) er
háð samþykki gerðarbeiðanda.
Þeir sem standa í þessum spor
um eiga því allt undir því að
viðkomandi fjármálafyrirtæki
samþykki frestinn,“ segir í til
kynningu frá Vilhjálmi Bjarna
syni f.h. Hagsmunasamtaka
heimilanna. –mm
Samdráttur
í afla og verð-
mætum milli ára
HB-GRANDI: Afli skipa
HB Granda í fyrra nam
tæplega 188 þúsund tonn
um og aflaverðmætið var
um 16.752 milljónir króna.
Þetta er um 5,5% samdrátt
ur frá árinu 2012 þegar afl
inn var tæplega 199 þúsund
tonn og aflaverðmætið um
17.740 milljónir króna. Afla
samdráttinn á árinu má aðal
lega skrifa á trega síldveiði í
lok ársins en þegar á heildina
er litið voru uppsjávarveiði
skipin með rúmlega 135 þús
und tonna afla í fyrra en hátt
í 149 þúsund tonn á árinu
2012. Aflahæst uppsjávar
skipanna var Ingunn AK með
rúmlega 47.100 tonna ársafla
og aflaverðmæti upp á tæp
ar 1.769 milljónir króna. Af
frystitogurunum var Örfir
isey RE aflahæsta skipið með
9.525 tonn og einnig með
mesta aflaverðmætið, tæp
lega 2.271 milljón króna. –þá
Virkjanarekst-
ur OR færður
undir eigið félag
SV-LAND: Orkuveita
Reykjavíkur hefur sett á fót
opinbert hlutafélag sem tók
um áramótin við rekstri virkj
ana Orkuveitu Reykjavíkur og
allri raforkusölu. Fyrirtækið
heitir Orka náttúrunnar. Til
urð þess á að uppfylla ákvæði
raforkulaga um aðskiln
að sérleyfis og samkeppnis
starfsemi. Viðskiptavin
ir Orku náttúrunnar eru um
75.000 talsins, allt frá heim
ilum til álvers. Orka náttúr
unnar verður næststærsti raf
orkuframleiðandi á landinu
og það sölufyrirtæki rafmagns
sem hefur flesta viðskiptavini.
Þær virkjanir sem Orka nátt
úrunnar á og rekur eru jarð
varmavirkjanirnar á Hellis
heiði og á Nesjavöllum og
tvær vatnsaflsvirkjanir; Anda
kílsárvirkjun og Elliðaárstöð.
Í jarðvarmavirkjununum er
jafnframt framleiddur rúm
lega helmingur þess hitaveitu
vatns, sem nýttur er á höfuð
borgarsvæðinu. Vatnsveita,
hitaveita, fráveita og dreifing
rafmagns verður áfram rekin
undir merki OR. mþh
Lengi býr að fyrstu gerð. Svo á við
í tilfelli Unnars Bergþórssonar frá
Húsafelli í Borgarfirði sem nýverið
var ráðinn sem verkefnastjóri nýrr
ar ferðaþjónustudeildar auglýsinga
stofunnar Pipar/TBWA í Reykja
vík. Nefnist deildin Pipar/Travel.
Unnar er 27 ára gamall og er sonur
hjónanna Bergþórs Kristleifssonar
og Hrefnu Guðrúnar Sigmarsdótt
ir hjá Ferðaþjónustunni á Húsafelli.
Þrátt fyrir ungan aldur á Unnar að
baki nokkra reynslu í ferða og
markaðsmálum, enda má segja að
hann sé nokkurn veginn alinn upp í
því umhverfi. Blaðamaður Skessu
horns hitti Unnar í síðustu viku og
ræddi við hann um bakgrunn sinn
í Húsafelli og nýju verkefnin sem
standa honum fyrir dyrum hjá Pip
ar/Travel.
Öll verk mikilvæg
Bakgrunnur Unnars er áhugaverð
ur. Ferðaþjónusta er nefnilega hon
um í blóð borin. Hann tilheyrir
fjórðu kynslóð ferðaþjónustufólks á
Húsafelli, en auk foreldra hans voru
afi hans og amma, þau Kristleif
ur Þorsteinsson og Sigrúnar Berg
þórsdóttur, frumkvöðlar í ferða
þjónustu á staðnum á sinni tíð. Þess
utan hóf langafi Unnars, Þorsteinn
Þorsteinsson, að þjóna ferðafólki í
Húsafelli á fyrri hluta síðustu aldar.
„Jú, það má segja að ég sé eiginlega
alinn upp í ferðaþjónustu,“ segir
Unnar við upphaf spjalls. „Ég hef
unnið við ferðaþjónustuna heima
á Húsafelli frá því að ég man eftir
mér, bæði með mömmu og pabba
og afa og ömmu. Ég fékk til dæmis
oft að vera með afa á sínum tíma og
lærði maður mjög mikið af honum.
Hann var ákaflega laginn við að fá
fólk með sér og finna verk handa
hverjum og einum við hæfi. Í hans
huga voru öll verk jafn mikilvæg
hvort sem það var að þrífa klósett,
tína rusl, leiðbeina gestum, passa
sundlaugina, rukka gjöld eða stýra
starfseminni. Sérstök áhersla var
síðan lögð að allt væri í lagi áður
en rukkað væri fyrir þjónustuna.
Þjónustan var númer eitt og það
að standast væntingar, jafnvel fara
fram úr þeim. Það væri besta aug
lýsingin. Þetta hefur verið haft að
leiðarljósi í Húsafelli í gegnum árin
og er góð regla í ferðaþjónustu,“
segir Unnar.
Snemma söluþenkjandi
„Maður fann fljótt til ábyrgðar
vegna þessa, sama hversu lítil verk
in voru,“ heldur hann áfram. „Til
dæmis fannst mér tilkomumik
ið embætti að fá að halda á vatns
slöngu meðan afi stóð fyrir því að
að gera íshelli í Langjökli þegar
ég var tíu ára. Þetta fannst manni
gaman,“ bætir Unnar við og metur
greinilega reynslu sem þessa verð
mætan skóla að ganga í gegnum.
„Á Húsafelli varð maður líka fljótt
söluþenkjandi. Snemma byrjaði ég
til dæmis að selja steina sem ég fékk
að tína úr silfurbergsnámu í Sel
gili skammt frá Húsafelli. Ég seldi
steinana við varðeldinn í Húsa
fellsskógi á laugardagskvöldum
á sumrin og gekk salan vel. Síðan
var maður duglegur að tína golf
kúlur úr vötnunum við golfvöllinn
og selja þær á nýjan leik í upplýs
ingamiðstöðinni á staðnum. Þann
ig var maður byrjaður að sjá við
skiptatækifæri í nærumhverfinu og
um leið að nýta þau,“ segir hann í
léttum tón.
Eftir stúdentspróf frá Fjölbrauta
skólanum í Breiðholti lá leið Unn
ars í nám í viðskiptafræði við Há
skólann á Bifröst. Þaðan útskrifað
ist hann sumarið 2011. „Að námi
á Bifröst loknu fór ég í masters
nám í fjármálum við Háskólann
í Reykjavík. Ég hafði þá stefnt að
því að finna mér starf í fjármála
geiranum og fetaði ég því þessa
leið í háskóla. Þegar í HR var kom
ið fór ég hins vegar að sjá heima
hagana og það sem ég hafði unn
ið við þar í öðru ljósi. Ég fann að
áhugasvið mitt var að breytast. Inn
í þessa viðhorfsbreytingu spilaði að
ég var byrjaður að vinna að nýjum
og spennandi verkefnum með for
eldrum mínum varðandi framtíð
ferðaþjónustunnar á Húsafelli og
markaðssetningu svæðisins. Vegna
þessa fékk ég tækifæri til að vinna
með ýmsum reynslumiklum aðilum
og má kannski segja að sú reynsla
hafi kennt mér ýmislegt um gang
verk geirans. Eftir þetta fann ég að
markaðstengdar greinar áttu bet
ur við mig,“ segir Unnar sem tel
ur starf sitt hjá Pipar/Travel rök
rétt framhald hjá sér. „Mér stóð til
boða starf hjá einni fjármálastofnun
áður en ég var ráðinn hingað. Val
ið var erfitt, en ég tel mig hafa val
ið rétt.“
Töluverð breyting
Ekki þarf að horfa langt aftur í tím
ann til að sjá hversu miklar breyt
ingar hafa orðið á vettvangi ferða
þjónustunnar. Nú á dögum er
greininn einn helsti vaxtarbroddur
þjóðarinnar. Unnar rifjar upp að á
þeim tíma þegar hann seldi steina
við varðeldinn í Húsafellsskógi hafi
einkenni tjaldssvæðisins í skógin
um verið Alaga tjöld og hafi flest
ir gestir verið Íslendingar. Í dag
sé veruleikinn annar. Hefðbund
in tjöld hafa hér um bil vikið fyr
ir fellihýsum og tjaldvögnum og þá
hefur fjölgað umtalsvert í hópi er
lendra ferðamanna. „Það eru helst
þeir sem gista í hinum hefðbundnu
tjöldum. Einkenni tjaldsvæðisins í
dag eru því fellhýsin. Um leið hafa
kröfurnar aukist og nægir að nefna
að gott aðgengi þarf að vera í raf
magn, tenging við internet þarf að
vera fullnægjandi og þá þarf hrein
lætisaðstaða að vera góð. Loks þarf
að vera fjölbreytt afþreying í boði
fyrir gesti.“
Heimur markaðssetningarinn
ar hefur líka breyst á þessum stutta
tíma segir Unnar og nefnir sem
dæmi mátt samfélagsmiðlanna.
„Eitt lítið dæmi frá því í sumar á
Húsafelli styður þetta. Í aðdraganda
einnar helgarinnar setti ég inn stutt
myndskeið frá Húsafelli á Facebook
síðu ferðaþjónustunnar á staðnum.
Myndskeiðið sýndi stemninguna á
tjaldsvæðinu og hvað væri í boði á
staðnum. Veðurspáin fyrir helgina
var góð og gat ég þess að sjálfsögðu
í texta með myndskeiðinu. Við
brögðin létu ekki á sér standa og
sáu um 30.000 manns myndband
ið áður en yfir lauk. Að sjálfsögðu
fylltust tjaldstæðin,“ bætir hann við
og segir mikilvægt að vera á tánum
gagnvart þeim kviklynda markaði
sem ferðaþjónustan þjónar. „Sam
félagsmiðlar henta ferðaþjónustu
geiranum mjög vel vegna þess að
það þarf sífellt að ná í nýja við
skiptavini dag frá degi. Miðlarnir
geta náð til gríðarlega stórs mark
hóps á skömmum tíma með tiltölu
lega litlum kostnaði. Gott dæmi um
þetta er æðið sem varð í Smáralind
um síðustu helgi.“
Fá góðar undirtektir
Talinu víkur þá að Pipar/Tra
vel. Unnar hóf störf hjá fyrirtæk
inu í byrjun nóvember og var strax
hafinn undirbúningur að stofnun
þeirrar deildar sem hann vinnur hjá
í dag. „Stjórnendur Pipars höfðu
gengið með þá hugmynd í magan
um í nokkurn tíma að stofna sér
staka deild sem hefði það hlutverk
að veita ferðaþjónustufyrirtækj
um markaðsráðgjöf og þjónustu.
Þarfir og aðstæður ferðaþjónustu
fyrirtækja eru frábrugðnar öðrum
fyrirtækjum sem Pipar hefur ver
ið að sinna. Mörg fyrirtæki í þessari
grein eru í miðlungsstærð og hafa
ekki ráðrúm til að ráða til sín ein
stakling til að sinna markaðsmál
um. Sum hafa til dæmis varið tölu
verðum fjárhæðum í að búa til og
þróa vörumerki, búa til glæsilegar
heimasíður og annað kynningar
efni, en hafa ekki haft tök á að fylgja
þeirri vinnu eftir. Hérna komum
við hjá Pipar/Travel til skjalanna. Í
landslagi markaðarins snýst allt um
að vera á vaktinni og viðhalda sýni
leika og góðri ímynd. Hérna skipt
ir máli að allar nýjustu upplýsing
ar séu tiltækar, heimasíða sé upp
færð og lifandi og sömuleiðis síður
á samfélagsmiðlum á borð við Fa
cebook, TripAdvisor, Instagram og
Twitter. Mitt hlutverk er í raun að
vera tengiliður viðskiptavina okkar í
ferðaþjónustunni við þann fjölhæfa
og reynslumikla hóp sem starfar hjá
Pipar. Þar starfa 50 sérfræðingar í
sex stoðdeildum, allt frá grafískum
hönnuðum til samfélagsráðgjafa á
samfélagsmiðlum. Með því að hafa
sérfræðinga á hverju sviði markaðs
þjónustu getum við veitt arðbæra
þjónustu fyrir ferðaþjónustufyrir
tæki. Pipar býður upp á árangurs
ríkar lausnir í þessa veru, allt eftir
þörfum hvers og eins,“ segir Unnar
sem segir stofnun Pipar/Travel hafa
fengið frábærar undirtektir. „Aðil
ar sem hafa leitað til okkar hafa
fagnað því að þessi deild hafi verið
stofnuð. Eftirspurnin er því greini
lega til staðar.“
Spennandi
tímar framundan
Unnar segir verkefnin hjá Pipar
skemmtileg og er ekki í vafa um að
hann sé á réttri hillu. „Það er mik
ill kraftur í fólkinu hjá Pipar. Fjöldi
hæfileikafólks starfar hjá fyrirtæk
inu, með áralanga reynslu af mark
aðs og auglýsingamálum. Vinnu
umhverfið er lifandi og skemmti
legt og einkennist af frumleika og
metnaði og góðu samstarfi. Ég
finn líka að þar er gott faglegt að
hald sem heldur manni við efn
ið. Mitt starf er að vera tengilið
ur ferðaþjónustufyrirtækja við þá
frjóu heild sem starfar hjá Pipar og
í sömu svipan taka þátt í því að þróa
starfsemi Pipar/Travel. Spennandi
tímar eru því framundan.“
hlh
Frá Húsafelli í Borgarfirði. Ljósm. Kristín Jónsdóttir.
„Í landslagi markaðarins snýst allt
um að vera á vaktinni“
Unnar Bergþórsson. Ljósm. Björn Snorri.