Skessuhorn - 15.01.2014, Page 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 3. tbl. 17. árg. 15. janúar 2014 - kr. 600 í lausasölu
ÚTSALA
Hefst fimmtudaginn
16. janúar
Opið til kl. 19:00
40% afsláttur af
öllum útsöluvörum
Nýtt kortatímabil
Landnámssetur Íslands,
Brákarbraut 13 – 15, Borgarnesi
Frá Landnámssetri
Þórarinn Eldjárn segir
sögu Barónsins á
Hvítárvöllum
Næstu sýningar:
18. janúar kl. 17:00
25. janúar kl. 20:00
7. febrúar kl. 20:00
Miðapantanir í síma 437 1600
og landnam@landnam.is
Sextán ára stúlka, farþegi í fólksbif‑
reið, lét lífið í árekstri við flutninga‑
bíl á Vesturlandsvegi við Forna‑
hvamm í
Norður árdal
um hádegis‑
bilið á sunnu‑
daginn. Öku‑
maður bílsins
var fluttur al‑
varlega slasað‑
ur með þyrlu
á Landspít‑
alann í Foss‑
vogi og er í lífshættu. Ökumann og
farþega í flutningabílnum sakaði
ekki. Að sögn lögreglu var hálka og
skafrenningur þegar slysið varð og
virðist sem fólksbíllinn hafi runnið
í veg fyrir flutningabílinn á beinum
vegarkafla skammt frá brúnni yfir
Norðurá. mm
Loks þegar gæftir leyfðu á nýju ári veiddu bátasjómenn á Vesturlandi vel bæði í Faxaflóa og á Breiðafirði. Hér heldur
Sæþór Gunnarsson háseti á línubátnum Glað SH á sannkallaðri demantsýsu sem kom á land í Ólafsvík í síðustu viku. Sjá
bryggjuspjall við veiðimenn í Ólafsvík á bls. 18-19. Ljósm. mþh
Sveitarstjórn Eyja‑ og Miklaholts‑
hrepps á Snæfellsnesi óskaði bréf‑
lega á miðri jólaföstunni eftir við‑
ræðum um hugsanlega sameiningu
við sveitarstjórnir Helgafellssveitar,
Stykkishólmsbæjar, Grundarfjarð‑
arbæjar og Snæfellsbæjar. Í erindinu
frá Eyja‑ og Miklaholtshreppi er
óskað eftir þátttöku í fýsileikakönn‑
un um sameiningu sveitar‑
félaganna fimm á Snæfell‑
nesi og framhaldið met‑
ið í ljósi þeirrar niður‑
stöðu. Bæjarstjórn Stykk‑
ishólms samþykkti erind‑
ið samdægurs. Bæjarstjórn
Grundarfjarðar svaraði því
á fundi nokkrum dögum
síðar, þar sem samþykkt
var samhljóða að farið
verði í fýsileikakönnun um
sameiningu sveitarfélag‑
anna fimm á Snæfellsnesi
að því gefnu að öll sveitar‑
félögin samþykki þátttöku í könn‑
uninni. Meirihluti bæjarstjórnar
Snæfellsbæjar synjaði hinsvegar er‑
indinu síðastliðinn fimmtudag. Fyr‑
ir lá velvilji frá hreppsnefnd Helga‑
fellssveitar fyrir þátttöku í samein‑
ingarviðræðum.
Guðbjartur Gunnarsson oddviti
Eyja‑ og Miklaholtshrepps sagði í
samtali við Skessuhorn að synjun
meirihluta bæjarstjórnar Snæfells‑
bæjar og skilyrt svar bæjarstjórn‑
ar Grundarfjarðar þýddi að vænt‑
anlega yrði ekkert úr sameining‑
arviðræðum. „Ég óttaðist að tím‑
inn yrði of skammur þar sem kom‑
ið væri of nálægt kosningum. Það
kemur mér ekki á óvart að bakland‑
ið fyrir sameiningu sé ekki til stað‑
ar í Snæfellsbæ,“ sagði Guðbjartur
á Hjarðarfelli. Í bókun meirihluta
bæjarstjórnar Snæfellsbæjar frá
fundinum sl. fimmtudag segir: „Við
fulltrúar D‑listans í bæjarstjórn
Snæfellsbæjar teljum ekki tíma‑
bært að hefja viðræður um samein‑
ingu allra sveitarfélaga á Snæfells‑
nesi. Ákvörðun okkar byggjum við
á þeirri tilfinningu okkar að fyr‑
ir slíkri ákvörðun sé ekki almenn‑
ur vilji hjá íbúum Snæfellsbæj‑
ar. Hins vegar teljum við rétt hjá
þeim sveitarstjórnarmönn‑
um sem telja slíkar viðræð‑
ur skynsamlegar að hefja þá
vegferð sem fyrst og láta
ekki afstöðu Snæfellsbæjar
trufla sig í vinnu við frek‑
ari sameiningu sveitarfélaga
á Snæfellsnesi,“ segir meiri‑
hlutinn í bókun á fundin‑
um. Fulltrúar minnihlut‑
ans í bæjarstjórn Snæfells‑
bæjar eru annarrar skoð‑
unar en meirihlutinn um
að fara ekki í fýsileikakönn‑
un um sameiningu sveitar‑
félaganna á Snæfellsnesi. „Og hefð‑
um talið eðlilegt að Snæfellsbær
yrði með í frekari þreifingum um
sameiningu sveitarfélaganna fimm
á Snæfellsnesi,“ segir í bókun J‑
listans í Snæfellsbæ.
þá/ Ljósm. Friðþjófur Helgason.
Dröfn, skip Hafrannsóknastofnun‑
ar var við síldarleit og rannsóknir
á Hvammsfirði í síðustu viku. Þor‑
steinn Sigurðsson sviðsstjóri nytja‑
stofnasviðs Hafró segir að óvæntar
fréttir hafi borist úr þessari rannsókn‑
arferð. Mikið magn ungsíldar, ár‑
gangur frá síðasta sumri, hafi fundist
inni í Hvammsfirði. „Við áttum ekki
von á ungsíld þarna enda Hvamms‑
fjörður ekki þekkt sem ungsíldar‑
svæði, síður en svo,“ sagði Þorsteinn.
Hann sagði að ábending hafi borist
frá sjómanni um að þarna væri síld
að finna. „Hann og við bjuggumst þá
við nytjasíld á svæðinu en svo reynd‑
ist ekki vera,“ segir Þorsteinn. Hann
segir Dröfnina hafa verið fjóra daga
við rannsóknir á Breiðafirði, far‑
ið víðar en um Hvammsfjörðinn en
ungsíldin þar hafi verið það helsta að
frétta úr þessum leiðangri. Þorsteinn
segir litla síld að finna, nema þá sem
er inni í Kolgrafafirði. Þar sé við‑
undandi ástand eins og er, súrefnis‑
magnið hátt í 70% í því veðrakerfi
sem ríkt hefur að undanförnu. þá
Snæfellsbær tekur ekki undir málaleitan
um sameiningarviðræður
Ungsíldar-
svæði finnst í
Hvammsfirði
Banaslys við
Fornahvamm