Skessuhorn


Skessuhorn - 15.01.2014, Blaðsíða 5

Skessuhorn - 15.01.2014, Blaðsíða 5
Nánari upplýsingar á rsk.is 442 1000 Þjónustuver 9:30-15:30rsk@rsk.is Launamiðar og verktakamiðar Skilaskyldir eru allir þeir sem innt hafa af hendi launagreiðslur, hlunnindi, lífeyri, bætur, styrki, happdrættis- og talnavinninga (skattskylda sem óskatt skylda), greiðslur til verktaka fyrir þjón- ustu (efni og vinnu) eða aðrar greiðslur sem framtalsskyldar eru og/eða skattskyldar. Bifreiðahlunnindamiðar Skilaskyldir eru allir þeir sem í rekstri sínum eða annarri starfsemi hafa haft kostnað af kaupum, leigu eða rekstri fólks- bifreiðar. Hlutafjármiðar Skilaskyld eru öll hlutafélög, einkahlutafélög, samlagshluta- félög, samvinnuhlutafélög og sparisjóðir. Viðskipti með hlutabréf og önnur verðbréf Skilaskyldir eru bankar, verð- bréfafyrirtæki og aðrir þeir aðilar sem annast kaup og sölu, umboðsviðskipti og aðra um- sýslu með hlutabréf og önnur verðbréf. Bankainnstæður Skilaskyldar eru allar fjármála- stofnanir og aðrir aðilar sem taka við fjármunum til ávöxtunar. Lánaupp lýsingar Bankalán, fasteignaveðlán, bílalán og önnur lán. Skilaskyld- ar eru allar fjármálastofnanir (bankar, sparisjóðir, lífeyrissjóðir, tryggingafélög, fjármögnunar- leigur o.s.frv.) sem hafa lánað fé til einstakl inga. Stofnsjóðsmiðar Skilaskyld eru öll samlagsfélög, sameignarfélög og samvinnu- félög, þ.m.t. kaupfélög. Takmörkuð skattskylda - greiðsluyfirlit Skilaskyldir eru þeir sem innt hafa af hendi hvers konar greiðslur til erlendra aðila og annarra, sem bera takmarkaða skattskyldu hér á landi. Greiðslumiðar – leiga eða afnot Skilaskyldir eru þeir sem innt hafa af hendi hvers konar greiðslur fyrir leigu eða afnot af lausafé, fasteignum og fasteignaréttindum eða öðrum réttindum. Hlutabréfakaup skv. kaupréttarsamningi Skilaskyld eru öll hlutafélög sem gert hafa kaupréttarsamninga við starfsmenn sína samkvæmt staðfestri kaupréttaráætlun. Sama á við um söluréttar- samninga. Fjármagnstekjumiði Þeir aðilar sem innheimt hafa vexti skulu skila þessum miða og tilgreina þar sundurliðun á mót- takendum og þá staðgreiðslu fjármagnstekjuskatts sem haldið hefur verið eftir. Hér er einkum um að ræða smærri innheimtu- aðila, t.d. lögfræðistofur. Þessum miða er eingöngu hægt að skila rafrænt. Vakin er athygli á launamiðareit nr. 405, þar sem færa skal íþrótta- og líkamsræktarstyrki. Einnig er vakin athygli á launamiðareit nr. 410, þar sem færa skal samgöngustyrki. Minnt er á að upplýsingum um húsnæðishlunnindi skal skila á launamiða. Húsnæðishlunnindi eru allt að 5% af fasteignamati íbúðarhúsnæðis 31. des. 2012, sem látið er launþega í té endurgjaldslaust eða með óeðlilega lágu endurgjaldi. Sjá nánar í lið 2.8 í skattmati ríkisskattstjóra vegna tekjuársins 2013. Athugið að sameignarfélög og samlagsfélög eiga að skila stofnsjóðsmiða með upplýsingum um eignarhluti eigenda og úttekt af höfuðstól. 2014 Skil á upplýsingum vegna skattframtals Skilafrestur á eftirtöldum gögnum vegna framtalsgerðar 2014 er til 30. janúar en þeir sem skila á rafrænu formi hafa þó frest til 10. febrúar 2014

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.