Skessuhorn


Skessuhorn - 29.01.2014, Blaðsíða 5

Skessuhorn - 29.01.2014, Blaðsíða 5
5MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR 2014 Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför sonar okkar, bróður og mágs, Hannesar Jóhannssonar frá Steinum Sérstakar þakkir fá allir þeir sem unnu með Hannesi og studdu hann í gegnum árin. Jóhann Oddsson Valgerður Björnsdóttir Jónína Laufey Jóhannsdóttir Bernhard Þór Bernhardsson Oddur Björn Jóhannsson Eva Karen Þórðardóttir Guðmundur Steinar Jóhannsson Sigurrós María Sigurbjörnsdóttir Loftorka í Borgarnesi hóf að reisa nýtt einbýlishús við götuna Birki- skóga á Akranesi síðastliðinn mið- vikudag. Ekki hefur verið mikið um slíkar framkvæmdir að undanförnu ólíkt því sem einkenndi tímabilið í aðdraganda bankahrunsins haust- ið 2008. Um sérhannað einingahús frá Loftorku er að ræða en eining- arnar voru búnar til í starfsstöð fyr- irtækisins við Engjaás í Borgarnesi. Umrædd framkvæmd mun vera sú eina sinnar tegundar sem er í gangi á Akranesi í dag, en þess utan standa framkvæmdir yfir við bygg- ingu fjölbýlishúss við Sólmundar- höfða. hlh Vinstri hreyfingin grænt framboð í Borgarbyggð samþykkti fram- boðslista sinn fyrir komandi sveit- arstjórnarkosningar á félagsfundi sem haldinn var á Landnámssetrinu í Borgarnesi 22. janúar sl. Ragnar Frank Kristjánsson á Hvanneyri mun leiða lista VG nú líkt og fyr- ir kosningarnar 2010. Ingibjörg Daníelsdóttir gaf hins vegar ekki kost á sér í annað sætið en saman sitja þau í sveitarstjórn fyrir hönd VG. Nýjar í öðru og þriðja sæti á listanum eru Sigríður Júlía Bryn- leifsdóttir í Borgarnesi og Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir í Reykholti. Á fundinum var samþykkt sam- hljóða að bjóða fram eftirfarandi lista: 1. Ragnar Frank Kristjánsson 2. Sigríður Júlía Brynleifsdóttir 3. Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir 4. Friðrik Aspelund 5. Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir 6. Stefán Ólafsson 7. Anna Berg Samúelsdóttir 8. Bjarki Grönfeldt Gunnarsson 9. Hanna Þorgrímsdóttir 10. Finnbogi Rögnvaldsson 11. Ingibjörg Daníelsdóttir 12. Sigurður Helgason 13. Guðný Dóra Gestsdóttir 14. Gunnar Jónsson 15. Ingibjörg Jónasdóttir 16. Kristberg Jónsson 17. Guðbrandur Brynjúlfsson 18. Vigdís Kristjánsdóttir. mm Einbýlishúsið sem Loftorka er að reisa við Birkiskóga. Einbýlishús reist á Akranesi VG í Borgarbyggð birtir framboðslista sinn Ragnar Frank Kristjánsson leiðir á ný lista VG í Borgarbyggð. Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517-6460 www.belladonna.is Verslunin Belladonna á Facebook Flott föt fyrir flottar konur st. 40 – 58 Núna færð þ ú 25% viðbótar -afslátt af öllum úts öluvörum ÚTSÖLULOK stærðir 38-58

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.