Skessuhorn - 12.02.2014, Qupperneq 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 7. tbl. 17. árg. 12. febrúar 2014 - kr. 600 í lausasölu
Fermingarboðskort
www.framkollunarthjonustan.is
Jón Jónsson
Landnámssetur Íslands,
Brákarbraut 13 – 15, Borgarnesi
Frá Landnámssetri
Þórarinn Eldjárn segir
sögu Barónsins á
Hvítárvöllum
Næstu sýningar:
15. febrúar kl. 17:00 Örfá sæti laus
2. mars kl. 16:00 UPPSELT
8. mars kl. 20:00
23. mars kl. 16:00
11. apríl kl. 20:00
Miðapantanir í síma 437 1600
og landnam@landnam.is
Hvíldarstólar
Tau- eða
leðurklæddir
Opið virka daga 13-18
Nú standa yfir framkvæmdir við
endurnýjun hluta neysluvatnslagn-
ar fyrir Hellissand. Lögnin er um
það bil 50 ára gömul og er nú verið
að skipta henni út fyrir nýja á kíló-
meters löngum kafla frá Gildru-
holti að gamla björgunarsveitarhús-
inu. Mikið hefur verið um bilanir á
þessari leið og kemur það til af því
að á þeim árum sem lögnin var lögð
tíðkaðist ekki að setja sand undir
lagnir. Lá lögnin því á grjóti sem á
endanum gerði göt á hana. Undan-
farin tvö ár hafa orðið átta bilanir
á þessum hluta lagnarinnar og var
kostnaður við hverja bilun um tvö
hundruð þúsund krónur. Áætlaður
kostnaður við verkið er tíu miljónir
króna en það er verktakafyrirtækið
Stafnafell sem sér um framkvæmd-
irnar. þa
112 dagurinn var í gær. Hefð er komin fyrir því að 11. febrúar sé notaður til að minna á mikilvægi þess að fólk viti hvert það á
að hringja ef slys, veikindi, eldsvoðar, eða hvaðeina annað bjátar á. Meðal þeirra viðbragsaðila sem kynntu starfsemi sína í
gær voru sjúkraflutningamenn HVE á Vesturlandi, meðal annars í Borgarnesi og á Akranesi. Hér er hluti viðbragðshópsins á
Akranesi, vaskir karlar sem þurfa ekki stuðtæki til að vera í stuði, en hafa samt slíkar græjur með í för til öryggis.
Ljósm. Guðmundur Bjarki Halldórsson.
Sigurður Ingi Jóhannsson, um-
hverfis- og auðlindaráðherra, til-
kynnti í liðinni viku um þá ákvörð-
un sína að veita Skaftárhreppi styrk
vegna kaupa sveitarfélagsins á
varmadælu til að hita upp Kirkju-
bæjarskóla, íþróttahús og sund-
laug. Styrkurinn er veittur í sam-
ræmi við markmið um endurnýjan-
lega orku og orkunýtingu í skýrslu
Alþingis um Græna hagkerfið. Hér
er tvímælalaust um að ræða stefnu-
markandi ákvörðun hins opinbera
að ræða og ættu því önnur sveitar-
félög sem svipað er ástatt fyrir að
geta í framtíðinni fengið helmings
styrk vegna kaupa og uppsetning-
ar á varmadælum í þeim tilgangi að
lækka orkukostnað sinn. Kristinn
Jónasson bæjarstjóri í Snæfellsbæ
og formaður Samtaka sveitarfélaga
á köldum svæðum fagnar innilega
þessari ákvörðun ráðherra.
Skaftárhreppur er á skilgreindu
köldu svæði, þar sem ekki hef-
ur fundist heitt vatn sem nýta má
til húshitunar. Voru skólinn og
íþróttamannvirki á árum áður hituð
upp með svartolíubrennara og síð-
ar með varma frá sorpbrennslustöð
sveitarfélagsins. Eftir að stjórn-
völd í árslok 2012 fyrirskipuðu lok-
un sorpbrennslustöðvarinnar vegna
mengunar frá henni hafa mann-
virkin verið kynt með rafmagni og
var sundlauginni á Klaustri lokað
um tíma vegna gríðarmikils kyndi-
kostnaðar. Í tilkynningu frá um-
hverfisráðuneytinu segir: „Ljóst
er að með notkun varmadælunn-
ar dregur sveitarfélagið verulega
úr umhverfisáhrifum vegna upphit-
unar þeirra bygginga sem um ræð-
ir auk þess sem hitunarkostnaður
minnkar til muna. Nú er því hvorki
notast við varma frá sorpi eða svart-
olíu og með varmadælunni dreg-
ur verulega úr rafmagnsnotkun til
upphitunar. Þá er sorp flokkað í
sveitarfélaginu eins og kostur er í
því skyni að draga úr akstri og urð-
un úrgangs.“ Þá segir í frétt ráðu-
neytisins að þetta sé í fyrsta skipti
sem sveitarfélag setji upp varma-
dælu af þessari stærðargráðu og
megi því ætla að önnur sveitarfé-
lög á köldum svæðum geti nýtt sér
reynsluna af notkun hennar. Þetta
nýsköpunarverkefni fellur því vel
að markmiðum um betri orkunýt-
ingu í ályktun Alþingis um Græna
hagkerfið.
Eins og fyrr segir nemur styrk-
urinn sem Skaftárhreppur fékk
helmingi af kostnaði við kaup
og uppsetningu varmadælunnar,
eða átta af sextán milljóna króna
stofnkostnaði sveitarfélagsins.
Kristinn Jónasson bæjarstjóri í
Snæfellsbæ og formaður Samtaka
sveitarfélaga á köldum svæðum
fagnar innilega þessari ákvörðun
ráðherra. „Við í Snæfellsbæ erum
einmitt að gera nákvæmlega sam-
bærilega hluti og Skaftárhrepp-
ur. Erum núna að kaupa varma-
dælu fyrir sundlaugina í Ólafsvík.
Ef sú aðgerð heppnast vel tengjum
við einnig íþróttahúsið og grunn-
skólann með sama hætti við orku
frá varmadælum. Því fagna ég að
sjálfsögðu þessari stefnumarkandi
ákvörðun umhverfisráðherra og
munum við í Snæfellsbæ strax í
þessari viku setja okkur í samband
við ráðuneytið um sambærilegan
stuðning og Skaftárhreppur hefur
nú fengið.“ mm
Sigurður Ingi Jóhannsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, ásamt Guðmundi
Inga Ingasyni oddvita sveitastjórnar Skaftárhrepps og Eygló Kristjánsdóttur
sveitarstjóra. Ljósm. umhverfisráðuneytið.
Tímamótastyrkur vegna upphitunar á köldum svæðum
Endurnýja
vatnslögn