Skessuhorn - 05.03.2014, Page 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 10. tbl. 17. árg. 5. mars 2014 - kr. 600 í lausasölu
„Við mælum með því að þú
setjir ekki meira en ��� af
ráðstöfunartekjum í húsnæði,
aðallega vegna þess að það
er dýrt að lifa.“
Jóhanna Hauksdóttir
fjármálaráðgjafi
ARION
ÍBÚÐALAUSNIR
Allt um íbúðalán á arionbanki.is
Fermingarboðskort
www.framkollunarthjonustan.is
Jón Jónsson
Bíleigendur í Borgarnesi og ná-
grenni og ferðamenn um héraðið
geta nú tekið gleði sína á ný því
Olís hefur ákveðið að byggja nýtt
þvottaplan í Borgarnesi. Verður
nýja planið norðaustan við þjón-
ustustöð Olís við Brúartorg. Þar
með má segja að þvottakústarnir
hafi snúið aftur í Borgarnes eft-
ir tveggja og hálfs árs fjarveru.
Kústaleysið í bænum hefur vak-
ið nokkra athygli á landsvísu, ekki
síst fyrir þær sakir að á engum
stað á Íslandi standa bensínstöðv-
ar eins þétt og við Brúartorg,
norðan við Borgarfjarðarbrúna.
Hins vegar hefur síðan 2011 ver-
ið ómögulegt að þvo bíla á þess-
um fjölfarna ferðamannastað við
þjóðveg eitt.
Að sögn Þórðar Jónssonar
stöðvarstjóra Olís í Borgarnesi
verður nýja þvottaplanið í norð-
austurhorninu á lóð stöðvarinnar
og verður um að ræða hefðbund-
ið þvottaplan með vatnstengd-
um kústum. Þar munu viðskipta-
vinir Olís getað þrifið bílana sína.
Þegar þeir síðan líta upp frá því
verki geta þeir notið útsýnisins
yfir Borgarfjörðinn, en það er
einkar fallegt frá þessum stað. Nú
um stundir er verið að ljúka við
teikningar og undirbúningsvinnu
vegna þvottaplansins, en Þórður
segir að stefnt sé að því að fram-
kvæmdir hefjist þegar frost fer
úr jörðu. Þvottaplanið verði síð-
an tekið í notkun í vor eða byrjun
sumars. hlh
Á aðalfundi FEBAN, Félags eldri
borgara á Akranesi og nágrenni,
sem fram fór síðastliðinn laugar-
dag tilkynnti Regína Ásvaldsdóttir
bæjarstjóri félagsmönnum stór tíð-
indi í húsnæðismálum. Sagði hún
að bæjarráð Akraneskaupstaðar
hefði samþykkt að fela sér að ganga
til samninga við forsvarsmenn Bif-
reiðastöðvar Þórðar Þ. Þórðarson-
ar um kaup bæjarins á húsinu Dal-
braut 6, þar sem starfsemi ÞÞÞ er
nú til húsa. Áformað væri að setja á
laggirnar þjónustumiðstöð í húsinu
með félagsaðstöðu fyrir FEBAN og
það félagsstarf sem bærinn hefur
rekið fyrir aldraða.
Í febrúar á síðasta ári var settur á
laggirnar starfshópur með fulltrú-
um FEBAN, þeim Jóhannesi Ingi-
bjartssyni og Ólafi Guðmunds-
syni, og bæjarfulltrúunum Þresti
Þór Ólafssyni, Sveini Kristinssyni
og Gunnari Sigurðssyni. Hópur-
inn hefur skoðað fjölmarga kosti
og leist best á húsnæðið að Dal-
braut 6. Húsið er tæplega 900 fer-
metrar að stærð með möguleika á
stækkun. Tilkynningu bæjarstjóra
var vel fagnað á aðalfundinum, en
mörg síðustu ár hefur verið unn-
ið að lausn til framtíðar á húsnæð-
ismálum FEBAN. Félagið fagnar
25 ára afmæli um þessar mundir.
FEBAN hefur frá árinu 2002 verið
með aðstöðu fyrir meginstarfsemi
sína á þriðju hæð verkalýðshússins
á Kirkjubraut 40, en sá samningur
rennur út í árslok 2015. Húsið er
of lítið fyrir starfsemina enda eru
félagsmenn í FEBAN um 650. þá
Þessi mynd er tekin af þeim fasta punkti hér á jörð þar sem ekki er hægt að komast hærra. Hér er á ferðinni Ingólfur Geir
Gissurarson íþrótta- og fjallgöngukappi. Hann kleif á síðasta vori hæsta fjall heims; Mount Everest. Ingólfur er fimmti Ís-
lendingurinn til að leggja þessa svaðilför að baki en sá fyrsti til að gera það eftir að vera orðinn afi.
Sjá ítarlega ferðalýsingu á bls. 28-29 í Skessuhorni í dag.
Þvottakústar með rennandi vatni
munu vafalaust laða til sín fjölmarga
viðskiptavini á Olísstöðina í Borgar-
nesi.
Þvotta
kústar aftur
í Borgarnes
Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri ávarpar hér aðalfund FEBAN á laugardaginn.
ÞÞÞ húsið við Dalbraut verður
þjónustumiðstöð fyrir eldri borgara
Fluconazol
ratiopharm
- fæst án lyfs
eðils
RÚMTEPPI
SÆNGUR
KODDAR
RÚMFATNAÐUR
FERMINGARRÚM