Skessuhorn


Skessuhorn - 12.03.2014, Side 1

Skessuhorn - 12.03.2014, Side 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 11. tbl. 17. árg. 12. mars 2014 - kr. 600 í lausasölu HEFUR SAFNAÐ FYRIR ÖKUTÆKI FYRIR HVERJU LANGAR ÞIG AÐ SAFNA? Allt um sparnað á arionbanki.is/sparnaður Fermingarboðskort www.framkollunarthjonustan.is Jón Jónsson ratiopharm - fæst án lyfs eðils Jakkaföt, þröng snið Skyrtur, munstraðar og einlitar Bindi • Slaufur • Belti Öskudagurinn var í síðustu viku og víða glatt á hjalla hjá börnum af því tilefni, jafnvel fullorðnum einnig. Þær Þórhildur Hólmgeirsdóttir, Kristín Alma Rúnarsdóttir, Sara Rós Róbertsdóttir og Rúna Birna Jóhannsdóttir í Stykkishólmi voru allar málaðar á öskudaginn af Menju von Schmalensee. Sannkallað listaverk á ferð. Fleiri myndir frá öskudeginum er að finna bls. 26-27. Ljósm. Róbert Arnar Stefánsson. Samkomulag milli allra veiðirétt- arhafa í Borgarfirði um uppkaup netalagna á vatnasviði Hvítár virð- ist nú í uppnámi eftir að leigutak- ar Þverár hafa tilkynnt að þeir ætli ekki að fara eftir samkomulaginu þar sem þeir telja það ekki í gildi. Krefjast þeir endurgreiðslu á gjaldi því sem þeir inntu af hendi fyrir síðasta sumar, sem var fyrsta ár á samningstímabilinu til 2017. Síðan átti samningurinn að framlengjast um eitt ár í senn. Starir ehf, leigu- taki Þverár, sem jafnframt leigja tvö veiðisvæði við Hvítá, byggja ákvörðun sína að hverfa frá sam- komulaginu á ákvæði í samningum sem segir að samkomulagið öðlist ekki gildi nema allir samningsað- ilar staðfesti það með undirskrift. Veiðifélag Reykjadalsár staðfesti ekki samninginn sem gerður var í febrúarmánuði 2014. Um málið var fjallað á aðalfundi Veiðifélagsins Hvítár sl. mánudags- kvöld. Í ályktun frá fundinum seg- ir að félagsmenn lýsi fullri ábyrgð á hendur Störum ehf, leigutök- um Þverár, vegna þeirrar óvissu sem þeir hafa skapað í veiðimál- um í Borgarfirði. Ljóst sé að veiði- leyfi á vatnasvæðinu fyrir komandi veiðisumar hafa verið seld í trausti þess að staðið verði við samninga um upptöku neta á vatnasviði Hvít- ár. Áform sem lögmaður Stara ehf kynnti veiðifélaginu Hvítá um síð- ustu áramót, þess efnis að Star- ir ehf hyggist ekki efna samninga við Veiðifélagið Hvítá, muni leiða af sér mikla óvissu fyrir hérað- ið verði netaveiði aftur tekin upp í Hvítá. „Veiðifélagið Hvítá hef- ur aflað lögfræðiálits um réttar- stöðu félagsins vegna þeirra samn- inga sem gerðir hafa verið, m.a. við Starir ehf. Niðurstaða þess er að samningarnir um upptöku netanna séu í fullu gildi. Leigutökum Þver- ár hlýtur að vera fullljóst að góð veiði og ímynd veiðivatna skipt- ir mestu þegar kröfuharðir veiði- menn eru annars vegar. Gott sam- starf veiðiréttareigenda í héraðinu sl. 20 ár hefur skipað veiðiánum í Borgarfirði í fremstu röð. Leigu- takar Þverár stefna nú þessu sam- starfi í hættu og það ber að harma,’’ segir í ályktun frá aðalfundinum. Óðinn Sigþórsson formaður Veiðifélags Hvítár sagði í samtali við Skessuhorn að ákvörðun leigu- takanna Störum ehf veki ekki síst furðu vegna þess að annar samn- ingur hafði verið gerður síðar á árinu 2012 sem byggi á fyrri samn- ingi þar sem inni er afnám leigu netalagna. Þessir samningar séu gagnvirkir að mati lögmanns Veiði- félags Hvítar. Óðinn segir að Veiði- félag Hvítár hafi ekki fallist á end- urgreiðslu gjalds til Stara ehf, enda talið að félagið sé bundið af sam- komulaginu. Ítrekað hafi verið ósk- að eftir því hvort staðið verði við samninga vegna komandi veiði- sumars en engin svör borist. Nú verði beðið til eindaga greiðslu fyrir upptöku netalagna fyrir næsta sumar en hann er 1. maí næstkomandi. Þá kemur í ljós hvort Starir ehf muni láta verða af því að standa ekki við gerða samn- inga. Hinn kosturinn væri að fara í dómsmál verði ekki staðið við sam- komulagið en ósennilegt að veiði- félagið taki þá ákvörðun. „Við telj- um að samkomulagið hafi komið öllum veiðiréttarhöfum til góða og trúum því ekki að nú ætli einn aðili að taka sig út úr og vilji taka til sín allan ávinning af netaupptökunni,“ segir Óðinn Sigþórsson. þá Upptaka netalagna á vatnasviði Hvítár í óvissu

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.