Skessuhorn


Skessuhorn - 02.04.2014, Blaðsíða 28

Skessuhorn - 02.04.2014, Blaðsíða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 2014 Líf og fjör er í kringum spjaldtölvu- væðingu og breytta kennsluhætti í Grunnskóla Grundarfjarðar. Að sögn Önnu Bergsdóttur skólastjóra hafa kennarar skólans verið dugleg- ir að sækja sér námskeið og endur- menntun í tengslum við upplýsinga- tæknina. „Nýverið stýrðu kennarar á unglingastigi menntaspjalli á sam- skiptaforritinu Twitter. Þátttaka var vonum framar og umræður lífleg- ar enda margir skólar að fóta sig í þessum heimi. Kennarar hafa einn- ig tekið þátt í ráðstefnum og verið með kynningar á því sem er í gangi í skólanum á þessu sviði. Opnuð hef- ur verið heimasíða þar sem sagt er frá ýmsu sem í gangi er í skólanum í upplýsingatækni. Slóðin er: http:// hugrelis.wix.com/grundarfjordur. Anna segir að skólinn sé einn- ig með opna facebooksíðu og eru mjög margir foreldrar og nemend- ur að fylgjast með henni ásamt ýms- um sem áhuga hafa á að kynna sér skólastarfið. „Við hvetjum alla til að kíkja á síðuna og fylgjast með því sem fram fer í skólanum. Face- booksíðan er Grunnskóligrundar- fjarðar,“ segir Anna. mm/ Ljósm. Þorbjörg Guðmundsdóttir. Tíst á Twitter með Grunnskóla Grundarfjarðar Margt hefur verið að gerast í grunnskólunum á Akranesi að undanförnu og greinilegt að nem- endur hafa haft ýmislegt að sýsla í skólunum síðustu vikurnar með umsjónakennurum sínum. Ekki hvað síst við að undirbúa árshá- tíðir sem voru bæði í Brekkubæj- arskóla og Grundaskóla í síðustu viku. Alls voru fjórar sýningar í Brekkubæjarskóla, tvær á þriðju- dag og jafnmargar á miðvikudag. Í Grundaskóla voru einnig tvær sýn- ingar umrædda daga, sem og tvær sýningar á fimmtudag. Árshátíðar margra skóla í dag eru mjög svip- aðar kabarettsýningum sem mjög vinsælar voru hér á árum áður. Árshátíðarsýningar skólanna á Akranesi eru einmitt í þessum dúr, fjölbreyttar; tónlist, leikur, söngur og gamanmál í hávegum. Meðfylgjandi myndir tóku Kristinn Pétursson frá árshátíðinni í Brekkubæjarskóla og Guðmund- ur Bjarki Halldórsson í Grunda- skóla. þá Árshátíðir grunnskólanna á Akranesi Grundaskóli Brekkubæjarskóli

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.