Skessuhorn - 15.04.2014, Side 6
6 MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 2014
Þyrla sótti tvo
sjúklinga
SNÆFELLSNES: Þyrla
Landhelgisgæslunnar var
kölluð út klukkan 14:10 á
laugardaginn að beiðni læknis
í Stykkishólmi vegna veikinda
í Ólafsvík. Þyrlan lenti í Rifi
kl. 15:25. Þegar þyrlan var á
leið til Reykjavíkur kl. 15:47
óskaði læknir í Stykkishólmi
að nýju eftir þyrlunni vegna
alvarlegra veikinda. Þyrlunni
var þá snúið við og flaug hún
til móts við sjúkrabíl sem var
á leið frá Stykkishólmi. Lenti
hún við Vegamót og var sjúk
lingur fluttur um borð í þyrl
una. Lenti þyrlan við Borgar
spítalann kl. 16:43 með báða
sjúklingana.
-mm
Í leyfisleysi og
banni
LBD: Tveir fullorðnir menn
voru færðir á lögreglustöð
ina í Borgarnesi sl. miðviku
dag eftir að þeir höfðu skot
ið nokkra skarfa skammt
frá Rauðanesvita á Mýr
um. Mennirnir sem voru
á gúmmíbáti, skutu einn
ig nokkra svartfugla í þessari
ferð. Þar sem bannað er að
skjóta skarf á þessum árstíma
lagði lögreglan hald á skot
vopnin og veiðina. Mennirnir
mega að minnsta kosti búast
við að fá sekt fyrir athæfið, að
sögn lögreglu. Alls urðu fjög
ur umferðaróhöpp í liðinni
viku í umdæmi lögreglunnar
í Borgarfirði og Dölum, þar
af tvö þar sem meiðsli urðu
á fólki. Tíu ökumenn voru
teknir fyrir of hraðan akstur
í síðustu viku.
–þá
Ein umsókn um
Akurshól
AKRANES: Nýlega auglýsti
Akraneskaupstaður eftir aðil
um sem hefðu hug á að reka
ferðaþjónustu á Akurshól,
svæði við hlið fiskimjölsverk
smiðjunnar. Ein umsókn barst
frá Akranes Adventure Tours
um rekstur ferðaþjónustu á
Akurshól. Á fundi bæjarráðs
sl. fimmtudag var kynnt um
sögn framkvæmdastjóra um
hverfis og framkvæmdasviðs.
Var bæjarstjóra falið að ganga
til samninga við Akranes Ad
venture Tours og samning
urinn verði lagður fyrir bæj
arráð. Gunnar Sigurðsson
áheyrnarfulltrúi í bæjarráði
áréttaði fyrri afstöðu sína um
fyrirhugaðar framkvæmdir
á Akurshól, sem hann hefur
verið mótfallinn. –þá
Vantar reglur
um gæludýra-
hald
DALIR: Á fundi byggðaráðs
Dalabyggðar sl. þriðjudag var
kynnt bréf Árna Sigurðsson
ar varðandi katta og hunda
hald í Búðardal. Árni bendir
á að setja þurfi reglugerð um
kattahald í Búðardal og að
kettir ættu að vera merktir og
skráðir. Byggðaráð fól Sveini
Pálssyni sveitarstjóra að taka
upp vinnu við drög að reglu
gerð um hunda og kattahald
í Dalabyggð. –þá
Hjúkrunarrým-
um fjölgað
AKRANES: Um síðustu
mánaðamót samþykkti Vel
ferðarráðuneyti breytingar á
rýmum á nokkrum hjúkrunar
og dvalarheimilum í landinu.
Þar á meðal var Höfði hjúkr
unar og dvalarheimili á Akra
nesi. Við þá breytingu fjölgar
hjúkrunarrýmum um fimm á
Höfða, í 53 úr 48. Jafnframt
fækkar dvalarrýmum um sam
svarandi tölu í 25 úr 30. Dag
gjöld fyrir hjúkrunarrými eru
rúmlega helmingi hærri en
dvalarrými, eða kr. 23.344 á
móti kr. 11.145. Þessi breyting
þýðir tekjuauka fyrir Höfða
upp á 16 milljónir á þessu ári
eða um 22 milljónir á árs
grundvelli. Kjartan Kjartans
son framkvæmdastjóri Höfða
segir að það muni um þenn
an tekjuauka en betur megi ef
duga skal. Hann vonast eftir
frekari lagfæringum varðandi
taxta á daggjöldum við úttekt
sem Ríkisendurskoðun vinn
ur að, en heilbrigðisráðherra
hefur sjálfur látið þá skoðun í
ljósi að daggjöld á hjúkrunar
og dvalarheimilum séu 10%
of lág. Margar stofnanir hafi
átt í rekstrarerfiðleikum. Til
að mynda var tap Höfða sam
kvæmt ársreikningi 2013, sem
birtur var í gær, neikvæður
um 125,3 milljónir og um 97
milljónir árið 2012. -þá
Vegagerð í
Svínadal
HVALFJ.SV: Vegagerðin hef
ur boðið út breikkun og end
urbætur Svínadalsvegar frá
Leirársveitarvegi að Kambs
hóli, um átta kílómetra vegar
kafla. Í auglýsingu um útboðið
segir m.a. að uppnýtingu efn
is úr námum skuli lokið fyrir
20. júní og útlögn neðri lags
klæðningar fyrir 1. september
í haust. Verkinu skal að fullu
lokið fyrir 1. júlí 2015.
-þá
Þeir sem fylgjast með héraðsfrétta
miðlum eru almennt virkari í samfé
laginu heldur en þeir sem gera það
ekki. Staðarmiðlar feta oft vandrat
aðan stíg á milli þess að vera sam
félagssmiðir og varðhundar. Þetta
kom fram í máli Birgis Guðmunds
sonar, dósents við félagsvísinda
deild Háskólans á Akureyri á mál
þingi sem miðlarnir Austurfrétt og
Austurglugginn stóðu nýverið fyr
ir á Egilsstöðum þar sem fjallað var
um stöðu héraðsfréttamiðla hér á
landi. Með góðfúslegu leyfi Aust
urfréttar er hér birt frásögn af er
indi Birgis:
Á málþinginu kynnti Birgir til
sögunnar hugtakið samfélagssam
heldni sem notað er til að reyna að
mæla þátttöku fólks í sínu samfé
laginu. Samfélagið getur bæði af
markast af land og félagsfræðileg
um þáttum. Í erlendum rannsókn
um hefur verið sýnt fram á samband
samfélagssamheldni, lýðræðislegr
ar þátttöku og þess að fylgjast með
staðbundnum miðlum. „Allir þessir
þættir krefjast þátttöku borgaranna
í umræðu og þekkingu. Í gegnum
miðilinn fer fram umræða og sam
eiginleg niðurstaða.“ Sambærilegar
niðurstöður komu fram í rannsókn
sem gerð var á Akureyri árið 2010.
Þar komu fram sterkar vísbending
ar um að þeir sem eru áskrifend
ur að staðarblöðum voru ólíklegri
til að vilja flytja burtu, áhugasam
ari um það sem var að gerast, til
búnir að vinna með öðrum og upp
lifðu sig frekar sem hluta af samfé
laginu.
Svæðismiðlarnir þurfa þó oft að
feta þröngan stíg. Þeim er bæði
ætlað að vera varðhundurinn sem
er gagnrýninn á vald og valdhafa
og geltir þegar þeir brjóta af sér og
samfélagssmiðir sem spegla samfé
lagið og eiga þátt í að byggja upp
sjálfsmynd þess. Birgir segir að
samfélagssmiðurinn leiki gjarnan
stærra hlutverk í minni samfélög
um og á svæðisbundnum miðlum.
Þar kunni að vera „erfiðara fyrir
varðhundinn að gelta.“ Landsmiðl
arnir sinni hins vegar frekar varð
hundshlutverkinu.
„Fjölmiðlar leita að jafnvægi
og reyna að sinna hvoru tveggja.
Það skiptir máli að einhver fjalli
um leikverkið og kökubasarinn og
stundum er of lítið gert úr hlutverki
samfélagssmiðsins,“ sagði Birgir.
Hann sagði hið samfélagslega sam
tal víða brothætt því hefðbundn
ir staðarmiðlar séu víða í rekstr
arþrengingum. Illa sé komið fyrir
byggðum þegar sjónvarpsdagskrár
taki við hlutverki samfélagsspegla
eins og gerst hefur.
Birgir hafnar því að hlutverk
svæðismiðlanna hverfi með tilkomu
samfélagsmiðla á borð við Facebo
ok og Twitter. „Hefðbundnir miðl
ar eru enn mikilvægasta fóðrið fyr
ir samfélagsmiðlana. Þaðan kemur
efnið sem deilt er.“
Birgir segir stafrænu byltingunni
fylgja sú hætta að menn einangri
sig inni í bergmálshelli og heyri að
eins það sem þeir vilji heyra. Við
það minnki samtalið milli þeirra
sem hafi ólíkar skoðanir. „Hlutverk
samfélagssmiðsins, þótt það þyki
ekki fínt, er ef vil vill mikilvæg
ara nú en nokkru sinni fyrr á sama
tíma og varðhundshlutverkið held
ur sínu.“
mm/ Austurfrétt.
Hluti þeirra héraðsmiðla sem enn eru gefnir út á landsbyggðinni.
Hlutverk samfélagssmiðsins
mögulega aldrei mikilvægara
Birgir Guðmundsson. Ljósm. Austurfrétt.