Skessuhorn - 15.04.2014, Side 17
17MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 2014
S m á a u g l ý s i n g a r - a t b u r ð a d a g a t a l - f r é t t i r
www.skessuhorn.is
Skátafélagið Örninn stóð fyrir
heljarmiklu fjöri í íþróttahúsinu í
Grundarfirði föstudaginn 11. apríl
síðastliðinn. Þá var öllum krökk
um í eldri bekkjum grunnskólans
boðið í íþróttahúsið til að leika sér.
Þar voru tveir stórir hoppukast
alar ásamt öðrum skemmtilegum
íþróttaáhöldum. Boðið var upp á
candy floss og fleira fyrir krakkana.
Svo var hamast og leikið sér inn í
nóttina og var mikið fjör í krökkun
um, enda allir nýkomnir í páskafrí.
Þegar fréttaritari innti séra Aðal
stein Þorvaldsson eftir tilefninu,
þá var lítið um svör. „Af því bara,“
sagði presturinn og brosti. Það
mátti ekki á milli sjá hver skemmti
sér betur, krakkarnir eða séra Aðal
steinn sem lék á alls oddi. tfk
Komu saman og léku
sér í boði skátanna
„Þegar uppbyggingin byrjaði víða
til sveita á sjöunda áratugnum réð
umst við í það þrír; ég, frændi minn
Guðmundur Guðjónsson og Ólaf
ur Halldórsson að kaupa steypu
hrærivél. Hægt var að moka í hana
steypuefninu með dráttarvél. Þessi
vél var á gúmmíhjólum og ég fór
með hana víða um sýsluna. Með
al annars steyptum við stóra sal
inn í félagsheimilinu Dalabúð í
Búðardal með henni. Það var mik
ið að gera í steypuvinnu með vél
ina í mörg ár og það tók ekki lang
an tíma að vinna fyrir kaupverðinu
á henni.“
Úr póstinum í bankann
Jóhann segist rétt hafa verið hætt
ur í póstinum þegar Friðjón Þórð
arson þáverandi sýslumaður Dala
manna og formaður bankaráðs
Búnaðarbankans gerði boð eft
ir honum. „Ég taldi mig ekki hafa
keyrt það hratt með póstinn að
það væri út af kæru vegna þess sem
hann vildi hitta mig. Það kom líka á
daginn að erindið var annað. Hann
var að bjóða mér gjaldkerastöðu í
útibúi Búnaðarbankans í Búðar
dal sem þá var verið að stofna. Ég
vann síðan þar við afgreiðslustörf
lengi eða alveg þangað til ég náði
95 ára reglunni svokölluðu, ein
mitt á 67 ára afmælinu. Við höfum
svo unað okkur ágætlega hérna út
í Ási í töluverðan tíma,“ segir Jó
hann. Fjölskyldan fluttist frá Saur
bænum árið 1965 í Búðardal og bjó
þar til ársins 1968 er þau Jóhann og
Jarþrúður flutti í Ás og hafa búið
þar síðan. „Þar fengum við okkur
kýr og kindur, konan var bóndinn.
Hún ásamt börnunum sáu um búið
en ég hjálpaði til. Síðan hættum við
þessum rekstri um 1990.”
Voru 14 tíma í einni
ferðinni
Það voru svo orðnir breyttir tímar
þegar Kristján Sæmundsson á
NeðriBrunná, bróðir Jóhanns,
tók við starfi landspósts árið 1981.
Hann sinnti starfinu í rúm 30 ár,
frá 1981 til 2012, lengst af í fé
lagi við Guðbjörn Guðmundsson í
Magnús skógum. Þeir skiptust yfirle
itt á sitt hvora vikuna á þessu tíma
bili og sinntu lengst af sama svæð
inu og Jóhann hafði gert áður. Á
þessu tímabili voru póstferðirn
ar farnar þrisvar í viku og vegirnir
mun betri en áður. Skólabílar voru
líka farnir að fara um svæðið og
þegar leið á tímabilið var farið að
moka vegna skólakeyrslunnar. Það
var bara einn vetur sem Kristján
sagði að hafi verið virkilega erfiður
í póstflutningunum. Það var snjóa
veturinn mikla 1995. „Þann vetur
var ekki mokað nema með höppum
og glöppum enda hríðarveður dag
eftir dag. Það féll þó aldrei niður
ferð hjá okkur. Í einni ferðinni vor
um við 14 tíma frá Laugum í Sæ
lingsdal, það var lengsti túrinn sem
ég man eftir. Þær voru margar erf
iðar ferðirnar þennan vetur en síð
an getur varla heitið að hafi komið
snjór,“ segir Kristján. Hann sagð
ist hafa verið beðinn að halda áfram
að keyra póstinum í nokkur ár eftir
að hann varð fullgildur ellilífeyris
þegi. „Það má segja að það hafi þá
verið komið fram yfir öll velsæm
ismörk hvað ég var lengi í þessu,“
sagði Kristján gamansamur að end
ingu. þá
Páskagleðin
Móðir/faðir hvar er barnið þitt?
Hugleiðing í aðdraganda páskanna
Íslenskar kannanir sýna að börn og unglingar/ungmenni vilja
verja meiri tíma með foreldrum sínum en þau gera. Sam-
verustundir fjölskyldna eru dýrmætar og hvetja unga fólkið til
heilbrigðara lífernis.
Verum samstíga um að gera páskana að hátíð þar sem
fjölskyldan skemmtir sér saman. Með því sjáum við til þess
að börnin okkar eigi góðar og jákvæðar minningar. Mikilvægt
er að virða útivistarreglur, standa saman gegn eftirlitslausum
unglingapartýum og vera í góðu sambandi við foreldra an-
narra barna og ungmenna.
Þá er gott að hafa í huga niðurstöður rannsókna sem sýna
að með því að foreldrar útvegi börnum sínum áfengi þá
eykst áfengisneysla þeirra, auk þess sem það getur ýtt undir
að vinir barnanna drekki einnig áfengi.
Með samstilltu átaki geta foreldrar gert páskana að
frábærri fjölskylduhátíð.
Gleðilega páska!
Bestu kveðjur frá Samstarfshópi um forvarnir
í Borgarbyggð í samstarfi við SAMAN hópinn.
Allt of margir unglingar hafa lent í
aðstæðum sem þeir réðu ekki við
t.d. í sumarbústaðnum!
í passíuviku
Páskadagskrá
1. apríl.
Voropnun á Þórisstöðum og vatnaveiði hefst. Dagleg
veiði milli kl. 07.00 og 23.30. Afgreiðsla veiðileyfa fer
urriða á Þórisstöðum! Nánari upplýsingar í síma: 433
8975. www.thorisstadir.is
11. apríl.
Frumsýning óperunnar:
á midi.is. Önnur sýning laugardaginn 12. apríl.
12. apríl.
13. apríl.
www.bjarteyjarsandur.is
16. apríl.
fer fram á Bjarteyjarsandi og hefst kl. 20.15. Að lokinni
sýningunni munu systurnar Aldís og Stefanía
sælkerasússí. Lifandi tónlist á
borðapantanir í síma: 433 8831 /891 6626 eða á
arnheidur@bjarteyjarsandur.is.
17. apríl.
18. apríl.
Passíuganga frá Leirárkirkju og að Hallgrímskirkju í
18. apríl.
19. apríl.
Páskaeggjaleit á Þórisstöðum. Í skóginum við Þórisstaði
www.thorisstadir.is
19. apríl.
og 17
19. apríl.
20. apríl.
20. apríl.
(að páskadegi undanskildum) milli kl. 13 og
19. Sjón er sögu ríkari!
páska.
Velkomin í Hvalörð
www.visithvalordur.is
Sælkerasússí og verðlaunastuttmynd
Miðvikudaginn 16. apríl verður
hin margverðlaunaða stuttmynd
Hvalfjörður eftir Guðmund
Arnar Guðmundsson sýnd á tjaldi í
Hlöðunni á Bjarteyjarsandi.
Sýningin hefst kl. 20.15. Að henni lokinni munu
systurnar Aldís og Stefanía Róbertsdætur reiða
fram sælkerasússí eins og þeim einum er lagið.
Fram eftir kvöldi verður svo leikin lifandi tónlist
fyrir gesti. Nánari upplýsingar og borðapantanir
í síma: 433 8831 /891 6626 eða á netfangið:
arnheidur@bjarteyjarsandur.is
19. apríl.
Himinn, jörð og haf – Opnuð Myndlistar-
sýning á Bjarteyjarsandi. Jóna Guðrún
Ólafsdóttir sýnir olíumálverk þar sem
Hvalfjörðurinn er myndefnið og rauði þráðurinn
er samspil lands og sjávar. Myndefnið kallar oft
fram tilfinningar sem gjarnan fá að fljóta með
penslinum á strigann. Sýningin verður opin milli
klukkan 14 og 17.
Páskalambið beint frá býli á Bjarteyjar-
sandi. www.bjarteyjarsandur.is
Ferstikla:
Hamborgaratilboð, pizzuveisla, kaffihlaðborð og
páskalamb. Opið 10-18 alla daga.
Nánar á: www.ferstikla.is.
Föstudagurinn langi:
Passíuganga frá Leirárkirkju að
Hallgrímskirkju í Saurbæ. Gangan hefst
kl. 9 og tekur um 3,5 klst. Lestur Passíusálma í
Hallgrímskirkju í Saurbæ. Hefst kl. 13.00.
19. apríl.
Páskaeggjaleit á Þórisstöðum. Í skóginum
við Þórisstaði verða falin 200 páskaegg og hefst
leitin kl. 13.00 við Súpuskálann.
Einnig verður hægt að skoða dýrin
og gæða sér á ljúffengri súpu í
Súpuskálanum. www.thorisstadir.is
Hernámssetur að Hlöðum –
opið alla daga í dymbilviku og um páska
(að páskadegi undanskildum) milli kl. 13 og 19.
Sjón er sögu ríkari! www.hladir.is
Hótel Glymur – opið alla daga í
dymbilviku og um páska.
Rómantískt sveitahótel með spennandi
tilboðum og úrvalskaffi og meðlæti.
www.hotelglymur.is
Sundlaugin að Hlöðum opin í dymbilviku og
um páska (að páskadegi undanskildum) milli
kl. 13 og 19. Sund, sauna og slökun í heitum
potti. Gott fyrir kroppinn!