Skessuhorn - 15.04.2014, Blaðsíða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 2014
Á föstudaginn langa verður stór
viðburður í lífi Guðnýjar Baldvins
dóttur í Borgarnesi, eða Guðnýjar
frá Grenjum eins og hún er gjarn
an kölluð. Þá fagnar Guðný aldar
afmæli sínu en hún fæddist 18. apríl
1914. Foreldrar hennar hétu Bald
vin Jónsson (18741964) og Ben
ónýja Þiðriksdóttir (18721969) og
átti Guðný sjö systkin, bræðurna
Eirík, Guðjón, Magnús og Þið
rik og systurnar Helgu, Þuríði og
Ólöfu. Öll eru þau látin. Guðný ber
aldurinn afar vel á aldarafmælinu,
er við góða heilsu og býr enn í eigin
húsnæði við Böðvarsgötu í Borgar
nesi. Þar hefur hún búið undanfar
in 30 ár. Guðný sækir félagsskap og
ýmsa þjónustu af og til í Brákarhlíð
en þangað reynir hún að fara fót
gangandi að minnsta kosti tvisvar í
viku. Þessu hafa ófáir Borgnesingar
tekið eftir á liðnum árum og hafa
margir fyllst aðdáun á kraftinum í
henni. Heimsóknirnar í Brákarhlíð
eru þýðingarmiklar fyrir hana, enda
sé eitt meginmarkmið þeirra að lesa
upp úr Bændablaðinu fyrir Friðjón
Helgason frænda sinn frá Helga
stöðum í Hítardal.
Unga fólkið mætti
hægja á sér
Í jólablaði Skessuhorns 2011 birt
ist ítarlegt viðtal við Guðnýju þar
sem hún lýsti aðstæðum sínum í
uppeldinu og kjörum fólks á fyrstu
áratugum síðustu aldar. Margt afar
athyglisvert kemur þar fram. Nú í
vikunni fékk síðan Guðný að nýju
heimsókn blaðamanns Skessu
horns og spurði hana nú út í heils
una og sitthvað fleira á þessum
merku tímamótum. Guðný svar
aði því til að hún pældi ekki mikið
í tímamótunum sem slíkum. Fyrir
henni væri þetta eins og hver ann
ar afmælisdagur. Hinu leyndu hún
þó ekki, að langlífið væri sennilega
að stórum hluta góðri heilsu að
þakka. Mundi hún varla eftir því að
hafa orðið veik, einungis 23 daga
af völdum mislinga fyrir mörgum
árum. Hún sagði heilsulánið vera
ákaflega þakkarvert og væri dýr
mætt fyrir sig að geta enn gengið
um og hreyft sig. Gangan hafi allt
af verið henni mikilvæg heilsubót.
Um samtímann segir Guðný að
tímarnir séu vitaskuld breyttir frá
því að hún var ung kona á Mýrum.
Allt sé orðið einhvern veginn hrað
ara og finnst henni margir vera að
flýta sér meira en góðu hófi gegnir.
Unga fólkið tali til dæmis hraðar og
meira en það gerði áður fyrr. Það
mætti alveg hægja ögn á sér, ekki
síst til að tala betri íslensku. Þetta
sé þó ekki algilt, en er algengt að
hennar mati.
Glöð að búa undir
eigin þaki
Spurð um áhugamál sín kveðst
Guðný stundum grípa í prjóna
en einnig reyni hún að lesa sér til
ánægju. Þá horfir hún af og til á
sjónvarpið og segir Útsvarið vera
einn sinn uppáhalds þátt. Útvarp
hlustar hún stundum á en spurð um
Internetið segir hún að það svið sé
henni afar framandi og ókunnugt.
Reglulega fær hún heimsóknir frá
ættingjum og þá lítur ein manneskja
við í hverri viku til að aðstoða hana
með þrif. Allt þetta sé henni mikil
vægt og kveðst hún glöð yfir því að
geta búið undir eigin þaki á Böðv
arsgötunni með þessum hætti.
Nægjusöm manneskja
Guðný kveðst vera sveitamanneskja
þegar hún er spurð hvernig hún lýsi
sjálfri sér. Minnir blaðamann á að
hún væri fædd og uppalinn í sveit
á Mýrum og hafi búið þar stærstan
hluta ævi sinnar, að Grenjum í 32
ár í heimahúsum og á Leirulæk sem
ráðskona í 38 ár. Hún segist vera
nægjusöm kona og hafi aldrei verið
mikið fyrir það að eyða í óþarfa eða
að öfundast út í það sem aðrir eiga.
Þetta séu góðar dyggðir sem hafi
reynst henni gott veganesti í lífinu.
Hún hefur ætíð viljað borga skatta
sínar og skyldur og rifjaði upp að
nýverið var hún minnt á að þegar
hún yrði 100 ára þyrfti hún ekki að
greiða lengur fyrir akstur hjá ferða
þjónustu eldri borgara hjá Borg
arbyggð. Þetta áleit hún fjarstæðu
enda sé hún engin ölmusumann
eskja. Guðný ætlar því ótrauð að
greiða sín fargjöld áfram þrátt fyrir
að vera búinn að öðlast fríðindi sem
fylgja því að hafa komast á aðra öld
ina í aldri.
Afmælisveisla
á föstudaginn
Afmælisveisla er framundan hjá
Guðnýju sem hún lítur með eft
irvæntingu til. Von væri á gest
um víða að, meira að segja utan úr
heimi. Veislan fer fram í Hjálm
akletti í Borgarnesi frá klukkan 15
18 á föstudaginn og ætlar Guðný að
bjóða öllum vinum og velunnurum
til veislunnar. Hún afþakkar allar
afmælisgjafir en bendir gestum á að
söfnunarbaukur verður á staðnum
til styrktar MND félaginu.
hlh
Þessa dagana skjóta fjölmargir
ferðaþjónustuaðilar upp kollinum
með aukna eða nýja þjónustu. Enda
hefur umræðan um vaxandi
fjölda ferðamanna varla farið
fram hjá neinum. Einn þeirra
sem bæst hefur í hóp ferða
þjónustuaðila á Vesturlandi
er rithöfundurinn og borg
arlistarmaðurinn Þorgrímur
Þráinsson. Í sumar mun hann
bjóða erlendum ferðamönn
um upp á ferðir um Snæfells
nesið. Þjónustuna kallar hann
„Morning 2 midnight“ eða
morgunn til miðnættis en um
er að ræða dagsferðir. „Þegar
ég var að vinna fyrir hið opin
bera tók ég oft erlenda gesti
með mér í prívat túra á Snæ
fellsnes. Þar sem ég er heima
maður, frá Ólafsvík og alinn
upp í Staðarsveit, þá hent
ar það mjög vel að fara með fólk
á mínar heimaslóðir þar sem ég
þekki mig vel. Ég verð bara á mín
um jeppa og fer á ólíka og fámenna
staði og óvæntar uppákomur gætu
dúkkað upp,“ segir Þorgrímur í
samtali við Skessuhorn. Hann bæt
ir því við að gestirnir hafi val um
hvaða leið verði farin og að hann
sé opinn fyrir öllu. „Þetta eru alveg
prívat ferðir, sama verð óháð fjölda
farþega. Ég er ekki að fara að safna
saman alls konar fólki sem ekkert
þekkist, heldur er þetta bara ég og
jeppinn og svo er pláss fyrir fjóra
fullorðna og tvö börn. Sem heima
maður þekki ég enn flesta á svæð
inu og veit að mér verður vel tek
ið,“ segir Þorgrímur.
Einlægt og afslappað
En hvað kemur til að rithöfundur
inn fer af stað með slíka hugmynd?
„Ég hef gælt við það í nokkur ár að
fara af stað með persónulega þjón
ustu. Ég keypti meira að segja lénið
,,IcelandicSecrets“ fyrir nokkrum
árum og mig hefur langað að gera
eitthvað meira tengt þessu. Mig
langar að bjóða útlendingum heim
að borða, gefa þeim sem hafa áhuga
á bókmenntum tækifæri til að
ræða við íslenska rithöfunda,
fara með þá í golfkennslu og
svo framvegis. Ég tel að pers
ónuleg upplifun og þjónusta
sé það sem skiptir flesta mestu
máli. Í sumar verð ég bara
þessi „local guy,“ einlægt, af
slappað. Það er mikill kost
ur að vera heimamaður, með
ólíka reynslu sem borgarlista
maður, rithöfundur og lands
liðsmaður í knattspyrnu. Ef
ég sýni fjaðrirnar, geta skapast
skemmtilegar umræður.“
Þorgrímur verður þó ekki á
ferðinni á jeppanum fyrr en í
sumar. „Ég get tæplega byrj
að fyrr en í júní, er bundinn í
vinnu en auðvitað renni ég al
veg blint í sjóinn með þetta, er að
allega að skemmta sjálfum mér. Ef
ég get skemmt öðrum í leiðinni, er
það frábært,“ segir Þorgrímur sem
vinnur nú að nýrri skáldsögu sem
kemur út í haust. „Það er saga sem
heitir Hjálp og er fyrir eldri ung
linga. Þetta er hröð spennusaga og
kalla krakkarnir stanslaust á hjálp í
bókinni,“ segir rithöfundurinn og
ferðaþjónustuaðilinn Þorgrímur
Þráinsson.
grþ
Þjóðræknisfélagið í samstarfi við
utanríkisráðuneytið gengst fyr
ir tveimur kynningarfundum hér
á Vesturlandi á næstunni. Fjallað
verður um Vesturfarana í léttu
spjalli. Fyrri fundurinn verður í
Borgarnesi fimmtudaginn 24. apríl
en sá síðari á Reykhólum laugar
daginn 3. maí.
Fyrri fundurinn verður á Sögu
lofti Landnámssetursins í Borgar
nesi á sumardaginn fyrsta, 24. apríl
klukkan 15:00. Rætt verður um að
rækta tengsl við fólk af íslenskum
ættum í Vesturheimi. Samkoman
heitir „Vinir handan hafs, létt spjall
um VesturÍslendinga.“ Þar mun
Böðvar Guðmundsson rithöfund
ur skyggnast bakvið leiktjöld bóka
sinna sem fjalla um þessi tengsl.
Þá mun Atli Ásmundsson fyrrver
andi aðalræðismaður segja sögur af
starfinu vestra. Jónína Erna Arn
ardóttir tónlistarkennari stjórnar
samkomunni. Loks mun Svavar
Gestsson fyrrverandi sendiherra
gera grein fyrir starfi Þjóðræknis
félagsins. Fundurinn hefst klukkan
þrjú og það eru allir velkomnir.
Síðari fundurinn á Vesturlandi
fer fram laugardaginn 3. maí klukk
an tvö, í barnaskólanum á Reykhól
um. Þar verður Karl Kristjánsson
bóndi á Kambi fundarstjóri. Atli
Ásmundsson fyrrum ræðismaður
og þar áður meðal annars kennari
á Reykhólum segir sögur af starf
inu vestra. Guðrún Ágústsdóttir
mun því næst fjalla um efnið „Vest
urfaraskrá; brottfluttir úr Dalasýslu
og AusturBarðastrandarsýslu.
Hverjir, hvert og hvernig?“ Svavar
Gestsson mun segja frá Þjóðrækn
isfélaginu og starfsemi þess. Að
lokum verða ábendingar og fyrir
spurnir. Líkt og á fundinum í Borg
arnesi eru allir velkomnir.
-fréttatilkynning
Vinir handan hafs er
heiti funda í Borgarnesi og
á Reykhólum
Á kortinu sést aðallandnámssvæði
Íslendinga í Vesturheimi. Þarna eru
vötnin tvö Vinnipegvatn og Mani-
tobavatn. Á strönd Vinnipegvatns var
Nýja-Íslands. Á kortinu má sjá íslensk
örnefni sem setja enn svip sinn á þetta
svæði í Kanada.
Rithöfundur og knattspyrnukappi
býður upp á ferðir um Snæfellsnes
Þorgrímur býður upp á persónulegar ferðir um Snæ-
fellsnesið í sumar, enda þekkir hann vel til á svæðinu.
Mögulega verður boðið upp á ferðir í fjós.
Þessi mynd var tekin af Guðnýju og systrum hennar þegar þær komu saman í Hægindi. Það merkilega við þessa mynd er að
þetta var í eina skiptið sem þær hittust allar systurnar í einu á lífsleiðinni. Frá vinstri: Helga, Þuríður, Guðný og Ólöf Baldvins-
dætur. Ljósm. Sólrún Konráðsdóttir.
Er nægjusöm sveitamanneskja
Guðný frá Grenjum verður hundrað ára á föstudaginn
Guðný Baldvinsdóttir í betri stofunni heima á Böðvarsgötunni.