Skessuhorn - 15.04.2014, Blaðsíða 21
21MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 2014
Borgarbraut 74 • 310 Borgarnesi • 412-5300 • limtrevirnet.is
-VOTTUÐ FRAMLEIÐSLA
Smiðjuvegi 7 - 200 Kópavogi - Sími: 54 54 300 www.ispan.is - ispan@ispan.is
Allt í gleri,
bæði úti
og inni
SPEGLAR • SANDBLÁSTUR • SLÍPUN
Flokksstjórastörf við vinnuskóla
Borgarbyggðar 2014
Vinnuskóli Borgarbyggðar óskar að ráða flokksstjóra fyrir sumarið 2014.
Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri, hafa gott lag á börnum og unglingum og vera þeim góð
fyrirmynd í starfi. Í starfinu felst m.a. að leiðbeina og kenna öguð og rétt vinnubrögð við fjölbreytt störf. Vin-
nutímabilið er 8 vikur eða frá 2. júní til og með 25. júlí n.k. Laun eru samkvæmt kjarasamningum launarnefn-
dar sveitafélaga.
Vinnustaðurinn er tóbakslaus.
Umsóknareyðublöð fást í Ráðhúsi Borgarbyggðar Borgarbraut 14, Borgarnesi og á skrifstofu sveitarfélagsins
að Litla-Hvammi í Reykholti en einnig má nálgast umsóknareyðublöðin á heimasíðu sveitarfélagsins www.
borgarbyggd.is
Umsóknum má skila í Ráðhúsinu, Borgarbraut 14, Borgarnesi eða í Litla-Hvammi í Reykholti.
Nánari upplýsingar gefa Sigurþór Kristjánsson verkstjóri vinnuskólans í síma 892-7970 eða á netfangið sissi@
borgarbyggd.is og Jökull Helgason forstöðumaður umhverfis- og skipulagssviðs í síma 433-7100 eða á netfag-
nið jokull@borgarbyggd.is
Umsóknarfrestur er til föstudagsins 2. maí n.k.
Jökull Helgason
forstöðumaður umhverfis- og skipulagssviðs
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
0
1
3
„Fjármálahreysti er heit
ið á nýjum og spennandi
spurningaleik sem Lands
bankinn hefur þróað með
það að markmiði að efla
fjármálalæsi ungmenna.
Leikurinn er öllum opinn á
vefslóðinni fjarmalahreysti.is
og sérstaklega hannaður
fyrir snjalltæki. Um er að
ræða nýstárlega leið til að
efla fræðslu um fjármál,“
segir í tilkynningu frá
Landsbankanum. Efnt er
til sérstakrar keppni í Fjár
málahreysti milli nemenda
í efstu bekkjum grunnskóla
á tímabilinu 8. apríl – 8.
maí. „Stigahæstu nemend
urnir fá vegleg verðlaun
sem afhent verða í beinni
útsendingu í úrslitaþætti
Skólahreysti á RÚV föstu
daginn 16. maí. Einnig
fær sá skóli þar sem hlut
fallslega flestir nemendur
spreyta sig á leiknum við
urkenningu.“
Í Fjármálahreysti leysa
þátttakendur 64 verkefni af
mjög fjölbreyttu tagi. Verk
efnin eru á fjórum ólíkum
efnissviðum, snerta fjóra
þekkingarflokka og eru sett
fram á jafnmörgum þyngd
arstigum. Efnissviðin fjög
ur eru: Ég, Heimilið, Nám
og atvinna og Samfélagið
og tekur þessi flokkun mið
af markmiðum OECD um
fjármálafræðslu. Leikurinn
var hannaður og þróaður
af starfsfólki Landsbank
ans í samvinnu við Ómar
Örn Magnússon aðstoð
arskólastjóra í Hagaskóla
sem hefur mikla reynslu
af því að semja kennslu
efni um fjármál fyrir ung
linga. Fjármálahreysti tek
ur við hlutverki Raunveru
leiksins sem Landsbankinn
hefur staðið að síðustu tíu
ár. Sá leikur hlaut á sínum
tíma verðlaun Norrænu
ráðherranefndarinnar sem
besta námsefnið í fjármála
og neytendafræðslu. Ómar
Örn var einnig aðalhöf
undur Raunveruleiksins.
mm
Fjármálahreysti er nýr leikur
á sviði fjármálalæsis
Sýning
Á sumardaginn fyrsta 24. apríl n.k. verður
sýndur afrakstur listnámskeiða hjá
Símenntunarmiðstöðinni á Vesturlandi.
Sýningin verður í húsnæði miðstöðvarinnar að
Bjarnarbraut 8 í Borgarnesi og verður
opin þann dag frá kl. 14-17.
Allir velkomnir!
Merki fyrir
List án landamæra.
U T A N K J Ö R F U N D A R -
A T K V Æ Ð A G R E I Ð S L A
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar í umdæmi Sýslumannsins á
Akranesi vegna sveitarstjórnarkosninga sem fram fara
laugardaginn 31. maí 2014, er hafin.
Atkvæðagreiðslan fer fram á skrifstofu embættisins,
Stillholti 16-18, Akranesi, alla virka daga frá 9.30-12.00 og
12.30-15.30. Hægt er að kjósa á öðrum tíma samkvæmt
nánara samkomulagi við kjörstjóra. Atkvæðagreiðslu
utan kjörfundar líkur kl.12.00 á kjördag.
Sími kjörstjóra utan skrifstofutíma er 864 0711.
Sýslumaðurinn á Akranesi,
5. apríl 2014
Halla Bergþóra Björnsdóttir
S
ke
ss
u
h
o
rn
2
01
4
Ágætu félagar!
Frestur til að sækja um sumarbústaði rennur út
miðvikudaginn 23. apríl.
Við stefnum að því að klára úthlutun fyrir lok apríl,
þá verða sendir út greiðsluseðlar sem greiða
þarf fyrir 12. maí. Eftir það fer fram önnur úthlutun.
Eftir 23. maí gildir reglan fyrstur kemur fyrstur fær ef
eitthvað verður þá enn laust.
Orlofssjóður Stéttarfélags Vesturlands