Skessuhorn - 15.04.2014, Side 30
30 MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 2014
Hvað ætlar þú að gera
um páskana?
Spurning
vikunnar
Ingibjörg Unnur Pétursdóttir:
Ég ætla bara að vera heima
hjá mér um páskana og sjá um
ferðaþjónustuna og aðeins að
vinna hér í Olís.
Guðjón Sólmundarson:
Ætli maður slaki ekki á og noti
góða veðrið ef það verður.
Bryndís Bragadóttir:
Vera heima við og taka því ró
lega.
Hlédís Sveinsdóttir:
Ég ætla að kenna dóttur minni
á skíði. Ég ætla að klára það, ég
byrjaði í fyrra.
Runólfur Þór Sigurðsson:
Ég ætla að vera uppi í bústað í
Úthlíð.
(Spurt á Akranesi)
Hundraðasta og fjórða Íslands
glíman fór fram í íþróttahúsi Kenn
araháskólans laugardaginn 5. apríl.
Í glímunni um Freyjumenið sigr
aði Sólveig Rós Jóhannsdóttir úr
Glímufélagi Dalamanna og hlaut
sæmdarheitið glímudrottning Ís
lands í þriðja sinn, en hún hlaut
sæmdarheitið síðast árið 2005. Í
glímunni um Grettisbeltið sigraði
Pétur Eyþórsson Glímufélaginu
Ármanni og hlaut þar með sæmd
arheitið glímukóngur Íslands í ní
unda sinn. Fjölmargir áhorfend
ur urðu vitni að keppninni sem
var spennandi frá upphafi til enda.
Heiðursgestur á mótinu var Lárus
Blöndal forseti ÍSÍ og sá hann um
að afhenda keppendum verðlaun í
mótslok.
Grunnskólamót Glímusam
bandsins fór fram sama dag í
íþróttahúsi Melaskóla. Krakkarn
ir skemmtu sér vel og voru ánægð
ir í mótslok. Glímt var á tveimur
völlum samtímis og gekk keppnin
vel fyrir sig. Frá Glímufélagi Dala
manna mættu þrír keppendur og
varð Sigríður Ósk Jónsdóttir í 5.
sæti í 5. bekk, Páll Andri Sveins
son í 2. sæti í 9. bekk og Sindri Geir
Sigurðsson í 5. sæti í 10. bekk.
þá/ Ljósm. asg.
Sjötugasta ársþing Íþróttabanda
lags Akraness fór fram síðastlið
inn fimmtudag. Þingið var nokk
uð vel sótt en alls mættu 32 full
trúar frá 16 aðildarfélögum ÍA. Auk
þess voru á þinginu fjöldi boðsgeta
frá Akraneskaupstað og þeim fram
boðum sem bjóða fram í komandi
sveitarstjórnarkosningum. Í ræðu
sinni fór Sturlaugur Sturlaugsson
formaður ÍA yfir það helsta í starfi
íþróttahreyfingarinnar á Akranesi
á liðnu ári. Hann minntist Ólafs
Rafnssonar forseta ÍSÍ sem lést á
síðasta ári. Þar sem Sturlaugur var
að láta af formennsku ÍA, eftir að
hafa setið í formannsstóli frá 1999,
notaði hann tækifærið og fór yfir
það sem honum finnst mikilvægast
í starfi íþróttahreyfingarinnar.
Lögð var fram ársskýrsla ÍA fyrir
árið 2013 og farið yfir ársreikninga
íþróttabandalagsins. Heildarvelta
íþróttahreyfingarinnar á Akranesi
árið 2013 var rúmlega 342 millj
ónir króna og reksturinn í ágæt
is jafnvægi. Helga Steinunn Guð
mundsdóttir varaforseti ÍSÍ ávarp
aði þingið. Hrósaði hún ÍA fyrir
mjög öflugt starf og ábyrgan rekst
ur. Minntist hún hversu kært Ólafi
Rafnssyni þótti að koma á Skagann
og var hann þar vel kunnugur. Ósk
aði hún ÍA alls hins besta í framtíð
inni.
Verulegar breytingar urðu á
framkvæmdastjórn ÍA þar sem stór
hluti stjórnarmanna hafði ákveðið
að stíga til hliðar og nokkrir eftir
áratuga setu í framkvæmdastjórn
inni eins og t.d. Ellert Ingvarsson
og Halldór Fr. Jónsson. Sigurður
Arnar Sigurðsson var kjörinn nýr
formaður ÍA og Helga Sjöfn Jó
hannesdóttir varaformaður. Aðr
ir sem kosnir voru í framkvæmda
stjórn ÍA eru: Sigríður Ragnars
dóttir, Bjarki Jóhannesson og Sig
urður Elvar Þórólfsson. Varamenn
voru kosin þau Steindóra Steins
dóttir og Brynjar Sigurðsson.
Fulltrúar þeirra framboða sem
bjóða fram í komandi sveitarstjórn
arkosningum fluttu stutt ávarp
varðandi þeirra sýn á íþróttamálinn.
Jákvæðni kom fram í þeirra máli
gagnvart íþróttastarfinu og Akra
nesi. Voru frambjóðendur bjartsýn
ir á að rofa færi til í fjármálum bæj
arins þannig að hægt verði að fara
að huga að frekari uppbyggingu
íþróttamannvirkja og viðhalda bet
ur þeim sem fyrir eru. Töluðu um
að brýnt væri að huga að stefnu
mótun til framtíðar í íþróttamálum
og byggja þá á því góða starfi sem
unnið er innan ÍA. Að lokum þakk
aði Sigurður Arnar nýr formaður
ÍA öllum fyrir gott þing, kvaddi frá
farandi stjórnarfólk með rósum og
sleit 70. ársþingi ÍA.
jþþ
Tilkynnt var um úthlutun úr af
reksmannasjóði Ungmennasam
bands Borgarfjarðar, fyrir afrek á
árinu 2013, á stjórnarfundi UMSB
8. apríl síðastliðinn. Auglýst var
eftir umsóknum fyrr á þessu ári og
rann umsóknarfrestur út 1. mars sl.
Til úthlutunar úr sjóðnum að þessu
sinni voru 240.000 krónur. Átta
umsóknir bárust til sjóðsins. All
ir þessir einstaklingar höfðu farið
utan í æfingabúðir eða til keppni og
hlutu allir styrk. Þetta voru: Arnar
Þórsson fyrir dans, Benjamín Karl
Styrmisson fyrir dans, Bjarki Pét
ursson fyrir golf, Bjarni Guðmann
Jónsson fyrir badminton, Birgitta
Björnsdóttir fyrir dans, Daði Freyr
Guðjónsson fyrir dans, Helgi Guð
jónsson fyrir ýmsar íþróttagreinar
og Tinna Kristín Finnbogadóttir
fyrir skák.
Um sjóðinn
Afreksmannasjóður UMSB var
stofnaður á 86. sambandsþingi 13.
mars 2008. Stofnframlag var styrk
ur frá Orkuveitu Reykjavíkur að
upphæð 500.000 krónur. Tekjur af
reksmannasjóðs eru síðan hlutfall
af Lottótekjum UMSB samkvæmt
reglugerð þar um og síðan frjáls
framlög og vaxtatekjur. Í reglum
sjóðsins kemur fram að ekki megi
skerða höfuðstól við úthlutun.
Sjóðurinn er í raun táknræn viður
kenning á dugnaði íþróttafólksins,
en sökum smæðar hans eru upp
hæðirnar ekki háar sem hver hlýt
ur. Nota má allt að 75% af tekjum
sjóðsins árlega til styrkveitinga. Í
stjórn sjóðsins sitja nú Ingimund
ur Ingimundarson, Íris Grönfeld
og Rósa Marinósdóttir og hafa þau
verið í sjóðstjórn frá upphafi. mm
Sigurður Arnar ásamt fráfarandi stjórnarfólki. F.v. Sturlaugur, Ellert, Halldór,
Laufey og Kalli Þórðar.
Sigurður Arnar er nýr formaður ÍA
Styrkþegar eða fulltrúar þeirra. F.v: Tinna, Birgitta, Bjarni, Benjamín, Arnar, Daði
og Guðjón Guðmundsson faðir Helga. Á myndina vantar golfarann Bjarka Péturs-
son sem einnig fékk styrk. Ljósm. UMSB.
Úthlutað úr afreksmannasjóði UMSB
Dalakona glímudrottning Íslands
Sólveig Rós Jóhannsdóttir glímudrottning Íslands.
Glímt á grunnskólamótinu. Glímufólk úr Dölunum tekur við verðlaunum á grunnskólamótinu.
Andri Páll Sveinsson GD, til hægri,
vann til silfurverðlauna í sínum flokki.