Skessuhorn


Skessuhorn - 23.04.2014, Side 1

Skessuhorn - 23.04.2014, Side 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 17. tbl. 17. árg. 23. apríl 2014 - kr. 600 í lausasölu HEFUR SAFNAÐ FYRIR ÖKUTÆKI FYRIR HVERJU LANGAR ÞIG AÐ SAFNA? Allt um sparnað á arionbanki.is/sparnaður ratiopharm Fæst án lyfseðils 25% afsláttur 100% merino ull Góð og hlý heilsársföt fyrir karla og konur Ullarnærföt í útivistina 7.990.- Hópur súlna lét á sér kræla við Langasand á Akranesi á skírdag. Súlurnar voru þar við veiðar en talið er að þær hafi verið að elta torfu af loðnu eða síld sem þar svamlaði í sjó. Eftir því sem best verður vitað eru súlur sjaldséðar við Akranes. Fugl þessi er einna helst þekktur fyrir athyglisverða veiðiaðferð, svokallað súlukast. Þar steypir fuglinn sér lóðrétt niður í sjóinn úr margra metra hæð á miklum hraða. Á meðfylgjandi mynd sem Guðmundur Bjarki Halldórsson ljósmyndari á Akranesi tók má sjá hluta súlnana við Langasand. Sjá má að ein er í miðri stungu. Sjá nánar á bls. 11. Um þessar mundir er að fara af stað í Norðvesturkjördæmi viðamik- ið átaksverkefni til eflingar staf- stengdu námi. Hörður Baldvins- son kennari í FVA og Stóriðjuskól- anum er verkefnisstjóri fyrir átak- inu. Hörður hefur vegna verkefnis- ins gert athugun á fjölda iðnnema á Vesturlandi þessi misserin. Í ljós kom að á sumum svæðum eru ótrú- lega fáir iðnnemar. Þetta er eink- um áberandi á sjávarútvegsvæð- inu Snæfellsnesi. Í Snæfellsbæ eru tveir iðnnemar, einn í Ólafsvík og annar á Hellissandi. Í Grundarfirði er einn iðnnemi og tveir í Stykk- ishólmi. Staðan er betri á öðrum svæðum, en þó ekki góð. Á Akra- nesi eru 18 iðnnemar, 8 í Borgar- nesi og þrír í Búðardal. Hörður segir að lögð verði sérstök áhersla á það núna að fjölga menntuðu fólki í mannvirkjagreinum og véltækni- greinum. Háskólinn á Bifröst ber ábyrgð á verkefninu gagnvart mennta- og menningarmálaráðuneyti en fram- kvæmd þess verður unnin í náinni samvinnu við símenntunarmið- stöðvar og framhaldsskóla í kjör- dæminu. Í kynningu á verkefninu segir m.a. að Norðvesturkjördæmi sé einstaklega auðugt af öflug- um fræðslustofnunum, en þar eru m.a. starfandi þrjár símenntunar- miðstöðvar, fimm framhaldsskólar og þrír háskólar auk háskólasetra. Þrátt fyrir það er menntunarstig í kjördæminu umtalsvert lægra en á landsvísu samkvæmt vinnumark- aðsrannsókn Hagstofu Íslands. Svæðið hefur þó alla burði til að hækka menntunarstigið. Umfjöllun um verkefnið og við- tal við Hörð má lesa á síðu 10 í Skessuhorni í dag. þá Forsvarsmenn félagsins Gests ehf., feðgarnir Óli Jón Gunnars- son og Bergþór Ólason sem jafn- framt eru eigendur Loftorku í Borgarnesi, hafa óskað eftir við- ræðum við sveitarfélagið Borg- arbyggð um möguleg kaup sveit- arfélagsins á eignum við Borg- arbraut 57 og 59. Eignirnar eru í eigu Gests ehf. Óli Jón mætti á fund byggðarráðs vegna þessa sem haldinn var síðastliðinn mið- vikudag. Samþykkt var á fund- inum að fela Páli S Brynjarssyni sveitarstjóra að ganga til viðræðna um möguleg kaup sveitarfélags- ins á eignunum. Páll sagði í sam- tali við Skessuhorn að væntanlega myndi það koma í ljós á næstunni hvort um semst um verð á eignun- um. Páll sagði umrætt svæði mjög mikilvægt sveitarfélaginu, enda er það skipulagt sem miðbæjarsvæði og á áberandi stað í hjarta Borg- arness. Fyrir dyrum stæði að gera deiliskipulag fyrir svæðið. Umræddar eignir keypti Gest- ur ehf. fyrir tæpum tveimur árum en þá var áætlað með tíð og tíma að fá samstarfsaðila til liðs um uppbyggingu á svæðinu. Eng- in starfsemi hefur verið á um- ræddum eignum frá því að starf- semi skemmtistaðarins B57 var hætt, utan þess að Loftorka hef- ur nýtt húsið Borgarbraut 57 sem geymslu. Óli Jón Gunnarsson sagðist í samtali við Skessuhorn ekki geta tjáð sig um væntanlegar viðræður sem sveitarstjóri myndi leiða. Hins vegar væri verkefnis- staðan mjög góð hjá Loftorku um þessar mundir. Þar væru stærstu verkefnin einingasmíði í fangelsi á Hólmsheiði og hótel í Reykja- vík. þá/hlh Borgarbraut 59 og Borgarbraut 57 í Borgarnesi. Vilja selja Borgarbraut 57 og 59 Sárafáir iðnnemar á Snæfellsnesi Það eru helst málmiðnaðarmenn sem vantar á vinnumarkaðinn um þessar mundir. Ljósm. Friðþjófur Helgason.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.