Skessuhorn - 23.04.2014, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2014
Innbrotum fækk-
ar í landinu
LANDIÐ: Í afbrotatíðindum
Ríkislögreglustjóra fyrir mars-
mánuð síðasta eru birtar töl-
ur um afbrot á síðustu fimm
árum. Þar kemur í ljós þegar á
heildina er litið hefur skráðum
innbrotum farið fækkandi síð-
ustu ár. Flest innbrot eiga sér
stað á höfuðborgarsvæðinu en
þegar landsbyggðin er skoð-
uð sérstaklega, má sjá að þró-
un á fjölda innbrota hefur ver-
ið á sömu leið þar. Einnig er í
Afbrotatíðindunum skrá yfir
hegningarlaga- og auðgunar-
brot síðustu 13mánuðina, sem
og hlutfall fíkniefnabrota eftir
svæðum í marsmánuði. Á höf-
uðborgarsvæðinu voru 80%
fíkniefnabrota framin í mars,
10% á Suðurlandi, 5% á Vest-
urlandi og Vestfjörðum, 3% á
Norðurlandi og 2% á Austur-
landi.
–þá
Meðalaldur
kennara heldur
áfram að hækka
LANDIÐ: Meðalaldur starfs-
fólks við kennslu í grunnskólum
hefur farið hækkandi frá árinu
2000. Árið 1998 var meðalaldur
starfsfólks við kennslu 41,7 ár
en var kominn í 46,0 ár haust-
ið 2013. Á þessu tímabili hef-
ur meðalaldur kvenkyns kenn-
ara hækkað meira eða úr 41,2
árum í 46,1 ár. Meðalaldur karl-
kyns kennara hefur hækkað úr
43,2 árum í 45,4 ár. Meðalald-
ur kennara án réttinda er tölu-
vert lægri en réttindakennara
og hefur svo verið á öllu tíma-
bilinu. Haustið 2013 var með-
alaldur kennara með réttindi
46,2 ár en meðalaldur kennara
án réttinda 39,4 ár. Þetta kem-
ur fram í nýjum tölum frá Hag-
stofunni.
–þá
Gistinóttum
fjölgar um 15%
milli ára
LANDIÐ: Seldar gistinætur
voru 4,3 milljónir hér á landi
árið 2013 og fjölgaði um tæp
15% frá fyrra ári. Gistinæt-
ur erlendra gesta voru 79% af
heildarfjölda gistinátta og fjölg-
aði þeim um 17% frá árinu
2012 en gistinóttum Íslendinga
fjölgaði um 8%. Tveir þriðju
allra gistinátta voru á hótelum
og gistiheimilum, 12% á tjald-
svæðum og 22% á öðrum teg-
undum gististaða. Gistinóttum
fjölgaði í öllum landshlutum á
milli ára nema á Vestfjörðum.
Mikil aukning hefur orðið á
seldum gistinóttum undanfarin
ár. Á síðastliðnum fimm árum
hefur heildarfjöldi gistinátta
aukist um 1,3 milljónir eða um
42,5%. Framboð gistirýmis
hefur ekki aðeins aukist mjög á
þessum tíma, heldur hefur nýt-
ingin einnig aukist. Á síðasta ári
var nýting herbergja á hótelum
og gistiheimilum 54,3%. Til
samanburðar var þessi nýting
46,2% árið 2009. Eins og mörg
undanfarin ár gistu Þjóðverjar
flestar nætur í fyrra, þá Bretar
og svo Bandaríkjamenn.
–þá
Samdráttur á
afla í mars
LANDIÐ: Fiskafli íslenskra
skipa dróst saman um 14,9%
á föstu verði í mars sl. saman-
borið við marsmánuð í fyrra.
Í tonnum talið dróst afli sam-
an um 53,6% og hefur mik-
ill samdráttur í loðnuafla þar
mest að segja. Botnfiskafli
jókst í mars um 10% miðað við
mars í fyrra. Uppsjávarafli var
mun minni í mars í ár en í sama
mánuði 2013, þrátt fyrir mikla
hlutfallslega aukningu í síld-
veiði og veiði á kolmunna. Þar
sem magnvísitalan tekur mið af
verðhlutföllum milli fiskteg-
unda og botnfiskaflinn er verð-
mætari en uppsjávaraflinn er
samdráttur aflans á föstu verði
mun lægri í prósentum talið
heldur en samdráttur aflans í
tonnum. –þá
Fór út af við Álftá
MÝRAR: Bílslys varð á Mýr-
um á sjötta tímanum þriðju-
daginn 15. apríl sl. þegar bíll
fór út af veginum við Álftá
skammt frá bænum Brúarlandi.
Ökumaðurinn var einn í bíln-
um og var hann fluttur með
þyrlu Landhelgisgæslunn-
ar sem fyrir tilviljun var á æf-
ingaflugi í nágrenninu. Öku-
maðurinn slasaðist nokkuð en
hann var fluttur til aðhlynning-
ar á Landsspítalann. Hann var
þó með meðvitund. Bíllinn er
mjög illa farin eftir slysið og er
talinn ónýtur að sögn lögreglu.
-hlh
Aflatölur fyrir
Vesturland
12. - 18. apríl.
Tölur (í kílóum) frá Fiski-
stofu
Akranes 2 bátar.
Heildarlöndun: 2.567 kg.
Mestur afli: Gári AK: 2.171
kg í tveimur löndunum.
Arnarstapi 1 bátur.
Heildarlöndun: 1.884 kg.
Mestur afli: Kiddi RE: 1.884
kg í tveimur löndunum.
Grundarfjörður 4 bátar.
Heildarlöndun: 77.788 kg.
Mestur afli: Hringur SH:
66.477 kg í einni löndun.
Ólafsvík 4 bátar.
Heildarlöndun: 30.056 kg.
Mestur afli: Kristinn SH:
12.419 kg í tveimur löndun-
um.
Rif 7 bátar.
Heildarlöndun: 168.391 kg.
Mestur afli: Tjaldur SH:
43.687 kg í einni löndun.
Stykkishólmur 1 bátur.
Heildarlöndun: 2.946 kg.
Mestur afli: Fjóla SH: 2.946
kg í tveimur löndunum.
Topp fimm landanir
á tímabilinu:
1. Hringur SH – GRU:
66.477 kg. 14. apríl
2. Tjaldur SH – RIF:
43.687 kg. 12. apríl
3. Örvar SH – RIF:
37.644 kg. 14. apríl
4. Rifsnes SH – RIF:
35.440 kg. 14. apríl
5. Saxhamar SH – RIF:
19.143 kg. 13. apríl
mþh
Björt framtíð hefur ákveðið að
bjóða fram lista í kosningum til
bæjarstjórnar í Snæfellsbæ sem
fram fara 31. maí næstkomandi.
Nöfn efstu manna á listanum voru
kynnt á fundi á mánudagskvöld.
Oddviti listans er Hallveig Hörn
leikskólaliði og hagfræðinemi en í
öðru sæti er Sigursteinn Þór Ein-
arsson húsasmiður og söngvari.
Þetta er í fyrsta skipti sem Björt
framtíð býður fram í Snæfellsbæ,
en þetta er annað framboð flokks-
ins sem kynnt hefur verið til leiks
í komandi sveitarstjórnarkosning-
um á Vesturlandi. Hitt framboðið
býður fram á Akranesi. Í tilkynn-
ingu frá framkvæmdastjórn Bjartr-
ar framtíðar í Snæfellsbæ segir að
ákvörðun um framboð hafi kom-
ið fram í kjölfar öflugra undirbún-
ingsfunda sem haldnir hafa verið að
undanförnu.
„Þar hefur verið farið yfir mál-
efni sveitarfélagsins, rýnt í þá góðu
vinnu sem unnin hefur verið af fyrri
bæjarstjórnum en jafnframt lagðar
inn þær áherslur sem félagsmenn
B.F. telja nýtast bæjarfélaginu best
til að verða enn betra samfélag en
nú er. Ætlun B.F. er að slík vinnu-
brögð séu sá grunnur sem að byggt
verði á í málefnavinnu næstkom-
andi bæjarstjórnar. Vinnubrögð
sem byggja á virku íbúalýðræði þar
sem hugmyndabanki, opnir íbúa-
fundir og atkvæðagreiðslur í kjöl-
far þeirra marka stefnu bæjarfélags-
ins okkar,“ segir í tilkynningu fram-
kvæmdastjórnar.
Efstu sjö sæti á lista Bjartrar fram-
tíðar í Snæfellsbæ líta þannig út:
1. Hallveig Hörn, leikskólaliði og
hagfræðinemi.
2. Sigursteinn Þór Einarsson,
húsasmiður og söngvari.
3. Gunnsteinn Sigurðsson, kenn-
ari, þroskaþjálfi og leikstjóri.
4. Helga Lind Hjartardóttir, náms-
ráðgjafi og verkefnastjóri.
5. Kolbrún Ósk Pálsdóttir, verka-
kona og frumkvöðull.
6. Birgir Tryggvason, verkamaður
og slöngutemjari.
7. Halldóra Unnarsdóttir, skip-
stjóri og frístundaleiðbeinandi.
hlh
Á fundi sveitarstjórnar Dalabyggð-
ar síðastliðinn þriðjudag vakti
Sveinn Pálsson sveitarstjóri máls á
því að Byggðastofnun hygðist færa
út verkefnið „Brothættar byggð-
ir“ til fleiri byggðarlaga. Umsókn í
verkefnið þarf að vera sameiginleg
frá sveitarfélagi, landshlutasamtök-
um sveitarfélaga og íbúasamtökum
þar sem þau eru til staðar. Jóhann-
es Haukur Hauksson oddviti Dala-
byggðar lagði til að óskað verði eft-
ir að því að Samtök sveitarfélaga á
Vesturlandi komi að umsókn um
þátttöku í verkefninu ásamt Dala-
byggð og var tillaga hans samþykkt
samhljóða á fundinum.
Markmið verkefnisins Brot-
hættar byggðir eru skilgreint þann-
ig: Að auka vitund fólks í brot-
hættum byggðarlögum um eigin
þátt í þróun samfélagsins, að virkja
frumkvæði íbúa og samtakamátt,
að gefa íbúum kost á að taka þátt í
forgangsröðun málefna og að stilla
saman strengi ríkis, sveitarfélags,
opinberra stofnana, atvinnulífs og
íbúa í ákvörðunum sem varða við-
komandi byggðarlög. Hingað til
hefur verkefnið verið í gangi í fjór-
um byggðarlögum: Raufarhöfn,
Bíldudal, Breiðdalshreppi og Skaft-
árhreppi. þá
Félagar í Bjartri framtíð á Akranesi
samþykktu framboðslista sinn ein-
róma á fundi mánudaginn 14. apríl
síðastliðinn fyrir komandi kosning-
ar til bæjarstjórnar í bænum. Það
er Vilborg Þórunn Guðbjartsdótt-
ir grunnskólakennari sem leiðir
listann en annað sætið skipar Svan-
berg Júlíus Eyþórsson verkamaður
hjá Elkem. Nöfn tíu efstu manna
á listanum má sjá hér að neðan-
verðu en í tilkynningu frá framboð-
inu kemur fram að framboðslist-
inn verði kynntur í heild sinni eft-
ir páska í kosningamiðstöð Bjartr-
ar Framtíðar, að Stillholti 16-18 á
Akranesi.
Ennfremur segir í tilkynningunni
að Björt framtíð á Akranesi sé opið,
grænt og frjálslynt stjórnmálaafl
sem leggur áherslu á að byggja upp
samfélag þar sem fólk nýtur jafnra
tækifæra, og hver og einn fái að
nýta hæfileika sína til virkni í fjöl-
breytilegu og lifandi bæjarfélagi.
Björt Framtíð vill sækja fram til
nýrra og fjölbreyttari atvinnuhátta
í bænum og hlúa að starfsumhverfi
og vexti þeirra sem fyrir eru. Fram-
boðið mun nota listabókstafinn
Æ líkt og önnur framboð Bjartrar
framtíðar á landinu.
Eftirtaldir skipa tíu efstu sæti
listans:
1. Vilborg Þórunn Guðbjartsdótt-
ir, grunnskólakennari
2. Svanberg Júlíus Eyþórsson.
verkamaður hjá Elkem
3. Anna Lára Steindal, verkefna-
stjóri Mannréttindamála
4. Kristín Sigurgeirsdóttir, skóla-
ritari
5. Starri Reynisson, framhalds-
skólanemi
6. Ásthildur Ósk Ragnarsdóttir,
húsmóðir og handverkskona
7. Þórunn María Örnólfsdóttir,
sagnfræðinemi
8. Bjarki Þór Aðalsteinsson, verka-
maður hjá Norðuráli
9. Kristinn Pétursson, kerfisstjóri
og grafískur hönnuður
10. Patrycja Szalkowicz, tónlistar-
kennari
hlh
Ráðhús Dalabyggðar. Ljósm. hlh.
Vilja taka þátt í verkefninu
„Brothættar byggðir“
Frambjóðendur Bjartrar framtíðar í Snæfellsbæ. Ljósm. af.
Björt framtíð býður fram í Snæfellsbæ
Frambjóðendur Bjartrar framtíðar á Akranesi rýna í framtíðina.
Listi Bjartrar framtíðar á Akranesi samþykktur